Tíminn - 20.10.1990, Qupperneq 10

Tíminn - 20.10.1990, Qupperneq 10
18 Tíminn Laugardagur 20. október 1990 Valgerður Hauksdóttir opnar sýningu í Norræna húsinu laugar- daginn 20. októbcr. Valgcrður sýnir þar grafíkmyndir og tcikningar. Sýningin er opin til 4. nóvcmbcr. Hana nú! Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi vcrður á morgun. Lagt af stað frá Digranesvcgi 12 kl. 10. Hvort scm himinninn cr stjömubjartur cða rcgnið bylur og vindurinn ólmast á laugardagsmorgni, þá hcldur gangan út á götumar. Setjið vckjaraklukkuna. Vcljið skótau og fatnað eftir vcðrinu. Markmiðið cr: Samvcra, súrcfhi, hreyfing. Nýlagað molakaffí. Félag eldri borgara Gönguhrólfar hittast á morgun kl. 10 að Hverfisgötu 105. Nýhöfn Sigurbjöm Jónsson opnar málvcrkasýn- ingu í Listasalnum Nýhöfn, Hafnarstræti 18, laugardaginn 20. október kl. 14-16. Á sýningunni em málverk unnin með ol- íu á striga á sl. 2 áram. Sigurbjöm cr fæddur árið 1958 á Akur- eyri. Hann lauk námi frá grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla Islands árið 1982. Hann stundaði framhaldsnám við Parsons School of Design í Ncw York 1983- 1985 og síðan citt ár við Ncw York Studio School. Sigurbjöm var mcð vinnu- stofú í Ncw York þar til hann flutti hcim fyrir tvcimur áram. Þetta er fýrsta einkasýnin Sigurbjöms á íslandi. Sýningin, scm cr sölusýning, cr opin virka daga frá kl. 10-18 og frá kl. 14-18 um helgar. Lokað á mánudögum. Henni lýkur 7. nóvember. Listhús Á morgun opnar Einar Þorláksson list- málari sýningu á málvcrkum í Listhúsi, Vcsturgötu 17, Rcykjavík. Sýndar verða 48 pastelmyndir, sýningin verður opin kl. 14-18 daglega til 4. nóv. nk. HEIMSMYND Tímaritið Heimsmynd cr komið út, glæsi- legt að vanda. Þetta tölublað cr fjölbrcytt að efni og cr þar m.a. að finna ítarlcga út- tekt Áma Blandon á kvennabósum og þeim konum sem lcnda í klónum á þeim. Ásdís Egilsdóttir fjallar um mæðraveldi Frá Félagi eldri borgara Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, sunnu- daginn 21. okt., kl. 14 frjálst spil og tafl. KI. 20 dansað. Skáldkynning hefst á ný þriðjudaginn 23. okt. kl. 15, að Hverfísgötu 105, þar munu Baldvin Halldórsson og Jón Júlíus- son lcsa úr verkum cftir Benedikt Grön- dal. Opnunarhátíð vegna félagshcimilis SEB verður laugardaginn 27. okt. og hcfst kl. 14 að Hverfisgötu 105. Miðapantanir í síma 28812. F.E.B. í Kópavogi heldur fclagsfúnd um lífeyris- og trygg- ingamál kl. 14 í dag að Auðbrekku 25, en ekki í nóvembcr cins og misritaðist í fféttabréfi. Kaffikonsert í Logalandi, Borgarfiröi Símon ívarsson gítarleikari og dr. Orthulf Pranner orgellcikari munu halda gítar- og klavikordtónlcika í Logalandi miðviku- daginn 24. októbcr kl. 21.00. Tónleikam- ir era á vegum Tónlistarfélags Borgar- fjarðar og marka þcir upphaf 25. starfsárs félagsins. Hlaðvarpinn, Vesturgötu 3b í dag verður opnuð sýning uppi á lofti í Hlaðvarpanum. Á sýningunni vcrður myndvcfnaður cft- ir Elísabetu H. Harðardóttur. Sýningin stendur til 30. okt. og er opin laugardag kl. 10-16, sunnudag kl. 14-17, þriðjud,- fóstud. kl. 12- 18. Ferðafélag íslands Sunnudagsferðir 21. október kl. 13: a. Fjöruferð fjölskyldunnar. Hvítanes- Brynjudalsvogur. Skemmtilegt fjöralall í Hvalfirðinum. Hugað að Iifríki fjörannar, m.a. kræk- lingi. Hemámsminjar f Hvítanesi skoðað- ar. Munið fjömlífsbók Ferðafélagsins. Seld með afslætti á kr. 500 í fcrðinni. b. Botnsdalur-Glymur Gengið að Glym, hæsta fossi landsins. Vcrð í ferðimar kr. 1.000, frítt f. böm m. fúllorðnum. Brottför frá Umferðarmið- stöðinni, austanmegin. og veltir fynr sér hver staða kvcnna verði í ffamtíðinni. Ólafúr Hannibalsson fjallar um Herluf Clausen og Laufey Elísabet Löve hefúr kynnt sér fyrirbærið Pakkhús postulanna. Tfska, bækur, listir, öllu þessu era gerð góð skil f Heimsmynd. Vaka i dekkjabransann Bflabjörgunarfélagið Vaka tók nýlega við rekstri dckkjaverkstæðisins í Mosfellsbæ en verkstæðið hét áður Holtadekk. Vaka mun reka þar alhliða dekkjaviðgerðaþjón- ustu fyrir fólks- og vörabfla og sclja ný, sóluð og notuð dckk og felgur. Verkstæðið verður opið alla virka daga ffá 8-19 og laugardaga Id. 9- 17. Olöf Jónsdóttir Fædd 24. ágúst 1903 Dáin 13. október 1990 Mánudaginn 22. október kl. 13.30 fer fram frá Fossvogskapellu útför Ólafar Jónsdóttur, Ánalandi 3, Reykjavík. Hún lést á Borgarspítal- anum, eftir tveggja daga veru þar. Ólöf var fædd að Drangshlíðardal í Austur- Eyjafjallahreppi, Rangár- vallasýslu. Foreldrar hennar voru hjónin Elín Kjartansdóttir og Jón Bárðarson, sem þar bjuggu frá 1898-1946. Hún var ein af átta börn- um þeirra hjóna, en fimm þeirra komust til fullorðinsára. Þorsteinn, sem áður bjó í Drangshlíðardal, en er nú búsettur í Skógum, er nú einn á lífi af þeim systkinum. Ólöf ólst upp í foreldrahúsum í Drangshlíðardal. Bærinn stendur í samnefndum dal milli Drangshlíð- arfjalls og Drangshlíðarheiðar. Frá bænum er útsýn til Skógarfoss hvergi fegurri. Þetta fallega og gróna umhverfi hefur haft mikil áhrif á hana sem unga stúlku og mótað skoðanir hennar til umhverf- isins. Þar vandist hún allri vinnu og vann að bústörfum eins og í þá daga tíðkaðist til sveita. Er hún var uppkomin flutti hún til Reykjavíkur og vann þar. Átti hún alla tíð heimili hjá Ragnhildi systur frá Drangshlíðardal sinni og Þorsteini Jakobssyni manni hennar. Eftir að Þorsteinn lést 1966 héldu þær systur saman heimili. Ég kynntist Ólöfu fyrir um það bil 25 árum, þegar vinkona mín, Sigurlín María Gísladóttir frænka hennar, átti heima á heimili þeirra. Það var notalegt að koma til þeirra. Heimil- islífið formfast og maður skynjaði vissa reisn og ró sem hvíldi yfir þeim. Þær víðlesnar og fróðar. Eftir að frænka þeirra, Sigurlína María Gísladóttir, giftist manni sín- um, Einari Magnússyni hárskera- meistara, og þau stofnuðu sitt eigið heimili, var alla tíð náin vinátta milli heimilanna. Þær systur sýndu þeim hjónum og þeirra börnum, þeim Þórhildi, Jóni Inga og Einari Rúnari, alveg einstaka tryggð og óeigingjarna umhyggju. Þeirra vel- ferð var þeim systrum sameiginlegt áhugamál. En þær systur fengu það launað í sömu mynt þegar þær höfðu ekki lengur heilsu til að halda sitt eigið heimili, sagði Sigurlína frænka þeirra upp starfi sínu, en hún var þá útivinnandi. Fór heim á heimilið og þau hjón tóku þær báð- ar til sín. Hlúðu að þeim og hjúkr- uðu af stakri alúð. Sem nú á dögum telst heldur til undantekninga, þó ekki sé meira sagt. Alltaf þegar ég hitti þær, voru þær að þakka og virða allt sem fyrir þær var gert. Fyr- ir tæpu ári, eða 25. nóvember 1989, lést Ragnhildur, var það Ólöfu mikill missir. Þó hún bæri sorg sína á hljóðan hátt, eins og hennar var sið- ur. Því svo samrýmdar voru þær að oft voru þær báðar nefndar, þó talað væri til annarrar. „Ragga og 011a.“ Hún var tilbúin til hinstu farar, sátt við allt og alla. Við hjónin minnumst hennar með virðingu og þökk. Blessuð sé minning hennar. Margrét Sigurðardóttir Karl Jakob Hinriksson Fæddur 12. október 1970 Dáinn 13. október 1990 Okkur systur langar að minnast frænda okkar, Karls Jakobs Hinriks- sonar, sem lést af slysförum 13. október sl. og jarðsettur er á Húsa- vík í dag. Frændsystkini okkar, þau Palla, Tóti og Kalli, ólust upp á Húsavík og þangað komum við reglulega í heimsóknir sem börn og unglingar og áttum saman ævintýralegar stundir með frændfólki okkar, svo að enn í dag er Húsavík alveg sér- stakur staður í huga okkar. En margt hefur breyst á aðeins ör- fáum orðum, mikið skarð verið höggvið í okkar litla frændsystkina- hóp. Bræðurnir Þórarinn og Karl eru nú báðir Iátnir, Þorsteinn lést í febrúar 1984, aðeins 22 ára að aldri, og nú Karl á svipuðu reki. Undarleg- ur er þessi heimur sem við lifum í og erfitt er að skilja af hverju þeir bræður deyja báðir í blóma lífsins. Þó stundum hafi liðið ár á milli þess sem við hittumst var alltaf eins og við hefðum hist í gær. Það var eitthvað alveg sérstakt við Kalla, kímnin í andlitinu og glettnin í aug- unum. Síðastliðið sumar í ágúst fór öll fjölskyldan saman til Húsavíkur og átti þar yndislega daga, einn þeirra var með Kalla. Þá sýndi hann okkur glaður nýja bátinn sinn og fór með okkur í siglingu um Flóann. Það var auðvelt að sjá hversu mikið hann unni náttúrunni. Húsavík og nátt- úran í kring var honum hugleikin. Hann lýsti fyrir okkur hinni undur- fögru náttlausu veröld á sumrin á Flóanum og við eyðibyggðirnar í Víkunum, Dalnum og Fjörðum. Hve hægt væri að gleyma sér á slíkum stundum og jafnan erfitt frá að hverfa til venjubundinnar vinnu á réttum tíma að morgni. Þessi dagur er okkur öllum ógleymanlegur og munum við geyma hann í minning- unni um Kalla frænda okkar. Og skín ei Ijúfast ævi þeirra yfir, sem ung d morgni lífsins staðarnemur, og eilíflega, óháð því sem kemur, í œsku sirtnar tignu fegurð lifir? (Tómas Guðmundsson) Elsku Svava, Hinrik, Elín, Palla og Svavar. Það er skrítið hvernig lífið heldur áfram sinn vanagang allt í kring, þó að sorgin sé svo mikil að hver dagur er ykkur heil eilífð. En ykkar líf heldur áfram og megi guð gefa ykkur styrk til að horfa fram á við og minnast fortíðarinnar með gleði yfir þeim árum sem þið áttuð með Kalla. Björg og Guðrún Rósa

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.