Tíminn - 20.10.1990, Blaðsíða 13
Laugardagur 20. október 1990
Tíminn 21
KVIKMYNDIR
Hlátursskjálftar
Skjálfti **l/2
Aftalhlutverk Kevin Bacon (footloos,
White Nights), Fred Word.
Sýnd í Laugarásbíói.
Aldurstakmark 16 ár.
í þessari bráðfyndnu hryllingsmynd,
sem gerist í smábænum Perfection,
sjáum við þá Kevin Bacon og Fred
Word í hlutverkum spaugilegra
verkamanna sem keppast við að fá
vinnu hvern og einn dag og taka
hverju sem til fellur. íbúar Perfecti-
on eru aðeins 14 og fá þeir því að lok-
um leið á starfinu og ákveða að flytj-
ast burt með sitt hafurtask, en um
svipaðar mundir er ungur jarðfræði-
stúdent að rannsaka óvenjulegar
jarðhræringar sem eiga sér stað all-
staðar þarna á svæðinu. f ljós kemur
að ofvaxnir sandormar valda þessari
röskun og ekki nóg með það heldur
eru þeir einnig byrjaðir að valda
stórvægilegri röskun á fólksfjölda
þarna og verður þetta til þess að
verkamennirnir fresta för sinni og
snúa vörn í sókn gegn sandormun-
um.
Myndin flokkast ekki með þessum
dæmigerðu hryllingsmyndum þar
sem áhorfandanum er haldið í helj-
argreipum út af stöðugri hættu á því
að ófreskjurnar stökkvi hreinlega á
þá þar sem þeir sitja, heldur er hún
afslöppuð og þægileg og umfram allt
launfyndin.
Handritið er nokkuð gott og komast
leikarar ágætlega frá hlutverkum
sínum án þess að nokkur persóna
slái þó í gegn í þessari mynd. Tækni-
brellur eru vel gerðar og þá sérstak-
lega hreyfmgar sandormanna fram
og aftur.
Á bláþræöi
Á bláþræði **
Aðalhlutverk Mel Gibson (Lethal
Weapon, Mad Max), Goldie Hawn
(Overboard, Foul play)
Laugarásbíó hóf fyrir skömmu sýn-
ingar á myndinni „Bird on a wire“
sem í íslenskri þýðingu útlegst ,Á
bláþræði. Myndin fjallar um Rick
Jarmin (Mel Gibson), rúmlega þrí-
tugan fyrrum hippa sem vitnar á
móti fíkniefnalögreglumönnum til
að bjarga eigin skinni. Hann fær
nýtt nafn og atvinnu og honum er
lofað fullri vernd af hálfu FBI. En
Adam var ekki langi í Paradís, eftir
15 ár hyggjast lögreglumennirnir ná
sér niðri á Rick og komast inn í
innsta hring hjá FBI. og eyða skjöl-
um sem sanna tilvist hans. Marian
Grace (Goldie Hawn) hittir Rick fyr-
ir í Detroit þar sem hann vinnur fýr-
ir sér sem bensínafgreiðslumaður og
þekkir hann aftur frá fyrri tíð. Mari-
an, sem er gömul kærasta Ricks frá
New York og núverandi lögfræðing-
ur, flækist þarna inn í morðtilræði
við Rick, flýr með honum og saman
fara þau í leit að þeim eina manni
sem getur hjálpað Rick að sanna til-
vist sína.
Mel Gibson kemst ágætlega frá sínu
hlutverki, hippans sem lætur hverj-
um degi nægja sína þjáningu, en
Goldie er þarna í rullu sem hún ætti
að þekkja, í hlutverki Ijóskunnar
seinheppnu sem við þekkum velflest
frá fyrri tíð. Handritið ristir ekki
djúpt og er það helsti galli myndar-
innar sem annars skilar markmiði
sínu ágætlega sem spennu- og grín-
mynd og hefur hún það sér til fram-
dráttar að kvikmyndataka er oft á
tíðum til fyrirmyndar.
MENNTAMALARÁÐUNEYTIÐ
auglýsir styrki
úr Þróunarsjóði grunnskóla
skólaáríð 1991-92.
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að nýjungum, tilraun-
um og nýbreytni i námsefni, kennsluaðferðum, náms-
mati og skipulagi náms og kennslu í grunnskólum
landsins.
Samkvæmt reglum sjóðsins er heimilt annað hvert ár
að tiltaka ákveðinn þátt ( starfsemi grunnskóla sem
hefur forgang það ár. Hefur verið ákveðið að umsókn-
ir um verkefni í list- og verkgreinum njóti að öðru jöfnu
forgangs við næstu úthlutun.
Umsóknarfresturertil 1. desember 1990.
Umsóknum skal fýlgja ítarleg lýsing á verkefninu og
tilgangi þess og áætlun um framkvæmd.
Umsóknareyðublöð ásamt reglum sjóðsins og nánari
upplýsingum fást á fræðsluskrifstofum og í mennta-
málaráðuneytinu.
Barn sem situr í barnabílstól
getur sloppið við meiðsl
í árekstri!
mÉUMFERÐAR
Uráð
' ■. t •. s
iS&Wiíií
LANCASTER
í ÞAÐ HEILAGA
Burt Lancaster gifti sig í
þriðja sinn í síðasta mán-
uði. Brúðurin heitir Sus-
an Scherer og er nákvæm-
lega helmingi yngri en
brúðguminn, hún er 38
ára og hann 76.
Susan og Burt hafa þekkst í
fimm ár. Þau kynntust í veislu
árið 1985 skömmu eftir að Burt
sleit sambandi við vinkonu sína
til 17 ára, Jackie Bones.
Skömmu eftir að þau kynntust
bað Burt Susan um að verða
einkaritari sinn og samband
þeirra varð stöðugt nánara og
leiddi loks til þess að þau lofuðu
að standa saman í blíðu og
stríðu það sem eftir væri.
Burt á fimm börn og eru fjög-
ur þeirra eldri en Susan. Þau
eru mjög ánægð með ráðahag
föður síns og segja hann virðast
tíu árum yngri. Burt hefur ver-
ið átt við heilsuleysi að stríða
og hefur oftar en einu sinni ver-
ið ógnað af krabbameini. Hann
segir að sér líði vel því hann
hagi lífi sínu í samræmi við
heilsufarið.
Brúðkaupið var einföld og lát-
laus athöfn, aðeins börn Burts
Lancaster og 21 árs gamall son-
ur Susan og foreldrar hennar
voru viðstödd.
Tveimur dögum eftir brúð-
kaupið héldu þau til Suður-
Karólínu, en þar er verið að
taka upp sjónvarpsþætti sem
Burt leikur aðalhlutverkið í
ásamt Sidney Poitier. Lancast-
erhjónin ákváðu að fresta brúð-
kaupsförinni þar til upptökum
á þáttunum lýkur.
Burt hafði haldið því fram að
hann væri orðinn of gamall til
að gifta sig aftur, en þegar Gene
Kelly, 77 ára, giftist unnustu
sinni, 31 árs, í sumar, ákváðu
þau að aldurinn skipti ekki máli
og drifu sig í hnappelduna.
Brúðhjónin brostu sínu breiðasta að iokinni athöfninni.
1