Tíminn - 20.10.1990, Page 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Holnarhusinu v TrYggvogotu,
S 28822
SA
L ÍBY
SAMVINNUBANKINN
I BYGGÐUM LANDSINS
^lNISSAN
Réttur bíll á
réttum stað.
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöföa 2
Slmi 91-674000
9
I iniinn
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER1990
Tillögur heilbrigðisráðherra um Samstarfsráð sjúkrahúsanna í Reykjavík mæta harðri andstöðu:
Heilbrigðisráðherra sakaður
um óheiðarleg vinnubrögð
Fjórír nefndarmenn úr nefnd, sem heilbrígðisráðherra skipaði á
síðasta árí til að gera tillögur um aukið samstarf sjúkrahúsanna
í Reykjavík, gagntýna harðlega vinnubrögð Guðmundar Bjarna-
sonar heilbrígðisráðherra og Finns Ingólfssonar, aðstoðar-
manns hans, en fyrr í vikunni kynnti ráðherrann frumvarp um
stofnun Samstarfsráðs sjúkrahúsanna, sem er byggt á niður-
stöðu nefndarínnar.
Fjórmenningarnir, borgarfulltrú-
arnir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og
Ámi Sigfússon og framkvæmda-
stjóramir Logi Guðbrandsson og
Jóhannes Pálmason, gagnrýndu
harðlega vinnubrögð formanns
nefndarinnar, Finns Ingólfssonar,
aðstoðarmanns ráðherra. Þeir
bentu m.a. á að nefndin hefði ekki
haldið fund í allt sumar. Nefndar-
starfinu hefði verið lokið á fundi
sem var haldinn 10. október síðast-
liðinn, en þar hefði Finnur reynt að
fa nefndina til að samþykkja tillögu
sem gerði ráð fyrir að spítalarnir
þrír yrðu settir undir eina stjórn og
stjómir spítalanna þar með gerðar
valdalausar.
Finnur Ingólfsson sagði í samtali
við Tímann að hann hefði mætt á
þennan síðasta fund nefndarinnar
með það í huga að nefndin skilaði
þremur álitum. Hann sagðist hafa
metið stöðuna svo að nefndin gæti
ekki komist að sameiginlegri niður-
stöðu, úr því sem komið var. ,Á
fundinum komu hins vegar fram ný
viðhorf, sem leiddu til þess að ég
lagði mig fram um að ná samkomu-
lagi í nefndinni. Það tókst sam-
komulag um að setja á stofn sam-
starfsráð þessara þriggja sjúkrahúsa
í Reykjavík, sem fái það hlutverk að
móta framtíðarsteftru sjúkrahús-
anna og gera þróunar- og fjárfest-
ingaáætlanir fyrir þau og stuðla að
sem hagkvæmastri verkaskiptingu
milli þeirra. í mínum huga var það
ákaflega mikilvægt að menn skyldu
ná saman um að breyta heilbrigðis-
þjónustulögunum í þá átt að þetta
ráð fengi lagalega stöðu. Á fundin-
um lagði ég áherslu á að ég gæti
ekki ábyrgst að ráðherra færi alger-
lega eftir nefndarálitinu," sagði
Finnur.
Ámi Sigfússon, formaður stjómar
Borgarspítalans, sagði að með til-
lögum heilbrigðisráðherra væri ver-
ið að skerða stórkostlega valdsvið
stjóma spítalanna. Hann sagðist
telja að með þessu væri ríkið að
stíga eitt skref í þá átt að sölsa undir
sig Borgarspítalann. Finnur sagði
þetta alrangt. í nefndarálitinu og í
væntanlegu ffumvarpi væri einmitt
lögð áhersla á að vald stjórnanna
yrði óbreytt. Allar tillögur, sem lagð-
ar verða fram í samstarfsráðinu,
þyrftu einnig að fara fyrir stjómir
spítalanna.
Ámi Sigfússon og Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson sögðust ekki sjá að það
hvetti spítalana til að hagræða eða
spara, þó að til þeirra væri nú veitt
einni sameiginlegri upphæð. Þeir
töldu að sú ráðstöfun væri aðeins
fallin til þess að valda ruglingi og
vandræðum. Þeir lögðu einnig
áherslu á að upphæðin væri of lág
og bentu í því sambandi á að spítal-
arnir yrðu á þessu ári reknir með
umtalsverðum halla.
Á blaðamannafundinum í gær
komu fram allt aðrar túlkanir á til-
lögum ráðherra en fram komu á
blaðamannafundi, sem ráðherra
hélt fyrr í vikunni, þar sem tillög-
urnar voru kynntar. Fjórmenning-
arnir voru spurðir hvort ekki hefði
verið eðlilegra af þeim að ganga á
fund ráðherra og óska skýringa á til-
lögum hans og vinnubrögðum,
frekar en að efna til blaðamanna-
fundar til að mata fjölmiðla á upp-
lýsingum sem ganga þvert á það
sem ráðherra hefúr þegar sagt í
þessu máli. Þeir svöruðu því til að
þeim hefði ekki verið boðið á fund-
inn, þar sem tillögumar voru
kynntar, og vissu því ekki betur en
að þeirra túlkanir væru þær réttu.
Forráðamenn Arnarflugs hafa óskað eftir því að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta:
Skuldir skipta hundruðum milljóna
„Það er að ljúka ákveðnum kafla í flugsögunni, sem er með því að
stjóm Amarflugs óskaði eftir gjaldþrotaskiptum á félaginu í dag,“
sagði Krístinn Sigtryggsson, framkvæmdastjóri flugfélagsins, á
fundi með fréttamönnum í gær. Gjaldþrot Amarflugs er stórt, félag-
ið skuldar nokkur hundmð milljónir og margir aðilar tengjast því,
lánardrottnar, hluthafar og ábyrgðarmenn.
Geir Gunnarsson stjómarformaður og Kristinn Sigtryggsson fram-
kvæmdastjóri tilkynntu í gær að Amarflug hefði óskað eftir gjaldþrots-
meðférð. Tímamynd: Ami Bjama
Stærstu lánardrottnar eru ríkissjóð-
ur og hollenska flugfélagið KLM, og
reikna má með því að á ríkissjóð falli
sjálfkrafa um 120 milljónir. Beiðnin
er nú í höndum borgarfógeta og má
vænta úrskurðar eftir helgi.
Ekki er enn vitað hversu miklar
skuldir Arnarflugs eru, þar sem nú er
unnið að því að gera bókhaldið upp.
Þó er Ijóst að þær skipta hundruðum
milljóna. Eignir félagsins voru hins
vegar metnar á 130 til 150 milljónir í
þeim gögnum, sem skiptaráðanda
voru send. „Það þjónar engum til-
gangi að vera að fjalla hér um tölur,
en miðað við að þetta verði hreint
gjaldþrot, þá eru þetta dálítið stórar
upphæðir," sagði Kristinn, þegar
hann var spurður nánar að því
hversu miklar skuldir félagsins væru.
í máli hans kom þó fram að skuldir
félagsins umfram eignir væru ekki
undir 500 til 600 milljónum króna.
Stærstu lánardrottnar þess eru, sem
áður sagði, ríkið og hollenska flugfé-
lagið KLM. Má reikna með að á ríkis-
sjóð falli á bilinu 100 til 120 milljón-
ir og álíka mikið á KLM, eða um 110
milljónir.
Eins og kunnugt er hætti Arnarflug
flugrekstri hinn 31. ágúst s.l. og
Flugleiðir tóku við flugi Arnarflugs
til 1. nóvember. Þessa tvo mánuði
fékk Arnarflug til fjárhagslegrar end-
urskipulagningar, en þann tíma
töldu forsvarsmenn félagsins of
stuttan. Leitað var leiða til að rétta fé-
lagið við, m.a. var rætt við lánar-
drottna og starfsfólk um lausnir.
Þann 8. október s.l. sótti félagið um
greiðslustöðvun í tvo mánuði, sem
yar hafnað. Vonast hafði verið til að
ísflug myndi fá flugleiðir Arnarflugs
og að síðar, þegar félagið væri búið að
rétta úr kútnum, myndi það samein-
ast ísflugi. Þar sem hvorugt gekk eft-
ir, var um fátt að ræða og því fór sem
fór. Forráðamenn féiagsins telja hins
vegar að hægt hefði verið að komast
hjá gjaldþroti. „Við vorum búnir að
leiða líkur að því, að með því að fara
hina leiðina hefði jafnvel mátt kom-
ast hjá gjaldþroti," sagði Kristinn.
Geir Gunnarsson, stjórnarformaður
Arnarflugs, sagði þá leið, að biðja um
greiðslustöðvun, hafa verið til að
tryggja betur stöðu lánardrottna,
þannig að meira fengist úr eignum
félagsins. ,Annað, sem við vildum
gera með því að fara í greiðslustöðv-
un og vinna að því að ísflug næði
þessum flugleiðum, var að tryggja að
starfsfólk okkar fengi vinnu við flug-
rekstur, því þar er um mjög sérhæfða
starfsemi að ræða.“ Hann sagði að
með þeirri ákvörðun samgönguráð-
herra, að afhenda Flugleiðum flug-
leyfin, þá fórnaði hann þeim mögu-
leika að félagið gæti selt eignir sínar
á einhverju raunmarkaðsverði. Nú
sæti ríkið hins vegar uppi með allar
þær skuldir sem hefði verið hægt að
komast hjá, t.d. væru forgangslauna-
kröfur milli 70 og 80 milljónir, að
meðtöldum lífeyri starfsmanna.
Gjaldþrotið hefur átt sér langan að-
draganda og má segja að hægt og ró-
lega hafi sigið á ógæfuhliðina. Krist-
inn segir, að þegar hann kom inn í fé-
lagið fyrir 4 árum síðan, hafi menn
verið að hefja björgunaraðgerðir á fé-
laginu, m.a. með aðstoð ríkisins.
Hann sagðist hafa talið að hið opin-
bera yfirleitt myndi sýna velvilja í
garð félagsins. „Það verður að segjast
eins og er, að þegar ég settist hér nið-
ur og fór að vinna, kom heldur betur
hið gagnstæða í ljós. Það er nokkurn
veginn alveg sama hvar við höfum
borið niður, hvort sem var varðandi
fjármál eða aðstöðu félagsins til að
keppa á markaðinum, við höfum all-
staðar rekist á veggi," sagði Kristinn.
Hann sagði að margir hafi reynt að
gera það, sem gæti orðið til bjargar
félaginu. „En viðskiptin við stjórn-
völd og stór skuldabaggi, sem félag-
inu fylgdi, gerðu ókleift að klára mál-
ið.“
Geir tók í sama streng og taldi stöðu
félagsins í dag vera vegna áhugaleys-
is stjórnvalda fyrir samkeppni á eðli-
legum grundvelli. „Það sem verður
nú framundan, ætla ég að vona, rís
upp innan tíðar annað flugfélag sem
kemur til með að veita samkeppni og
verður þá um leið kjarabót fyrir ís-
iendinga."
Það er Ijóst að þetta gjaldþrot kem-
ur illa við marga hluthafa félagsins,
sem voru orðnir um 2000 þegar upp
var staðið. Það var því að mörgu leyti
táknrænt í upphafi fréttamannafund-
arins í gær, að einn blaðamaður ætl-
aði að fá sér gosdrykk í kæliskáp á
kaffistofu Arnarflugs, og hafði hann
látið í gosmaskínuna tilskilda pen-
inga. Honum varð að vonum brugð-
ið, er hann fékk engan gosdrykk, og
þegar hann leitaði skýringa fengust
þau svör að vélin tæki yfirleitt við
peningum án þess að láta nokkuð í
staðinn. -hs.