Tíminn - 23.10.1990, Blaðsíða 8

Tíminn - 23.10.1990, Blaðsíða 8
8 Tíminn Þriðjudagur 23. október 1990 Þriðjudagur 23. október 1990 Tíminn 9 mm Virðulegi forseti, góðir íslendingar. Að vori verður kosið til Alþingis. í þessari stefnuræðu mun ég því ekki síst lýsa þeim ásetningi ríkisstjórnarinnar að skila góðu búi. Ég mun fjalla um þann mikla árangur, sem náðst hefur undanfarin tvö ár, ekki síst í efna- hags- og atvinnumálum, og það markmið stjórnarflokkanna að treysta það jafnvægi sem ríkir. Þannig er fenginn grundvöllur til nýrrar sóknar í atvinnu- og byggðamálum sem ríkis- stjórnin gerir ráð fyrir að verði fjallað um á Alþingi í vetur. Jafnvægi í efnahagsmálum og hagvöxtur veita svigrúm til að taka á ýmsum viðfangs- efnum í velferðarkerfinu, sem úrskeiðis hafa farið á undanförnum árum og áratugum og ekki verður lengur dregið kð lagfæra. Á því tel ég rétt að vekja athygli. Einnig er nauðsynlegt að fjalla um þá mikil- vægu alþjóðlegu samninga sem við íslending- ar tökum nú þátt í. Þeir geta ráðið úrslitum um framtíð okkar sem sjálfstæðrar þjóðar. Þegar ný ríkisstjórn tók við í lok september 1988 blasti við vaxandi verðbólga, hrun at- vinnulífsins og stórkostlegt atvinnuleysi. Á ársfundi um haustið tilkynntu Samtök fisk- vinnslustöðva yfirvofandi stöðvun, enda söfn- uðu útflutningsatvinnuvegirnir óviðráðan- legum skuldum. Alvarlegast var að í þeirri rík- isstjórn, sem þá hrökklaðist frá, að engin samstaða var um nauðsynlegar aðgerðir. Þá var ekki ofsagt að Róm brynni. Þeir flokkar, sem þá mynduðu ríkisstjórn, ákváðu að vinna þjóðina skref fyrir skref burt frá hengifluginu. Það var gert með aðhalds- samri efnahagsstefnu og markvissri leiðrétt- ingu á gengi íslensku krónunnar, þannig að ekki ylli nýrri verðbólguöldu og kollsteypu í efnahagsmálum. Samtímis var ráðist í víð- tækari fjárhagslega endurskipulagningu út- flutningsatvinnuvega en nokkru sinni fyrr. Það var óhjákvæmilegt til að koma í veg fyrir hrun. Sú aðgerð var gagnrýnd af stjórnarand- stöðunni, enda ekki í anda frjálshyggjunnar, þar sem kylfa er látin ráða kasti. Hlutafjársjóður hefur fyrir nokkru lokið störfum og Átvinnutryggingarsjóður útflutn- ingsgreina er að fjalla um síðustu málin. Ríkisstjórnin var endurskipulögð í septem- ber 1989. Ný ríkisstjórn hefur byggt á stefnu þeirrar sem á undan sat, en með vaxandi áherslu á uppbyggingu og nýsköpun í at- vinnulífinu. Það er gert á grundvelli aukins jafnvægis í efnahagsmálum. Það ágæta samstarf, sem náðst hefur á milli stjórnvalda og fulltrúa verkalýðshreyfingar og launþega, atvinnurekenda og bænda, hefur reynst afar mikilvæg. Með því samstarfi og samningi þessara aðila í febrúar sl. náðist sú þjóðarsátt sem tryggt hefúr efnahagslega end- urreisn. Sérstaklega er lofsverður sá mikli skilningur sem Iaunþegar og bændur hafa sýnt á nauð- syn þess að kveða niður verðbólgudrauginn. Með því er ég ekki að gera lítið úr hlut at- vinnurekenda. Á þeim brann verðbólgueldur- inn hvað heitast. Hins vegar er það sjaldan nefnt hvað ríkissjóður hefur lagt til þessara mála. Við gerð kjarasamninganna í febrúar sl. var ákveðið að auka útgjöld til niðurgreiðslna og félagslegra umbóta til lækkunar á fram- færslukostnaði. Samtals námu þau útgjöld um einum milljarði króna á ársgrundvelli. Þetta var nauðsynlegt til þess að koma í veg fyrir kjaraskerðingu, sem launþegar hefðu að öðrum kosti orðið að þola. Án þessa hefði ekki úr samningunum orðið. Því er að vonum fagnað að rauða strikið í september stóðst nokkurn veginn. Svo varð þó ekki án sérstakra aðgerða stjórnvalda. Frá janúar til október hefur vísitalan hækk- að um 5,7 af hundraði. Minnst hefur hækkun- in orðið á innlendum landbúnaðarafurðum, 1,4 af hundraði, og á öðrum innlendum mat- vælum, 1,3 af hundraði. Hins vegar hefur inn- flutt matvara hækkað um 5,7 af hundraði og aðrar innfluttar vörur um 9,2 af hundraði, sem er talsvert umfram erlenda verðbólgu. Opinber þjónusta hefur aðeins hækkað um 4,2 af hundraði en önnur þjónusta um 11,2 af hundraði. Þar sem verðmyndunin er frjálsust hefur hækkunin orðið mest, því miður. Lítil hækk- un á innlendum landbúnaðarafurðum og op- inberri þjónustu hefur því í raun ráðið úrslit- um og bjargað þjóðarsáttinni. Til þess að rauða strikið í september því sem næst stæðist, ákvað ríkisstjórnin jafnframt að flýta niðurfellingu virðisaukaskatts af bókum og fella niður virðisaukaskatt af viðhalds- vinnu við íbúðabyggingar. Þetta dró úr hækk- un framfærsluvísitölu um u.þ.b. 0,6 hundr- aðshlutastig og kostar ríkissjóð nokkur hundruð milljónir króna á ársgrundvelli. Því fer fjarri að ég sjái eftir þessum útgjöld- um ríkissjóðs. Aðgerðirnar tókust vel og voru nauðsynlegar til að ná þeim árangri í barátt- unni við verðbólguna, sem að var stefnt. Þó verður að hafa í huga að ríkissjóður er sam- eiginlegur sjóður allra landsmanna og honum er ætlað að standa undir sameiginlegum þörf- um velferðarþjóðfélagsins. Af þeim ástæðum eru því takmörk sett, sem unnt er að leggja á ríkissjóð án þess annaðhvort að lækka skatta eða draga úr þjónustu. Ríkisstjórnin hefur talið sér skylt að koma með öllum ráðum í veg fyrir að þjóðarsáttin brysti og víxlverkun launa og verðlags hæfist á ný. Framkvæmd kjarasamnings, sem ríkis- valdið hafði áður gert við Bandalag háskóla- menntaðra ríkisstarfsmanna, reyndist erfið við þessar aðstæður. Því miður tókst ekki samkomulag við BHMR um að fresta leiðrétt- ingu, sem af samanburði á kjörum háskóla- menntaðra manna kynni að leiða, fram í sept- ember að ári, eða með öðrum orðum þar til þjóðarsáttinni lyki. Þegar það brást, átti ríkis- stjórnin ekki annan kost en aö fella úr gildi þau ákvæði kjarasamningsins sem valdið gátu meiri launahækkunum en samningar á hin- um almenna vinnumarkaði gerðu ráð fyrir. Það leiddi einnig til breytinga á nýgerðum kjarasamningi við flugumferðarstjóra. Ríkisstjórnin gerir ráð fyrir því að þeim sam- anburði, sem hafinn var á kjörum háskóla- menntaðra manna, verði haldið áfram og honum lokið, þannig að hann geti legið til grundvallar við gerð næstu kjarasamninga. Ég vil láta í Ijós þá skoðun mína að háskóla- menntaðir menn ekki síður en aðrir íslend- ingar, verða að njóta svipaðra kjara hér og þeim bjóðast í öðrum vestrænum löndum. Ég trúi því ekki að íslensk þjóð vilji una því að verða fyrst og fremst útflytjendur hráefnis, hvort sem það er óunninn fiskur eða ál. Nú- tímalífskjör byggja á þekkingu. Því miður er þekkingarflótti héðan orðinn talsverður. Hann verður að stöðva. Að öðrum kosti munu lífskjör hér á landi verða lakari en í öðrum vestrænum löndum. Þrátt fyrir þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að tekjur ríkissjóðs af bensíni skuli ekki hækka, þótt mikil hækkun hafi orðið á innflutnings- verði, mun bensínhækkunin valda því að farið verður yfir rauða strikið í nóvember. Vonandi leiðir sú óviðráðanlega hækkun ekki til víxl- hækkana launa og verðlags. Hafa verður í huga að viðskiptakjör versna mjög við olíu- verðshækkunina og falla við það að öllum lík- indum niður fyrir viðmiðun kjarasamning- anna. Það er fullkomlega óeðlilegt að olíu- verðshækkun í heiminum verði tilefni sér- stakra launahækkana hér á landi. Auk þess verður að gera ráð fyrir að umrædd hækkun á olíuvörum sé tímabundin. Ef ekki verða víxlhækkanir verðlags og launa af völdum olíunnar, telur Þjóðhagsstofnun að verðbólga á næsta ári verði um 6-7 af hundr- aði. Áætlað er að laun hækki um 8 af hundraði eða með öðrum orðum að kaupmáttur aukist. Hefjist víxlhækkanir hins vegar mun gengi ís- lensku krónunnar eflaust láta undan síga. Af- leiðingarnar þekkjum við og vitum því að til mikils er að vinna. Sá mikli árangur sem náðst hefur í efnahags- málum kemur fram á mörgum sviðum. Þrátt fyrir samdrátt í efnahagslífmu á undanförn- um árum hefur tekist að koma á mun betra jafnvægi í utanríkisviðskiptum þjóðarinnar en verið hefur um áraraðir. Sem dæmi má nefna að á sl. ári náðist sá merki áfangi að um- talsverður afgangur varð af vöruskiptum við útlönd og dró því mjög úr viðskiptahalla. Hann varð þó 1,6 af hundraði sem fyrst og fremst stafar af vaxtagreiðslum til útlanda. Á þessu ári verður einnig afgangur af vöru- skiptum, en viðskiptahalli líklega um 2 af hundraði. Minni viðskiptahalla er spáð fyrir árið 1991. Vegna viðskiptahallans hafa erlendar skuldir vaxið lítillega, jafnvel þótt ríkissjóður hafi fullnægt lánsfjárþörf sinni innanlands. Er- lendar skuldir eru nú um 50 af hundraði landsframleiðslunnar. Greiðslubyrði af er- lendum lánum hefur aftur á móti lækkað nokkuð vegna lægri vaxta erlendis. Meðal mikilvægustu verkefna er að lækka er- lendar skuldir. Að því er lagður grundvöllur með jafnvægi í efnahagsmálum og aukinni framleiðslu. Efnahagsbatinn kemur einnig fram í lækkun vaxta og bættri stöðu bankakerfisins. Fjár- magnskostnaður fyrirtækja og einstaklinga hefur lækkað verulega. Það geta allir, sem eitthvað skulda, staðfest. Afkoma fjármála- stofnana gefur til kynna að vextir mættu enn lækka. Seðlabankanum ber lagaskylda til að fylgjast með því. í málefnasamningi ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að afnema lánskjaravísitölu, þegar árshraði verðbólgu er orðinn 10 af hundraði í 6 mánuði eða lengur. Um þetta hefur verið rætt við Seðlabankanna og er beðið eftir til- lögum hans. Um þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar er nokkuð deilt. Fjármagnseigendur vilja áfram njóta þess öryggis sem lánskjaravísitalan veit- ir, a.m.k. að nafninu til. Afnám hennar er þó að mínu mati óhjákvæmilegt. Skal ég nefna þrennt því til stuðnings. í fyrsta lagi er óumdeilanlegt að verðtrygg- ing fjármagns stuðlar að víxlverkun verðlags og launa, ef verðbólguskriða fer á annað borð af stað. því falla verulega borið saman við aðrar þjóð- ir. Ríkisstjórnin hefur því lagt áherslu á að leita leiða til að breikka grundvöll atvinnulífsins og skapa atvinnutækifæri. Með því jafnvægi, sem náðst hefur í efnahagsmálum, eru nú til þess forsendur. Unnið er að því að móta stefnu í atvinnumál- um og munu tillögur í þeim efnum lagðar fyr- ir Alþingi f vetur. Tími minn leyfir ekki að ræða þau mál ítar- lega nú. Til þess verður hins vegar væntanlega svigrúm síðar. Ég vil leggja áherslu á þá bjarg- föstu skoðun mína að full ástæða sé til bjart- sýni ef rétt er á málum haldið. Landið býður upp á mikla kosti. Með dugnaði og þekkingu geta þeir orðið óþrjótandi uppspretta atvinnu og tekna. Undanfarna áratugi hefur mikið verið að því Stefnuræða forsætisráðherra, Steingríms Hermannssonar: Grund- völlur hefur skapast til nýrrar sóknar í efnahags- og atvinnumálum: Treystum það jafnvægi sem ríkir í öðru lagi krefjast launþegar verðtryggingar launa ef fjármagnseigendur eiga að njóta slíks. Það má ekki gerast á ný. Þá væri verð- bólguskriðan endurvakin. f þriðja lagi stefnum við íslendingar að því að auka frelsi til fjármagnsflutninga og tengjast þannig erlendum fjármagnsmörkuðum og höfum reyndar þegar stigið mikilsverð skref í þá átt. Því er nauðsynlegt að hér á landi séu mönnum búnar svipaðar aðstæður til að ávaxta fé sitt og þar. Hvergi í vestrænum lönd- um er almenn verðtrygging fjármagns, og sums staðar er slíkt jafnvel bannað með lög- um. Loks má reyndar vekja athygli á því að sem betur fer hafa kaup á hlutabréfum aukist mjög, enda er almenningur óspart hvattur til þess að ávaxta þannig fé sitt. Hlutabréf eru þó ekki verðtryggð. Hvers vegna þarf annað að gilda á lánamarkaði? Ég spyr. Þegar horfur voru hvað verstar í atvinnumál- um þjóðarinnar fyrir u.þ.b. tveimur árum, var spáð miklu atvinnuleysi. Var jafnvel talið að það gæti orðið 4-5 af hundraði um sl. áramót. Því hefúr þó tekist að afstýra, sem betur fer. Atvinnuleysi hefur þó orðið allt að 2 af hundr- aði og nokkru meira á einstökum stöðum. Horfur eru einnig á því að atvinnuleysi geti aukist, m.a. vegna samdráttar í framkvæmd- um, ekki síst á vegum hins opinbera og einn- ig varnarliðsins. Alvarlegast horfir þó að mati Þjóðhagsstofn- unar um vöxt landsframleiðslunnar. Á undan- förnum 10 árum hefur landsframleiðslan hér aðeins aukist um 22 af hundraði en á sama tíma um 34 af hundraði að meðaltali í löndum Efnahags- og framfarastofnunarinnar. Horfið er því það forskot sem náðist á upp- gripaárunum eftir útfærslu fiskveiðilögsög- unnar, einkum á 8. áratugnum. Auk þess telur Þjóðhagsstofnun ekki unnt að gera ráð fyrir meiri vexti landsframleiðslu á næstu árum en u.þ.b. 1,5 af hundraði á ári að meðaltali. Þetta stafar ekki síst af því að fiskimiðin eru nánast fullnýtt. Þetta er að- eins um helmingur af þeim hagvexti sem gert er ráð fyrir í öðrum vestrænum löndum. Lífskjörin, eins og þau eru mæld á hinn hefð- bundna efnahagslega mælikvarða, mundu Eitt stærsta atriði samninganna varðar varnir gegn mengun og umhverfisspjöllum. Eftir ítarlegar athuganir hefur umhverfisráð- herra lagt fyrir ríkisstjórn tillögur um há- mark leyfilegra úrgangsefna frá verksmiðj- um. Þau mörk verða f samræmi við ströng- ustu kröfur sem gerðar eru í Evrópu. Strang- ar kröfur verða einnig gerðar um alla vinnuaðstöðu. Mengunarvarnir eru vafalaust eitt mikilvæg- asta atriði þessara samninga. Fátt er mikil- vægara en að varðveita og bæta það góða um- hverfi sem við, sem betur fer, njótum. Orkusamningurinn verður að sjálfsögðu gerður af stjórn Landsvirkjunar. Við hann eru stærstu fjárhagshagsmunirnir tengdir. Samningamenn Landsvirkjunar leggja til að orkuverðið verði tengt álverði án lágmarks eða hámarks. Með þessu er áhætta tekin. í álver verður reist á Keilisnesi, þótt sú ákvörð- un auki á þann vanda sem við er að stríða. Af þessum ástæðum skipaði ég fyrr á árinu nefnd með fulltrúum allra stjórnmálaflokk- anna til þess að gera tillögur um nýja stefnu í byggðamálum. Á vegum nefndarinnar hefur mikið verið unnið og vænti ég álits frá henni fljótlega. Sömuleiðis hef ég skipað nefnd til að skoða skipulag Byggðastofnunar. Jafnvægi í byggð landsins er þjóðinni afar mikilvægt, ekki síður þéttbýlinu en strjálbýl- inu. Breytinga er þörf ef það á að nást. Ég nefni aðeins fáein atriði: Framfærslukostnaður þarf að vera svipaður um land allt. Nú eru ýmsar mikilvægar nauð- synjar á sama verði hvar sem er á landinu. Svo er t.d. um allar innlendar landbúnaðarafurðir og bensín og olíur. Það sama þarf að vera með raforku, ekki síst til upphitunar, og raunar til Steingrímur Hermannsson, á Alþingi. unnið að koma á fót orkufrekum iðnaði hér á landi. Þótt þrjú orkufrek fyrirtæki hafi risið, hefur þessi þróun þó gengið hægar en margir gerðu ráð fyrir. Staðreyndin er að erlendir að- ilar hafa ekki beðið f biðröð við bæjardyrnar, e.t.v. sem betur fer. Með tilliti til þess að ekki er lengur unnt að gera ráð fyrir hagvexti á grundvelli fiskveiða og vinnslu, sem nálgast það sem var eftir útfærslu fiskveiðilögsögunn- ar, hafa síðustu ríkisstjórnir talið nauðsynlegt að leggja áherslu á nýtingu orkulinda landsins til orkufreks iðnaðar. Þessi viðleitni er nú loks að bera árangur með samningi um byggingu 200.000 lesta álvers. Eins og fram kemur í skýrslu þeirri um stöðu álmálsins, sem iðnaðarráðherra hefur lagt fyr- ir Alþingi, eru samningar komnir á lokastig. Gerir iðnaðarráðherra ráð fyrir að þeim verði lokið um næstu mánaðamót. Þegar ákvörðun um byggingu álvers er tekin, verður að meta málið í heild, sem og einstaka þætti þess. Jafnframt er nauðsynlegt að hafa í huga hvernig bygging þess fellur inn í íslenska efnahags- og byggðaþróun. Eins og fyrr segir, gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir að hagvöxtur verði innan við 1,5 af hundraði á næstu árum. Auk þess telur stofn- unin að atvinnuleysi muni fara vaxandi hér á landi að óbreyttu. Af þessum ástæðum fellur bygging álvers og virkjana vel að þróun íslensks efnahagslífs um þessar mundir. Að sjálfsögðu verðu þó að gæta þess að þensla myndist ekki þegar umfang framkvæmda er mest, árin 1992 og 1993. Þjóðhagsstofnun telur að aukinn hagvöxtur af byggingu og rekstri 200.000 tonna álvers verði 1 af hundraði á ári í 3-4 ár eða samtals um 4 af hundraði þegar reiknað er með marg- feldisáhrifum. Um það munar vissulega í nú- verandi stöðu. Um einstök atriði samningsins verður eflaust lengi deilt. Ég hygg þó að flest séu þau orðin viðunandi. Skattayfirvöld hafa staðfest að skattar muni verða í samræmi við þá, sem íslensk fyrirtæki greiða, þegar tekið er tillit til þeirra frádrátt- arliða, sem hinir erlendu aðilar munu ekki njóta. Mikilvægt er að íslenskir dómstólar munu fjalla um ágreiningsmál. samninginn verður því að koma ákvæði sem heimilar endurskoðun ef álverð, og þar með orkuverð, fellur, svo að leiða mundi til hækk- unar á verði raforku til almennings. Staðsetning álversins hefur verið mjög um- deild. Þegar viðræður hófust árið 1987 var gert ráð fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Eftir að svissneska álfyrirtækið hafði dregið sig út úr samstarfinu var ákveðið að bjóða upp á nokkra staði og láta byggingarkostnað og umhverfisáhrif ráða niðurstöðum. Um það virtist enginn ágreiningur vera. í hvoru tveggja reyndist Keilisnesið hafa vinninginn. Ef aðrir þættir samninganna eru viðunandi, kemur því vart til greina að hafna nú bygg- ingu álversins vegna staðsetningar þess. Alverið mun að vísu ekki stuðla að þeirri æskilegu byggðaþróun sem það hefði gert ef byggt hefði verið við Eyjafjörð eða Reyðar- fjörð. Hinu verður ekki neitað að atvinnuhorf- ur eru ekki mjög bjartar um þessar mundir á Suðurnesjum. Þaðan hefur flust mikill fisk- veiðikvóti og framundan er mikill samdráttur í atvinnu á Keflavíkurflugvelli. Iðnaðarráðherra gerir ráð fyrir því að leggja um næstu mánaðamót fyrir Alþingi frumvarp til laga um heimild til þess að semja um byggingu álvers. Það er þó að sjálfsögðu háð því að stjórn Landsvirkjunar hafi náð sam- komulagi um orkusamning. Ef þau tíma- . mörk eiga að standast, sem hinir erlendu að- s ilar setja, þurfa heimildarlög að afgreiðast fyrir lok ársins. Á áttunda áratugnum tókst að snúa við þeirri neikvæðu byggðaþróun sem verið hafði um nokkurn tíma. Þá fjölgaði jafnvel í ýmsum byggðum landsins utan höfuðborgarsvæðis- ins. Þetta mátti fyrst og fremst þakka útfærslu landhelginnar og miklum tekjum, sem fylgdu auknum fiskveiðum og markvissari byggða- starfsemi með stofnun Framkvæmdastofnun- ar ríkisins og Byggðasjóðs árið 1971. Þessu vaxtarskeiði lauk snemma á níunda áratugn- um. Landbúnaður hefur jafnframt átt í vax- andi erfiðleikum og óumflýjanlegur samdrátt- ur í framleiðslu landbúnaðarafurða hefur haft mjög neikvæð áhrif á jafnvægi í byggð lands- ins. Því má ljóst vera að taka þarf byggðamál- in nýjum tökum. Það er í raun óháð því hvort allra þarfa, bæði atvinnuvega og einstaklinga, þegar um sams konar notkun og nýtingartíma er að ræða. Iðnaðarráðherra hefur skipað nefnd til að gera tillögur um jöfnun raforkuverðs. Þegar ráðist verður í meiriháttar iðnað í framtíðinni, t.d. orkufrekan, er rétt að ákveða staðsetningu slíkra fyrirtækja áður en til samninga er gengið og gera það út frá byggða- og þjóðhagslegum sjónarmiðum, enda leyfi aðstæður á staðnum slíka framkvæmd. Gert er ráð fyrir að styrkja Byggðastofnun bæði með auknum framlögum og yfirtöku skulda, þannig að stofnuninni verði gert kleift að stuðla að og taka þátt í stofnun fyrirtækja á landsbyggðinni. Fyrir liggja tillögur um skiptingu landsins í þjónustusvæði með öflugum byggðakjörnum. Á slíkum stöðum er mikilvægt að efla stjórn- sýslu og heilbrigðis- og menntastofnanir, t.d. Háskólann á Akureyri. Ég geri mér vonir um að geta á þessu þingi flutt mikilvæg mál til þess að marka nýja byggðastefnu. Um næstu áramót kemur til framkvæmda stjórn fiskveiða, sem samþykkt var á Alþingi sl. vor. Þó verður stjórn fiskveiða líklega fast- bundnari hér á landi en víðast hvar annars staðar. Undan því varð ekki vikist. Við íslend- ingar eigum allt undir sjávarútveginum kom- ið. Þar má enga áhættu taka. Með nýjum lögum er Úreldingarsjóður fiski- skipa endurvakinn og efldur. Með honum verður tekið á einu mesta vandamáli fiskveið- anna, of stórum flota. Einnig er sveitarfélögum veitt heimild til þess að grípa í taumana og koma í veg fyrir að lífsbjörgin, fiskveiðirétturinn, verði seldur á brott úr byggðarlaginu. Því verður þó ekki haldið fram að þjóðarsátt sé orðin um stjórn fiskveiða. Einkum veldur það áhyggjum að rétturinn til að nýta hinu sameiginlegu auðlind þjóðarinnar, fiskimiðin, virðist ætla að safnast á stöðugt færri hendur. Óhjákvæmilegt er að skoða enn vandlega þann þátt í stjórn fiskveiða. Það mál verður þó ekki leyst á næstu mánuðum. Sú stefna í landbúnaðarmálum, sem mörkuð var í lögum frá 1985, hefur að ýmsu leyti reynst vel. Þótt öðru væri spáð af andstæðing- um hefur tekist að draga markvisst og skipu- lega úr mjólkurframleiðslunni. Hún hæfir nú þörfum landsmanna og er að flestu leyti til fyrirmyndar. Aðrar þjóðir mega öfunda okkur Islendinga af góðum mjólkurvörum. Erfiðara hefur hins vegar reynst að draga úr framleiðslu lambakjöts. Því ræður m.a. sú staðreynd að sauðfjárræktin er mjög tengd búsetu í strjálbýli og byggðaþróun. Einnig hefur neysla lambakjöts dregist saman. Sá búvörusamningur, sem nú er unnið eftir, fellur úr gildi í lok næsta árs. Landbúnaðar- ráðherra vinnur því að gerð nýs búvörusamn- ings. Þar er gert ráð fyrir hraðari aðlögun sauðfjárræktarinnar að markaðsþörfum. Slík- ur samningur þarf að liggja fyrir að vori til lokaafgreiðslu nýrrar ríkisstjórnar. Óhjá- kvæmilegt er að bændur fái nauðsynlegan tíma og aðstoð við erfiða aðlögun. Það vona ég að allir geti samþykkt. Því miður hefur loðdýraræktin brugðist. Ríkisstjórnin hefur talið skylt að ráðstafa verulegum fjármunum til þess að draga úr fjárhagserfiðleikum loðdýrabænda. Þær miklu vonir sem bundnar voru við fisk- eldið hafa heldur ekki ræst. Eflaust veldur margt. Mikil lækkun á markaðsverði á vafa- laust stóran þátt í erfiðleikunum. Þó get ég ekki varist þeirri hugsun að enn einu sinni hafi hér á landi verið ráðist í nýja atvinnu- grein af meira kappi en forsjá. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að stuðla að samstarfi um rann- sóknir og kynbætur sem geta ráðið úrslitum um framtíð fiskeldis. Við þær ágætu aðstæð- ur, sem hér á landi eru, tel ég vafalaust að fisk- eldið muni verða mikilvæg atvinnugrein, enda verði betur að málum staðið. Á þessu ári tókst loks eftir rúmlega áratugs deilur á þingi að koma á fót sérstöku um- hverfisráðuneyti. Starfsemi þess er hafin og mun smám saman aukast. Ég er sannfærður um að hún mun reynast mjög mikilvæg. Hreint umhverfi, land, loft, vatn og sjór, mun þegar fram í sækir reynast mesta auðlind þessarar þjóðar. Á félagslega sviðinu hafa margar umbætur verið gerðar. Nýrri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga var Ioks komið á eftir margra ára viðleitni. Alþingi mun í vetur fá ýmis stórmál á sviði félags- og menntamála til meðferðar. Má t.d. nefna frumvarp heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra um almannatryggingar og frumvarp menntamálaráðherra um grunn- skóla. Eins og fyrr segir hefur ríkissjóður orðið að láta mikið af mörkum á undanförnum árum í viðureigninni við verðbólgu. Á sama tíma hef- ur velferðarkerfið vaxið, bæði vegna betri menntunar, betri heilbrigðisþjónustu, hærri aldurs landsmanna og margvíslegra sam- þykkta Alþingis. Þessi ríkisstjórn félagshyggj- unnar hefur talið sér skylt að standa vörð um velferðarkerfið. Það hefur reyndar verið bætt á ýmsum sviðum, t.d. hvað varðar fatlaða og aldraða. Þrátt fyrir mikla viðleitni til sparnaðar í rík- isrekstri hefur á undanförnum samdráttarár- um ekki reynst unnt að afla tekna fyrir út- gjöldunum. Ríkisstjórnin hefur og talið óhjá- kvæmilegt að láta viðureignina við verðbólg- una hafa forgang. Auk þess hljómar stöðugt krafan um lægri skatta samhliða kröfunni um aukin útgjöld. Nýlegur skattasamanburður Efnahags- og framfarastofnunarinnar í París leiðir í ljós að þótt skattar hér á landi séu leið- réttir með tilliti til annarra greiðslna, t.d. í líf- eyrissjóði, eru þeir miklu lægri en skattar í sambærilegum velferðarríkjum. Öllum má vera ljóst að þetta gengur ekki til lengdar. Ekki er unnt lengur að velta vandan- um á undan sér. Nýleg skýrsla ríkisendur- skoðunar staðfestir að byggingasjóðir ríkisins stefna í gjaldþrot. Ég efa að fjárveiting hafi nokkru sinni nægt til þess að brúa vaxtamun milli inn- og útlánssjóðanna. Þó hefur keyrt um þverbak eftir að ný húsnæðislög komu til framkvæmda 1986. Svipaða sögu má segja um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Nú, þegar tekist hefur að hemja verðbólg- una, verður að gera þessi dæmi upp. Það verður ekki gert nema með því annaðhvort að auka skattatekjur rfkissjóðs eða draga úr þjónustu og útgjöldum velferðarkerfisins. Vissulega kemur til greina að láta þá sem njóta þjónustunnar greiða meira. Það er þó í raun ekkert annað en hækkun skatta. Mun- urinn er aðeins sá að þá er útgjöldunum ekki dreift á þjóðina alla. Ég treysti því að mark- aðshugsjónin verði aldrei svo ráðandi hjá okkur íslendingum að þjónusta velferðar- kerfisins verði veitt eftir efnum og aðstæð- um. Aukin framleiðsla og hagvöxtur gefa ríkis sjóði auknar tekjur. Það, ásamt aðhaldi, ei æskilegasta leiðin til að ná hallalausum ríkis- búskap. Þá reynist skattahækkun vonandi óþörf. Vegna fjárskorts hefur ýmsum mikilvægum málum ekki verið sinnt sem skyldi. Ekki síst er nauðsynlegt að auka verulega fjárveitingar til vísinda og rannsókna. Með þróun nýrrar tækni og framleiðslu er vel menntuðu fólki sköpuð aðstaða til starfa. Það mun færa ómældan auð í þjóðarbúið. Við íslendingar eigum nú í samningum við Evrópubandalagið um þátttöku í evrópsku efnahagssvæði. Þeir samningar eru okkur afar mikilvægir. Utanríkisviðskipti vega stöðugt þyngra í tekjum þjóðarinnar. Þau hafa jafn- framt beinst í vaxandi mæli til Evrópu. Ríkisstjórnin hefur þegar tekið ýmis mikil- væg skref til að mæta kröfum sem gerðar eru til þátttöku. Dregið hefur verið úr hömlum á flutningi fjármagns á milli landa, og unnið er að því að samræma skatta og gjöld. Virðisaukaskattur- inn er liður í því. Samningur um samræmt eftirlit með framleiðslu er að koma til fram- kvæmda og frelsi í utanríkisviðskiptum er orðið eins mikið hér á landi og í öðrum lönd- um, sem að þessum viðræðum standa. Mikilvægir samningar hafa verið gerðir um samstarf á sviði menntunar og vísinda. Staðreyndin er að við íslendingar förum fram á færri undanþágur en aðrar þjóðir Frí- verslunarbandalags Evrópu. Þær varða fyrst og fremst grundvallarhagsmuni íslensks ftill- veldis. Við getum ekki fallist á að erlendir að- ilar nái yfirráðum í sjávarútvegi og fiskiðnaði landsins, hvorki beint né óbeint. Við getum heldur ekki sætt okkur við að erlendir aðilar eignist íslenskt land eða orkulindir. Til þess að samræma reglur og koma í veg fyrir slíkt, geri ég ráð fyrir að flytja á þessu þingi frumvarp til laga um erlenda fjárfestingu. Löndin í Fríverslunarbandalagi Evrópu hafa tekið höndum saman um að leita sameigin- legra samninga við Evrópubandalagið um myndun evrópsks efnahagssvæöis. Á það verð- ur að reyna til hlítar. Um það eru allar þjóð- irnar sammála. Það er það svar, sem allir for- ystumenn Evrópubandalagsins gefa, þegar sérstaða íslands er rædd. Þessir samningar hafa reynst erfiðari en margir ætluðu. Því hefur dregið nokkuð úr bjartsýni. Einkum ætlar að reynast erfitt að ná samkomulagi um undanþágur og hvernig staðið skuli að ákvarðanamótun og ákvarð- anatöku. Vel má vera að þau mál, sem í vegi standa nú, leysist á síðustu stundu. Það þarf að gerast fyrir áramótin eða fljótlega eftir þau. Ef þessir samningar takast ekki er sjálfsagt fyrir okkur íslendinga að leita sérstakra samn- inga við Evrópubandalagið. Raunar mun það að öllum líkindum reynast nauðsynlegt. Jafn- vel þótt sameiginlegu hagsmunirnir takist er vafasamt að þeir taki til sjávarafúrða. Slíkir sérstakir samningar hafa verið undir- búnir með ítarlegum viðræðum við fjölmarga forystumenn Evrópubandalagsins. Sérstaða fslands hefur verið skýrð og hefur f langflest- um eða öllum tilfellum verið vel í málið tekið. Ástæða er því til bjartsýni í þessum efnum. Slíkir samningar munu þó taka nokkurn tíma. Ótrúlegt þykir mér að heyra ábyrga aðila hefja nú máls á því að e.t.v. beri okkur íslend- ingum að sækja um fúlla aðild að Evrópu- bandalaginu. Til þess hníga að mínum dómi engin rök. Tvö hundruð og fimmtíu þúsund manna þjóð hyrfi fljótlega í mannhafið. Við yrðum lítið annað en áhrifalaus útkjálki, eins konar hráefnismiðstöð. Það er mikil misskilningur að sem fullgildir meðlimir að Evrópubandalaginu fengjum við til lengdar undanþágur, t.d. hvað varðar fjár- festingu í fiskveiðum eða kaup á landi o.s.frv. Um það er ekki að ræða nema tímabundið. Við gætum ekki komið í veg fyrir að fjársterk risa- fyrirtæki í Evrópu eignuðust það hér sem þau girnast. Hugmyndir manna um fulla aðild að Evr- ópubandalaginu lýsa fyrst og fremst uppgjöf á því að ráða eigin málum farsællega. Uppgjöf við það stóra verkefni að tryggja hér lífskjör sem eru sambærileg við það sem best gerist í löndum Evrópubandalagsins. Það getum við gert, ef við höldum rétt á málum. Reyndar er það sannfæring mín að óvíða munu reynast meiri lífsgæði en hér á landi. Þau byggjast á fleiru en peningalegum auði. Þau byggjast ekki síður á hreinu og fögru umhverfi og frelsi til að njóta þess. Þau byggja á því að þjóðin sé sjálfráð og sjálfstæð.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.