Tíminn - 23.10.1990, Blaðsíða 9
8 Tíminn
Þriðjudagur 23. október 1990
Þriðjudagur 23. október 1990
Tíminn 9
mm
Virðulegi forseti, góðir íslendingar.
Að vori verður kosið til Alþingis. í þessari
stefnuræðu mun ég því ekki síst lýsa þeim
ásetningi ríkisstjórnarinnar að skila góðu búi.
Ég mun fjalla um þann mikla árangur, sem
náðst hefur undanfarin tvö ár, ekki síst í efna-
hags- og atvinnumálum, og það markmið
stjórnarflokkanna að treysta það jafnvægi sem
ríkir. Þannig er fenginn grundvöllur til nýrrar
sóknar í atvinnu- og byggðamálum sem ríkis-
stjórnin gerir ráð fyrir að verði fjallað um á
Alþingi í vetur.
Jafnvægi í efnahagsmálum og hagvöxtur
veita svigrúm til að taka á ýmsum viðfangs-
efnum í velferðarkerfinu, sem úrskeiðis hafa
farið á undanförnum árum og áratugum og
ekki verður lengur dregið kð lagfæra. Á því tel
ég rétt að vekja athygli.
Einnig er nauðsynlegt að fjalla um þá mikil-
vægu alþjóðlegu samninga sem við íslending-
ar tökum nú þátt í. Þeir geta ráðið úrslitum
um framtíð okkar sem sjálfstæðrar þjóðar.
Þegar ný ríkisstjórn tók við í lok september
1988 blasti við vaxandi verðbólga, hrun at-
vinnulífsins og stórkostlegt atvinnuleysi. Á
ársfundi um haustið tilkynntu Samtök fisk-
vinnslustöðva yfirvofandi stöðvun, enda söfn-
uðu útflutningsatvinnuvegirnir óviðráðan-
legum skuldum. Alvarlegast var að í þeirri rík-
isstjórn, sem þá hrökklaðist frá, að engin
samstaða var um nauðsynlegar aðgerðir. Þá
var ekki ofsagt að Róm brynni.
Þeir flokkar, sem þá mynduðu ríkisstjórn,
ákváðu að vinna þjóðina skref fyrir skref burt
frá hengifluginu. Það var gert með aðhalds-
samri efnahagsstefnu og markvissri leiðrétt-
ingu á gengi íslensku krónunnar, þannig að
ekki ylli nýrri verðbólguöldu og kollsteypu í
efnahagsmálum. Samtímis var ráðist í víð-
tækari fjárhagslega endurskipulagningu út-
flutningsatvinnuvega en nokkru sinni fyrr.
Það var óhjákvæmilegt til að koma í veg fyrir
hrun. Sú aðgerð var gagnrýnd af stjórnarand-
stöðunni, enda ekki í anda frjálshyggjunnar,
þar sem kylfa er látin ráða kasti.
Hlutafjársjóður hefur fyrir nokkru lokið
störfum og Átvinnutryggingarsjóður útflutn-
ingsgreina er að fjalla um síðustu málin.
Ríkisstjórnin var endurskipulögð í septem-
ber 1989. Ný ríkisstjórn hefur byggt á stefnu
þeirrar sem á undan sat, en með vaxandi
áherslu á uppbyggingu og nýsköpun í at-
vinnulífinu. Það er gert á grundvelli aukins
jafnvægis í efnahagsmálum.
Það ágæta samstarf, sem náðst hefur á milli
stjórnvalda og fulltrúa verkalýðshreyfingar og
launþega, atvinnurekenda og bænda, hefur
reynst afar mikilvæg. Með því samstarfi og
samningi þessara aðila í febrúar sl. náðist sú
þjóðarsátt sem tryggt hefúr efnahagslega end-
urreisn.
Sérstaklega er lofsverður sá mikli skilningur
sem Iaunþegar og bændur hafa sýnt á nauð-
syn þess að kveða niður verðbólgudrauginn.
Með því er ég ekki að gera lítið úr hlut at-
vinnurekenda. Á þeim brann verðbólgueldur-
inn hvað heitast. Hins vegar er það sjaldan
nefnt hvað ríkissjóður hefur lagt til þessara
mála.
Við gerð kjarasamninganna í febrúar sl. var
ákveðið að auka útgjöld til niðurgreiðslna og
félagslegra umbóta til lækkunar á fram-
færslukostnaði. Samtals námu þau útgjöld
um einum milljarði króna á ársgrundvelli.
Þetta var nauðsynlegt til þess að koma í veg
fyrir kjaraskerðingu, sem launþegar hefðu að
öðrum kosti orðið að þola. Án þessa hefði ekki
úr samningunum orðið.
Því er að vonum fagnað að rauða strikið í
september stóðst nokkurn veginn. Svo varð
þó ekki án sérstakra aðgerða stjórnvalda.
Frá janúar til október hefur vísitalan hækk-
að um 5,7 af hundraði. Minnst hefur hækkun-
in orðið á innlendum landbúnaðarafurðum,
1,4 af hundraði, og á öðrum innlendum mat-
vælum, 1,3 af hundraði. Hins vegar hefur inn-
flutt matvara hækkað um 5,7 af hundraði og
aðrar innfluttar vörur um 9,2 af hundraði,
sem er talsvert umfram erlenda verðbólgu.
Opinber þjónusta hefur aðeins hækkað um
4,2 af hundraði en önnur þjónusta um 11,2 af
hundraði.
Þar sem verðmyndunin er frjálsust hefur
hækkunin orðið mest, því miður. Lítil hækk-
un á innlendum landbúnaðarafurðum og op-
inberri þjónustu hefur því í raun ráðið úrslit-
um og bjargað þjóðarsáttinni.
Til þess að rauða strikið í september því sem
næst stæðist, ákvað ríkisstjórnin jafnframt að
flýta niðurfellingu virðisaukaskatts af bókum
og fella niður virðisaukaskatt af viðhalds-
vinnu við íbúðabyggingar. Þetta dró úr hækk-
un framfærsluvísitölu um u.þ.b. 0,6 hundr-
aðshlutastig og kostar ríkissjóð nokkur
hundruð milljónir króna á ársgrundvelli.
Því fer fjarri að ég sjái eftir þessum útgjöld-
um ríkissjóðs. Aðgerðirnar tókust vel og voru
nauðsynlegar til að ná þeim árangri í barátt-
unni við verðbólguna, sem að var stefnt. Þó
verður að hafa í huga að ríkissjóður er sam-
eiginlegur sjóður allra landsmanna og honum
er ætlað að standa undir sameiginlegum þörf-
um velferðarþjóðfélagsins. Af þeim ástæðum
eru því takmörk sett, sem unnt er að leggja á
ríkissjóð án þess annaðhvort að lækka skatta
eða draga úr þjónustu.
Ríkisstjórnin hefur talið sér skylt að koma
með öllum ráðum í veg fyrir að þjóðarsáttin
brysti og víxlverkun launa og verðlags hæfist
á ný. Framkvæmd kjarasamnings, sem ríkis-
valdið hafði áður gert við Bandalag háskóla-
menntaðra ríkisstarfsmanna, reyndist erfið
við þessar aðstæður. Því miður tókst ekki
samkomulag við BHMR um að fresta leiðrétt-
ingu, sem af samanburði á kjörum háskóla-
menntaðra manna kynni að leiða, fram í sept-
ember að ári, eða með öðrum orðum þar til
þjóðarsáttinni lyki. Þegar það brást, átti ríkis-
stjórnin ekki annan kost en aö fella úr gildi
þau ákvæði kjarasamningsins sem valdið gátu
meiri launahækkunum en samningar á hin-
um almenna vinnumarkaði gerðu ráð fyrir.
Það leiddi einnig til breytinga á nýgerðum
kjarasamningi við flugumferðarstjóra.
Ríkisstjórnin gerir ráð fyrir því að þeim sam-
anburði, sem hafinn var á kjörum háskóla-
menntaðra manna, verði haldið áfram og
honum lokið, þannig að hann geti legið til
grundvallar við gerð næstu kjarasamninga.
Ég vil láta í Ijós þá skoðun mína að háskóla-
menntaðir menn ekki síður en aðrir íslend-
ingar, verða að njóta svipaðra kjara hér og
þeim bjóðast í öðrum vestrænum löndum. Ég
trúi því ekki að íslensk þjóð vilji una því að
verða fyrst og fremst útflytjendur hráefnis,
hvort sem það er óunninn fiskur eða ál. Nú-
tímalífskjör byggja á þekkingu. Því miður er
þekkingarflótti héðan orðinn talsverður.
Hann verður að stöðva. Að öðrum kosti munu
lífskjör hér á landi verða lakari en í öðrum
vestrænum löndum.
Þrátt fyrir þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
tekjur ríkissjóðs af bensíni skuli ekki hækka,
þótt mikil hækkun hafi orðið á innflutnings-
verði, mun bensínhækkunin valda því að farið
verður yfir rauða strikið í nóvember. Vonandi
leiðir sú óviðráðanlega hækkun ekki til víxl-
hækkana launa og verðlags. Hafa verður í
huga að viðskiptakjör versna mjög við olíu-
verðshækkunina og falla við það að öllum lík-
indum niður fyrir viðmiðun kjarasamning-
anna. Það er fullkomlega óeðlilegt að olíu-
verðshækkun í heiminum verði tilefni sér-
stakra launahækkana hér á landi. Auk þess
verður að gera ráð fyrir að umrædd hækkun á
olíuvörum sé tímabundin.
Ef ekki verða víxlhækkanir verðlags og launa
af völdum olíunnar, telur Þjóðhagsstofnun að
verðbólga á næsta ári verði um 6-7 af hundr-
aði. Áætlað er að laun hækki um 8 af hundraði
eða með öðrum orðum að kaupmáttur aukist.
Hefjist víxlhækkanir hins vegar mun gengi ís-
lensku krónunnar eflaust láta undan síga. Af-
leiðingarnar þekkjum við og vitum því að til
mikils er að vinna.
Sá mikli árangur sem náðst hefur í efnahags-
málum kemur fram á mörgum sviðum. Þrátt
fyrir samdrátt í efnahagslífmu á undanförn-
um árum hefur tekist að koma á mun betra
jafnvægi í utanríkisviðskiptum þjóðarinnar
en verið hefur um áraraðir. Sem dæmi má
nefna að á sl. ári náðist sá merki áfangi að um-
talsverður afgangur varð af vöruskiptum við
útlönd og dró því mjög úr viðskiptahalla.
Hann varð þó 1,6 af hundraði sem fyrst og
fremst stafar af vaxtagreiðslum til útlanda.
Á þessu ári verður einnig afgangur af vöru-
skiptum, en viðskiptahalli líklega um 2 af
hundraði. Minni viðskiptahalla er spáð fyrir
árið 1991.
Vegna viðskiptahallans hafa erlendar skuldir
vaxið lítillega, jafnvel þótt ríkissjóður hafi
fullnægt lánsfjárþörf sinni innanlands. Er-
lendar skuldir eru nú um 50 af hundraði
landsframleiðslunnar. Greiðslubyrði af er-
lendum lánum hefur aftur á móti lækkað
nokkuð vegna lægri vaxta erlendis.
Meðal mikilvægustu verkefna er að lækka er-
lendar skuldir. Að því er lagður grundvöllur
með jafnvægi í efnahagsmálum og aukinni
framleiðslu.
Efnahagsbatinn kemur einnig fram í lækkun
vaxta og bættri stöðu bankakerfisins. Fjár-
magnskostnaður fyrirtækja og einstaklinga
hefur lækkað verulega. Það geta allir, sem
eitthvað skulda, staðfest. Afkoma fjármála-
stofnana gefur til kynna að vextir mættu enn
lækka. Seðlabankanum ber lagaskylda til að
fylgjast með því.
í málefnasamningi ríkisstjórnarinnar er gert
ráð fyrir að afnema lánskjaravísitölu, þegar
árshraði verðbólgu er orðinn 10 af hundraði í
6 mánuði eða lengur. Um þetta hefur verið
rætt við Seðlabankanna og er beðið eftir til-
lögum hans.
Um þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar er
nokkuð deilt. Fjármagnseigendur vilja áfram
njóta þess öryggis sem lánskjaravísitalan veit-
ir, a.m.k. að nafninu til. Afnám hennar er þó
að mínu mati óhjákvæmilegt. Skal ég nefna
þrennt því til stuðnings.
í fyrsta lagi er óumdeilanlegt að verðtrygg-
ing fjármagns stuðlar að víxlverkun verðlags
og launa, ef verðbólguskriða fer á annað borð
af stað.
því falla verulega borið saman við aðrar þjóð-
ir.
Ríkisstjórnin hefur því lagt áherslu á að leita
leiða til að breikka grundvöll atvinnulífsins og
skapa atvinnutækifæri. Með því jafnvægi, sem
náðst hefur í efnahagsmálum, eru nú til þess
forsendur.
Unnið er að því að móta stefnu í atvinnumál-
um og munu tillögur í þeim efnum lagðar fyr-
ir Alþingi f vetur.
Tími minn leyfir ekki að ræða þau mál ítar-
lega nú. Til þess verður hins vegar væntanlega
svigrúm síðar. Ég vil leggja áherslu á þá bjarg-
föstu skoðun mína að full ástæða sé til bjart-
sýni ef rétt er á málum haldið. Landið býður
upp á mikla kosti. Með dugnaði og þekkingu
geta þeir orðið óþrjótandi uppspretta atvinnu
og tekna.
Undanfarna áratugi hefur mikið verið að því
Stefnuræða forsætisráðherra, Steingríms Hermannssonar: Grund-
völlur hefur skapast til nýrrar sóknar í efnahags- og atvinnumálum:
Treystum
það jafnvægi
sem ríkir
í öðru lagi krefjast launþegar verðtryggingar
launa ef fjármagnseigendur eiga að njóta
slíks. Það má ekki gerast á ný. Þá væri verð-
bólguskriðan endurvakin.
f þriðja lagi stefnum við íslendingar að því að
auka frelsi til fjármagnsflutninga og tengjast
þannig erlendum fjármagnsmörkuðum og
höfum reyndar þegar stigið mikilsverð skref í
þá átt. Því er nauðsynlegt að hér á landi séu
mönnum búnar svipaðar aðstæður til að
ávaxta fé sitt og þar. Hvergi í vestrænum lönd-
um er almenn verðtrygging fjármagns, og
sums staðar er slíkt jafnvel bannað með lög-
um.
Loks má reyndar vekja athygli á því að sem
betur fer hafa kaup á hlutabréfum aukist
mjög, enda er almenningur óspart hvattur til
þess að ávaxta þannig fé sitt. Hlutabréf eru þó
ekki verðtryggð. Hvers vegna þarf annað að
gilda á lánamarkaði? Ég spyr.
Þegar horfur voru hvað verstar í atvinnumál-
um þjóðarinnar fyrir u.þ.b. tveimur árum, var
spáð miklu atvinnuleysi. Var jafnvel talið að
það gæti orðið 4-5 af hundraði um sl. áramót.
Því hefúr þó tekist að afstýra, sem betur fer.
Atvinnuleysi hefur þó orðið allt að 2 af hundr-
aði og nokkru meira á einstökum stöðum.
Horfur eru einnig á því að atvinnuleysi geti
aukist, m.a. vegna samdráttar í framkvæmd-
um, ekki síst á vegum hins opinbera og einn-
ig varnarliðsins.
Alvarlegast horfir þó að mati Þjóðhagsstofn-
unar um vöxt landsframleiðslunnar. Á undan-
förnum 10 árum hefur landsframleiðslan hér
aðeins aukist um 22 af hundraði en á sama
tíma um 34 af hundraði að meðaltali í löndum
Efnahags- og framfarastofnunarinnar.
Horfið er því það forskot sem náðist á upp-
gripaárunum eftir útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar, einkum á 8. áratugnum.
Auk þess telur Þjóðhagsstofnun ekki unnt
að gera ráð fyrir meiri vexti landsframleiðslu
á næstu árum en u.þ.b. 1,5 af hundraði á ári
að meðaltali. Þetta stafar ekki síst af því að
fiskimiðin eru nánast fullnýtt. Þetta er að-
eins um helmingur af þeim hagvexti sem
gert er ráð fyrir í öðrum vestrænum löndum.
Lífskjörin, eins og þau eru mæld á hinn hefð-
bundna efnahagslega mælikvarða, mundu
Eitt stærsta atriði samninganna varðar
varnir gegn mengun og umhverfisspjöllum.
Eftir ítarlegar athuganir hefur umhverfisráð-
herra lagt fyrir ríkisstjórn tillögur um há-
mark leyfilegra úrgangsefna frá verksmiðj-
um. Þau mörk verða f samræmi við ströng-
ustu kröfur sem gerðar eru í Evrópu. Strang-
ar kröfur verða einnig gerðar um alla
vinnuaðstöðu.
Mengunarvarnir eru vafalaust eitt mikilvæg-
asta atriði þessara samninga. Fátt er mikil-
vægara en að varðveita og bæta það góða um-
hverfi sem við, sem betur fer, njótum.
Orkusamningurinn verður að sjálfsögðu
gerður af stjórn Landsvirkjunar. Við hann eru
stærstu fjárhagshagsmunirnir tengdir.
Samningamenn Landsvirkjunar leggja til að
orkuverðið verði tengt álverði án lágmarks
eða hámarks. Með þessu er áhætta tekin. í
álver verður reist á Keilisnesi, þótt sú ákvörð-
un auki á þann vanda sem við er að stríða.
Af þessum ástæðum skipaði ég fyrr á árinu
nefnd með fulltrúum allra stjórnmálaflokk-
anna til þess að gera tillögur um nýja stefnu í
byggðamálum. Á vegum nefndarinnar hefur
mikið verið unnið og vænti ég álits frá henni
fljótlega. Sömuleiðis hef ég skipað nefnd til að
skoða skipulag Byggðastofnunar.
Jafnvægi í byggð landsins er þjóðinni afar
mikilvægt, ekki síður þéttbýlinu en strjálbýl-
inu. Breytinga er þörf ef það á að nást. Ég
nefni aðeins fáein atriði:
Framfærslukostnaður þarf að vera svipaður
um land allt. Nú eru ýmsar mikilvægar nauð-
synjar á sama verði hvar sem er á landinu. Svo
er t.d. um allar innlendar landbúnaðarafurðir
og bensín og olíur. Það sama þarf að vera með
raforku, ekki síst til upphitunar, og raunar til
Steingrímur Hermannsson, á Alþingi.
unnið að koma á fót orkufrekum iðnaði hér á
landi. Þótt þrjú orkufrek fyrirtæki hafi risið,
hefur þessi þróun þó gengið hægar en margir
gerðu ráð fyrir. Staðreyndin er að erlendir að-
ilar hafa ekki beðið f biðröð við bæjardyrnar,
e.t.v. sem betur fer. Með tilliti til þess að ekki
er lengur unnt að gera ráð fyrir hagvexti á
grundvelli fiskveiða og vinnslu, sem nálgast
það sem var eftir útfærslu fiskveiðilögsögunn-
ar, hafa síðustu ríkisstjórnir talið nauðsynlegt
að leggja áherslu á nýtingu orkulinda landsins
til orkufreks iðnaðar. Þessi viðleitni er nú loks
að bera árangur með samningi um byggingu
200.000 lesta álvers.
Eins og fram kemur í skýrslu þeirri um stöðu
álmálsins, sem iðnaðarráðherra hefur lagt fyr-
ir Alþingi, eru samningar komnir á lokastig.
Gerir iðnaðarráðherra ráð fyrir að þeim verði
lokið um næstu mánaðamót. Þegar ákvörðun
um byggingu álvers er tekin, verður að meta
málið í heild, sem og einstaka þætti þess.
Jafnframt er nauðsynlegt að hafa í huga
hvernig bygging þess fellur inn í íslenska
efnahags- og byggðaþróun.
Eins og fyrr segir, gerir Þjóðhagsstofnun ráð
fyrir að hagvöxtur verði innan við 1,5 af
hundraði á næstu árum. Auk þess telur stofn-
unin að atvinnuleysi muni fara vaxandi hér á
landi að óbreyttu.
Af þessum ástæðum fellur bygging álvers og
virkjana vel að þróun íslensks efnahagslífs um
þessar mundir. Að sjálfsögðu verðu þó að gæta
þess að þensla myndist ekki þegar umfang
framkvæmda er mest, árin 1992 og 1993.
Þjóðhagsstofnun telur að aukinn hagvöxtur
af byggingu og rekstri 200.000 tonna álvers
verði 1 af hundraði á ári í 3-4 ár eða samtals
um 4 af hundraði þegar reiknað er með marg-
feldisáhrifum. Um það munar vissulega í nú-
verandi stöðu.
Um einstök atriði samningsins verður eflaust
lengi deilt. Ég hygg þó að flest séu þau orðin
viðunandi.
Skattayfirvöld hafa staðfest að skattar muni
verða í samræmi við þá, sem íslensk fyrirtæki
greiða, þegar tekið er tillit til þeirra frádrátt-
arliða, sem hinir erlendu aðilar munu ekki
njóta. Mikilvægt er að íslenskir dómstólar
munu fjalla um ágreiningsmál.
samninginn verður því að koma ákvæði sem
heimilar endurskoðun ef álverð, og þar með
orkuverð, fellur, svo að leiða mundi til hækk-
unar á verði raforku til almennings.
Staðsetning álversins hefur verið mjög um-
deild. Þegar viðræður hófust árið 1987 var
gert ráð fyrir stækkun álversins í Straumsvík.
Eftir að svissneska álfyrirtækið hafði dregið
sig út úr samstarfinu var ákveðið að bjóða upp
á nokkra staði og láta byggingarkostnað og
umhverfisáhrif ráða niðurstöðum. Um það
virtist enginn ágreiningur vera. í hvoru
tveggja reyndist Keilisnesið hafa vinninginn.
Ef aðrir þættir samninganna eru viðunandi,
kemur því vart til greina að hafna nú bygg-
ingu álversins vegna staðsetningar þess.
Alverið mun að vísu ekki stuðla að þeirri
æskilegu byggðaþróun sem það hefði gert ef
byggt hefði verið við Eyjafjörð eða Reyðar-
fjörð. Hinu verður ekki neitað að atvinnuhorf-
ur eru ekki mjög bjartar um þessar mundir á
Suðurnesjum. Þaðan hefur flust mikill fisk-
veiðikvóti og framundan er mikill samdráttur
í atvinnu á Keflavíkurflugvelli.
Iðnaðarráðherra gerir ráð fyrir því að leggja
um næstu mánaðamót fyrir Alþingi frumvarp
til laga um heimild til þess að semja um
byggingu álvers. Það er þó að sjálfsögðu háð
því að stjórn Landsvirkjunar hafi náð sam-
komulagi um orkusamning. Ef þau tíma-
. mörk eiga að standast, sem hinir erlendu að-
s ilar setja, þurfa heimildarlög að afgreiðast
fyrir lok ársins.
Á áttunda áratugnum tókst að snúa við þeirri
neikvæðu byggðaþróun sem verið hafði um
nokkurn tíma. Þá fjölgaði jafnvel í ýmsum
byggðum landsins utan höfuðborgarsvæðis-
ins. Þetta mátti fyrst og fremst þakka útfærslu
landhelginnar og miklum tekjum, sem fylgdu
auknum fiskveiðum og markvissari byggða-
starfsemi með stofnun Framkvæmdastofnun-
ar ríkisins og Byggðasjóðs árið 1971. Þessu
vaxtarskeiði lauk snemma á níunda áratugn-
um. Landbúnaður hefur jafnframt átt í vax-
andi erfiðleikum og óumflýjanlegur samdrátt-
ur í framleiðslu landbúnaðarafurða hefur haft
mjög neikvæð áhrif á jafnvægi í byggð lands-
ins. Því má ljóst vera að taka þarf byggðamál-
in nýjum tökum. Það er í raun óháð því hvort
allra þarfa, bæði atvinnuvega og einstaklinga,
þegar um sams konar notkun og nýtingartíma
er að ræða.
Iðnaðarráðherra hefur skipað nefnd til að
gera tillögur um jöfnun raforkuverðs.
Þegar ráðist verður í meiriháttar iðnað í
framtíðinni, t.d. orkufrekan, er rétt að ákveða
staðsetningu slíkra fyrirtækja áður en til
samninga er gengið og gera það út frá byggða-
og þjóðhagslegum sjónarmiðum, enda leyfi
aðstæður á staðnum slíka framkvæmd.
Gert er ráð fyrir að styrkja Byggðastofnun
bæði með auknum framlögum og yfirtöku
skulda, þannig að stofnuninni verði gert kleift
að stuðla að og taka þátt í stofnun fyrirtækja á
landsbyggðinni.
Fyrir liggja tillögur um skiptingu landsins í
þjónustusvæði með öflugum byggðakjörnum.
Á slíkum stöðum er mikilvægt að efla stjórn-
sýslu og heilbrigðis- og menntastofnanir, t.d.
Háskólann á Akureyri.
Ég geri mér vonir um að geta á þessu þingi
flutt mikilvæg mál til þess að marka nýja
byggðastefnu.
Um næstu áramót kemur til framkvæmda
stjórn fiskveiða, sem samþykkt var á Alþingi
sl. vor. Þó verður stjórn fiskveiða líklega fast-
bundnari hér á landi en víðast hvar annars
staðar. Undan því varð ekki vikist. Við íslend-
ingar eigum allt undir sjávarútveginum kom-
ið. Þar má enga áhættu taka.
Með nýjum lögum er Úreldingarsjóður fiski-
skipa endurvakinn og efldur. Með honum
verður tekið á einu mesta vandamáli fiskveið-
anna, of stórum flota.
Einnig er sveitarfélögum veitt heimild til
þess að grípa í taumana og koma í veg fyrir að
lífsbjörgin, fiskveiðirétturinn, verði seldur á
brott úr byggðarlaginu.
Því verður þó ekki haldið fram að þjóðarsátt
sé orðin um stjórn fiskveiða. Einkum veldur
það áhyggjum að rétturinn til að nýta hinu
sameiginlegu auðlind þjóðarinnar, fiskimiðin,
virðist ætla að safnast á stöðugt færri hendur.
Óhjákvæmilegt er að skoða enn vandlega
þann þátt í stjórn fiskveiða. Það mál verður þó
ekki leyst á næstu mánuðum.
Sú stefna í landbúnaðarmálum, sem mörkuð
var í lögum frá 1985, hefur að ýmsu leyti
reynst vel. Þótt öðru væri spáð af andstæðing-
um hefur tekist að draga markvisst og skipu-
lega úr mjólkurframleiðslunni. Hún hæfir nú
þörfum landsmanna og er að flestu leyti til
fyrirmyndar. Aðrar þjóðir mega öfunda okkur
Islendinga af góðum mjólkurvörum.
Erfiðara hefur hins vegar reynst að draga úr
framleiðslu lambakjöts. Því ræður m.a. sú
staðreynd að sauðfjárræktin er mjög tengd
búsetu í strjálbýli og byggðaþróun. Einnig
hefur neysla lambakjöts dregist saman.
Sá búvörusamningur, sem nú er unnið eftir,
fellur úr gildi í lok næsta árs. Landbúnaðar-
ráðherra vinnur því að gerð nýs búvörusamn-
ings. Þar er gert ráð fyrir hraðari aðlögun
sauðfjárræktarinnar að markaðsþörfum. Slík-
ur samningur þarf að liggja fyrir að vori til
lokaafgreiðslu nýrrar ríkisstjórnar. Óhjá-
kvæmilegt er að bændur fái nauðsynlegan
tíma og aðstoð við erfiða aðlögun. Það vona ég
að allir geti samþykkt.
Því miður hefur loðdýraræktin brugðist.
Ríkisstjórnin hefur talið skylt að ráðstafa
verulegum fjármunum til þess að draga úr
fjárhagserfiðleikum loðdýrabænda.
Þær miklu vonir sem bundnar voru við fisk-
eldið hafa heldur ekki ræst. Eflaust veldur
margt. Mikil lækkun á markaðsverði á vafa-
laust stóran þátt í erfiðleikunum. Þó get ég
ekki varist þeirri hugsun að enn einu sinni
hafi hér á landi verið ráðist í nýja atvinnu-
grein af meira kappi en forsjá. Ríkisstjórnin
hefur ákveðið að stuðla að samstarfi um rann-
sóknir og kynbætur sem geta ráðið úrslitum
um framtíð fiskeldis. Við þær ágætu aðstæð-
ur, sem hér á landi eru, tel ég vafalaust að fisk-
eldið muni verða mikilvæg atvinnugrein,
enda verði betur að málum staðið.
Á þessu ári tókst loks eftir rúmlega áratugs
deilur á þingi að koma á fót sérstöku um-
hverfisráðuneyti. Starfsemi þess er hafin og
mun smám saman aukast. Ég er sannfærður
um að hún mun reynast mjög mikilvæg.
Hreint umhverfi, land, loft, vatn og sjór, mun
þegar fram í sækir reynast mesta auðlind
þessarar þjóðar.
Á félagslega sviðinu hafa margar umbætur
verið gerðar. Nýrri verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga var Ioks komið á eftir margra ára
viðleitni. Alþingi mun í vetur fá ýmis stórmál
á sviði félags- og menntamála til meðferðar.
Má t.d. nefna frumvarp heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra um almannatryggingar og
frumvarp menntamálaráðherra um grunn-
skóla.
Eins og fyrr segir hefur ríkissjóður orðið að
láta mikið af mörkum á undanförnum árum í
viðureigninni við verðbólgu. Á sama tíma hef-
ur velferðarkerfið vaxið, bæði vegna betri
menntunar, betri heilbrigðisþjónustu, hærri
aldurs landsmanna og margvíslegra sam-
þykkta Alþingis. Þessi ríkisstjórn félagshyggj-
unnar hefur talið sér skylt að standa vörð um
velferðarkerfið. Það hefur reyndar verið bætt
á ýmsum sviðum, t.d. hvað varðar fatlaða og
aldraða.
Þrátt fyrir mikla viðleitni til sparnaðar í rík-
isrekstri hefur á undanförnum samdráttarár-
um ekki reynst unnt að afla tekna fyrir út-
gjöldunum. Ríkisstjórnin hefur og talið óhjá-
kvæmilegt að láta viðureignina við verðbólg-
una hafa forgang. Auk þess hljómar stöðugt
krafan um lægri skatta samhliða kröfunni um
aukin útgjöld. Nýlegur skattasamanburður
Efnahags- og framfarastofnunarinnar í París
leiðir í ljós að þótt skattar hér á landi séu leið-
réttir með tilliti til annarra greiðslna, t.d. í líf-
eyrissjóði, eru þeir miklu lægri en skattar í
sambærilegum velferðarríkjum.
Öllum má vera ljóst að þetta gengur ekki til
lengdar. Ekki er unnt lengur að velta vandan-
um á undan sér. Nýleg skýrsla ríkisendur-
skoðunar staðfestir að byggingasjóðir ríkisins
stefna í gjaldþrot. Ég efa að fjárveiting hafi
nokkru sinni nægt til þess að brúa vaxtamun
milli inn- og útlánssjóðanna. Þó hefur keyrt
um þverbak eftir að ný húsnæðislög komu til
framkvæmda 1986. Svipaða sögu má segja um
Lánasjóð íslenskra námsmanna.
Nú, þegar tekist hefur að hemja verðbólg-
una, verður að gera þessi dæmi upp. Það
verður ekki gert nema með því annaðhvort að
auka skattatekjur rfkissjóðs eða draga úr
þjónustu og útgjöldum velferðarkerfisins.
Vissulega kemur til greina að láta þá sem
njóta þjónustunnar greiða meira. Það er þó í
raun ekkert annað en hækkun skatta. Mun-
urinn er aðeins sá að þá er útgjöldunum ekki
dreift á þjóðina alla. Ég treysti því að mark-
aðshugsjónin verði aldrei svo ráðandi hjá
okkur íslendingum að þjónusta velferðar-
kerfisins verði veitt eftir efnum og aðstæð-
um.
Aukin framleiðsla og hagvöxtur gefa ríkis
sjóði auknar tekjur. Það, ásamt aðhaldi, ei
æskilegasta leiðin til að ná hallalausum ríkis-
búskap. Þá reynist skattahækkun vonandi
óþörf.
Vegna fjárskorts hefur ýmsum mikilvægum
málum ekki verið sinnt sem skyldi. Ekki síst
er nauðsynlegt að auka verulega fjárveitingar
til vísinda og rannsókna. Með þróun nýrrar
tækni og framleiðslu er vel menntuðu fólki
sköpuð aðstaða til starfa. Það mun færa
ómældan auð í þjóðarbúið.
Við íslendingar eigum nú í samningum við
Evrópubandalagið um þátttöku í evrópsku
efnahagssvæði. Þeir samningar eru okkur afar
mikilvægir. Utanríkisviðskipti vega stöðugt
þyngra í tekjum þjóðarinnar. Þau hafa jafn-
framt beinst í vaxandi mæli til Evrópu.
Ríkisstjórnin hefur þegar tekið ýmis mikil-
væg skref til að mæta kröfum sem gerðar eru
til þátttöku.
Dregið hefur verið úr hömlum á flutningi
fjármagns á milli landa, og unnið er að því að
samræma skatta og gjöld. Virðisaukaskattur-
inn er liður í því. Samningur um samræmt
eftirlit með framleiðslu er að koma til fram-
kvæmda og frelsi í utanríkisviðskiptum er
orðið eins mikið hér á landi og í öðrum lönd-
um, sem að þessum viðræðum standa.
Mikilvægir samningar hafa verið gerðir um
samstarf á sviði menntunar og vísinda.
Staðreyndin er að við íslendingar förum
fram á færri undanþágur en aðrar þjóðir Frí-
verslunarbandalags Evrópu. Þær varða fyrst
og fremst grundvallarhagsmuni íslensks ftill-
veldis. Við getum ekki fallist á að erlendir að-
ilar nái yfirráðum í sjávarútvegi og fiskiðnaði
landsins, hvorki beint né óbeint. Við getum
heldur ekki sætt okkur við að erlendir aðilar
eignist íslenskt land eða orkulindir. Til þess að
samræma reglur og koma í veg fyrir slíkt, geri
ég ráð fyrir að flytja á þessu þingi frumvarp til
laga um erlenda fjárfestingu.
Löndin í Fríverslunarbandalagi Evrópu hafa
tekið höndum saman um að leita sameigin-
legra samninga við Evrópubandalagið um
myndun evrópsks efnahagssvæöis. Á það verð-
ur að reyna til hlítar. Um það eru allar þjóð-
irnar sammála. Það er það svar, sem allir for-
ystumenn Evrópubandalagsins gefa, þegar
sérstaða íslands er rædd.
Þessir samningar hafa reynst erfiðari en
margir ætluðu. Því hefur dregið nokkuð úr
bjartsýni. Einkum ætlar að reynast erfitt að ná
samkomulagi um undanþágur og hvernig
staðið skuli að ákvarðanamótun og ákvarð-
anatöku.
Vel má vera að þau mál, sem í vegi standa nú,
leysist á síðustu stundu. Það þarf að gerast
fyrir áramótin eða fljótlega eftir þau.
Ef þessir samningar takast ekki er sjálfsagt
fyrir okkur íslendinga að leita sérstakra samn-
inga við Evrópubandalagið. Raunar mun það
að öllum líkindum reynast nauðsynlegt. Jafn-
vel þótt sameiginlegu hagsmunirnir takist er
vafasamt að þeir taki til sjávarafúrða.
Slíkir sérstakir samningar hafa verið undir-
búnir með ítarlegum viðræðum við fjölmarga
forystumenn Evrópubandalagsins. Sérstaða
fslands hefur verið skýrð og hefur f langflest-
um eða öllum tilfellum verið vel í málið tekið.
Ástæða er því til bjartsýni í þessum efnum.
Slíkir samningar munu þó taka nokkurn
tíma.
Ótrúlegt þykir mér að heyra ábyrga aðila
hefja nú máls á því að e.t.v. beri okkur íslend-
ingum að sækja um fúlla aðild að Evrópu-
bandalaginu. Til þess hníga að mínum dómi
engin rök. Tvö hundruð og fimmtíu þúsund
manna þjóð hyrfi fljótlega í mannhafið. Við
yrðum lítið annað en áhrifalaus útkjálki, eins
konar hráefnismiðstöð.
Það er mikil misskilningur að sem fullgildir
meðlimir að Evrópubandalaginu fengjum við
til lengdar undanþágur, t.d. hvað varðar fjár-
festingu í fiskveiðum eða kaup á landi o.s.frv.
Um það er ekki að ræða nema tímabundið. Við
gætum ekki komið í veg fyrir að fjársterk risa-
fyrirtæki í Evrópu eignuðust það hér sem þau
girnast.
Hugmyndir manna um fulla aðild að Evr-
ópubandalaginu lýsa fyrst og fremst uppgjöf á
því að ráða eigin málum farsællega. Uppgjöf
við það stóra verkefni að tryggja hér lífskjör
sem eru sambærileg við það sem best gerist í
löndum Evrópubandalagsins. Það getum við
gert, ef við höldum rétt á málum. Reyndar er
það sannfæring mín að óvíða munu reynast
meiri lífsgæði en hér á landi. Þau byggjast á
fleiru en peningalegum auði. Þau byggjast
ekki síður á hreinu og fögru umhverfi og
frelsi til að njóta þess. Þau byggja á því að
þjóðin sé sjálfráð og sjálfstæð.