Tíminn - 10.11.1990, Side 7
Laugardagur 10. nóvember 1990
HELGIN
15
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
aðist við og veifaði til hennar en hún
svaraði kveðjunni ekki. Hún mundi
að hann hafði starfað í versluninni.
Nú sat hann þar úti fyrir með bílinn
f gangi. Konan gaf lögreglunni nafn
mannsins.
Eigandi verslunarinnar sagði að
maðurinn hefði starfað þar fram í
júlí árið áður og vissi auðvitað hve-
nær opnað væri og hvar peningar
væru geymdir. Mary Slover hefði
vissulega þekkt hann og hugsanlega
hleypt honum inn áður en hún opn-
aði.
Jarnagin og Cook tókst ekki að
hafa uppi á manninum en komust
að því að hann starfaði nú hjá
brauðgerð skammt frá. Þegar hann
kom til vinnu sinnar klukkan hálf-
eitt á þriðjudagsmorgun beið lög-
reglan hans þar. Leitað var í bflnum
og þar fannst rauð lambhúshetta
með götum fyrir augu og munn,
bómullarhanskar og blá hafnabolta-
húfa.
Þegar Jarnagin opnaði skottið
varð honum litið á númer bflsins.
Það var DEBEAST. Jarnagin spurði
hvað það þýddi og eigandinn sagði
að það væri latína og þýddi „Barn
Guðs“. Ekkert var í skottinu nema
ábreiða yfir grillhlífina.
Dularfullt byssuhvarf
Farið var með manninn til yfir-
heyrslu á stöðina. Hann sagði að á
sunnudagsmorgun hefði hann farið
úr vinnu til að fara í kirkju þar sem
átti að skíra barn í fjölskyldunni.
Þegar hann ók framhjá versluninni
mundi hann að hann hefði gleymt
nestinu sínu í brauðgerðinni. Hann
beygði inn á bflastæðið til að snúa
við en sá þá að hann hefði ekki tíma
til að sækja nestið svo hann ók burt
aftur og hélt áfram heim.
Hann var spurður hvort hann
hefði séð einhvern meðan hann var
á stæðinu og þá nefndi hann konuna
sem kom að sækja blaðið. — Það var
kjánalegt að veifa til hennar því ég
vissi að hún sæi mig ekki, sagði
hann. Hins vegar hefði blaðburðar-
konan kannski séð hann því hann
hefði blikkað bflljósunum að henni
um leið og hann ók út af stæðinu.
Maðurinn viðurkenndi sem sé
fúslega að hafa verið við verslunina
en kvaðst ekkert vita um ránið eða
morðið. Mary væri vinkona sín og
ekki hvarflaði að sér að skaða vini
sína.
Maðurinn sem var 21 árs var frá
Swannsylvaníu í Jefferson—um-
dæmi. Hann leigði herbergi hjá vini
sínum í Morristown en notaði það
bara þegar veður var svo vont að
hann komst ekki heim. Þangað var
hann að fara til að hafa fataskipti
þennan sunnudagsmorgun. Hann
gaf upp nafn húseigandans.
— Þegar ég heyrði nafn konunn-
ar, hringdu bjöllur í höfðinu á mér,
sagði Cook fréttamönnum seinna.
— Einmitt þessi kona hafði tilkynnt
að hún saknaði byssu. Ekki hafði
verið brotist inn þannig að konan
taldi að einhver í húsinu hefði tekið
byssuna.
Þeim grunaða var leyft að fara til
vinnu sinnar og Ijúka vaktinni en
var beðinn að koma klukkan 11 fyrir
hádegi á þriðjudeginum til að gang-
ast undir lygamælispróf.
Cook athugaði tilkynningu kon-
unnar sem var frá 2. janúar 1989 en
byssan gæti hafa horfið síðustu daga
desember. Hún var af hlaupvídd .25.
Cook og Jarnagin fóru heim til kon-
unnar. Hún tjáði þeim að hinn
grunaði hefði búið í húsinu þegar
byssan hvarf. Hann hefði einnig
komið heim á sunnudagsmorgun-
inn milli átta og hálfníu til að hafa
fataskipti. Hún sagðist ekki muna að
hann hefði tekið annað með sér en
dós sem hann geymdi smápeninga í.
Hann hefði komið aftur laust eftir
kl. eitt og farið með þrjú börn henn-
ar út og gefið þeim ís. Það hafði
aldrei gerst áður. Síðar um daginn
kom hann til að biðja um rúmföt til
skiptanna og sagði henni þá að Mary
Slover hefði verið myrt. Konan
kvaðst hafa spurt hann um sjón-
varpsmyndavélina sem fylgdist með
öllu í versluninni. Hann svaraði því
til að hún hefði aldrei verið í lagi.
Grunur staðfestur
Sá grunaði kom í lygamælisprófið
en meðan á því stóð breytti hann
skyndilega ljúfmannlegri framkomu
sinni og heimtaði að fá lögfræðing
sinn. Þegar lögfræðingurinn kom
ráðlagði hann manninum að segja
ekkert meira og krafðist þess að
skjólstæðingur sinn yrði annað-
hvort látinn í friði eða ákærður.
Þegar hér var komið styrktust
grunsemdir lögreglunnar um allan
helming. Maðurinn, fyrrum sam-
starfsmaður Mary Slover í verslun-
inni, hét Jonathan Vaughan Evans.
Ákveðið var að kanna feril hans nánar.
Yfirmaður hans í brauðgerðinni
sagði að hann hefði beðið um frí til
að vera við skírn þennan sunnudag.
Vinnufélagar hans sögðu að honum
hætti til að ýkja og gera meira úr
sjálfum sér en efni stæðu til. Ein
saga hans var sú að náinn ættingi
hans væri heilaskurðlæknir.
Markverðustu upplýsingarnar
komu frá góðvini hans sem vann
með honum. Sá sagði að Jonathan
hefði iðulega talað um hversu auð-
velt væri að ræna verslunina sem
hann hefði starfað í áður. Bara þyrfti
að fara þangað snemma morguns og
taka peningana frá deginum áður.
Myndavélin væri biluð, maður gengi
bara inn, tæki peningana og færi
aftur. Jonathan hefði oft minnst á
þetta.
Á sunnudagsmorguninn hafði
hann get tvennt óvenjulegt: Þegar
hann fór úr vinnunni hafði hann
verið sérdeilis illa klæddur miðað
við að hann gerði sér alltaf far um að
vera fínn. Vinurinn veitti því líka at-
hygli að þegar Jonathan ók burt
beygði hann til hægri, í átt að versl-
uninni en ekki til vinstri eins og
hann hefði átt að gera til að fara
heim til sín.
Vinurinn hafði einnig séð Jonat-
han nokkrum sinnum með litla
byssu, í fyrsta sinn um áramótin. Þá
sagði hann að Jonathan hefði hringt
til sín milli hálfníu og níu á sunnu-
dagsmorguninn og tilkynnt að af-
greiðslustúlkan í versluninni hefði
verið myrt.
Á miðvikudag fékkst heimild til að
gera húsleit heima hjá Jonathan en
vinkona hans bjó þar þá líka. Sitt-
hvað markvert fannst, m.a. nokkrar
rúllur af skiptimynt, alls 120 dollar-
ar sem er svipuð upphæð og venju-
lega var geymd yfir nótt f verslun-
inni. Þá kom fram að Jonathan hafði
látið gera við bfl vinkonunnar og
greitt viðgerðina með þremur rúll-
um af smápeningum. Þá fannst
kvittun frá veðlánara fyrir skartgrip-
um og riffill sem keyptur var á sama
stað. Hins vegar fannst engin
skammbyssa.
Bankareikningur Jonathans sýndi
að á mánudeginum hafði hann lagt
inn samtals 400 dollara í tveimur
útibúum sama banka. Þetta var und-
arlegt þar sem hann hafði aðeins
fengið útborgaða 92 dollara vikuna
áður.
Gaf bömunum ís
Eftir húsleitina var farið með vin-
konu Jonathans á stöðina til yfir-
heyrslu. Hún sagði að Jonathan
hefði komið heim á sunnudags-
morgun áður en hún fór á fætur.
Þau fóru síðan til kirkju í Jefferson.
Á leiðinni heim aftur óku þau fram-
hjá versluninni og komust þá að því
að afgreiðslustúlkan hefði verið
skotin. Hún hélt því fram að Jonat-
han hefði ekki notað símann þennan
morgun. Hann hefði komið með
smápeningabaukinn fullan heim, á
mánudeginum keypti hann sér 50
dollara skó sem hann greiddi með
reiðufé.
Stúlkan kvaðst fyrst hafa séð hann
með byssuna um áramótin. Á
þriðjudagsmorgun hefði hann
hringt heim úr vinnunni, beðið
hana að taka byssuna úr skápnum
og losa sig við hana. Þegar hér var
komið sögu kom lögfræðingur
stúlkunnar og bannaði henni að
segja meira. Jonathan hafði hringt
til hans og beðið hann að fara á stöð-
ina.
Fleira kom fram þegar rætt var
við börnin þrjú sem Jonathan hafði
gefið ísinn síðdegis á sunnudegin-
um. Þau sögðu að hann hefði alltaf
haft rauðu lambhúshettuna hang-
andi í speglinum en hún hefði ekki
verið þar þá. Þau mundu ekki eftir
hafnaboltahúfu eða hönskum í bfln-
um. Hins vegar hefði grillábreiðan
alltaf verið framan á bflnum en í
þetta sinn var hún í skottinu. Þau
sáu hana þegar Jonathan þurfti að
skipta um hjólbarða framan við hús-
ið eftir ökuferðina. Þau sáu líka sím-
tól þar með snúru en ekki meira af
símanum.
Elsta telpan sagði að Jonathan
hefði gefíð sér tíu dollara. Hann
hefði sagt að lögreglan kæmi eflaust
og vildi tala við hana. Þá skyldi hún
segja að hann hefði komið heim úr
vinnunni kl 7.45 en ekki átta á
sunnudagsmorguninn. Hann rétti
henni peningana fyrir að gera það.
Haft var samband við konuna sem
bar út blöðin á sunnudagsmorgun-
inn. Hún kom með blöðin í verslun-
ina klukkan hálfátta en þá var eng-
inn þar. Hún skildi blöðin bara eftir
og hélt leiðar sinnar eftir næstu
götu til að bera út í húsin bak við
verslunina. Þegar hún fór yfir göt-
una mætti hún bfl og bflstjórinn
blikkaði ljósunum að henni.
Hún hugsaði ekki meira um það
fyrr en tveimur dögum seinna þegar
maður ávarpaði hana við útburðinn.
Hann sagðist hafa verið á ferð við
verslunina á sunnudagsmorgun og
blikkað ljósunum. Hann lagði
áherslu á að hafa verið að koma frá
versluninni þegar hann var í raun að
fara þangað.
í augum lögreglumanna fól þetta
í sér tvo möguleika. Jonathan hafði
ekið um til að athuga hvort einhver
væri á ferð um svæðið eða að hann
hafði viljað láta fólk sjá sig til að fá
það til að styðja rangan framburð
sinn seinna. Hann talaði ekki við
konuna sem sá hann í bflnum á
stæðinu því hann taldi að hún hefði
ekki séð hann.
Sex ára barn lykilvitni
Sannanir hlóðust upp gegn Jonat-
han Evans og 10. febrúar var hann
formlega ákærður fyrir morðið á
Mary Slover. Bfll hans var dreginn á
lögreglustöðina og þar sá Harrison
umferðarlögreglumaður hann.
Hann sagðist hafa verið við umferð-
arstjórn við morðstaðinn á sunnu-
dagsmorgun þegar ökumaður þessa
bfls hefði spurt sig hvað væri á seyði.
Hann mundi eftir bflnum vegna
hins sérkennilega númers DEBE-
AST.
Jarnagin spurði latínukennara
hvað orðið þýddi og fékk þær upp-
lýsingar að það þýddi alls ekki „Barn
Guðs“ heldur nánast andstæðu þess
og tengdist djöfladýrkun. Eftir
handtökuna var haldið áfram að
safna sönnunum. Allt skyldi smella
vandlega saman.
Nú kom f ljós að byssa konunnar
hafði átt það til að standa á sér og
var þar komin skýringin á hvers
vegna skothylkið fannst ekki í versl-
uninni. Það hafði ekki spýst úr byss-
unni. Farið var á stað þar sem konan
hafði skotið npkkrum æfingaskot-
um og þau fundust eftir mikla leit
með málmleitara. Nú voru kúlurnar
bornar vandlega saman við kúluna
úr höfði Mary til að athuga hvort um
sömu byssu væri að ræða. Svo
reyndist vera.
Konan sem átti byssuna kom á
skrifstofu saksóknara með tvö af
börnum sínum og þegar farið var að
tala um byssuna varð 6 ára sonur
hennar áberandi órólegur. Cook fór
með hann fram á gang og spurði
hvort hann vissi eitthvað um byss-
una. Drengurinn kinkaði kolli og
sagði svo frá því að þegar Jonathan
fór með þau út að kaupa ísinn hefði
hann séð kassa í aftursætinu og
opnað hann. Þar hefði hann séð
byssuna ásamt fleira dóti og sagt
sem svo: — Þetta er byssan hennar
mömmu.
Þá hefði Jonathan snögghemlað,
tekið hníf úr hanskahólfinu, rekið
hann upp að andlitinu á drengnum
og sagt honum að ef hann stein-
þegði ekki yfir þessu fengi hann að
kenna á því.
Cook fór aftur inn með drenginn
sem endurtók frásögn sína fyrir sak-
sóknara. Hitt barnið staðfesti frá-
sögnina.
Nú var bara eftir að finna skýr-
ingu á frásögn unga mannsins sem
ók framhjá versluninni, sá konu
detta og einhvern hlaupa burt. Haft
var samband við hann og borið upp
á hann að hann lygi sögunni. Hann
viðurkenndi það og skýrði með að
hann hefði verið í vinnuleyfi úr
fangelsi þegar marijuana fannst á
honum. Hann taldi að ef hann
reyndi að hjálpa lögreglunni yrði
vægar tekið á málinu.
Réttarhöldin yfir Jonathan Evans
hófust 12. desember 1989. Saksókn-
ari kallaði 37 vitni. Það tók kviðdóm
aðeins 45 mínútur að komast að
þeirri niðurstöðu að hann væri sek-
ur um morð að yfirlögðu ráði. Þann
16. desember var hann dæmdur til
dauða í rafmagnsstólnum.
Rafstöövar
OG
dælur
FRÁ
5UBARU
BENSfN EÐA DIESEL
Mjög gott verð
Rafst.: 600-5000 W
Dælur: 130-1800 l/min