Tíminn - 17.11.1990, Blaðsíða 4
OCvh ro'itnsvóri .W ■'uosbiBQUS.J
Laugardagur 17. nóvember 1990
c nnimlT
■4'TímiTTrr
Líkurnar fyrir því að karlmaður fari í áfengismeðferð
einhvern tíma á ævinni eru vægast sagt óhugnanlegar:
Þriðjungur íslenskra
karla fer í meðferð
Tæplega 30% líkur eru á því að ís-
lenskur karlmaður sem nú er á
fermingaraldri muni leita sér með-
ferðar vegna áfengissýki eða annarr-
ar vímuefnaneyslu einhvern tíma á
ævinni. Þegar konur eiga í hlut eru
líkurnar 11,5%. Því er ljóst að Iíkur
eru á því að tveir af hverjum tíu ís-
lendingum, óháð kyni, leiti sér með-
ferðar, einhvern tíma á lífsleiðinni.
Þessar upplýsingar má lesa út úr
tölulegum upplýsingum sem safnað
hefur verið á Vogi, meðferðarstofn-
un SÁÁ, undanfarin ár og Þórarinn
Týrfingsson yfirlæknir kynnti á
blaðamannafundi í gær. Út frá töl-
um um mannfjölda á íslandi og töl-
um um nýliða sem koma til með-
ferðar og aldur þeirra má reikna lík-
ur á því að íslendingar leiti sér með-
ferðar vegna áfengissýki eða
annarrar vímuefnaneyslu. í ljós
kemur að flestir karlmenn koma til
meðferðar meðan þeir eru á aldrin-
um 20 til 50 ára, 22 af hverjum 100,
og konur koma flestar milli 30 og 50
ára, 5,5 af hverjum hundrað. Lík-
urnar fyrir því að íslendingur þurfi
að leita sér meðferðar má sjá í þess-
ari töflu. Útreikningar byggjast á
tölum um mannfjölda á Islandi og
tölum um nýliða og aldur þeirra á
árunum 1984 til 1987. Líkurnar eru
gefnar í prósentum:
Karlan Konun
20 og yngri 1% 20 og yngri...l%
20 - 29 ára. 7,5% 20 - 29 ára...2%
30 - 39 ára..7% 30 - 39 ára. .2,5%
40 - 49 ára..7% 40 - 49 ára.. 3%
50 - 59 ára.4% 50 - 59 ára.. 1,5%
60 - 69 ára.2% 60 - 69 ára...l%
69 ogeldri.0,5% 69 og eldri.. 0,5%
Alls.....29,5% Alls.........11,5%
Samkvæmt þessu eru karlmenn í
mun meiri hættu en konur. Líkur
eru á því að 7,5% allra karla á aldr-
inum 20-29 ára leiti sér meðferðar
en einungis 2% kvenna. Hlutfall
kvenna og karla er hið sama í þeim
hópi sem er yngri en 20 ára og eldri
en 69 ára. Hlutfall kvenna eykst eft-
ir því sem þær verða eldri og nær
Þórarinn Tyrfingsson, yfiriæknir á Vogi, á blaðamannafundinum í gær.
hámarki, 3 prósent, á aldrinum 40
til 49 ára. Eftir það minnkar það.
Hlutfall kvenna á Vogi hefur smám
saman aukist. Konur eru nú 26% af
öllum sjúklingum þar og á næst-
unni er búist við að það hlutfall
muni aukast og verða 30%.
Á Vog leita um 1600 einstaklingar á
hverju ári. Um 600 þeirra hafa aldrei
komið til meðferðar áður. Um 200
hafa einungis dvalið í stuttan tíma
til afvötnunar en ekki farið í fulla
áfengismeðferð áður. Um 350 af
þessum einstaklingum hafa farið í
eina áfengismeðferð á síðustu 15 ár-
um. Hinir 400, þar af 100 konur,
hafa komið oftar í áfengismeðferð.
Tölulegar upplýsingar sýna að hlut-
ur þeirra sem hefur komið oftar en
einu sinni í meðferð hefur ekki auk-
ist frá 1986. Um 800 manns fara í
fulla áfengismeðferð hjá SÁÁ á ári
hverju.
Helmingur þeirra, sem eru 25 ára
eða eldri og eru að leita sér meðferð-
ar í fyrsta sinn og ljúka áfengismeð-
ferð, notar ekki áfengi eða önnur
vímuefni næstu tvö ár. Þetta eru
niðurstöður úr könnun á árangri
1984 til 1987. Þeir sem leita sér
meðferðar í annað sinn ná 30 pró-
sent árangri, ekki er munur á körl-
um og konum.
Þórarinn Tyrfingsson sagði á fund-
inum að það forvarnarstarf sem væri
stundað hérlendis væri langt því frá
að vera markvisst. Það beindist nær
eingöngu að unglingum, sem væri
að sjálfsögðu mjög þarfur hlutur, en
menn hefðu gleymt að setja sér ein-
hver markmið þegar þeir hæfu for-
varnarstarfið og því væri það að
mestu marklaust. Ekki sé hægt að
mæla neinn árangur af starfinu ef
menn settu sér engin markmið í
upphafi. Einnig hafi gleymst að
beina sjónum að eldra fólkinu en
þessar tölur sem nú væru birtar í
fyrsta sinn, sýndu að líkurnar fyrir
því aö menn leituðu meðferðar
væru mestar þegar þeir væru á aldr-
inum 30-50 ára.
Aðeins 0,5% líkur eru á því að fólk
eldra en 69 ára leiti sér meðferðar.
Tfmamynd: Pjetur
Sá elsti sem komið hefur til með-
ferðar hjá SÁÁ var 82 ára gamall.
Þórarinn sagði að merkja mætti ár-
angur starfs þeirra á milli áranna ‘86
og ‘87 en þá fækkaði nýjum sjúk-
lingum talsvert. Hins vegar sé ljóst
að talsverð aukning varð á nýliðum
frá 1987 og sé það að mestu bjórn-
um að kenna. Hann sagði að það
sem væri alvarlegast með tilkomu
bjórsins væri að lifrarsjúkdómum
myndi fjölga en íslendingar hafa til
þessa staðið sig betur en nágranna-
þjóðirnar í þeim efnum. Hann sagði
að ekki væru komnar neinar tölur
sem staðfestu þetta en við þessu
væri búist. —SE
Breyting á stjórn ísrael:
Harðlínumenn til liðs
við stjóm ísraels
Flokkur strangtrúaðra gyðinga gekk tll liðs við hægristjórn ísraels í gær,
þannig að nú hefur stjórn Yitzhaks Shamir hreinan meirihluta, en krafðist
þess jafnframt að sett yrðu lög sem bönnuðu svínakjöt og kynferðislega
ögrandi auglýsingar.
Agudatflokkurinn hefur fjóra menn á
þingi og nú er hann er genginn til liðs
við samsteypustjóm Shamirs hefúr
hún 64 sæti af 120 á ísraelska þinginu.
Shamir hefur einnig stuðning mjög
hægri sinnaðs flokks, sem á tvo full-
trúa á þingi, en hefur ekki viljað ganga
inn í samsteypustjómina.
Við samkomulagið hlaut Agudat-
flokkurinn þrjú aðstoðarráðherra-
embætti og forsæti efriahagsnefndar
þingsins sem er mjög áhrifamikil og
hefur eftirlit með ríkisútgjöldum.
Shamir samþykkti að styðja fjögur
lagafrumvörp um að lög strangtrúaðra
gyðinga gildi fyrir alla íbúa ísrael.
Agudatflokkurinn setti ekki nein
ákveðin tímamörk varðandi frum-
vörpin en krafðist þess að þau yrðu
lögð fram sem fyrst.
Flokkurinn vil leggja blátt bann við
fóstureyðingum, vafasömum auglýs-
ingum, vill banna almenna umferð á
sabbatdögum gyðinga og framleiðslu
og neyslu svínakjöts.
Búist er við að þessu frumvörp hljóti
harða andstöðu á þingi, en þingmenn
eru flestir, eins og almenningur yfir-
leitt, fremur frjálslega sinnaðir hvað
trúarbrögðin snertir.
Agudatflokkurinn sagði sig úr sein-
ustu ríkisstjóm fyrir ári og hélt því
fram að Shamir hefði gengið á bak
orða sinna varðandi setningu Iaga sem
hefðu fært strangtrúuðum rabbínum
meiri völd.
Kaíró Hosni Mubarak, forseti hlé varð á fangaskiptunum fýrir við dollarann, breytingin tekur
Egyptalands, kveðst hafa hvatt tveimur mánuðum. glldi á sunnudaginn.
Sameinuðu þjóðirnar til að draga
það að fyrirskipa hernaöarað- Moskva — Mikhail Gorbatsjev París — Ihaldssöm stjómarand-
gerðir við Persaflóa um allt að sovétleiötogi krefst aðgeröa til staða I Frakklandi bar fram van-
þrjá mánuði til aö gefa Irökum að koma f veg fyrir hrun Sovét- trauststillögu á ríkisstjórn sósíal-
ráðrúm til að hugleiða þann ríkjanna og stakk upp á þvi að ista vegna kynningar á nýjum
möguleika að þeir dragi sig út úr hann tæki stjóm sína til gagn- umdeildum skatti.
Kúvæt. gerrar endurskoðunar til að
vinna aftur minnkandi traust al- Manila — Feliibylurinn Mike
Dhahran, Saudi-Arabíu — mennings. Vatikaniö hefur tll- varð að minnsta kosti 270
Stjóm Saudl-Arabfu hefur harð- kynnt að Jóhannes Páll páfi manns aö bana og eyðilagði
lega gagnrýnt almenn mótmæli muni hitta Gorbatsjev á sunnu- milljóna dollara virði af fasteign-
gegn banni við kvenkyns öku- daginn, I annað skiptið á einu ári. um f miö- og suðurhluta Filips-
mönnum og gerði það Ijóst að Þetta hefur komið af stað vanga- eyja.
hún kærði sig ekki um nein læti veltum um hvort heimsókn páfa
meðal almennings á meðan á til Sovétríkjanna só í deiglunni. Brussel — NATO hefur tilkynnt
Persafióadeilunni stæði. _ að viðræður um afvopnun f Evr-
Jerúsalem — Innflytjendaráð- ópu, sem hingað til hafa tak-
Washington —- George Bush herra (sraels hefur vakið upp markast við riki innan Atlants-
Bandaríkjaforseti hélt í gær af mikla óánægju með þvi að krefj- hafs- og Varsjárbandalagsins,
stað f ferö til Evrópu og Mið- ast þess að hömlur verði settar á muni ná tii 34 rikja innan tveggja
Austurlanda til að binda form- innflytjendur frá Sovétríkjunum, ára.
lega enda á kalda stríðið og til þar sem fjórir af hverjum t(u inn-
þess að eiga einkaviðræður við flytjendum væru ekki gyðingar. Búdapest — Varnarmálaráð-
aðra leiðtoga vegna ástandsins herra Ungverjalands hefur til-
við Persaflóa. _ kynnt að land hans ætli án tafar
Beijing — Kinverjar hafa að losa sig við ailar meðaldræg-
Nikósía —• íranar og frakar ákveðið að lækka gengi gjald- areldflaugarfráSovétrikjunum, í
hafa ákveðið að byrja aftur á þvf miðils síns um 9,57% frá núver- þeirri von að nágrannaríkin fari
að skiptast á strlðsföngum en andi gengi sem er 4,71 miðað að fordæmi þeirra.