Tíminn - 17.11.1990, Blaðsíða 8

Tíminn - 17.11.1990, Blaðsíða 8
8 Tíminn Laugardagur 17. nóvember 1990 TILKYNNING FRÁ OSTA- OG SMJÖRSÖLUNNI sf. í nýútkomnu jólablaði okkar, Á JÓLARÓLI nr. 2, átti sér stað misprentun í tveimur uppskriftum. Jólakaka í sérflokki: Hér skal nota 1/2-1 tsk. af lyftidufti en ekki 6 tsk. Myntuábætir: Hér eiga að vera 2 bollar af súkkulaðikexmylsnu en ekki súkkulaðimylsnu. Við biðjumst hér með velvirðingar á þessum mistökum. JEPPA- HJÓLBARÐAR Hágæða hjólbarðar HANKOOK frá Kóreu 215/75 R15 kr. 6.950,- 235/75 R15 kr. 6.950,- 30/9,5 R15 kr. 6.950,- 31/10,5 R15 kr. 7.950,- 33/12,5 R15 kr. 9.950,- Örugg og hröð þjónusta BARÐINN hf. Skútuvogi 2, Reykjavík Símar: 91-30501 og 91- 84844 BÍLALEIGA með útibú allt í kringum landið, gerir þér mögulegt að leigja bíl á einum stað og skila honum á öðrum. Reykjavík 91-686915 Akureyri 96-21715 Pöntum bíla erlendis interRent Europcar Hjartans þakkir til allra þeirra sem glöddu mig á níræðisafmæli mínu þann 9. nóv. með skeytum, kortum, gjöfum og samtölum. Sérstakarþakkir fá börn mín og starfsfólk hjúkrunardeildar Vífil- staðaspítala, sem gerðu daginn ánægjulegan og eftirminnilegan. Guð blessi ykkur öll og launi fyrir mig. Jón Einar Jónsson frá Skálanesi -----------------------------------------------------ð Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma Jónína Sigurlaug Þórarínsdóttir Æsufelli 2, Reykjavík sem lést á Landspítalanum 8. nóvember verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 19. nóvemberkl. 13.30. Helgi Magnússon Guðmundur Helgason Inga Númadóttir Helgi Þórarinsson AHreð Þórarinsson Signý Þórarinsdóttir og bamaböm Á myndinni em flórir af aðstandendum keppninnar hér á landi, þeir Bragi R. Jónsson, Samúel Guðmundsson, Karí Jóhannesson og Jóhann Þór Jónsson. Samnorræn stjórnunarkeppni: Keppt í stjórnun Þessa dagana stendur yfir skráning í Samnorrænu stjómunar- keppnina. Þessi keppni er nú haldin í fjórða sinn hér á landi en hún var fyrst haldin í Finnlandi þegar nemendafélag háskólans í Hels- inski fór af stað með keppni fyrir stjómendur fyrirtækja árið 1983. í upphafi var hugmyndin sú að halda keppnina innan Finnlands, en ákveðið var að gefa stjórnendum fyr- irtækja í fleiri löndum kost á þátt- töku. Árið 1985 sáu verslunarhá- skólarnir í Bergen og Stokkhólmi um keppnina í viðkomandi löndum og ári seinna slóst verslunarháskól- inn í Kaupmannahöfn í hópinn. Árið 1987 bættust svo viðskiptafræði- nemar í Háskóla íslands í hóp þeirra sem sjá um keppni þessa og fékk keppnin þá nafnið Scandinavian Business Tournament. Keppnin er í því fólgin að keppend- ur stjórna ímynduðu lyrirtæki á til- búnum markaði í fimm rekstrarár. Á þessum tíma verða keppendur að taka margvíslegar ákvarðanir, svo sem hversu mikið skuli framleiða, fjárfesta, kaupa af hráefni o.s.frv. í þessum tilgangi fylla keppendur út sérstakt ákvörðunarblað og eru ákvarðanirnar síðan slegnar inn í tölvu og keyrðar í þar til gerðu for- riti, þar sem hver keyrsla telst eitt rekstrarár. Sigurvegari verður svo það lið sem skilar mestum hagnaði á fimm ára tímabili. Slík keppni er haldin í hverju landi fyrir sig og tvö efstu liðin frá hverju landi mætast svo í úrslitakeppni um hver verði Norðurlandameistari. Lögð er áhersla á að starfsmenn fyrirtækja í öllum greinum, hvar sem er á landinu, geta tekið þátt í keppninni. Liðum hefur verið gefinn kostur á að skora á önnur fyrirtæki á að senda lið í keppnina, og geta því keppinautar í svipuðum greinum keppt sérstaklega við hvorn annan. Keppnin fer þannig fram að liðun- um er skipt niður í riðla og geta allt að 10 lið keppt saman í hverjum riðli. Hver riðill er einnig sérstakur samkeppnismarkaður, þ.e. hag- kvæmni þeirrar ákvörðunar sem tekin er fer eftir því hvaða ákvarðan- ir hin liðin taka um sama efni. Síð- ustu þrjár keyrslurnar verða allar sama daginn og verða öll lið saman komin undir einu þaki. Fyrstu keyrslurnar fara fram bréfleiðis en með því að hafa alla keppendur á sama stað verður keppnin meira spennandi og baráttan og sigurvilj- inn magnast meðal keppenda. Fyrsta árið sem keppnin var haldin á Islandi tóku 16 Iið þátt og sigraði lið Hewlett Packard en Prentsmiðj- an Oddi lenti í öðru sæti. Liðin tvö fóru síðan til Bergen til að keppa til úrslita um Norðurlandameistaratit- ilinn og náðu Oddamenn þeim glæsilega árangri að komast í þriðja sæti. Annað árið vann HP aftur en lið Félagsstofnunar stúdenta varð í öðru sæti. í fyrra hafði liðunum fjölgað í 28 og urðu lið SPRON og Ríkisspítala í tveimur efstu sætun- um og tóku þátt j Norðurlandaúr- slitunum hérna á íslandi ásamt lið- um frá öllum hinum Norðurlöndun- um. Eftir hatramma keppni í rekstri íslensks frystihúss stóð lið Orion- yhtma OY frá Finnlandi uppi sem sigurvegari en litlum sögum fer af gengi íslendinga. í bæklingi sem nýlega kom út og kynnir keppnina segir að hún sé fyr- ir alla þá sem áhuga hafi á að glíma við ákvarðanatöku í fyrirtækjum. Einnig er hún fyrir fyrirtæki sem hafi áhuga á að mennta og þjálfa starfsmenn sína í stjórnun, víkka sjóndeildarhring starfsmanna og vekja athygli þeirra á ýmsum vanda- málum sem nútíma fyrirtæki þurfi að glíma við og þar að auki þá auki keppnin á samstöðu starfsmanna og sé skemmtileg nýjung í starfs- mannaþjálfun. Þátttakendur þjálfast í mikilvægum ákvarðanatökum, sjá afleiðingar rangra ákvarðana eða ár- angur ákvarðana sinna á skömmum tíma, sjá svörun keppinauta sinna, skilja betur teygnihugtakið og læra að nýta sér hinar ýmsu kennitölur. Þátttökugjald fyrir hvert lið er 60.000 krónur og nánari upplýsing- ar fást um keppnina í síma 629932. —SE HEILSUGÆSLUSTÖÐ Á HÚSAVÍK Boðinn er úr lokafrágangur heilsugæslustöðvar á Húsavík, þ. á m. málun inni, frágangur gólfa og raflagna, innréttingar, hreinlætistæki og frágang- ur lóðar. Verkið er boðið út í einu lagi. Gólfflatar- mál hússins er um 1477 ferm. Tilboð óskast í verkið bæði miðað við verklok 31. maí 1991 og miðað við verklok 31. október 1991. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7, Reykjavík, til og með fimmtudegi 29.11. gegn 10.000,- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R., Borgartúni 7, þriðjudaginn 4. desember nk. kl. 14.00. INNKAUPASTOFIMUINi RÍKISINS BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK t / m i n n i n g u VALS ARNÞÓRSSONAR Margir hafa misst og margir sakna góðs vinar og samferðamanns. Margir hafa tjáð sig við okkur nánasta fólkið hans með ómetanlega hlýjum kveðjum. Fyrir það viljum við þakka heils hugar. Blessun fylgi ykkur öllum. Sigríður Ólafsdóttir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.