Tíminn - 17.11.1990, Blaðsíða 15

Tíminn - 17.11.1990, Blaðsíða 15
l!:áiigardáaurÍ7'.nóvbÍT(bér19áO. -----ífjmihn.27.' Ólympíuleikarnir í Barcelona: Knattspyrnan hefst daginn fyrir opnun Daginn fyrir setningarathöfn Ólympíuleikanna í Barcelona 1992, hefst knattspyrnukeppni leikanna. Knattspyrnan hefst 24. júlí, en setn- ingarathöfnin verður ekki fyrr en 25. júlí. Þetta er tillaga Alþjóða- knattspyrnusambandsins, en Al- þjóða ðlympíunefndin á effer að leggja blessun sína yfir tillöguna.BL NISSAN SUNNY SENDIBÍLL Ljúfur og þægilegur vinnuþjarkur VERÐ KR. 580.000 sTGR. án VSk Getum líka boðið þér afborgunarkjör sem eru hreint ótrúleg! Hringdu og heyrðu allt um það. BÍLASÝNING laugardag og sunnudag kl. 14 tii 17 Ingvar Helgason ht Sævsrhöfða 2 Sími 91-674000 Fjörug helgi í dag mætast Stjaman og ÍR í Garða- bæ, Valur og Grótta á Hlíðarenda og Víkingur og Haukar í Laugardalshöll í 1. deild karla í handknattleik. AlUr leUdmir hefjast Id. 16.30. Á morgun leika Selfoss og Fram á Selfossi Id. 20.00. Á morgun eru fjórir leikir í úrvals- deildinni í körfuknattleik. Kl. 16.00 leika Snæfell og Haukar í Stykkis- hólmi, en kl. 20 mætast ÍR og KR í Seljaskóla, Þór og Valur á Akureyri og Keflavík og Grindavík í Keflavík. BL Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu: Frakkar án Cantona og Papin í Tirana Loks kom að því að lið Denver Nuggets ynni leik í NBA-deildinni í körfuknattleik. Það gerist í fyrri- nótt þegar liðið lagði Minnesota Timberwolves að velli með „að- eins“ 117-108. Orlando Magic sigraði Utah Jazz í framlengdum leik 102-99 og Los Angeles Lakers þurfti einnig fram- Iengingu til að sigra Houston Roc- kets 108-103. Portland Trail Blazers er enn tap- laust eftir stórsigur á New York Knicks 141-125. Golden State Warriors sigraði Chicago Bulls 103-93 og San An- tonio Spurs vann Sacramento Kings 122-93. BL í dag mætast Albanir og Frakkar í 1. riðli undankeppni Evrópumóts landsliða í knattspymu í Tirana, höfuðborg Albaníu, en íslenska landsliðið leikur einmitt í þessum sama riðli. Stórt skarð er höggvið í raðir Frakka í dag, því framheijam- ir snjöllu, Eric Cantona og JeanPi- erre Papin, geta ekki leikið með vegna meiðsla. Þeir Cantona og Papin hafa að und- anfórnu verið einn hættulegasti framherjadúett Evrópu, bæði með franska landsliðinu og félagsliði sínu Marseillé. Þeir hafa skorað 17 landsliðsmörk á 15 mánuðum. Michel Platini, landsliðsþjálfari Frakka, verður í dag að treysta á að þeir Philippe Tibeuf, framherji St. Etienne, og Pascal Vahirua, kant- maður Auxerre, haldi uppi merki þeirra Cantona og Papin og skori mörk sem dugi Frökkum til sigurs. Frakkar eru efstir í riðlinum eftir sigur á íslendingum og Tékkum og Platini er ákveðinn í því að fá stig til viðbótar í dag. „Ég sætti mig við 1-0 sigur og að markið komi ekki fyrr en á 89. mín. Ég veit að í albanska lið- inu eru góðir einstaklingar, þeir eru tæknilega góðir og geta truflað okk- ur í allt að 45 mínútur," segir Plat- ini. En fleiri Marseille-Ieikmenn eru meiddir en Cantona og Papin. Miðjumaðurinn Philippe Vercruysse er meiddur á ökkla og bakvörðurinn Manuel Amaros er að jafna sig eftir NBA-deildin: Fyrsti sigur Denver Nuggets aðgerð á hné og þeir geta ekki leikið með í dag. Frakkar státa af því að vera sú Evr- ópuþjóð sem lengst hefur verið ósigruð, 20 mánuðir eru liðnir frá því Frakkar töpuðu fyrir Skotum. Síðan hafa þeir meðal annars sigrað V-Þjóðverja, en það gerðist í febrúar sl. Frökkum er það vel ljóst að sigur í Tirana í dag er allt annað en örugg- ur fyrirfram. Marseille gerði marka- laust jafntefli gegn Dinamo Tirana í Evrópukeppninni í síðasta mánuði. Albanir státa samt ekki af glæstum sigrum á knattspyrnuvellinum á liðnum árum. Þeir hafa ekki haft sigur í landsleik í 6 ár og í eina leik sínum í Evrópukeppninni til þessa Körfuknattleikur: Páll kjörinn körfuknattleiks- maður ársins Körfuknattleikssamband ís- lands hefur útnefnt Pál Kolbeins- son, leikmann nteð KR, körfu- knattleiksmann ársins 1990. Páll var valinn leikmaður keppn- istímabilsins 1989-1990 af leik- mönnum í úrvalsdeildinni, en hann var einn allrabesti leikmað- ur KR-liðsins, sem varð þá ís- landsmeistari. Páll lék sýningar- leik með Norðurlandaúrvalinu gegn landsliði Finna í september á þessu ári. BL töpuðu þeir 2-0 fyrir íslendingum í Reykjavík. Síðast gerðu Albanir jafntefli gegn Grikkjum fyrir tæpum 2 árum. Agron Sula, sem tók við albanska liðinu fyrir 5 árum, segir: „Okkar bestu leikmenn hafa ekki næga trú á sjálfum sér. Þeir hafa enga hugmynd um hvað það er að sigra og þá skort- ir lágmarks sjálfstraust." Liðin Albanía: Anesti Arapi, Genci Ibro, Skender Hodja, Rabo Taho eða Artur Lekbello, Arjan Stafa, Mirel Josa, Lorenc Leskaj, Sulejmman De- mollari, Hysen Zmijani, Sokol Kushta og Kujtim Majaci. Frakk- land: Bruno Martini, Basile Boli, Laurent Blanc, Bernard Casoni, Frannck Sauzee, Bernard Pardo, Didier Deschamps, Jean-Phillippe Durant, Jean-Marc Ferreri, Philippe Tibuf og Pascal Vahirua. BL Páll Kolbeinsson. Enska knattspyman: Hvað gerir Gascoigne gegn Everton? Ensld landsliðsmaðurinn Paul Gascoigne ætlar sér áreiðanlega að sýna Graham Taylor, fram- kvæmdastjóra enska landsliösins, hvað hann getur, þegar Tbttenham mætir Everton á dag. Gascoigne varð að sætta sig við að sitja á varamannabekknum á miðviku- daginn þegar Englendingar léku gegn írum í Dublin. ,4 hverri viku leik ég leiki í 1. deildinni sem eru eins og leikurinn gegn írum. Mér finnst ég valda þeirri pressu sem á manni er í landsleikjum, ég hef þegar það mikia reynslu," segir hann. Mótherjar Tottenham í dag eru Everton, sem er í mMli fallhættu í deildinni. Tottenham er í 3. sæti deildarinnar, 9 stigum á eftir Li- verpool. Hovvard Kendall stjómar Everton-liðinu í sínum fyrsta heimaleik í dag, en hann tók ný- lega víð liðinu eftir dvöl á Spáni og hjá Manchester City. Á áttunda ár- tugnum náði Everton-liðið góðum árangri í deildinni og Evrópu- keppninni undir stjóm Kendalls. Annar fyrrum Evertonmaður, Peter Reid, hefur verið ráðinn sem arftaki Kendalls hjá City. Hann ætlar jafnvel að taka sjálfan sig út úr Uðinu sem mætir Luton á útívelli í dag. Cify, sem er í 6. sæti í 1. deild, hefurenn ekkiunn- ið leik á útívelli, öllum 5 útileikj- um liðsins til þessa hefur kddð með 1-1 jafhtefli. Uverpool sækir Covenby heím í dag, en þar er einnig nýr sfjóri við stjómvöKnn, Térry Butcher, eins og áður hefur komið fram í blað- inu. Arsenal, sem tapaði 2 stígum í vikunni í kjölfar slagsmála leik- manna í lelk gegn Manchester Un- ited fyrir skömmu, mætir Sout- hampton í dag. Arsenal má ekki við því að tapa flehi stlgum, for- skot Uverpool er þegar orðið ærið og meistaratitíllinn blasir við fé- laginu enn eitt árið. Tékkinn Ivo Stas verður væntan- lega í liði Aston Villa, sem mætir Norwich í dag. Stas var keyptur tíl VUla fyrr í vikunni fyrir 200 þús- und pund frá Banik Ostrava í Tékkóslóvakíu. Stas, sem er landsliðsmaður, skoraði sjálfs- maric gegn Aston Villa í UEFA- keppninni í síðasta mánuði, þann- ig að hann er þegar farinn að skora fyrirVilla. Framkvæmdastjóri Villa er sem kunnugt er Josef Venglos, sem stjómaði liöi Tékka á HM í sumar. í ensku 1. deildinni eru fyrir Téldt- arnir Ludek Mðdosko hjá West Ham og Jan Stejskal þjáQPR- BL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.