Tíminn - 17.11.1990, Blaðsíða 16

Tíminn - 17.11.1990, Blaðsíða 16
RÍKISSKIP NUTIMA FLUTNINGAR Hatnarhusmu v Tryggvagotu, S 28822 SAMVINNUBANKINN L í BYGGÐUM LANDSINS IE3 NIS5AN grps Réttur bíll á réttum stað. Ingvar 11 | | Helgason hf. /jfíP M / Æ&tf) Sævartiöföa 2 Sími 91-674000 L -/ m I iniinn LAUGARDAGUR17. NÓVEMBER1990 Hlutverk dagblaðanna víðtækara en ýmsir kynnu að ætla: Dánarauglýsingar helsti gagnabanki lífeyrissjóða Má það ekki merkilegt heita á okkar miklu upplýsingaöld, að slíkar gloppur skuli enn leynast í öllu kerfínu að almannatryggingar og lífeyr- issjóðir þurfa að hafa athugult fólk í vinnu við að kemba dag hvern dán- arauglýsingar dagblaðanna til að hægt sé að koma í veg fyrir að ellilífeyr- ir sé sendur til fólks löngu eftir að það er komið undir græna torfu? „Ríkisendurskoðun leggur til að launakerfi Launaskrifstofu ríkisins og lífeyriskerfi Lífeyrissjóðs starfs- manna ríkisins verði samkeyrt við þjóðskrá við launavinnslu í hverj- um mánuði. Þannig má girða fyrir greiðslu launa til þeirra sem ekki eru á þjóðskrá," segir m.a. í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um Launaskrifstofu ríkisins. Á tímum þegar flestir hafa á til- finningunni að þeir séu vandlega skráðir með nafni og ýmsum núm- erum og kennitölum í þéttriðnum tölvunetum um þjóðfélagið þvert og endilangt, fer ekki hjá því að slík tillaga veki nokkra athygli. Enda líka við því að búast að Launaskrif- stofa, sem kostar ríkissjóð 130 milljónir kr. í rekstri, hefði nærtæk- ari gögn en þjóðskrána til að stemma af launagreiðslur ríkis- sjóðs. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisendurskoðun eru dæmi um það að laun eða lífeyrir hafi verið greidd í nokkurn tíma eftir að fólk er látið. Þessi launakerfi hafi til þessa verið keyrð með þjóðskránni einu sinni á ári. En til þess að girða fyrir þann óþarfa að greiða laun til látinna og þau ieiðindi, sem af því hljótast ef krefjast þarf endur- greiðslu ofgreiddra launa eða lífeyr- is til látins manns, telur Ríkisendur- skoðun nauðsynlegt að keyra launa- kerfin mánaðarlega saman við ann- að hvort þjóðskrána, eða skrá látinna frá Hagstofunni. Lífeyrissjóðirnir og TVygginga- stofnun hafi t.d. brugðið á það ráð að fylgjast með auglýsingum dag- blaðanna um andlát og jarðarfarir, til þess að koma í veg fyrir að iífeyr- ir sé sendur inn á bankareikninga fólks eftir lát þess. Prestar landsins eiga að gefa Hagstofúnni mánaðar- lega upplýsingar um þá sem þeir jarða. Þannig eiga upplýsingar að berast reglulega til þjóðskrár og skrár látinna. Þama myndast hins vegar „gloppa“ í kerfið. Því engin bein tengsl eru milli þessara skráa Hagstofunnar, né frá nokkru öðru opinberu apparati til lífeyrissjóða né almannatrygginga og því síður til Launaskrifstofú ríkisins, utan áður- nefndrar samkeyrslu við þjóðskrána einu sinni á ári. Á meðan svo er, verður stöðvun á greiðslu launa og lífeyris eftir andlát fólks að byggjast á glöggu auga fólks við yfirlestur auglýsinga í öllum dagblöðum landsins hvern einasta dag. -HEI Togarinn Bliki: Fékk sprengju í botnvörpuna Togarinn Bliki frá Dalvík fékk í fyrrinótt djúpsprengju í botnvörp- una, þegar báturinn var staddur um 40 sjómflur út af Eskifirði. Skipverjar höfðu strax samband við Landhelgisgæsluna og sigldu síðan inn til Eskifjarðar. Sprengjusérfræðingar Landhelgis- gæslunnar fóru til Eskifjarðar og gerðu sprengjuna óvirka í gær. Að sögn Landhelgisgæslunnar er það nokkuð algengt að skip fái sprengjur í vörpuna, þó svo það hafi dregið úr því á undanförnum árum. Þeir vissu aðeins einu sinni af því að illa hefði farið, en það var fyrir 25-35 árum þegar togarinn Fylkir fékk tundurdufl í vörpuna, en duflið sprakk við síðu skipsins. Verkamannasamband Islands: Þungar áhyggjur Framkvæmdastjóm Verkamanna- sambands íslands lýsti á fundi sín- um í gær yfír þungum áhyggjum vegna yfirvofandi verkfalls yfir- manna á fiskiskipaflotanum. Ljóst er, segir í tilkynningu frá þeim, að komi til verkfalls munu þúsundir fiskverkafólks, auk ann- arra, verða atvinnulausar. Það ástand gæti varað um margra vikna skeið með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir efnahag og afkomu þúsund heimila. Framkvæmdastjórn VMSÍ hvetur alla hagsmunaaðila í sjávar- útvegi til að leggjast á eitt um að leysa boðað verkfall án tafar. —SE Hraðfrystihúsið á Hofsósi gjaldþrota Sijórn Hraðfrystihússins á Hofsósi hefur óskað eftir því við skiptaráðanda að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta. ,AkvÖrðun stjómarinnar byggist á því, að hún telur að hagur skuldheimtumanna muni versna, ef dráttur verður á uppgjöri. Tekjur verða minni en áfaliandi kröfur og ekki hægt að gera upp vanskil,“ segir í fréttatilkynningu frá stjóm Hraðfrystihússins. Hofsós var í svíðsljósinu fyrir nokkru síóan, þegar bærinn var tekinn tfl athugunar hjá Félags- málaráðuneytinu. Síðan þá hefur m.a. verið unnið að því að styrkja stoðir atvinnuh'fs í bænum, og þá ekki síst Hraðfrystihússins sem er stærsti vinnuveitandinn. „Eftir skuldbreytingu og ný hlutafjár- framiög á síðasta ári hefur stjóm- ín stöðugt unnið að því að styrkja eiginfjárstöðu lyrirtækisins, en eldd hefur tekist að fá frekari hlutafjárframlög," segir í fréttatfl- kynningunni. Ennfremur er bent á, að kröfur frá eftiriitsstofnunum um mjög kostnaðarsamar endur- bætur liggja íyrir og ekki verður séð hveraig hægt er að mæta þeim, né heldur kaupa viðbótar- kvóta til þess að tryggja starfsemi allt árið. Því fór sem fór. Frá 20 ágúst s.l. hefur Fiskiðja Sauðárkróks séð um rekstur Hraðfrystihússins og rennur sá leigusamningur út um áramót í fréttatiikynningunni segir aö stöð- ug atvinna hafi þvf verið á Hofsósi það sem af er ári, en atvinna og tekjuöflun íbúa þar byggist að stærstum hiuta á að framhald verði á fiskvinnslu. „Það er von stjórnar Iíraðfrystihússins h.f. að þessar róttæku og sársaukafuilu aðgerðir verði þáttur í að tryggja stöðuga atvinnu verkafólks á staðnum í framtíðinni, efiir þá endurskipulagningu sem endan- legt uppgjör íýrirtækisins hefur í för með sér," segir að lokum í fréttatilkynningunni. Málið er nú til meðferðar hjá bæjarfógetanum á Sauðárkróki. -hs. Barni og barnavagni rænt á Akureyri: FANNST í GEÐDEILDINNI Vistmaður á geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri tók baraavagn, sem var lyrir utan versl- un í göngugötunni og í var sofandi bara, og labb- aði með það í gegnum hálfan bæinn og skildi síö- an vagninn og baraið eftir í anddyri sjúkrahúss- ins. Tilkynning barst til lögreglunnar á Akureyri rétt fyrir klukkan tólf í gær. Eins árs gamalt barn eig- enda einnar verslunar í göngugötunni svaf í vagni fyrir utan verslunina. Foreldrarnir höfðu litið aðeins af barninu og klukkan korter í tólf uppgötvuðu þau að barnið ásamt vagninum voru horfin. Þau hringdu strax á lögreglu sem sendi allt til- tækt lögreglulið út að leita. Vagninn fannst klukkutíma síðar í anddyri sjúkrahússins eins og áður sagði. Vistmaður á geðdeild viðurkenndi að hafa tekið vagninn með barninu í. Barnið svaf öll herlegheit- in af sér og varð ekki meint af ferðalaginu. —SE

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.