Tíminn - 13.12.1990, Side 18

Tíminn - 13.12.1990, Side 18
18 Tíminn Fimmtudagur 13. desember 1990 NYJAR BÆKUR Ný íslensk skáldsaga Fótatak tímans eftir Kristinu Loftsdóttur Vaka-Helgafell hefur gefið út fyrstu skáldsögu Kristínar Lofts- dóttur, Fótatak tímans. í bókinni segir á áhrifamikinn hátt frá mannlegum örlögum í rökkri fortíðar og samskiptum fólks í einangruðu samfélagi. Sagan veitir innsýn í mannlega hegðun og tilfinningar: Ást og hatur, grimmd og hlýju, sakleysi og losta, líf og dauða. Á bókarkápu segir svo frá sögu- efninu: ísgerður Huld vex úr grasi með fjölskyldu sinni fjarri öðrum. Dularfullir og ógnvekj- andi atburðir úr fortíðinni, sem og óljós grunur um tengsl föður- ins við kristna menn, hafa út- skúfað fjölskyldu stúlkunnar úr heiðnu samfélagi sögualdarinn- ar. Þau eru litin homauga og þeim kennt um það sem aflaga fer. Allt þetta hefur áhrif á líf stúlkunnar án þess að hún skilji ástæður þess. En smátt og smátt kviknar með henni grunur um það sem að baki býr. Van Gogh og list hans Komin er út hjá Vöku-Helgafelli listaverkabók um hollenska list- málarann Vincent van Gogh FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Hjúkrunarfræðingur eða meinatæknir óskast Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing eða meinatækni sem fyrst í 80% starf við blóðbankaeiningu rann- sóknadeildar, til að annast blóðsöfnun og skyld störf. Vinnutími eftir samkomulagi. Upplýsingar gefa deildarstjóri Slysadeildar og yfirlæknir Rannsóknadeildar F.S.A. Umsóknum skal koma til yfirlæknis Rannsókna- deildar í síðasta lagi 31. desember 1990. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, sími 96-22100. (1853-1890) og heitir hún Van Gogh og Iist hans. Hún kemur út samtímis í átta Evrópulöndum. Van Gogh er almennt talinn einn stórfenglegasti listmálari sög- unnar. I þessari glæstu bók kynn- umst við honum í lífi og list. Lit- myndir af heillandi og áhrifa- miklum listaverkum hans tala sínu máli og sendibréf Van Goghs, sem höfundur bókarinn- ar Hans Bronkhorst studdist við, veita einstæða innsýn í hug- myndaheim listamannsins. Ólafur Bjarni Guðnason þýddi bókina en dr. Gunnar B. Kvaran listfræðingur veitti sérfræðilega ráðgjöf við íslenska gerð hennar. Hvergi var til sparað við gerð bókcirinnar og prýða hana 140 þekkustu verk Vincent van Goghs. Bókin er 200 blaðsíður í stóru broti. Umbrot og filmuvinnsla fór fram hjá Prentstofu G.Ben., en bókin var prentuð í Hollandi. Verð hennar er kr. 3.760,-. Forsetar íslenska lýðveldisins Forsetar íslenska lýðveldisins eft- ir Bjama Guðmarsson og Hrafn Jökulsson er ný bók frá bókaút- gáfunni Skjaldborg, sem geymir æviþætti forsetanna fjögurra. Greint er frá ætt þeirra og upp- vexti, starfsferli, kosningabaráttu og helstu stiklum á embættisferl- inum. íslendingar hafa reynst sjálfstæð- ir við val á þjóðhöfðingjum og einlægt fylgt sannfæringu sinni, þegar val forseta er annars vegar, fremur en hefðum eða duttlung- um stjórnmálaflokkanna. Þess vegna er embættið síungt; tíðar- andinn og hver þeirra fjórmerm- inga hefur gætt það sínum per- sónulega blæ. Þegar fyrsti forseti lýðveldisins, Sveinn Bjömsson ríkisstjóri, tók við embætti var ekki að neinum fyrirmyndum að ganga og það kom í hans hlut að móta embætt- ið á fyrstu árum íslenska lýð- veldisins. Við hlið sér hafði hann frú Georgíu Bjömsson, sem kenndi íslenskum diplómötum að sofa lítið en hlusta vel, og vinna þjóð sinni á nóttu og degi. Sveinn var harður húsbóndi og stjómmálaleiðtogar áttu oft ekki sjö daga sæla í embættistíð hans. Við fráfall Sveins Bjömssonar ár- ið 1952, var Ásgeir Ásgeirsson kjörinn forseti. Ásgeir hafði þá verið stjómmálaskörungur í þrjá áratugi. Þó var honum teflt fram sem manni fólksins gegn flokks- ræðinu. Fulltrúi flokksræðisins hafði hins vegar aldrei á þing komið, en verið góðfrægu'r sálu- sorgari um langt skeið. Ásgeir var svipmikill forseti og nutu forsetahjónin Ásgeir og frú Dóra Þórhallsdóttir mikillar virðingar, bæði hér heima og erlendis. Ásgeir lét af embætti árið 1968 og hafði þá setið á friðarstóli í sextán ár. Við embætti tók dr. Kristján Eldjárn þjóðminjavörð- ur. Kjör hans má kalla tímanna tákn; Kristján var þá þjóðkunnur sem einn helsti sérfræðingur um íslenska menningu. {kosningun- um lýstu kjósendur því yfir að þetta væm þeir eiginleikar, sem þeir töldu ríma best við hug- myndir sínar um embættið. Dr. Kristján og frú Halldóra Eldjám vom virðulegir og þó alþýðlegir húsbændur á Bessastöðum. Kjör fjórða forsetans var heims- viðburður; Vigdís Finnbogadóttir var fyrst kvenna kjörinn þjóð- höfðingi í almennum kosningum í heiminum. Vitaskuld hefur það sett svip á embættið undanfarinn áratug að þar situr kona að stóli og Vigdís hefur á ferðum sínum erlendis verið sannkallað eftir- læti fjölmiðla. Heima fyrir nýtur hún og mikillar hylli; það kom best fram er mótframboð barst í fyrsta sinn gegn sitjandi forseta árið 1988. Þá var Vigdís kosinn forseti með miklum yfirburðum og þriðja kjörtímabil hennar hófst. íslenska þjóðin hefur þartnig verið einkar Iánsöm með val sitt á þjóðhöfðingjum. Bókin Forsetar íslenska lýðveld- isins er um 300 bls. Frásögnin er litrík og öðrum þræði eins konar aldarspegill þjóðar á 20. öld. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda úr ævi og störfum forsetanna. Vegamót Vinir á vegamótum heitir nýút- komin unglingabók eftir hol- lenska verðlaunahöfundinn Jan de Zanger. Tveir hollenskir vinir eru í sum- arfríi í Danmörku þegar slettist upp á vinskapinn og þeir fara hvor sína leið. Annar þeirra fer heim en hinn skilar sér ekki, svo ekki er um annað að ræða en að VipRÁ VEGiAMOT u M Jan de Zanger hefja leit að honum eftir óljósum vísbendingum. Ýmislegt óvænt kemur uppá í þeirri ferð, en vin- imir snúa báðir til baka í lokin með nýjar skoðanir á lífinu. Mál og menning gefur út bókina sem Hilmar Hilmarsson þýddi úr sænsku. Bók um Meulen- berg biskup Þorlákssjóður hefur sent frá sér bókina Marteinn Meulenberg Hólabiskup sem Haraldur Hann- esson tók saman til minningar um fyrsta biskup kaþólskra á ís- landi eftir siðaskipti. Er hún til- einkuð hans herradómi dr. Alfr- ed J. Jolson S.J. Þetta er 160 blaðsíðna bók, safn greina um Meulenberg biskup og sýnishorn af því sem hann skrif- aði. Höfundar eru: Guðbrandur Jónsson, séra Sigurður Pálsson, Sigurveig Guðmundsdóttir, Vil- hjálmur S. Vilhjálmsson (Hannes á hominu), Jónas Jónsson frá Hriflu og Þorsteinn Gíslason. Formála að bókinni skrifar Gunnar F. Guðmundsson þar eð Haraldi Hannessyni entist ekki aldur til að skrifa hann. Sýnd er rithönd biskups, skjaldarmerki hans, titilsíður bóka sem hann lét gefa út og ýmislegt fleira af líku tagi. Þá prýða bókina margar myndir, ýmist litmyndir eða svart-hvítar, auk nokkurra teikn- inga. Bókin er prentuð í Prentsmiðju St. Franciskusystra í Stykkis- hólmi. I I Jólahappdrætti Framsóknarflokksins 1990 Keflavík - Opin skrifstofa Félagsheimili framsóknarmanna að Hafnargötu 62 er opiö alla virka daga milli kl. 17 og 18. Starfsmaöur framsóknarfélaganna, Guöbjörg, verður á staönum. Slmi 92-11070. Framsóknarfélögin. Borgnesingar - Bæjarmálefni I vetur veröur opiö hús á mánudagskvöldum frá kl. 20.30-22.30 á skrifstofu Framsóknarflokksins aö Brákarbraut 1. Bæjarfulltrúar flokksins I Borgamesi verða á staðnum og heitt á könnunni. Allir sem vilja fylgjast meö og hafa áhrif á málefni Borgamesbæjar eru velkomnir. Framsóknarfélag Borgarness. Norðurland vestra Skrifstofa Einherja, kjördæmisblaös framsóknarmanna, hefur veriö flutt frá Sauöárkróki á heimili ritstjóra aö Ökrum I Fljótum. Hægt er aö ná I rit- stjóra alla daga (slma 96-71060 og 96-71054. K.F.N.V. Suöurland Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á þriöjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Síminn er 22547. Félagar eru hvattir til að lita inn. K.S.F.S. Reykjanes Skrtfstofa kjördæmasambandsins aö Hamraborg 5, Kópavogi, er opin mánudaga til fimmtudaga kl. 17-19. Simi 43222. K.F.R. Rangæingar, spilakvöld Framsóknarfélag Rangæinga gengst að vanda fyrir hinum árlegu spila- kvöldum sunnudagana 11. og 25. nóvember, 9. desember og 13. janúar I Hvoli kl. 21.00. Fjögurra kvölda keppni, 3 gilda. Heildarverölaun ferö til Akureyrar fyrir 2, gist á Hótel KEA 2 nætur. Góð kvöldverðlaun. Mætiö öll. Stjómin Frá S.U.F. 6. fundur framkvæmdarstjómar S.U.F. veröur haldinn 13. desember kl. 20.00 að Melabraut 5, Seltjamamesi. MUNIÐ að skila tilkynningum í flokksstarfið tímanlega - þ.e. fýrir kl. 4 daginn fyrir útkomudag. Dregiö verður I Jólahappdrætti Framsóknarflokksins 24. desember nk. Velunnarar fiokksins eru hvattir tíl að greiöa heimsenda giróseöla fyrir þann tíma. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eöa I slma 91- 674580. FramsóknarHokkurinn Jólahappdrætti S.U.F. Eftirfarandi númer hafa verið dregin út I Jólahappdrætti S.U.F.: 1. des. 1. vinningur 2036,2. vinningur 974 2. des. 3. vinningur 3666,4. vinningur 20 3. des. 5. vinningur 3203,6. vinnlngur 3530 4. des. 7. vinningur 5579, 8. vlnningur 1452 5. des. 9. vinningur 3788,10. vinningur 5753 6. des. 11. vinnlngur 3935,12. vlnningur 3354 7. des. 13. vinningur 5703,14. vinningur4815 8. des. 15. vinningur 2027,16. vinningur2895 9. des. 17. vinningur3261,18. vinningur2201 10. des. 19. vinningur 3867,20. vinningur 5194 11. des. 21. vinningur 5984,22. vinningur864 Dregin veröa út tvö númer á hverjum degi fram til 24. des. Muniö aö greiöa heimsenda gíróseðla. Nánari upplýsingar á skrifstofu Framsóknarflokksins, Hafnarstræti 20. Slmi 91-624480 eöa 91-28408. Meö kveöju. S.U.F.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.