Tíminn - 03.01.1991, Side 12

Tíminn - 03.01.1991, Side 12
12 Tíminn Fimmtudagur 3. janúar 1991 RIGOLETTO íslenska óperan frumsýndi Rigol- etto eftir Verdi á annan í jólum, 26. desember. Eins og kunnugt er, ríkti lengi óvissa um þaft hvort af frumsýningunni yrfti; stjóm Óper- unnar „setti WÚsstjóm íslands upp aft vegg“ og tókst aft heija út 25 milljónir. Aft svona færi — að óperan lenti á endanum á ríkinu en dáei ella — var auftvitaft íyrirsjáan- legt frá upphafl, enda entist arfur Sigurlifta ekki til annars en aft koma fyrirtældMi af stað. Hins vegar sýna ávextirair aft íslenska óperan er betur aft opinberu fram- færi komin en mörg önnur „einka- fyrirtæki“ í þessu landi pilsfalda- kapítalismans — Rigoletto er nefnilega 20. verkefni íslensku óperunnar á 11 ára glæsilegum ferli. Rigoletto er fyrsta óperan sem sett var á svið með nær eingöngu ís- lenskum söngvurum, í Þjóðleikhús- inu 1951. í þeirri sýningu „debútt- eraði“ Guðmundur Jónsson á óperusviði sem Rigoletto, og var stjarna sýningarinnar svo ýmsum hefur ógleymanlegt orðið í þau tæp 40 ár sem síðan eru liðin. Þó söng Stefán Islandi hertogann og austur- ríska söngkonan Else Múhl Gildu. Á sama hátt segja fróðir menn að Kostas Paskalis hafi verið stjarna Rigoletto-sýningar Covent Garden- óperunnar í Lundúnum árið 1970, þótt sjálfur Pavarotti syngi hertog- ann. En núna fór svo, að Sigrún Hjálmtýsdóttir sem Gilda er stjarna sýningarinnar í íslensku óperunni, sem samkvæmt rökfræðinni er all- vel af sér vikið: Ef Paskalis ber af Pa- varotti og Sigrún af Paskalis, ber hún þá ekki af Pavarotti? Síðan hefur það að vísu gerst með- al annars, að Paskalis er orðinn 20 árum og mörg hundruð Rigoletto- sýningum eldri en hann var 1970; hann leikur hlutverkið mjög vel, röddin er gríðarlega sterk, einkum á efri tónum, en mýktin er horfin, svo sannarlega er hann ekki eins góður söngvari og hann var fyrir 20 árum. En mjög góður Rigoletto þó. Óperuhandritið samdi Francesco Piave eftir sögu Victors Hugo, Kon- ungurinn skemmtir sér. Þar er mál- uð heldur dökk mynd af réttlæti heimsins — mynd sem mörgum hefur raunar þótt blasa við frá fyrstu tíð — því skúrkarnir verða ofan á en hjartahreinir undir. Þær tvær vammlausu sálir, sem fram koma í óperunni, deyja báðar í leikslok, Gilda fýrir hnífi morðingja en Monterone greifi á höggstokkn- um. Föðurástin verður Rigoletto að falli, svo hann tapar öllu nema tó- runni. En hertoginn siðlausi, strák- ar hans og morðinginn Sparafucile dansa hlæjandi áfram gegnum lífið. Á sinni tíð reyndi Sókrates að sanna að það væri blekking, sem flestum virtist, að vonska og óheið- arleiki borgi sig; hjá Hellenum var ekki von á neinu straffi eftir dauð- ann eða í öðru lífi. En þrátt fyrir röksemdir Sókratesar og eilífar kvalir syndugra í hreinsunareldi kristninnar hefur þessi hugsun loð- að við, uns hún er gerð að undir- stöðuatriði í trúarkerfi kapítalism- ans. í heilagra manna sögum hinna nýju trúarbragða segir frá mönnum eins og Rockefeller og Joe Kennedy, og þar ætti Makki hnífur líka heima. Þessi sýning íslensku óperunnar á Rigoletto hefur að flestu leyti tekist mjög vel. Sviðið er auðvitað óþægi- lega grunnt, og leiktjöldin þar með af nauðsyn höfð eins einföld og kostur er, en það sem mestu máli skiptir kemst þó prýðilega til skila. Raunar hefði hugsanlega farið betur á því að stíga skrefið til fulls fremur en hálfs frá fátæklegum „natúral- ískum" leiktjöldum til stílfærðra. í hinni veglegu leikskrá er mynd frá uppfærslu Þjóðleikhússins 1951 sem sýnir að nokkru mun á glæsi- leika, bæði í búningum (sem Þjóð- leikhúsið fékk að láni frá Kaup- mannahöfn) og leiktjöldum. Nú, þegar Borgarleikhúsið er komið upp og önnur leikhús starfandi víða um bæinn, hvarflar sú hugsun að hvort ekki ætti að gera Þjóðleikhús- ið að þjóðaróperu, jafnvel þótt nauðsynlegar breytingar kostuðu einhverjar milljónir í viðbót. Nema búið sé að eyðileggja hljómburðinn í húsinu, sem líklegt er. Textavélar íslensku óperunnar gera það að verkum, að nú njóta áheyrendur leikritsins sjálfs betur en áður. Og þegar sá vandi er þann- ig leystur, að sunginn texti skilst, er ópera í rauninni mun áhrifameira listform en venjulegt leikrit, því tónlistin í vel saminni óperu skapar bæði umgjörð atburðarásarinnar og eykur dýpt hennar. Eins og fyrr sagði, vinnur Sigrún Hjálmtýsdóttr umtalsverðan nýjan óperusigur sem Gilda, með hrífandi söng og leik. Guðjón Óskarsson vekur jafnan athygli fyrir mikla og sérlega fallega bassarödd sína — hann leikur hinn skuggalega Spar- afucile morðingja, og lítur út eins og Beina-Þorvaldi er lýst, frænda Gríms Thomsens: „skuggalegur, svartskeggjaður, skoteygur með hatt sinn slútandi niður í augu“. (Sjá grein eftir Andrés Björnsson í Andvara 1990). Hertoginn siðspillti af Mantúa er í öruggum höndum Garðars Cortes, sem þannig fær tækifæri til að syngja vinsælustu aríu óperunnar, La donna e mobile. Og alltaf er gaman að sjá og heyra Sigríði Ellu Magnúsdóttur, sem syngur Maddalenu, systur Spar- afuciles. Önnur hlutverk eru minni, en „valinn maður í hverju rúrni" sem ástæðulaust er að telja upp hér — þeir skipta mörgum tugum sem standa að sýningunni á einn eða annan hátt. Þó ber að nefna sérstak- lega hinn ágæta kór, hirðmenn her- togans, sem leikur bæði og syngur sérlega vel. Bríet Héðinsdóttir leikstýrði þess- ari vel heppnuðu uppfærslu, en Svf- inn Per Ake Andersson stjórnar hljómsveitinni. í sýningunni er lögð meiri áhersla á tónlistina og „drama“ sögunnar en á ytri glæsi- leika, og fyrir bragðið verður sýn- ingin mjög áhrifarík. Eins og endra- nær er leikskráin sérlega vegleg, með lærðum ritgerðum um hvað- eina sem að verkinu snýr, auk hefð- bundinna upplýsinga um flytjendur. Vonandi taka óperuunnendur þessari sýningu eins og hún á skilið; árið 1951 sáu 18.605 manns Rigol- ettoá30sýningum. Sig.St. Ifflfil LESENDUR Raunsætt mat, verum raunsæ Mér var að berast blaðið Suðurland í hendur. Þar kennir margra grasa hjá Þorsteini formanni, sem athug- andi er, hvernig reynst hafa Sunn- lendingum. Þar má nefna afl Sjálf- stæðisflokksins, orðheldni, breiður flokkur, trúnað, djörfung, víðsýni, fastmótuð stefna, opinn hugur, um- burðarlyndi o.fl. Sjálfstæðisflokkur- inn hefur lengi átt 1. þingmann Sunnlendinga. Hann heftjr ca. 10 seinustu árin verið formaður Sjálf- stæðisflokksins, stærsta flokks landsins. Fyrir 6 árum var hann fjár- málaráðherra og fyrir 3-4 árum var hann forsætisráðherra. Það er við þessar aðstæður, sem atvinnulíf á Suðurlandi hefur stórlega látið á sjá. Byggingarfélagið Ás hf., Hvolsveíli, Kaupfélagið Þór á Hellu, Entek hf., Hveragerði o.fl. o.fl. hafa nánast orðið að gefast upp vegna rangrar efnahags- og fjármálastefnu Sjálf- stæðisflokksins. Hún hefur verið ótrúlega mikið ráðandi sú stefna hans, sem með árunum hefur valdið því, að ólíklegustu burðarásar at- vinnulífs hafa farið halloka. Nefna HÖNNUN AUGLÝSIR í w . .. .. _ _ _ Tímanum AUGLYSINGASÍMI má á stöðum eins og á Akranesi, Grundarfirði, Patreksfirði, Bolung- arvík, Sauðárkróki, Ólafsfirði, Seyð- isfirði, Reykjavík, Hafnarfirði, Kefla- vík og víðar. Hin lamandi hönd fjár- magnskostnaðar, sem Sjálfstæðis- flokkurinn þorði ekki að taka afstöðu til, sbr. tillögur Eggerts Haukdal, svo og lamandi hönd verð- bólgu, sem Sjálfstæðisflokkurinn réð alls ekki við, hafa riðið húsum, en nú allra seinustu árin hefur mál- um verið breytt og bjargað, þrátt fyrir andstöðu Sjálfstæðisflokksins. Hlutaíjársjóður og atvinnutrygg- ingasjóður hafa gegnt sínu hlut- verki. Fyrirtæki eldheitra sjálfstæð- ismanna í Bolungarvík og á Ólafs- firði og miklu víðar hafa jafnvel not- að sér fyrirgreiðslu sjóðanna, en ekki er þökkunum fyrir að fara, heldur beinar yfirlýsingar þeirra um að nú sitji hin versta ríkisstjórn, sbr. Einar K. Guðfinnsson. Viðurkenn- ing á staðreyndum og þakkir fyrir staðfasta og trausta stjórn er ekki fyrir hendi. Það þarf að toga út úr mönnum að viðurkenna það gífur- lega hagræði, sem miklu lægri fjár- magnskostnaður er. Forstjóri Eim- skips taldi það atriði allra síðast upp, gat varla tekið sér það í munn, þegar hann skýrði bætta stöðu félagsins af því að það er ríkisstjórninni að þakka og Sjálfstæðisflokkurinn kom þar hvergi nærri. Sá flokkur er á engan hátt aðili að bættum og betri þjóðarhag síðustu árin. Þjóðarsátt- in, lægri fjármagnskostnaður, hag- stæður vöruskiftajöfnuður, betra at- vinnuástand o.fl. o.fl. sér nú dagsins ljós. Lán jafnvel lækka nú við hverja afborgun og er það stórkostleg breyting. Kæru ungu kjósendur. Verkin tala núna. Þið getið raunverulega stað- reynt ástandið. Hin ýmsu hugtök Sjálfstæðisflokksins hafa ekki dug- að. Það þarf að segja til um það hver vaxtabyrðin verður, hverjar atvinnu- horfur verða, það skiftir máli. ís- landsbanki hf. hækkaði vexti og reynir að verja það með oddi og egg, en það var Ragnar Önundarson hjá þeim banka, sem gaf einu réttu skýr- inguna á vaxtahækkuninni. Hún var sú, að eftirspurn eftir fjármagni hafi verið svo mikil í byrjun október s.l. Hvað þýðir þetta? Jú, yfirstjórn bankans brást illilega, hún lét und- an, óstjórn réð ríkjum. í stað þess að draga úr útlánum og hafa samstöðu um lægri vexti var framfylgt útlána- aukningu og vaxtahækkun skellt á. í þessum banka eru líklega 95% ráða- manna úr Sjálfstæðisflokknum. Þó að varði þjóðarhag er samt reynt að spilla fyrir. Vonandi tekst Birgi ísleifi og Davíð ekki að skemma fýrir eða útiloka nýtt álver. Trúið varlega hugtökum Sjálfstæðisflokksins. Það er enginn vandi að vera borgarstjóri, þegar tekjur borgarinnar eru eins og gullnáma. Gífurleg heitavatnssala, ótrúleg fasteignagjöld m.a. af eign- um, sem þjóna öllu landinu, stærsti útsvarsmarkaður landsins og svo öll aðstöðugjöldin, sem eru þráfaldlega af atvinnurekstri, sem nær til alls landsins. Það verður breytt staða hjá Davíð, þegar hann verður fjármála- Þegar írakar heraámu Kuwait fyr- ir þremur mánuftum þá voru ýmsar þjóftir með Bandaríkjamenn í fylk- ingarbrjósti fljótar aft fordæma þaft og nú hafa Washington-herramir fengið Öryggisráðiö til aft sam- þykkja aft ráðast megi á íraka verði þeir ekki farair burt úr Kuwait 15. janúar nk. Hvítahússmenn og taglhnýtingar þeirra sýna ekki svona viðbrögð þó að Palestínumenn séu drepnir, fang- elsaðir og barðir til óbóta, kúgaðir og niðurlægðir svo áratugum skiftir. Meðferð ísraelsdáta á þessu fólki er svo hroðaleg að æ fleiri eru farnir að ráðherra í tómum ríkissjóði. Þá verður skorið niður, samneysla minnkuð og það harðnar á dalnum. Verum raunsæ, veljum ekki Sjálf- stæðisflokkinn strax aftur. Hann þarf að þroskast meira og láta alveg af þeirri stefnu, sem orsakaði vand- ræðin 1985-1988. Hann réð 85% af fjárlögum í stjórninni 1983-1987. Það eru of fá ár síðan hann var við völd. Hann þyrfti að bíða dálítið lengur, breytast aftur í raunsærri flokk líkari því, sem var t.d. árið 1965. Flokkur stórættanna og lög- fræðinganna (6 lögfræðingar í 7 efstu sætunum í Reykjavík) er ekki nógu breiður og víðsýnn til þess að fá traust strax aftur. Framsóknarflokkurinn styður einkaframtakið af fullum þunga í hvaða formi sem það birtist. Öflug- ast er einkaframtakið, þegar það í samvinnurekstri eflir byggðir og bæi. Hve það er miklu hugstæðara að styðja það heldur en ættarveldi Sjálfstæðisflokksins. Fullvalda þjóð í frjálsu landi, frels- ið og manndáðin best. Látum Sjálf- stæðisflokkinn bíða lengur og þroskast. Kári. líkja framgöngu þeirra við framferði Gestapo og S.S.- sveitanna eins og þær höguðu sér verst í hernumdum löndum seinni heimsstyrjaldarinn- ar. Neðar í ómennskunni verður vart komist. Nei, bandarísku hræsnararnir og skósveinar þeirra horfa framhjá þessum gjæpaverkum. Það er stað- reynd að ísraelsmenn eru að fremja þjóðarmorð á Palestínumönnum. Skyldi nokkur hafa trúað því fyrir 45 árum að gyðingar ættu eftir að taka sér til fyrirmyndar liðsmenn úr Waf- fen S.S.? Guðjón V. Guðmundsson. Bölvaðir hræsnararnir! Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka f Reykjavík 28. desember til 3. janúar er í Apóteki Austurbæjar og Brelðholts Apóteki. Það apótek sem fyrr er nefht annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldi til kl. 9.00 að morgni virka daga en kl. 22.00 á sunnudög- um. Upplýsingar um læknis- og lyQa- þjónustu eru gefnar f síma 18888. Hafnarflöröur: Hafnarfjarðar apótek og Norður- bæjar apótek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-12.00. Upplýsingar f símsvara nr. 51600. Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek eru opin virka daga á opnunartíma búða. Apó- tekin skiptast á sfna vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opið I þvl apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl. 19.00. Á helgldögum er opiö frá kl. 11.00- 12.09 og 20.00-21.00. Á öðrum tímum er lyfja- fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I sima 22445. Apótek Keflavfkur Opið virka daga frá k. 9.00- 19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl- daga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30- 14.00. Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Op- Ið er á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00- 12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00- 13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00. Garðabær Apótekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00. Læknavakt fyrir ReyKjavík, Seltjamames og Kópavog er i Heilsuverndarstöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög- um og helgidögum allan sólarhringinn. Á Sel- tjamamesi er læknavakt á kvöldin kl. 20.00- 21.00 og laugard. kl. 10.00-11.00. Lokað á sunnudögum. Vitjanabeiðnir, slmaráðleggingarog tímapantan- ir I sima 21230. Borgarspitaiinn vaktfrá kl. 08-17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki- hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (slmi 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild) sinnir slösuöum og skyndiveikum allan sólar- hringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um lyfjabúðir og læknaþjónustu erugefnar I simsvara 18888. Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram á Heilsuvemdarstöö Reykjavíkur á þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér ónæmissklrteini. Sdtjamames: Opið er hjá Tannlæknastofunni Eiðistorgi 15 virka daga kl. 08.00-17.00 og 20.00- 21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Slmi 612070. Gaiðabæn Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18 er opin 8.00-17.00, slmi 656066. Læknavakt er I síma 51100. Hafnarijöróur Heilsugæsla Hafnarflarðar, Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00- 17.00, sími 53722. Læknavakt sími 51100. Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00 virka daga. Slmi 40400. Keflavfk: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugaeslustöð Suðumesja. Sími: 14000. Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I sál- fræöilegum efnum. Sími 687075. Landspítaiinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00. Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15- 16. Heimsóknartlmi fyrir feður kl. 19.30-20.30. Bamaspítali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga. Öldrunariækningadeild Landspltalans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa- kotsspitali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30 til 19.00. Bamadeild 16-17. Heimsóknartimi annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg- arspitalinn I Fossvogi: Mánudaga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir samkomulagi. Á laug- ardögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúðír: Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvíta- bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartimi frjáls alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu- daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu- daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl. 14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspítali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa- vogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. - Vífilsstaðaspftali: Heimsóknar- timi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St Jósepsspftali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. _____________ Sunnuhlið hjúkrunarheimili i Kópavogi: Heirn- sóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavikuriæknishéraðs og heilsu- gæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólarhring- inn. Simi 14000. Keflavik-sjúkrahúsið: Heim- sóknartlmi virka daga kl. 18.30-19.30. Um helgar og á hátíðum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00- 19.30. Akureyri- sjúkrahúslð: Heimsóknartímí alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofuslmi frá kl. ’ 22.00- 8.00, simi 22209. Sjúkrahús Akraness: Heimsóknartími Sjúkrahúss Akraness er alla daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30. Reykjavfk: Seltjamames: Lögreglan sími 611166, slökkviliö og sjúkrabifreið slmi 11100. Kópavogun Lögreglan simi 41200, slökkviliö og sjúkrabifreið slmi 11100. Hafharijörðun Lögreglan simi 51166, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 51100. Keflavík: Lögreglan slmi 15500, slökkvilið og sjúkrabill slmi 12222, sjúkrahús 14000, 11401 og 11138. Vestmanneyjan Lögreglan, slmi 11666, slökkvilið slmi 12222 og sjúkrahúsið simi 11955. Akureyri: Lögreglan simar 23222, 23223 og 23224, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 22222. Isafjöröur: Lögreglan simi 4222, slökkvilið sfmi 3300, brunasími og sjúkrabifreið simi 3333.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.