Tíminn - 03.01.1991, Blaðsíða 15
Fímmtudagur 3. janúar 1991
Tíminn 15
dagbok;
26. tbl. Vikunnar komið út
t árslok kom út það tölublað Vikunnar
sem flestir bíða með eftirvæntingu, en
það er blaðið með hinni árlegu völvuspá.
Stjömuspeki skipar stóran sess í þessu
blaði því einnig er fjallaö um samskipta-
kort Eddu Andrcsdóttur og hcnnar manns
og greint frá eðli steingeita. Rætt er við
fólk sem hefúr dottið í lukkupottinn og
unnið stóra vinninga í lottó eða happ-
drættum. Margt fleira er að finna í Vik-
unni að þessu sinni og of langt mál að
telja það upp hér.
Tryggingamiðstöðin veitir
korthöfum tryggingavernd
frá og með áramótum
Bæði greiðslukortafyrirtækin, VISA IS-
LAND — Greiðslumiðlun hf. og EURO-
CARD á íslandi — Kreditkort hf., hafa
samið við Tryggingamiðstöðina hf. um að
annast ferðatryggingar korthafa sinna frá
ogmeð I. janúar 1991.
Tryggingaffíðindi em snar þáttur þeirra
sérstöku hlunninda sem korthafar og fjöl-
skyldur þeirra njóta á ferðalögum, jafht
innan lands sem utan. Þá stendur þeim
jafnframt til boða aðgangur að viðlaga-
þjónustu og neyðarhjálp crlcndis, kort-
höfúm Visa hjá Europe Assistance og
korthöfúm Eurocard hjá GESA Assist-
ance.
Stjómir kortafyrirtækjanna ákváðu fyrir
nokkm að bjóða þcssar tryggingar út. Til-
boð Tryggingamiðstöðvarinnar reyndist
hagstæðast. Mcð því að semja við sama
tryggingafélagið um að annast þcssar sér-
hæfðu persónu- og ferðatryggingar fyrir
bæði félögin samciginlega náðist fjár-
hagslegin' ávinningur scm mun m.a. gera
það kleift að halda árgjöldum grciðslu-
korta niðri enn um sinn f anda þjóðarsátt-
ar.
Hér er um mjög stóran tryggingasamn-
ing að ræða á íslenskan mælikvarða, sem
tekur til um 125.000 korthafa cða helm-
ings þjóðarinnar. Munu iðgjöld kortafé-
Iaganna hans vcgna nema um 50 milljón-
um króna á árinu 1991.
Tryggingamiðstöðin hf. er rótgróið og
traust fyrirtki, stofnað 1956, það þriðja
stærsta á íslenska tryggingamarkaðnum.
Félagið tryggir m.a. verulegan hluta af ís-
lenska fiskiskipaflotanum. Trygginga-
samningur kortafýrirtækjanna er endur-
tryggður hjá Lloyd’s í Lundúnum.
Tímarit Máls og menningar
Út er komið nýtt hefti af Tímariti Máls og
menningar og er það 4. hefti 51. árgangs.
Það er helgað bókmenntum og umfjöllun
um bókmenntir og eru höfúndar efnis 23
talsins.
I hcftinu eru þijár greinar um Jónas Hall-
grimsson og kveðskap hans, tvær um ís-
lcnskar fombókmcnntir. Kjartan Ólafsson
sýnir hve virkur Jónas Hallgrímsson var í
þjóðmálastarfi síðustu vikumar sem hann
lifði, en Kristján Ámason og Guðmundur
Andri Thorsson skrifa hvor um sitt kvæða
hans, Sæunni hafkonu og Ferðalok. Hcr-
mann Pálsson skrifar um draum Flosa um
Jámgrím í Njáls sögu og rckur meðal ann-
ars tcngsl draumsins við hugmyndir
manna um landvættir íslands. Úlfar
Bragason skrifar um Huldar sögu þá scm
Sturla Þórðarson á að hafa sagt Magnúsi
Hákonarsyni.
Sögur í heftinu em eftir Kristján G. Am-
grimsson, Sólveigu Einarsdóttur og Ro-
bert Walser og þýddi Hjálmar Sveinsson
sögur Walsers og skrifar um höfúndinn.
Kvæði í hcftinu em eftir Bárð R. Jónsson,
Andrc Breton (Sigurður Pálsson þýddi og
skrifar inngang), Gunnar Hersvein, Ingi-
björgu Haraldsdóttur, Octavio Paz (Sig-
fús Bjartmarsson þýddi), Stefán Hörð
Grímsson og Andrej Voznésenski (Gcir
Kristjánsson þýddi). Ritdómar í heftinu
em cftir Jón Karl Hclgason, Silju Aðal-
steinsdóttur og Þorleif Hauksson. Loks er
í tímaritinu ítarleg grein eftir Gísla Sig-
urðsson um menningarlega stöðu íslands
á tímum aukinnar alþjóðlegrar samvinnu.
Sigríður Elfa Sigurðardóttir er höfúndur
málvcrks á kápu. Heftið ere 112 blaðsíður
að stærð. Prentsmiðjan Oddi hf. prcntaði
og annaðist bókband.
Svala sýnir í Gallerí
Sævars Karls
Föstudaginn 4. janúar opnar Svala Sigur-
leifsdóttir sýningu á ljósmyndavcrkum í
Gallcrí Sævars Karls, Bankastræti 9. Hún
standaði myndlistamám í Myndlista- og
handíðaskóla Islands og síðan í skólum í
Denver, Osló og New York.
Myndimar em svart-hvítar ljósmyndir
litaðar með olíulitum, unnar á seinasta
ári. Vcrkin em flest samsett úr nokkmrn
ljósmyndum, myndum af náttúmlífs-
myndum og styttum.
Sýningin stendur til 1. fcbrúar og er op-
in á verslunartíma frá 9-18 og 10-2 á
laugardögum.
Námskeiö í náttúruvernd
Náttúmvemdarráð hcfúr á undanfömum
ámm haldið nokkur námskeið í náttúm-
vemd scm gjaman hafa verið kölluð land-
varðanámskeið, enda er nú gert að skil-
yrði að þeir sem ráðast til landvörslu-
starfa á vegum Náttúmvemdarráðs hafi
slíkt námskeið að baki.
Störf landvarða hafa verið að brcytast
nokkuð á undanfömum ámm og er það
stefna Náttúruvemdarráðs að fræðsla og
leiðbcining til ferðamanna vcrði stærri
hluti í verkefnum þcúra. Mikilvægi
fræðslu og fyrirbyggjandi aðgerða er sí-
fellt að koma betur og bctur í ljós eftir því
scm ferðamönnum fjölgar og umferð um
landið cykst. Fræðsla til ferðamanns, sem
eykur skilning hans á náttúm landsins, er
mun vænlegri til árangurs en boð og bönn
og kunna fcrðamenn mjög vcl að meta þá
þjónustu sem landverðir veita f dag á
nokkmm friðlýstum svæðum. Landvcrðir
sinna einnig ýmsum vcrkum sem til falla
við rekstur tjaldsvæða cn þar scm því
verður við komið cr æskilcgt að ráða sér-
stakt starfsfólk í vcrkamannavinnu og þrif
á snyrtihúsum.
Á námskeiði í náttúmvcmd er gefin inn-
sýn í náttúm landsins, jarðffæði, gróður
og dýralíf. Kynnt cm lög og reglur um
náttúmvemd og m.a. farið allítarlcga i al-
mannarctt, það er rétt almennings til um-
fcrðar um landið. Hlutvcrki og störfúm
Náttúmvemdarráðs em gerð sérstök skil
svo og ffiðlýsingarmálum, flokkum ffið-
---------------------------------------------------------N
í
Móðir okkar
Sigríður Ingvarsdóttir
frá Efri-Reykjum, Biskupstungum
verður jarðsungin frá Skálholtskirkju mánudaginn 7. janúar kl.
13.30. Jarðsett verður frá Torfastöðum. Þeim sem vildu minnast
hennar er vinsamlega bent á Minningasjóð hjúkrunarheimilis fyr-
ir aldraða, Ljósheimum, Selfossi.
^Synir hinnar látnu.
------------------------------------------------'Á
H*
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og samúð við andlát og
útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, ömmu, dóttur,
tengdamóður, systur og mágkonu
Ólafar Jónsdóttur
Tjamargötu 16
Sérstakar þakkir til starfsfólks Tímans.
Baldur Zophaníasson
Þyrí Marta Baldursdóttlr
Soffia Kolbrún Pitts David Pitts
Ellas Bjami Baldursson
Smári Óm Baldursson Elvur Rósa Siguröardóttlr
Hafdís Bima Baldursdóttir
Þyrí Marta Magnúsdóttir
Ema Jónsdóttir Ólafur Ólafsson
og bamaböm.
Innilegar þakkir til allra þeirra er auðsýnt hafa okkur samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför
Gunnars Níels Siguriaugssonar
frá Grænhóli
Tryggvi N. Siguriaugsson
Fanney Sigurlaugsdóttir
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ
Auglýsing
Sjávarútvegsráðuneytið hefur sent útgerðum
fiskiskipa 10 brúttólestir og stærri veiðileyfi
ásamt tilkynningu um aflamark af botnfiski og út-
hafsrækju fyrir fiskveiðitímabilið er hefst 1. janú-
ar og lýkur 31. ágúst nk. Jafnframt hefur ráðu-
neytið sent út tilkynningu um aflamark af hörpu-
diski fyrir allt næsta ár.
Vinnu við úthlutun veiðiheimilda til báta minni en
10 brúttólestir er ekki lokið, en gert er ráð fyrir að
því verki Ijúki um miðjan janúar. Af þeim sökum
var ekki unnt að senda út veiðileyfi til þessa hluta
fiskiskipaflotans fyrir áramót. Útgerðum báta
undir 10 brúttólestum, sem sótt hafa um veiði-
leyfi með aflahlutdeild og fengið hafa tilraunaút-
hlutun, er þrátt fyrir það heimilt að hefja veiðar
strax eftir áramót, enda hafi viðkomandi bátur
haffærisskírteini. Bátum sem velja leyfi til línu-
og handfæraveiða með dagatakmörkunum er
ekki heimilt að hefja veiðar fyrr en 1. febrúar nk.
Sjávarútvegsráðuneytið,
31. desember 1990.
NORRÆNA HÚSIÐ
POHJOLAN TALO tíi£®SÍ3ðl
NORDENS HUS iOJ REYKJAVÍK 8 17030 ISLAND
Norræna húsið verður lokað vegna viðgerða frá
2.-19. janúar 1991.
Skrifstofa Norræna hússins verður opin virka
daga frá 7. janúar kl. 9-16.30.
Gleðilegt nýár og velkomin í Norræna húsið frá
og með 19. janúar.
lýstra svæði og hlutvcrki landvarða. nám-
skeiðið cr það stutt að þátttakendur vcrða
að lcggja á sig nokkuð sjálfsnám heima
fyrir.
Síðasti hluti námskeiðsins er verklegur,
nemendum hefúr áður verið skipt í hópa
sem hver um sig hcfiir fcngið verkefúi til
undirbúnings og úrvinnslu. Dvalið er í
fimm daga, til dæmis 1 þjóðgarðinum 1
Skaftafclli, og þátttakendur þjálfaðir í því
að fara mcð fólk 1 gönguferðir og fræða
um það sem fyrir augu ber, lífriki, jarð-
myndanir og söguminjar. Leiðbeinendur
á námskeiðinu eru starfsmenn Náttúru-
vemdarráðs auk sérffæðinga t.d. í lögum
um almannarétt og landvarða.
I vetur verður námskeið i náttúruvemd
haldið í Reykjavík og væntanlega einnig
á Akurcyri eða á Egilsstöðum, en það fer
eftir þátttöku þar. Nánari upplýsingar em
veittar á skrifstofú NáttúruvcmdarTáðs.
F.E.B. Kópavogi
Þriggja kvölda keppni í fclagsvist hefst
að nýju í húsi Lyonsklúbba Kópavogs,
Auðbrekku 25, föstudaginn 4. janúar kl.
20.30. Dans á eftir. Jón Ingi og félagar sjá
um fjörið. Allir velkomnir 60 ára og eldri.
Verð aðgöngumiða kr. 400. Kaffi og/eða
gosdrykkir ásamt meðlæti innifalið. Fjöl-
mcnnum nú.
Krossgátan
6188
Lárétt
1) Yfirhafnir 6) Slæ 7) Gramm 9)
Krít 10) Ráðið 11) Keyr 12) 1500 13)
Málmi 15) Samanvið
Lóðrétt
1) Gladdist 2) Bor 3) Fræðsla 4)
Kílómetri 5) Prófuðum 8) Dríf 9)
Stök 13) Utan 14) Greinir
Ráðning á gátu nr. 6187
Lárétt
1) Leysing 6) LLL 7) FG 9) KN 10)
Truntan 11) Fá 12) LI 13) Aum 15)
Ráðríkst
Lóðrétt
1) Loftfar 2) Y1 3) Slyngur 4) II 5)
Ginnist 8) Grá 9) Kal 13) Að 15) Ráð-
ríkt
Bilanir
Ef bilar rafmagn, hitaveita eða vatnsveita má
hringja í þessi símanúmer:
Rafmagn: [ Reykjavlk, Kópavogi og Seltjarn-
amesi er simi 686230. Akureyri 24414, Kefla-
vik 12039, Hafnarfjörður 51336, Vestmanna-
eyjar 11321.
Hitaveita: Reykjavík simi 82400, Seltjarnar-
nes slmi 621180, Kópavogur 41580, en eftir
kl. 18.00 og um helgar í síma 41575, Akureyri
23206, Keflavlk 11515, en eftir lokun 11552.
Vestmannaeyjar sími 11088 og 11533, Hafn-
arfjöröur 53445.
Sími: Reykjavik, Kópavogi, Seltjarnamesi,
Akureyri, Keflavlk og Vestmannaeyjum til-
kynnist (síma 05.
Bilanavakt hjá borgarstofnunum (vatn, hita-
veita o.fl.) er I slma 27311 alla virka daga frá
kl. 17.00 til kl. 08.00 og á helgum dögum er
svaraö allan sólarhringinn. Tekiö er þar viö til-
kynningum á veitukerfum borgarinnar og [
öörum tilfellum, þar sem borgarbúar telja sig
þurfa að fá aöstoö borgarstofnana.
Geitgisskranmg
28. desember 1990 kl. 09.15 Kaup Sala
Bandaríkjadollar ....55,720 55,880
Steriingspund ..105,701 106,004
Kanadadollar ....47,966 48,104
Dönskkróna ....9,4964 9,5236
Norsk króna ....9,3490 9,3758
Sænsk knóna ....9,7712 9,7992
Flnnskt mark ..15,1846 15,2282
Franskur franki „10,7823 10,8132
Belgiskur franki ....1,7740 1,7791
Svissneskur ffanki „42,9524 43,0757
Hollenskt gytlini „32,4993 32,5926
..36,6700 36,7753 0,04874 5,2266
ftölsk líra ..0,04860
Austurriskursch .„.5,2116
Portúg. escudo „..0,4111 0,4122
Spánskur peseti ....0,5734 0,5750
Japanskt yen „0,41031 0,41149
97,468 97,748 78,8774
Sérst. dráttarr. ...78,6516
ECU-Evrópum ...75,1663 75,3821