Tíminn - 04.01.1991, Síða 1
Djúp lægð veldur gífurlegum usla í samgöngum, skemmdum
á síma og á fasteignum um norðan- og vestanvert landið
Línustaurar brotna
eins og eldspýtur
Djúp kyrrstæð lægð við landið
hefur valdið tugmilljóna tjóni og
ómældum óþægindum víða
um land undanfarna daga.
Rafmagnstruflanir og raf-
magnsleysi hafa hrjáð íbúa á
norðan- og vestanverðu land-
inu, en því valda ísing á raflín-
um og selta og að línustaurar
hafa hundruðum saman brotn-
að eins og eldspýtur undan
veðurofsanum. Truflanir og
tjón hafa einnig orðið á sím-
kerfi landsmanna og skemmdir
á húsum og bílum hafa sums
staðar verið verulegar. Flug
hefur að verulegu leyti legið
niðri og bíða nú hundruð far-
þega eftir að komast á milli
Staða. • Opnan
Rafmagnskerfið á norðan- og vestanverðu landinu hefur
orðið fyrir miklum skemmdum, enda stauramir, sem bera
raflínurnar uppi, ekki eins öflugir og þessi möstur, sem í
margra augum eru tákn rafvæðingarinnar.
Tímamynd: Árni Bjarna