Tíminn - 31.01.1991, Blaðsíða 4

Tíminn - 31.01.1991, Blaðsíða 4
4 Tíminn Fimmtudagur 31. janúar 1991 íraski landherinn 20 km inn í Saudi-Arabíu: ALLT AÐ 20 BANDA- MENN LÉTU LÍFIÐ Tvö herfylki ásamt 80 skriðdrekum og öðrum brynvörðum farartækjum ír- aka komust 20 km inn í Saudi- Arabíu í gær til borgarinnar Khaíji. írakar sóttu fram á fjórum stöðum en aðeins ein sókn heppnaðist að einhveiju leyti. Landgönguliðar frá Bandaríkjunum, Saudi-Arabíu og Quatar hófu gagnárás með stuðning úr lofti. Allt að 20 bandamenn létu h'fíð en mann- fall íraka var talið mun meira jafnvel nokkur hundruö. Landgönguliðar frá Saudi-Arabíu og Quatar áttu að gæta borgarinnar en urðu að flýja því um ofurefli var að etja. Síðan var gagnárásin skipulögð. Árás íraka kom bandamönnum í opna skjöldu. Fréttamenn, sem voru með bandarísku landgönguliðunum, sögðu að fjöldi íraskra skriðdreka hafi farið yf- ir landamærin og snúið byssutumum sínum til Kúvæts og héldu því banda- menn að þetta væru liðhlaupar. Hins vegar reyndist það ekki vera og bardag- ar fylgdu í kjölfarið. Am.k. 20 skrið- drekar íraka voru eyðilagðir og tvö brynvarin farartæki bandamanna eyði- lögðusL Hemaðarsérfræðingar veltu fyrir sér ástæðu árásar íraka. Margir voru þeirr- ar skoðunar að tilgangur árásarinnar hafí verið að kanna viðbrögð landhers bandamanna og sjá hvemig hann hag- aði gagnárás sinni. Einnig töldu þeir að þetta væri hluti í áróðurshemaði Sadd- ams. Að sýna að hann væri fær um að koma bandamönnum í opna skjöldu og auka sjálfstraust íraskra hermanna. Skriðdrekamir sem írakar beittu voru af gerðinni T-55 (sovésk framleiðsla) og eru yfir 30 ára gamlir og elstu hertæki þeirra og auðveld bráð bandamanna sem bendir til að markmiðin hafi verið önnur en að ná saudi-arabísku landi. Þá sökktu þyrlur úr breska sjóhemum þremur íröskum varðbátum og banda- rískar þyrlur tveimur. Fimm íraskar flugvélar lentu í íran í gær. Ein brot- lenti á akvegi og flugmaðurinn særð- ist. Tálsmaður þýsku stjómarinnar, Diet- er Vogel, sagði í gær að Þjóðverjar ætl- uðu að útvega ísraelsmönnum fleiri Patríot- flugskeyti til vamar Scudeld- flaugaárásum íraka. Einnig ætla Þjóð- verjar að láta þá hafa búnað til að eyða áhrifúm efna- og sýklavopna. Reuter-SÞJ - > * ** **■***■**.*****■****' ■ Árás íraka var óvænt Ræða Bush á bandaríska þinginu: Málefni Eystrasaltslýð- velda taka góða stefnu Sovésk stjómvöld hafa ákveöið að draga hluta af herliði sínu frá Eystrasaltslýðveldunum og hefja samningaviðræður við stjómir lýöveldanna. Þetta kom fram í ræðu sem George Bush, forseti Bandaríkjanna, flutti á fundi beggja deilda Bandaríkjaþings í nótt að okkar tíma. Þegar í gærdag bar á liösflutningum sovéskra hermanna frá Eystrasaltslýðveld- unurn til Rússlands. Bush sagði að útlit væri fyrir að samskipti stórveldanna mundu batna á ný en heldur stirt hefur verið á milli þeirra síðan sovéski herinn fór að beita ofbeldi gegn al- menningi í Eystrasaltslýðveldun- um. „í nýafstöðnum viðræðum við sovésk yfirvöld hefur okkur verið skýrt frá áætlunum um brottflutn- ing sovésks herliðs, endurvakn- ingu viðræðna við stjórnvöld í Eystrasaltslýðveldunum og brott- hvarf frá ofbeldi," sagði Bush. Sumir bandarískir embættismenn þóttust greina nokkrar efasemdir í ræðunni. „Við munum fylgjast vandlega með þróun mála... Ef það er mögulegt þá viljum við halda áfram að stuðla að varanlegri sam- vinnu milli Bandaríkjanna og Sov- étríkjanna..." Alexander Bessmertnykh, utan- ríkisráðherra Sovétríkjanna, sagði við Bush á mánudaginn að stjórn- völd í Moskvu mundu draga ein- hvern hluta herliðsins í lýðveldun- um til baka og hefja viðræður við leiðtoga þeirra, að sögn eins stjórnarerindreka. Menn voru ekki vissir hvernig þeir áttu að túlka þessar yfirlýsingar Bessmertnykhs. „Þegar þeir segjast ætla að fara með ákveðna hermenn er þá átt við Svörtu húfurnar eða ekki? Og er þá átt við þær allar eða bara nokkrar? Við vitum það einfaldlega ekki á þessari stundu,“ sagði bandarískur stjórnarerindreki. í ræðu sinni lagði Bush nokkra áherslu á að hann vildi ekki refsa sovésku stjórninni vegna ofbeldis- ins í lýðveldunum en margir bandarískir þingmenn hafa lagt til að gripið verði til refsiaðgerða. „Sú stefna sem við höfum fylgt er ein- föld: Takmark okkar er að hjálpa Eystrasaltslýðveldunum að ná fram markmiðum sínum en ekki að refsa Sovétríkjunum..." sagði Bush. „Erum að eyða hemaðarmætti íraka“ Bush fjallaði ítarlega um Persa- flóastríðið og hét að brjóta íraka á bak aftur og hrekja þá frá Kúvæt. Þess var beðið með mikilli eftir- væntingu að Bush mundi svara áróðri Saddams Hussein og var ræðunni sjónvarpað beint. Henni var vel tekið af þingmönnum og varð forsetinn að gera 52 sinnum hlé á máli sínu vegna fagnaðarláta. Bush undirstrikaði fyrri yfirlýs- ingu sína um að stríðið hefði ekki hafist 17. nóvember heldur 2. ág- úst þegar írakar hernámu og rændu „lítið og varnarlaust land“. Hann sagðist fullviss um hvernig það mundi enda. „Við erum að eyða hernaðarmætti íraka. Ég get fullvissað ykkur um það að hernað- aráætlun bandamanna gengur George Bush, forseti Bandaríkj anna. samkvæmt áætlun.“ „Það er ekki markmið okkar að leggja írak í rúst, eyða menningu landsins og drepa fólkið. Öllu fremur er það ósk okkar að írakar noti landgæði sín til að byggja sér betra þjóðfélag en ekki til eyðilegg- ingar og þjónustu við einræðis- herra," sagði Bush en talsverð gagnrýni hefur komið á aðgerðir bandamanna. Sumir hafa haldið því fram að bandamenn ráðist um of á frak en takmarki ekki hernað- araðgerðirnar við frelsun Kúvæts eins og ályktun Sameinuðu þjóð- anna gerir ráð fyrir. Varnarmála- ráðherra Frakklands var meðal annarra á þessari skoðun og sagði af sér í kjölfarið. Reuter-SÞJ Júgósíavía: Vamarmálaráðherra Króatíu handtekinn Yfirvöld júgóslavneska hersins skipuðu í gær varnarmálaráðherra Króatíu, Martin Spegeli, að halda kyrru fyrir, samkvæmt Tanjung fréttastofunni. Samkvæmt yfirlýs- ingu frá herdómsstólnum í Zagreb á innanríkisráðuneyti Króatíu að handtaka Spegeli innan 24 klst. (frá miðjum degi í gær). Ekki var sagt hverjar sakargiftirnar væru. Sjónvarpið sýndi á föstudag 30 mínútna myndband sem leyni- myndavél tók af Spegeli þar sem hann var að skipuleggja morð á nokkrum háttsettum starfsmönn- um júgóslavnesku sambands- stjórnarinnar, að því er fullyrt er. Það var júgóslavneska varnarmála- ráðuneytið sem kom myndavélinni fyrir. Á seinustu stundu var komið í veg fyrir að borgarastyrjöld brytist út í landinu á seinustu helgi milli Króatíu og júgóslavneska hersins þegar forseti Króatfu skipaði 20.000 lögreglumönnum að af- vopnast en Króatía berst fyrir sjálf- stæði. Reuter-SÞJ Fréttayfirlit Dhahran, Saudi-Arabíu - Tvö írösk herfylki sóttu 20 km inn í Saudi- Arabíu í gær og hófu skot- hríð á bandamenn. Bandamenn svöruðu með gagnárás og síðdeg- is í gær var talið að nokkur hundr- uð Iraka hefðu failið en innan við 20 bandamenn. Tokyo - ToshiJd Kaifu, forsætis- ráðherra Japans, sætti mikilli gagnrýni á japanska þinginu í gær þegar hann varði þá ákvörðun stjómarinnar að veita 600 millj- örðum til stríðsrekstrarins við Persaflóa. Gripu þingmenn fram í fyrir honum og var skóm kastað að honum frá almenningspöllun- um. Nikósfa - íranir sögðu að fimm íraskar flugvélar hefðu komið til Irans í gær. Ein þeirra brotlenti á akvegi og særðist flugmaðurinn. Jerúsalem - ísraelar sögðu að tvö Katyusha-flugskeyti hefðu sprungið á öryggissvæöum þeirra í suðurhluta Libanon í gær. ísra- clsmcnn svöruðu árásum Palest- fnuaraba. New Delhi - Sérstakir stjómarer- indrekar frá Alsír og Jemen hittu Chandra Shekhar, forsætisráð- herra Indlands, til að ræða hvem- ig hægt sé að stöðva Persaflóa- stríðið, að sögn talsmanns utan- ríkisráðuneytisins. Los Angeles - Bandarísk lög- regluyfírvöld hafa upplýst 700 mál þar sem einstaklingar og fyr- irtæká hafa reynt að selja hergögn og aðrar vömr til írak þrátt fyrir viðskiptabann Sameinuðu þjóð- anna, að sögn dagblaðsins Los Angeles Times. Washington - George Bush Bandaríkjaforseti sagði að það væri möguleiki á því að samband Bandaríkjanna og Sovétríkjanna færi nú batnandi þvíyflrvöld í Sov- éhíkjunum hafa sagt að þau ætli að fara með einhvem hluta herliðs síns frá Eystrasaltsríkjunum og hefja samningaviðræður við leið- toga lýðveldanna. Reuter-SÞJ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.