Tíminn - 31.01.1991, Síða 8

Tíminn - 31.01.1991, Síða 8
8 Tíminn Fimmtudagur 31. janúar 1991 IVETTVANGUR Dr. Hannes Jónsson, fv. sendiherra: EES er slæmur kostur fyrir ísland. EB-aðild er enn verri Þótt umræðan um „samrunaþróunina í Evrópu“ og tengsl íslands við Evrópumarkaðinn hafi fram að þessu verið bæði þröng og mót- ast af þeirri nauðhyggju stjómvalda að við eigum ekki annarra kosta völ en fljóta með eða einangrast ella, hygg ég að stór hluti íslend- inga geri sér grein fyrir því að þetta sé mikilvægasta milliríkjamái okkar í dag. Á miklu veltur að réttar ákvarðanir verði teknar að lok- inni víðtækrí upplýsingamiðlun um alla þætti málsins og rökrænni greiningu á því í ljósi bestu hagsmuna íslands. Nokkur hætta felst í því að þátttaka okkar í samningaviðræöunum um Efnahagssvæði Evrópu (EES) hefur fram að þessu mótast meira af kappi en forsjá. Eðlileg séríslensk hags- munagæsla hefur verið í lágmarki, öll áhersla lögð á mikilvægi samflots með EFTA-ríkjunum undir forystu iðnríkja þess, sem hafa annarra hagsmuna að gæta en íslendingar. Grundvallaratriði ut- anríkisstefnu Alkunna er að sjálfgefið grundvall- aratriði utanríkisstefnu allra sið- menntaðra ríkja er, hefur verið og verður væntanlega alltaf að tryggja fullveldi og viðhalda sjálfstæði ríkis- ins í samskiptum við önnur ríki, fjölþjóða- og alþjóðastofnanir. Af þessu leiðir að æðsta hlutverk utan- ríkisþjónustunnar er að framfylgja þessu stefnumiði. í milliríkjasamn- ingum má því eðli málsins sam- kvæmt aldrei samþykkja nokkra tak- mörkun á þessum æðstu stjórn- málagildum ríkisins, aldrei fórna meiri verðmætum, huglægum eða hlutlægum, fyrir minni. Þetta höf- um við reynt að tryggja með ákvæð- um 21. gr. stjórnarskrárinnar. Þar segir að enga samninga megi gera við önnur ríki „ef þeir hafa í för með sér fólgið afsal eða kvaðir á land eða landhelgi... nema samþykki Alþing- is komi til.“ Nú hefur ýmislegt það gerst í samningaviðræðunum um EES sem stangast á við grundvallarhugsun þessa stjómarskrárákvæðis. Ber þar fyrst að nefna samþykki utanríkis- ráðherra á niðurstöðum könnunar- viðræða EFTA og EB frá 20. mars 1990. Þar er m.a. samþykkt að Iög og reglur EB á samningssviðinu hafi yf- irþjóðlegt gildi innan EES, hafi beint lagagiídi í öllum 18 aðildar- ríkjunum, þ.á m. á íslandi, að ís- lensk lög og reglur um þessi efni skuli víkja, en reglur EB yfirfærðar á EES skuli ríkja. í öðru lagi var samþykkt að komið verði á yfirþjóðlegum dómi og fram- kvæmdaráði eða stofnun sem hafi eftirlit með því að hinum yfirþjóð- legu lögum og reglum á samnings- sviðinu verði framfylgt. Þarna er sem sé samþykkt að ákvörðunarvald aðildarríkjanna í ýmsum mikilvæg- um málaflokkum utanríkisviðskipta og -efnahagsmála verði ekki í okkar höndum heldur sameiginlegra stofnana 18 aðildarríkjanna. í þriðja lagi gerist það svo 19. des- ember 1990 á sameiginlegum ráð- herrafundi EFTA og EB að formlega var samþykkt að fella alls um 1400 lög og reglur EB, ásamt viðeigandi ákvæðum Rómarsáttmála, sem rétt- argrundvöll inn í samninginn um Efnahagssvæði Evrópu. Þessi laga- bálkur, sem gilda á m.a. um fjórfrelsi hins nýja kerfis, er um það bil fjór- um sinnum lengri en allt gildandi lagasafn íslands, verður væntanlega 10-11.000 blaðsíður í Alþingistíð- indabroti. Og bálkurinn á að vera opinn í annan endann að því leyti að viðkomandi stofnanir EES geti breytt honum og bætt við hann eftir samkomulagi. Og allt þetta fái yfir- þjóðlegt lagagildi á íslandi. En málið heldur áfram að þróast á ábyrgð allrar ríkisstjórnarinnar og þingmanna hennar. Utanríkisráð- herra fer með það og lætur stjórnar- liðið yfirleitt standa frammi fyrir gerðum hlut fremur en að hafa við það samráð áður en skuldbinding er gerð. Frá Brussel fréttum við 23. janúar sl. að aðalsamningamaður Austurríkis, Manfred Scheich, hafi skýrt frá því að fullt samkomulag sé orðið um öll meginatriði, þótt eng- inn af fyrirvörum íslands hafi, að því er virðist, verið samþykktur og að EB ætli sér að gera tillögur um við- skipti með sjávarafurðir í febrúar, en haldi fast við fyrra sjónarmið um að veiðiheimildir komi á móti frekari tollfrjálsum innflutningi á fiski. Hvað varð þá um fyrirvara íslands? Óreiknuðu dæmin Nú er ekki nema von að menn spyrji um þann mikla gróða sem fýlgja á hinu nýja kerfi og við eigum að greiða fyrir með takmörkuðu fullveldisafsali. Hversu mikill verður gróði þjóðar- búsins af fjórfrelsinu? Svo ótrúlegt sem það kann að virð- ast vita stjórnvöld næsta lítið um hann. Alkunna er að sjálfgefið grundvallaratriði utanrík- isstefnu allra siðmennt- aðra ríkja er, hefur verið og verður væntanlega alltaf að tryggja fullveldi og viðhalda sjálfstæði ríkisins í samskiptum við önnur ríki, fjölþjóða- og alþjóðastofnanir. Sérstök ástæða er til þess að leggja áherslu á að viðskiptaleg einangr- un okkar er ekki á dag- skrá, þótt við höfnum að- ild að EES og EB sem slæmum kostum fyrir ís- lenska hagsmuni. Á fundi Alþjóðamálastofnunar Há- skólans 2. nóvember 1990 var spurningunni um þennan þjóðhags- lega gróða beint til Jóns Baldvins. Hann svaraði að stjórnin hefði ný- lega snúið sér til ýmissa hag- og efnahagsstofnana og beðið þær um að reikna út þjóðhagsleg áhrif aðild- ar íslands að EES. Og Steingrímur Hermannsson skýrði frá því í sjón- varpsviðtali 22. janúar sl. að ríkis- stjórnin biði enn eftir niðurstöðum útreikninganna. Er nema von að spurt sé: Á hvaða grundvelli hefúr ríkisstjórnin staðið í samningaviðræðum um EES ef hún hefur ekki látið reikna út hags- muni íslands í sambandi við breyt- ingu yfir til fjórfrelsisins frá gildandi utanríkisviðskiptakerfi sem er okkur hagstætt? Vitanlega hefðu þessir útreikningar átt að fara af stað eftir 17. janúar 1989, þegar EB bauð EFTA upp á tvo valkosti um frekari þróun samskipta bandalaganna: Sérsamningar og víðtæk fríverslun þjóna best hags- munum okkar 1) Endurbætt tvíhliða fríverslunar- kerfi. 2) Víðtækara stofnanatengt sam- starf sem þróaðist yfir í hugmyndina um EES. Hefðu slíkir útreikningar verið gerðir strax vorið 1989 hefðum við getað sparað okkur mikinn kostnað og erfiði vegna samningaviðræðna um aðild að EES og ímyndaðan óþekktan ábata af því. Taps- og gróðareikn- ingur íslands af aðild aðEES Við verðum að bíða enn um stund eftir niðurstöðum útreikninganna sem beðið var um eftir að ríkis- stjórnin hafði um hálfs annars árs skeið staðið í samningum um EES án þess, að því er virðist, að þekkja okkar bestu hagsmuni í málinu. Samt má fara nærri um meginatriði með rökrænni geiningu einni sam- an. Ég hef í fórum mínum yfirlit eða skýrslu frá Martin Bangemenn, varaformanni framkvæmdastjórnar EB, frá árinu 1990 sem sýnir að ábati 12 EB-ríkjanna af framkvæmd fjórfrelsisins og innri markaðarins íýrir þau gæti orðið á bilinu 2-4,5% af landsframleiðslu, mest hjá fátæk- ari ríkjum S-Evrópu, minna í aðild- arríkjunum í Mið- og Norður- Evr- ópu. Þetta eru ónákvæmar tölur og viðurkennt að hagfræðin hafi ekki óyggjandi aðferðir til þess að meta ábatann fýrirfram. Um helmingur ábatans, eða um 2% af landsfram- leiðslu, er talinn stafa af hagræð- ingu og framleiðsluaukningu í iðn- aði vegna stærra framleiðslu- og markaðssvæðis án landamæra og minni skriffinnsku vegna tollaf- greiðslna o.fl. þess háttar. Hluti ábatans er svo talinn stafa af um 6% lækkun vöruverðs í 12 aðildarríkj- unum. Það væri fásinna að taka þessar ónákvæmu tölur sem bendingu um ábata íslands af aðild að EES. Helm- ingur ábatans, sem kemur fram vegna hagræðingar, framleiðslu- aukningar og stærra framleiðslu- og markaðssvæðis iðnvara nær ekki til okkar nema að óverulegu leyti, þar sem um 75% af okkar útflutningi eru sjávarafli sem yrði utan fjórfrels- isins án sérsamninga. Og 6% lækk- un vöruverðs EB ríkja kæmi okkur til góða við innflutning frá þeim hvort sem við ættum aðild eða ekki. Miðað við framleiðslugetu og efna- hagseinkenni íslands er eins líklegt og ekki að hugsanlegur ábati okkar af þátttöku í fjórfrelsi EES yrði tæp- ast merkjanlegur. Er hluta af full- veldinu fórnandi fýrir þennan óvissa og lítilfjörlega ábata, ef hann verður þá nokkur? Kerfi fjórfrelsisins og tap Islands af því Af fyrirliggjandi gögnum er ljóst að fjórfrelsiskerfi EES yrði nákvæm- lega það sama og það sem EB ætlar að taka upp í byrjun árs 1993. Eðlis- munur þess hjá EFTA og EB ríkjun- um yrði enginn. Hann felst í öðrum atriðum félagsaðildar að EB. Mark- mið EB er annað og meira en EES Jacques Delors, formaður fram- kvæmdastjómar EB, gerði í janúar 1989 EFTA-ríkjunum tilboð um tvo valkosti varðandi samskipti ríkja bandalaganna í framtíðinni. Fyrst, í grundvallaratríðum óbreytt tví- hliða samskipti byggð á gildandi fríverslunarsamningum, sem yrðu styrktir og bættir. Eða, í öðru lagi, bandalögin gengju til samninga um mun víðtækara samstarf. Síð- arí valkosturinn leiddi til samninga- viðræðna EFTA og EB um stofnun Efnahagssvæðis Evrópu (EES) á gmndvelli reglna EB. Vom það einkum iðnríkin innan EFTA, sem mæltu fýrir síðarí valkostinum, en fsland draslaðist með „til þess að sjá hvað við gætum fengið út úr þessu", eins og einn stjómarþing- maðurínn orðaöi það, þótt rökræn greining á öllum atriðum málsins sýni ótvírætt, að hagsmunum fs- lands verði betur borgið með fýrri valkostinum. um stórt markaðssvæði. EB ætlar að mynda „landamæralaust efnahags- og samfélagssvæði sem stefnir að því að verða stjórnmálaleg heild, en það felur í sér nánari samvinnu um ut- anríkis- og varnarmál", svo notuð séu orð Jacques Delors, formanns framkvæmdastjórnar EB, í ræðunni í Strassborg 17. janúar 1989. EB-að- ild fýlgir líka að lúta sameiginlegri landbúnaðar- og sjávarútvegsstefnu, sem mótuð er og stjórnað frá Brússel, svo og að afhenda EB alla innflutningstolla, alla verndartolla af landbúnaðar- og sjávarafurðum og 1,4% af innheimtum virðisauka- skatti. Ekkert af þessu á við um EES og eru ókostir þess miklir samt. Þetta sést best þegar skoðað er hvað okkur er boðið upp á með fjórfrels- inú. Af fýrirliggjandi gögnum er ljóst að hið fyrirhugaða utanríkisviðskipta- kerfi fjórfrelsis Efnahagssvæðis Evr- ópu án sérsamninga mundi hafa fimm aðaleinkenni: 1) Fríverslun og tollfrelsi með iðn- vörur. Þetta höfum við þegar á grundvelli gildandi fríverslunar- samninga. Ástand óbreytt, hvorki tap né gróði. 2) Fríverslun með þjónustu, þ.á m. bankastarfsemi, verðbréfa- og hluta- bréfasölu, verktakastarfsemi, ferða- þjónustu, vátryggingarstarfsemi, samgöngur í lofti, á sjó og landi. Með því ofurfjármagni sem fjöl- þjóðafýrirtæki Evrópu ráða yfir má gera ráð fýrir að fljótt þrengdi að hinum smáu íslensku fýrirtækjum. Þeim yrði rutt úr vegi á samkeppnis- grunni í þeim greinum sem erlendu fyrirtækin teldu gróðavænlegastar. Engan gróða, aðeins tap, er því fýrir okkur að sækja í þetta „frelsi". 3) Fríverslun með fjármagn og fjár- festingar. Fjármagnseigendur í öll- um 18 ríkjunum hefðu jafna mögu- leika til þess að fjárfesta í hverju sem er — fasteignum, landi, fýrirtækj- um, samgöngutækjum, orkuverum o.s.frv. — hvar sem er á 18 ríkja svæðinu. Þannig gætu t.d. erlendu fjölþjóðafyrirtækin keypt hlut í eða keypt upp hver þau einka- eða hlutafélög í útgerð, fiskvinnslu og fiskirækt ásamt skipum og vinnslu- stöðvum, sem þau teldu gróðavæn- leg. Þau gætu með þessu móti kom- ist bakdyramegin inn í íslenska fisk- veiði- og efnahagslögsögu. Auðlind- ir okkar gætu þannig smátt og smátt komist í eigu útlendinga án þess að við veittum því athygli fyrr en of seint. Er augljóst að þetta leiddi að- eins til meiriháttar taps, ekki gróða. 4) Frjáls búsetu- og atvinnuréttur, einn vinnumarkaður, er hluti af fjór- frelsinu. Erlend fyrirtæki sem fjár- festa í atvinnurekstri á íslandi hefðu því rétt til þess að flytja inn ódýrt vinnuafl frá láglaunasvæðum Evr- ópu til starfa í fýrirtækjum sínum. íslendingar þyrftu að keppa um vinnuna í eigin landi við þetta að- flutta láglaunafólk. Þetta leiddi vafa- lítið til lélegri launakjara, atvinnu- leysis og ómældra kostnaðarsamra félagslegra vandamála, sem fýlgja mundu tvíbýlinu í landinu og sam- keppninni um atvinnuna. Greinilegt er að við gætum ekkert grætt á þessu, aðeins tapað. 5) Lög og reglur EB yfirfærðar í EES eiga að hafa beint lagagildi á öllu svæðinu og yfirþjóðlegar stofn- anir hafi eftirlit með framkvæmd-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.