Tíminn - 31.01.1991, Page 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 31. janúar 1991
BÓKMENNTIR
Ljósi varpaó á upplýsingu
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka I
Reykjavfk 25.-31. janúar er I Borgar Apóteki
og Reykjavikur Apóteki. Það apótek sem fyrr er
nefnt annast eitt vörsluna fró kl. 22.00 aö kvöldi
til kl. 9.00 að morgni virka daga en kl. 22.00 á
sunnudögum. Upplýsingar um iæknls- og lyfja-
þjónustu eru gefnar I síma18888.
Uppiýsingln á (slandi, tiu ritgerðir. Ritstjóri
Ingi Sigurðsson. Hið islenska Bókmenntafé-
lag, Reykjavik 1990.
Á seinni árum hafa sagnfræðingar í
æ ríkari mæli tekið tii umfjöllunar
hugmyndasögu og áhrif stefría og
strauma á ýmsa þætti þjóðfélagsgerð-
ar fyrri tíma. Þetta er jákvætt, því ljóst
er að slíkir huglægir straumar höfðu
bein og óbein áhrif á gang sögunnar
og líf fólks. í bókinni „Upplýsingin á
íslandi" er gerð grein fyrir áhrifum
upplýsingastefnunnar hér á landi.
Takmarkað hefur verið fjallað um
stefnuna fram til þessa, nema á af-
mörkuðum sviðum. Hér er því á ferð-
inni þarft rit og fróðlegt.
Ingi Sigurðsson, dósent og ritstjóri
bókarinnar, á fyrstu ritgerðina í bók-
inni. í henni gerir Ingi grein fyrir
upplýsingastefnunni og áhrifum
hennar á íslandi. Greinin gefur gott
yfirlit um það sem bókin fjallar um.
Forsvarsmenn upplýsingarinnar hér
á landi, danskir og íslenskir embætt-
ismenn, voru tengdir við það sem var
að gerast í Evrópu. Greinilegt er að ís-
lensku upplýsingamennimir vom
nokkuð uppteknir af því að vera upp-
lýstir og meðvitaðir um hlutverk sitt.
Sænski sagnfræðingurinn Harald
Gustafsson fjallar um stjómsýslu í
grein sinni, þ.e. um upplýst einveldi
og breytingar á íslenska embættis-
mannakerfinu. Harald sýnir fram á að
það var fyrst og fremst fyrir fmm-
kvæði danskra stjómvalda sem gerð-
ar vom tilraunir til endurbóta á
stjómsyslu og atvinnumálum á ís-
landi. Islendingar höfðu takmarkað-
an áhuga á Þúfnatilskipuninni og til-
lögum Landsnefridarinnar fyrri.
Landsmenn vom ekki vaknaðir af
dvala, en víst er að upplýsingin gerði
sitt til að vekja þjóðina og það kemur
víðar fram í bókinni.
Davíð Þór Björgvinsson, dósent í
lögfræði, ritar grein um refsilöggjöf
og réttarfar í sakamálum. Allítarlega
er gerð grein fyrir þeim miklu breyt-
ingu sem urðu á dómskerfinu á þess-
um tíma. Davíð Þór reynir að skil-
greina áhrif upplýsingarinnar á þess-
ar breytingar. Slíkt er ekki alltaf auð-
velt, því að sjálfsögðu áttu sér stað
ýmis fleiri umbrot í heiminum á þess-
um tíma en þau sem kenna má við
upplýsingu. Fróðlegt er að bera sam-
an þau ólíku lífsviðhorf sem birtast í
skrifum dómaranna Bjarna Thorar-
ensen og Magnúsar Stephensen, en
þau em stuttlega rakin í lok greinar-
innar.
Lýður Björnsson sagnfræðingur rit-
ar um atvinnumál á tíma upplýsing-
arinnar í sinni grein. Hér er um stórt
viðfangsefni að ræða, eins og Lýður
bendir réttilega á, og má með nokkr-
um rökum segja að rétt hefði verið að
gefa þessu viðfangsefni meira rúm í
bókinni. Lesandinn hefur áhuga á að
vita meira um umfang og árangur af
tilraunum danskra stjómvalda til að
að koma á nýjungum í íslenskum at-
vinnumálum. Minnst er á að allmikið
hafi verið unnið að jarðabótum fyrir
norðan, þar sem Stefán Þórarinsson
amtmaður réð ríkjum, en fróðlegt
hefði verið að hafa þá umfjöllun ítar-
legri.
Hjalti Hugason, dósent í guðfræði,
fjallar um guðfræði og trúarlíf í sinni
grein. Kirkjan breyttist mikið á þess-
um tíma. Veraldlegur auður hennar
minnkaði og þar með vald. Hjalti
fjallar fyrst og fremst um guðfræði-
legar hræringar, sem rekja má til
upplýsingarinnar, og sýnir glögglega
fram á hvemig erlendir straumar bár-
ust til íslands. Hjalti bendir á, sem
sennilega er rétt, að íslensku upplýs-
ingamennirnir hafi ekki verið ýkja
róttækir í guðfræðinni, að minnsta
kosti ekki séu þeir bornir saman við
frönsku upplýsingarmennina.
Loftur Guttormsson dósent skrifar
um fræðslumál. Loftur hefur á síð-
ustu árum stundað umfangsmiklar
rannsóknir á félagssögu og mennta-
málum þessa tímabils. Greinin er ít-
Magnús Stephensen dómstjóri
var helsti forvígismaður
upplýsingarínnar hér á landi.
Hann barðist fyrir Ijósinu og gegn
myrkrínu, eins og hann komst
sjálfur að orði, löngu eftir að
flestir samtímamenn hans voru
famir að horfa í aðrar áttir.
arleg og vel skrifuð. Glögglega kemur
fram áhugi upplýsingamanna á að
fræða almenning. Annars er athyglis-
vert að kynnast áliti hinna upplýstu
embættismanna á alþýðunni. Hana
töldu þeir heimska og því yrði að mat-
reiða fræðslu fyrir almúgann með
sérstökum hætti.
Helgi Magnússon sagnfræðingur rit-
ar um fræðafélög og bókaútgáfu.
Upplýsingamenn voru duglegir að
gefa út bækur og má segja að á þess-
um tíma hafi orðið sannkölluð „fjöl-
miðlabylting". Að öðrum ólöstuðum
var Magnús Stephensen konferensráð
atkvæðamestur á þessu sviði, en
Magnús hélt merki upplýsingarinnar
hátt á loft hér á landi, þegar ná-
grannaþjóðir okkar voru í raun búnar
að snúa við henni baki.
Helga K. Gunnarsdóttir bókasafns-
fræðingur fjallar um bókmenntir á
upplýsingaöld í sinni grein. Eggert
Ólafsson, Hannes Finnsson, Magnús
Stephensen o.fl. þekktu vel til helstu
erlendra rita upplýsingarmannanna,
en greinilegt er að þeir hafa valið það
sem þeir töldu henta, þegar þeir
miðluðu þessu til almúgans hér á
landi.
Ingi Sigurðsson skrifar um sagn-
fræði á upplýsingaröld, en það efni
þekkir hann vel, því að hann skrifaði
doktorsritgerð um söguritun Jóns
Espólíns. Upplýsingarmennimir
höfðu mikinn áhuga á sögunni og
vom flestir sannfærðir um að allt
stefndi til betri vegar. Viðhorf Magn-
úsar Stephensens til sögunnar eru
allt önnur en viðhorf hinnar þjóðem-
issinnuðu kynslóðar, sem kom á eftir
honum.
Síðustu greinina í bókinni á Harald-
ur Sigurðsson, fyrrverandi bókavörð-
ur, en hún fjallar um náttúruvísindi
og landafræði. Miklar framfarir urðu í
náttúruvísindum á þessum tíma, en
menn eins og Magnús Stephensen
höfðu mikinn áhuga á náttúruvísind-
um, en hann leit svo á að fræðsla á
þessu sviði vísinda væri mikilvægur
þáttur í að útrýma hjátrú og hindur-
vitnum.
Saman mynda greinarnar tíu góða
heild um umfjöllunarefríið. Að sjálf-
sögðu bera þær allar sitt höfundar-
einkenni. Mjög lítið er um endur-
tekningar og þess er vel gætt að vísa í
aðrar greinar, þannig að þær styðji
hver aðra. í öllum greinunum er gerð
grein fyrir tengslum upplýsingarinn-
ar hér á landi við upplýsingu í öðrum
löndum.
Hér er á ferðinni gott rit, sem mun
koma sagnfræðingum að góðum not-
um í framtíðinni. Því fer hins vegar
fjarri með þessari bók sé búið að
rannsaka til hlítar áhrif upplýsingar-
stefnunnar hér á landi. Á næstu árum
er t.d. von á bók um hugmyndasögu
Magnúsar Stephensens dómstjóra
eftir Inga Sigurðsson. Það verður án
efa fróðieg bók. -EÓ
Ncyöarvakt Tannlæknafélags fslands
er starfrækt um helgar og á stórhátíðum. Sím-
svari 681041.
Hafnarfjöröur Hafnarfjaröar apótek og Norður-
bæjar apótek em opin á virkum dögum frá kl.
9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laugar-
dag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar I símsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek
eru opin virka daga á opnunartíma búöa. Apó-
tekin skiptast á sína vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opiö í þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opiö frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öörum timum er lyfja-
fræöingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I
sima 22445.
Apótek Keflavfkur Opið virka daga frá k. 9.00-
19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl-
daga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl.
8.00-18.00. Lokaö i hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Op-
ið er á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-
12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opiö virka daga til
kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garöabær Apótekiö er opiö rúmhelga daga kl.
9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Læknavakt
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seitjamames og
Kópavog er i Heilsuverndarstöö Reykjavíkur alla
virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög-
um og helgidögum allan sólarhringinn.
Á Settjamamesl er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00 og laugard. kl. 10.00-11.00. Lokaö á
sunnudögum.
Vitjanabeiönir, slmaráðleggingarog tímapantan-
ir I slma 21230. Borgarspítalinn vaktfrá kl 08-17
alla virka daga fyrir fólk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (simi
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (sími 81200). Nánari upplýsingar um
lyfjabúðir og læknaþjónustu erugefnar i símsvara
18888.
Ónæmisaögerðir fyrir fulloröna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvemdarstöö Reykjavfkur á
þriöjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi meö sér
ónæmisskirteini.
Seltjamames: Opið er hjá Tannlæknastofunni
Eiöistorgi 15 virka daga kl. 08.00-17.00 og 20.00-
21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Simi 612070.
Garöabær Heilsugæslustööin Garðaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, simi 656066. Læknavakt er I
sfma 51100.
Hafnarfjöröur Heilsugæsla Hafnarfjaröar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, simi 53722. Læknavakt simi 51100.
Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Simi 40400.
Keflavik: Neyöarþjónusta er allan sólarhringinn á
Heilsugæslustöö Suöumesja. Simi: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræöistöðin: Ráögjöf f sál-
fræöilegum efnum. Sími 687075.
LESENDUR SKRIFA
Blóðbaðið mikla hafið
Nú skal Saddam Hussein komið á
kné og hvað sem það kostar. Hundr-
uð þúsunda manna munu óhjá-
kvæmilega láta lífið, að ekki sé talað
um alla þá er hljóta munu ævarandi
örkuml og viðurstyggð eyðilegging-
arinnar mun sömuleiðis hafa hroða-
legar afleiðingar á íbúa íraks og Ku-
wait. Þetta stríð var ekki nauðsynlegt
og ekkert getur réttlætt að hleypa af
stað slíkri vitfirringu.
íraksforseti er vissulega grimmur
harðstjóri, sem einskis svífst þegar
óvinir hans eiga í hlut og taka hans á
Kuwait er auðvitað ofbeldisverk sem
ber að fordæma og fylgja eftir, en
ekki má samt gleyma í þessu sam-
bandi að Kuwait var fyrir aðeins
nokkrum áratugum hluti af írak og
það voru Bretar sem skiftu landinu
upp, en þeir drottnuðu yfir þessum
landsvæðum á þessum tíma eins og
víða í heiminum um langt árabil.
Hvað var þá til ráða? Var ekki búið að
reyna til þrautar að koma írökum
burt úr Kuwait með friðsamlegum
hætti? Svarið er nei. Með tíð og tíma
hefði samist um aðaldeilumálin
þama, þ.e. olíulindirnar miklu á
landamærum ríkjanna svo og eyjarn-
ar, sem myndu opna írökum aðgang
að sjó. Kuwaitar hafa látið mikið fé af
hendi rakna til íraka og þá ekki síst er
Kir áttu í stríði við írani, þannig að
ikar hafa komið fram aif fádæma
ruddaskap við þessa þjóð. Menn vildu
ekki láta reyna á það enn frekar hvort
þjóðimar gætu ekki samið um deilu-
málin og gripið var til viðskiptabanns
á írak. Það var þegar farið að hafa
áhrif og fljótlega hefði farið að sverfa
alvarlega að þjóðinni og þá hefði hún
risið upp og velt Hussein úr sessi, en
menn vildu heldur ekki bíða eftir því
og þá hefði átt að gera út hryðju-
verkamenn og láta þá ráða íraksfor-
seta af dögum. Hefði þá legið beinast
við að leita til einkavina Bandaríkja-
manna, glæpamannanna í ísrael, þeir
hafa nóg af slíkum og hefðu glaðir
tekið að sér að koma Hussein inn í ei-
lífðina. Þeir hafa verið iðnir við að
myrða leiðtoga Palestínumanna
gegnum árin, þannig að þeim hefði
ekki síður orðið skotaskuld úr því að
senda Hussein til feðra sinna. Það er
að sjálfsögðu enn tími til stefnu og
um leið og hann er fallinn, þá hrynur
veldi hans í írak, það hljóta allir að
sjá og viðurkenna.
Raunveruleg ástæða
árásar Bandaríkja-
manna og Co. á Irak
Þeir tala mikið um að frelsa Kuwait,
Washingtonmenn, og koma þar aftur
til valda löglegri stjóm og Bush for-
seti er iðinn við að koma fram í fjöl-
miðlum og boða heimsbyggðinni frið
og réttlæti, lýðræðisríkin verði að
standa saman gegn einræðisöflunum
og þar fram eftir götunum. Hvenær
var emírinn í Kuwait kosinn lýðræð-
islegri kosningu eða vilja Bush og fé-
lagar koma á siðferði emírsins og
hyskis hans? Emírinn á 40 konur og
hver veit hvað af börnum, þokkalegt
graðhestasamfélag það. Konur í flest-
um Arabalöndum búa við takmörkuð
réttindi, í sumum löndum mega þær
ekki einu sinni aka bifreið. í nær öll-
um Arabalöndum og yfirleitt í heimi
múslima ríkir í reynd einræði, þann-
ig að þegar Bush er að belgja sig út
og tala fjálglega um að koma þarna
aftur til valda réttkjörnum valdhöf-
um þá fer hann með þvætting og því
síður ætti hann að taka sér í munn
orð eins og frelsi og lýðræði í þessu
samhengi. Nei, það skiftir Washing-
ton-herrana ekki nokkru máli hvern-
ig íbúum Kuwait reiðir af, þarna er
aðeins um að ræða þeirra eigin hags-
muni og þá ekki síst hinar auðugu ol-
íulindir Kuwait. Væru þær ekki til
staðar, þá myndu þeir ekki hreyfa
legg né lið þessu fólki til hjálpar. Svo
er annað mjög mikilvægt, sem verð-
ur að taka fram í þessu sambandi.
Bandaríkjamenn hafa ekki getað sætt
sig við gerbreytt valdahlutföll í Ar-
abalöndunum, sem urðu eftir fall ír-
anskeisara en hann var eins og flestir
muna dyggur stuðningsmaður
þeirra. Þegar írakar réðust á íran fyr-
ir 10 árum, en þá höfðu klerkavitfirr-
ingarnir komist til valda, þá studdu
Bandaríkjamenn árásaraðilann Sadd-
am Hussein af alefli, mokuðu í hann
ógrynni vígvéla, þennan sama mann
er þeir hafa nú snúist gegn af mikilli
grimmd. Og allir vita náttúrlega að
Irökum tókst ekki að sigra klerka-
veldið í íran og nú mega Bandaríkja-
menn bíta í það súra epli að enn sitja
fjandmenn þeirra við stjórnvölinn
þar í landi og þessa dagana heyja þeir
grimmilegt stríð við Saddam Hus-
sein og veldi hans, sem þeir sjálfir
áttu stærstan þátt í að skapa. Það er
margt skrítið í kýrhausnum. Ekki
satt?
Virðing Washington-
manna fyrir réttlætinu
Hvergi kemur betur í ljós hið tvö-
falda siðgæði Bandaríkjamanna en í
Palestínumálinu. Þar var framið eitt
hroðalegasta ranglæti sögunnar. Pal-
estínumenn hafa mátt sæta svo ótrú-
legum hörmungum að orð geta vit-
anlega aldrei lýst því. Hörmungar
þessa fólks hófust þegar eftir að Gyð-
ingar tóku að flykkjast til Palestínu
og leggja landið undir sig með því að
drepa þá er fyrir voru, þ.e. Palestínu-
arabana, og flæma þá burtu og leggja
byggðir þeirra í rúst. Eins og þeir
vita, sem á annað borð fylgjast eitt-
hvað með fréttum, þá berjast Palest-
ínumenn núna vonlausri baráttu á
seinustu skikum sínum, Gahza-
ræmunni, vesturbakka Jórdanárinn-
ar og A-Jerúsalem, en hún hefur þeg-
ar verið innlimuð í ísrael, en svo
heitir landið í dag, Palestína hefur
verið þurrkuð út af landakortunum.
Bandaríkjamenn tala manna mest
og hæst um frelsi og sjálfsákvörðun-
arrétt þjóða, en þegar Palestínumenn
vilja lifa sem frjálsir menn í eigin
landi þá er hann enginn. Þeir eiga
bara að sætta sig við óréttlætið.
Á fyrstu árum eftir stofnun ísraels-
ríkis sagði Ben-Gúríon:
,Arabarnir geta ekki sætt sig við til-
veru ísraels. Sá sem sættir sig við
hana er ekki með öllum mjalla."
Hafi menn verið í vafa um hvern
mann Washington-herrarnir hafa að
geyma, þá ættu augu þeirra að opn-
ast þegar þeir kynna sér sögu palest-
ínsku þjóðarinnar og taumlausan
stuðning Bandaríkjamanna við blóð-
hundana í ísrael.
Hvenær ætlar heimurinn að opna
augu sín og viðurkenna þessa sorg-
legu staðreynd?
Guðjón V. Guömundsson
Landspítalinn: Alladaga kl. 15 til 16 og kl. 19 til
kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15-
16. Heimsóknartími fyrir feöur kl. 19.30-20.30.
Bamaspítali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga.
Öldrunariækningadeild Landspftalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa-
kotsspitali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30
til 19.00. Barnadeild 16-17. Heimsóknartlmi
annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg-
arspitalinn f Fossvogi: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30 til 19.30ogeftirsamkomulagi. Álaug-
ardögum og sunnudögum kl. 15-18.
Hafnarbúðir Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvíta-
bandiö, hjukrunardeild: Heimsóknartími frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl.
14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavlkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspitali: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16ogkl. 18.30 tilkl. 19.30.
-Flókadeild: Alladagakl. 15.30tilkl. 17. Kópa-
vogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á
helgidögum. - Vifilsstaðaspitali: Heimsóknar-
tlmi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St
Jósepsspftali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Sunnuhlíö hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim-
sóknartími kl 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavíkuríæknishéraðs og heilsu-
gæslustöövar: Vaktþjónusta allan sólarhring-
inn. Sími 14000. Keflavfk-sjúkrahúsiö: Heim-
sóknartími virka daga kl. 18.30-19.30. Um
helgar og á hátiöum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-
19.30. Akuneyri- sjúkrahúslð: Heimsóknartími
alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á
barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1:
Kl. 14.00-19 00. Slysavarðsstofusími frá kl.
22.00- 8.00, slmi 22209. Sjúkrahús Akraness:
Heimsóknartimi Sjúkrahúss Akraness er alla
daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30.
Slökkvilið - Lögregla
Reykjavík: Scltjamames: Lögreglan sími
611166, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100.
Kópavogun Lögreglan simi 41200, slökkvilið
og sjúkrabifreið simi 11100.
Hafnarflöiður Lögreglan siml 51166, slökkvilið
og sjúkrabifreiö sími 51100.
Keflavik: Lögreglan simi 15500, slökkvilið og
sjúkrabill slmi 12222, sjúkrahus 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjar Lögreglan, slmi 11666,
slökkviliö sími 12222 og sjúkrahúsiö simi
11955.
Akureyri: Lögreglan símar 23222, 23223 og
23224, slökkviliö og sjúkrabifreið slmi 22222.
fsaflörður: Lögreglan sími 4222, slökkvilið slmi
3300, brunasími og sjúkrabifreið sími 3333.