Tíminn - 19.02.1991, Qupperneq 5
Þriðjudagur 19. febrúar 1991
Tíminn 5
Umferöarslys hérlendís árlö 1990:
Umferðarslysum fjölgar en
alvarlega slösuðum fækkar
Á árínu 1990 slösuðust og létust 878 manns í umferðinni hér á
landi; það eru 47 fleirí en á árínu 1989, en þá slösuðust 831. Bana-
slysin í umferðinni á árínu urðu 19 talsins, en 24 létust. í einu slysi
létust þrír en tveir í þremur slysum. Mun færri slösuðust alvarlega
áríð 1990 eða 209 manns, en áríð 1989 þegar 314 slösuðust alvar-
lega. Á árunum 1983 til 1989 slösuðust að meðaltali 345 manns al-
varlega á árí, þannig að þarna er um verulega fækkun að ræða.
Óli H. Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Umferðarráðs, sagði á blaða-
mannafundi í gær að að meðaltali
yrðu 2 banaslys á mánuði hér í um-
ferðinni, eða um 24 á ári. Á þeim
eina og hálfa mánuði, sem nú eru
liðnir af árinu 1991, hafa 3 látist í
umferðarslysum. Langflestir þeirra,
sem slösuðust í umferðinni á síðasta
ári, voru á aldrinum 17 til 20 ára eða
216 manns. Það eru um 31 fleiri en
árið á undan og er það rúmlega 15%
aukning. Þróunin undanfarin ár
sýnir að 17-20 ára unglingar eiga
hlut að máli í einu af hverjum fjór-
um umferðarslysum. Á árunum
1986-1990 slösuðust eða létust 978
17-20 ára unglingar í umferðinni og
er það langstærsti aldurshópurinn.
Áberandi fjölgun varð á slysum í
þéttbýli, en þeim fækkaði í dreifbýli.
Talsvert fleiri ökumenn bifreiða
slösuðust á árinu 1990 en 1989. Þá
er einnig umtalsverð fjölgun slas-
aðra farþega í framsæti, en hins veg-
ar fækkaði slösuðum farþegum í aft-
ursæti. Álíka mörg börn slösuðust í
umferðinni árin 1989 og 1990. Þó
slösuðust talsvert færri sem farþeg-
ar í aftursætum bifreiða á síðasta
ári.
Ölvaðir ökumenn áttu aðild að 50
slysum á árinu, en voru 38 árið
1989. Flestir létust í Árnessýslu eða
7 manns, 6 létust í Reykjavík og 5 í
Húnavatnssýslu. Af þeim, sem slös-
uðust á árinu, voru 189 lagðir á
sjúkrahús, en voru 221 árið 1989.
Flestir slösuðust og létust í ágúst,
september og desember, en fæstir í
apríl.
Athyglisvert er að á árunum 1966
til 1990 létust flestir í umferðarslys-
um árið 1977 eða 37 manns, en
Hrólfúr Jónsson varaslökkviliðsstjóri og Óli H. Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri Umférðarráðs. Tímamynd: Ámi Bjama
langfæstir árið 1968 þegar hægri
breytingin varð eða 6 manns, árið
1969 létust 12 manns og svo árið
1983, sem var norrænt umferðarár,
þá létust 18 manns í umferðinni.
Miðað við þá aukningu á fjölda bif-
reiða, sem orðið hefur undanfarin
ár, hefur fjöldi alvarlega slasaðra í
umferðinni minnkað. Til dæmis þá
slösuðust 297 manns alvarlega í
umferðinni árið 1983 og þá var bíla-
eign landsmanna um 107.400. Árið
1988 var algjört metár í fjölda bif-
reiða, sem voru 140.400 á skrá, en
þá slösuðust 299 manns alvarlega í
umferðinni. Árið 1990 voru 134.200
skráðar bifreiðar, en fjöldi alvarlega
slasaðra 209 eins og áður sagði.
Óli H. Þórðarson sagði einnig að
fjöldi látinna og slasaðra ökumanna
vélknúinna bifhjóla hafi aukist veru-
lega undanfarin ár. Sagði hann að
orsökina megi að einhverju leyti
rekja til þess að sú þjálfun, sem kraf-
ist er af ökumönnum slíkra tækja, sé
í engu samræmi við þá sífelldu
aukningu sem hefur orðið á inn-
flutningi á mjög stórum og kraft-
miklum bifhjólum.
—GEÓ
Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda, segir að sjömanna-
nefnd leggi til svipaðar tillögur um mjólkurframleiðslu og sauðfjárrækt:
„Söm iu ál lei rslur“
Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda, segir að
sjömannanefnd verði með svipaðar áherslur í tillögum sínum um
breytingar á mjólkurframleiðslunni og í tillögum um breytingar á
sauðfjárframleiðslunni, sem kynntar voru í síðustu viku. Haukur
sagði að von værí á tillögum nefndarinnar um mjólkurframleiðsl-
una um næstu helgi.
Breytt reglugerð
um gerð og
búnað ökutækja
Haukur sagði að í tillögunum
væri lagt til að leyfð verði frjáls
viðskipti með fullvirðisrétt. Lands-
samband kúabænda hefur hvatt til
að slík viðskipti verði leyfð. Hauk-
ur sagði að menn hefðu ekki treyst
sér til að leyfa sölu fullvirðisréttar
fyrr en ljóst væri að vilji væri til að
viðhalda núverandi kvótakerfi í
mjólk. Hann benti á að bændur
yrðu að hafa einhverja tryggingu
fyrir því að sá réttur sem þeir
kaupa væri ekki tekinn af þeim eft-
ir nokkur ár.
Haukur sagðist á þessari stundu
ekki geta svarað því hvort sjö-
mannanefnd myndi leggja til að
teknar verði upp beinar greiðslur
til mjólkurframleiðenda líkt og til
sauðfjárbænda. Hann sagði að það
hefði verið rætt, en ekki hefði verið
tekin afstaða til þess enn. Haukur
sagði að ef sú leið yrði farin, yrði
það fyrirkomulag tekið upp nokkru
síðar en í sauðfjárframleiðslunni.
Sjömannanefnd leggur til að nið-
urgreiðslum á sauðfjárafurðum
verði hætt árið 1992. Haukur var
spurður hvort það sama yrði upp á
teningnum í mjólkurframleiðsl-
unni. Hann sagði að í mjólkuriðn-
aðinum væru nokkuð aðrar að-
stæður og hægt að taka á málum
með öðrum hætti. Þar væru ein-
stakar mjólkurafurðir niðurgreidd-
ar á heildsölustigi og þá mismikið.
Haukur sagði að nefndin væri að
skoða með hvaða hætti væri hægt
að gera breytingar á heildsölustig-
inu og þar kæmi ýmislegt til
greina.
Jafnvægi ríkir milli framleiðslu og
neyslu á mjólk og mjólkurafurð-
um. Þess vegna er ekki búist við
eins róttækum tillögum frá sjö-
mannanefnd um þessa búgrein
eins og um sauðfjárframleiðsluna.
Líklegt er þó talið að nefndin leggi
til að gerðar verði breytingar á
greininni, sem miða að því að
lækka verð á mjólkurafurðum.
-EÓ
Póstur og sími er núna að reisa
viðtökuloftnet fyrír loftskeytastöð-
ina í Cufunesi. Um er að ræða 9
möstur, sem koma í stað hlið-
stæðra mastra sem eru nú í Gufu-
nesi.
Að sögn Ólafs Indriðasonar hjá
Pósti og síma er um að ræða við-
tökuloftnet frá Gufunesi. Þau koma
í staðinn fyrir hliðstæð loftnet sem
þar eru núna. Loftnetunum í Þver-
holti verður síðan fjarstýrt frá Gufu-
í nýrri reglugerð um gerð og
búnað ökutækja segir að ekki
megi nota keðjur og neglda hjól-
barða á tímabilinu frá og með 15.
apríl til og með 31. október, nema
þess sé þörf vegna sérstaka akst-
ursaðstæðna. Auk þess eru
ákvæði um að viðvörunarþríhyrn-
ingar eigi að vera í öllum bflum,
sem skráðir voru eftir 1. janúar
1990. Allar kerrur eiga að vera
með afturljós og glitaugu. Einnig
hafa þar verið settar skýrar reglur
um mengunarmælingar í tengsl-
um við aðalskoðun bifreiða.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
gaf þessa reglugerð út á árinu 1989
og komu ákvæði hennar til fram-
kvæmda á síðasta ári, auk þess sem
nokkur tóku gildi um sl. áramót.
Þetta er hluti af heildarreglugerð,
sem ná mun til allra skráningar-
skyldra ökutækja.
Nokkur nýmæli eru í reglugerð-
inni, svo sem að tekin hefur verið
upp kerfisbundin gerðarviður-
kenning á skráningarskyldum öku-
tækjum. Þegar ný gerð ökutækis er
flutt til landsins eru lögð fram
nesi.
Bygging loftnetanna kostar nokkra
tugi miljóna. Að sögn Ólafs tengist
þetta á engan hátt endurbyggingu
langbylgjukerfisins, en þess er
skemmst að minnast að aðalmastur
þess féll niður í ofsaveðrinu á dög-
unum. Ýmsir staðir hafa verið
nefndir hvar reisa skuli nýtt lang-
bylgjumastur, en sjónir manna hafa
í því sambandi helst beinst austur
fýrir fjall. -sbs.
gögn sem staðfesta að ökutækið
uppfylli samræmdar kröfur um
búnað, sem almennt eru gerðar til
ökutækja í Evrópu. Jafnan þarf ein-
ungis ein bifreið sömu gerðar að
gangast undir nákvæma skoðun.
Kröfur eru gerðar um öruggan
stýrisbúnað ökutækja og um lág-
marks beygjuradía bifreiða sem eru
skráðar nýjar. Ökutæki skulu upp-
fylla lágmarkskröfur um afköst
hemla. Ákvæði eru um hvaða ljós-
ker skulu vera á ökutækjum og
hvaða Ijósker er heimilt að hafa á
ökutæki. Eftirvagnar skulu vera
með ljósker sambærileg við þau
sem eru aftan á bifreið, en með þrí-
hyrnd glitaugu að aftan. Hjólbarð-
ar skulu vera merktir og framleidd-
ir samkvæmt viðurkenndum stöðl-
um.
Svo og hafa tekið gildi ákvæði
reglugerðarinnar sem segja til um
hávaða og mengun. Þar kemur
fram að hávaði frá bifreið megi
ekki fara yfir tiltekin mörk við
staðlaðar aðstæður. Ekki má vera
ónauðsynlegur sýnilegur reykur
frá bifreið. Magn skaðlegra efna í
útblæstri skal vera innan settra
marka, þótt ósýnileg séu; þar er átt
við kolsýrling, kolvetni og köfnun-
arefnisoxíð. Sótmengun í útblæstri
díselbifreiða má ekki fara yfir til-
tekin stöðluð mörk.
Bæði ákvæði um mengunarvarnir
og hjólbarða gilda einnig um öku-
tæki sem skráð eru fyrir gildistöku
reglugerðarinnar.
Auk þess má nefna ákvæði reglu-
gerðarinnar sem segja til um að
tengibúnaður á bifreið skuli vera
samþykktur af Bifreiðaskoðun ís-
lands h.f. Til þess að tengibúnaður-
inn verði samþykktur skal m.a.
vera raftengi fyrir ljósabúnað á eft-
irvagni. —GEÓ
Álversmálið rætt
í ríkisstjórninni
á sérstökum fundi
Rflrisstjórnin ræddi um álmálið frekar um málið áður en afstaða
á aukafundi í gærmorgun. Jón verður tekin til óskar iðnaðar-
Sigurðsson iðnaðarráðherra ráðherra um að leggja fram
sagði frá fundi sínum með aðal- frumvarp á þessu þingi. „Ég
forstjórum álfyrfrtækjanna held að aðalatriðið í þessu máli
þriggja í Atlantsálshðpnum, sem nú sé að mikill meirihluti fólks
haldinn var í New York. Iðnaðar- vill að þetta álver verði byggt ef
ráðherra Jagði jafnframt til að samningar nást. Ég tel að menn
sér yrði veitt heimild til að leggja eigi að leggja til hliöar allar deil-
fram á Alþingi heimildarlaga- ur. Aðalatriðið er að ljúka samn-
frumvarp um byggingu álvers á ingum sem fyrst. Við ættum að
Keilisnesi. Málið var ekki útrætt, sameinast um það, en reyna að
enverðurrr' ‘>fram síðar. foröast deilur sem valda mis-
Steingnmur nermannsson for- skilningi og geta spillt fyrir mál-
sætisráðherra sagði að stjómar- inu,“ sagði forsætisráðherra.
flokkarnir ættu eftir að ræða -EÓ
Viðtökuloftnet á Mýrum