Tíminn - 01.03.1991, Qupperneq 4
4 Tíminn
Föstudagur 1.mars1991
UTLOND
Irakar fallast á allar ályktanir Sþ. og bandamenn hætta árásum:
FJOLMORG VANDAMAL
BÍDA ENNÞÁ ÓLEYST
Vopnahlé komst á í Persaflóastríöinu 1 gær kl. 5:00 aö íslenskum
tíma. George Bush, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti að bandamenn
mundu hætta árásum á íraksher eftir að hershöfðingar bandamanna
höfðu sagt honum að það væri ekkert eftir til að berjast við. Á milli
tíu og tuttugu þúsund íraskir hermenn voru enn undir vopnum þeg-
ar bandamenn hættu árásunum en í upphafl loftárásanna voru um
620 þúsund íraskir hermenn undir vopnum í Kúvæt og Suður-írak.
Mörg vandamál þarf nú að leysa í Miðausturlöndum eftir að stríðinu
er lokið. James Baker fer til Miðausturlanda í næstu viku til við-
ræðna við ráðamenn svæðisins.
Á miðvikudag samþykkti Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna að krefjast þess
við íraka að þeir gengju að öllum tólf
ályktunum ráðsins og að þeir tíma-
settu frelsun stríðsfanga og þeirra
Kúvæta sem þeir hafa í haldi. Seint á
miðvikudagskvöld barst svo svar frá
írökum þess efnis að þeir samþykktu
allar ályktanir Öryggisráðsins.
Það var síðan kl. 2:00 sem George
Bush, forseti Bandaríkjanna, til-
kynnti að bandamenn mundu hætta
bardögum kl. 5:00. Hann sagði að
varanlegt vopnahlé yrði einungis ef
írakar slepptu stríðsföngum og Kú-
vætum sem þeir hefðu í haldi og
hjálpuöu bandamönnum að staðsetja
jarðsprengjur í Kúvæt.
Bush fór þess á leit við írösk stjóm-
völd að þau sendu hershöfðingja sína
til fundar við hershöfðingja banda-
manna til þess að úkljá hernaðar-
þætti vopnahlésins. Vildi hann að
þessi fundur ætti sér stað tveimur
dögum eftir að hann tilkynnti að
bandamenn væru hættir bardögum.
„Við verðum að stefna fram á við.
Við verðum að tryggja að friður geti
haldist," sagði Bush. Hann sagði að
þegar hefðu verið gerð drög að áætl-
unum til að leysa þau vandamál sem
nú blöstu við. Hann sagði að James
Baker, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, hefði átt viðræður við fulltrúa
annarra ríkja bandalagsins um þessi
mál. „... Baker utanríkisráðherra
mun halda til svæðisins (Miðaustur-
landa) í næstu viku og hefja viðræður
að nýju,“ sagði Bush. Hann fer til Kú-
vætborgar á mánudag.
Bush fór hörðum orðum um Sadd-
am Hussein, forseta fraks. Hann
sagði að bandamenn væru ekki í
stríði við írösku þjóðina heldur for-
ystu hennar og fyrst og fremst Sadd-
am Hussein.
Bandamenn hættu bardögum kl.
5:00, þremur klst. eftir tilkynningu
Bush. Þremur klst. seinna tilkynnti
útvarpið í Bagdad að Saddam Hus-
sein hefði skipað íröskum hermönn-
um að hætta að berjast. Úvarpið
sagði að Bush hefði tilkynnt vopna-
hlé eftir að íraski herinn hefði kennt
bandamönnum lexíu og ógnað þeim
hernaðarlega og stjórnmálalega.
Ekki kom til átaka fyrst eftir að
vopnahléið tók gildi en sá möguleiki
var fyrir hendi að skipun Saddams
hafi ekki borist til allra þeirra sveita
íraska hersins sem eftir voru því fjar-
skiptakerfi írakanna er víst ekki upp
á marga fiska eftir harðar árásir
bandamanna.
Stríöiö er búið en framundan eru miklar viðræður milli stjómmálamanna um framtíð Miðausturianda.
Lítið eftir
af íraksher
Aðeins á milli tíu og tuttugu þús-
und hermenn voru eftir af íraska
hernum í Kúvæt og Suður-írak
þegar vopnahléið tók gildi í gær-
morgun, að sögn talsmanns
Bandaríkjahers.
Hann sagði að skýrslur sem gefn-
ar hefðu verið nokkrum klst. áður
en vopnahléið tók gildi sýndu að
hermennirnir skiptust í þúsund
manna deildir eða minna.
í upphafi loftárásanna 17. janúar
voru um 620 þúsund íraskir her-
menn í Kúvæt og Suður-írak, 42
herdeildir. Allt að 100 þúsund hafa
gefist upp fyrir bandamönnum en
afgangurinn, um hálf milljón, hef-
ur flúið til íraks eða fallið.
Embættismenn í her Saudi-Arab-
íu telja að á milli 85 og 100 þús-
und íraskir hermenn hafi fallið eða
særst. Þetta hafði dagblaðið Wash-
ington Post eftir þeim í gær. Flest-
ir þeirra féllu eða særðust í loft-
árásunum fyrir sókn landhersins.
Bandamenn segjast ekki hafa orðið
fyrir miklu manntjóni. Banda-
ríkjaher gefur upp að 79 hermenn
hafi fallið, 213 særst og 44 sé sakn-
að.
Undir lokin var barist á tveimur
stöðum á landi. Barist var nálægt
bænum Safwan sem er við landa-
mæri íraks og Kúvæts milli Kú-
vætborgar og Basra. Þá var einnig
barist um 25 km vestur af Basra.
Varanlegur friður
í Miðausturlöndum?
Stjómmálaskýrendur telja að arabar
muni þrýsta á Sameinuðu þjóðimar
um að beita sér gegn ísraelsmönnum
en þeir líkja innrás íraka í Kúvæt við
vem ísrælsmanna í Palestínu.
Sameinuðu þjóðimar beittu sér af
hörku gagnvart innrás íraka í Kúvæt
og samþykktu hverja ályktunina á fæt-
ur annarri gegn henni og herir banda-
manna börðust gegn írökum í nafni
Sameinuðu þjóðanna. Langt er síðan
öryggisráð Sþ. krafðistþess að ísraels-
menn færu frá Gazasvæðinu og Vest-
urbakkanum en ísraelsmenn virða
kröfiir þess að vettugi og fara sínu
fram og ekkert er gert til að fylgja þess-
um kröfúm ráðsins eftir. Margir arabar
bíða nú og sjá hvort ályktunum ráðs-
ins gegn ísrael verði nú ekki fylgt eftir
Fréttayfirlit
Washington - George Bush, for-
setí Bandaríkjanna, Ulkynnti í
fyrrinótt að bandamenn mundu
hætta árásum á íraksher kl. 5:00.
James Baker utanríkisráðherra
Bandaríkjanna fer til Kúvætborgar
á mánudag.
Bagdad - Saddam Hussein, for-
seti íraks, skipaði hermönnum
sínum að hætta bardögum. Fáir
þar sem fordæmi hefur skapast að
þeirra mati.
Hins vegar eru sumir arabar efagjam-
ir á að svo verði og telja að nú séu jafn-
vel enn minni líkur en áður að Sþ. beiti
sér gegn lausn Palestínumálsins. Vest-
urlandabúar eru líka efagjamir. James
Baker, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, varaði í gær við of mikilli bjart-
sýni vegna farar hans til Miðaustur-
landa í næstu viku: „Það er ekki hægt
að ná árangri í deilu araba og ísraela
nema báðir deiluaðilar vilji ná ein-
hverjum árangri," sagði Baker.
Stjómmálaskýrendur telja að Egypta-
land muni leika mjög stórt hlutverk í
að skapa stöðugleika á þessu svæði.
Egyptar hafa unnið stórsigur stjóm-
málalega séð með afstöðu sinni í stríð-
inu og þátttöku í bardögunum. Þeir
fögnuðu fréttunum en mikið end-
urreisnarstarf er nú fyrlr höndum
í írak. I yfirlýsingum stjómvalda
kom skýrt fram að írakar hefðu
sigrað.
Washington - Vopnahléið hélst í
gær þrátt íyrir einhverjar skærur
íraskra hermanna sem vissu ekki
af sldpunum Saddams Hussein en
fjarskiptakerfi Irakshers er bág-
borið.
Bandarísk herdeild í írak -
hafa líka samið fríð við Israela. „Það
(Egyptaland) er það stórt og hefur gert
þaö góða hluti að það getur ekki annað
en verið lykilríki í friðarviðræðum,“
sagði einn stjómmálamaður í Kairó.
Þótt Sýrland hafi sent hermenn til
Saudi-Arabíu er það enn álitið andsnú-
ið vestrænum ríkjum, að sögn arab-
ískra stjómmálaskýrenda.
Egypskir ráðamenn segjast ekki endi-
lega leggja áherslu á lausn á Palestínu-
málinu eins og stendur heldur sé mik-
ilvægara að koma upp öryggiskerfi
meðal arabaríkja til að tryggja að slík
átök eins og nú eru nýafstaðin eigi sér
ekki stað aftur. Utanríkisráðherrar Eg-
yptalands, Sýrlands og sex ríkja við
Persaflóa munu hittast í Damascus í
Sýrlandi 5. mars til að ræða þessi mál.
Reuter-SÞJ
Bandarískfr hermenn hafa fundlð
sannanir fyrir því að Jórdanir hafi
útvegað írökum vopn löngu eftír
að viðskiptabann var sett á Irak, að
sögn embættismanna innan leyrti-
þjónustunnar.
Kúvætborg - Fraldkar opnuðu
sendiráð sitt í borginni og bresldr
og bandarískir hermenn gættu
sendiráða landa sinna.
London - íraskir útlagar hafa
Hizbollah-hryðjuverkasamtökin:
»S1 ii er
rét tað by rja“
Leiðtogi Hizbollah- hryðju-
verkasamtakanna í Líbanon sagði
í gær að móðir allra styrjalda
væri rétt að byrja; milli íslams og
Bandaríkjanna.
Leiðtoginn, Hussein Mousawi,
sakaði Saddam Hussein forseta
íraks um að vera útsendara
Bandaríkjamanna og hafa fært
Bandaríkjamönnum sigur á silf-
urfati.
Hann sagði að múslimar í íran
(íranir fjármagna starfsemi sam-
takanna) og um allan heim ætl-
uðu ekki að horfa aðgerðalausir á
Vesturlandabúa hertaka lönd
þeirra og auð. Þeir munu berjast
- ekki eins og Saddam heldur
vinna mikil frægðarverk.
„Við munum vernda okkar
helgu staði og berjast fyrir ol-
íunni okkar," sagði Mousawi.
.Amerfkanarnir munu hverfa frá
löndum múslima við álíka
skömm og þeir fóru frá Beirút."
Um 5 þúsund manns eru í Hiz-
bollah-samtökunum. Talið er að
samtökin hafi nú tólf vestræna
gísla í haldi í Líbanon en samtök-
in neita að vera viðriðin gísla-
töku.
Reuter-SÞJ
rætt ýmsar leiðir til að koma Sadd-
am frá völdum.
Jerúsalem - ísraelsmenn fögn-
uðu sigri bandamanna í gær en
kröfðust þess að Saddam yrði
hrakinn frá völdum.
Túnis - Hollenskur sendiráðs-
starfsmaður var skotinn til bana
fyrir utan heimill sitt í úthverfi
Túnisborgar í Alsír í gær. Enginn
hefur lýst yfir ábyrgð sinni á
verknaðinum.
Dhaka - Þjóðarflokkurinn sigraði
f kosningunum í þingkosningun-
um
í Bangladesh.
Vín - Kommúnistar í Albaníu hafa
komið tveimur styttum af fyrrver-
andi leiðtoga iandsins, Enver Hox-
ha, aftur fyrir á sínum stað en
mótmælendur tóku margar styttur
af honum niður í sfðustu viku.
Reuter-SÞJ