Tíminn - 01.03.1991, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Föstudagur 1. mars 1991
VETTVANGUR
Þórarinn Þórarinsson:
Stefna Gorbatsjovs í alþjóðamálum
í blöðum á Vesturlöndum er um
þessar mundir talsvert rætt um til-
raunir Sovétríkjanna til að koma á
sáttum í Persaflóadeilunni. Sumir
vilja telja þær bera vitni um breytta
stefnu Gorbatsjovs í alþjóðamálum.
Um það leyti sem Sovétríkin hófu
þessar tilraunir skrifaði einn af ráð-
gjöfum Gorbatsjovs, Vadim Zaglad-
in, grein um alþjóðlega stefnu for-
setans undir fyrirsögninni: „Við
skulum ekki fjarlægjast hvorir
aðra.“ Hún hljóðar svo í lauslegri
þýðingu:
„Miklar vahteveltur hafa verið um
í vestræhMfh fjölmiðlúm undan-
i séu að endur-
S utanéWlefhu síná, hverfa
$ig frá Vestuflöndum. Persónulega
1 er mér þetta undnmarefni, en ég hef
fylgst vel með Utanríkisstefnu lands-
ins. Þetta vakti mér áhyggjur. Ég
veit að ekkert hefur breyst í hinni
nýju utanríkisstefnu Sovétríkjanna
né heldur hefur orðið nein breyting
á langtímamarkmiðum þeirra. Að-
ferðir geta að vísu breyst, því það
eru einungis vonlausir kreddusmið-
ir sem breyta ekki aðferðum sínum í
takt við breytta tíma.
Staðhæfingar um að Sovétríkin séu
aö breyta utanríkisstefnu sinni hafa
einnig skotið upp kollinum í sovésk-
um fjölmiðlum, en þar kennir
margra grasa. Þetta er því skiljan-
legt. Deilur um utanríkisstefnu eru
hluti af deilunum í þjóðfélaginu.
Sumir gagnrýna sovéska stjórnsýslu
í því skyni að efla hið nýja hugarfar
og vekja athygli diplómata á veik-
leika þeirra og getuleysi við að leysa
bæði gömul og ný vandamál. Aðrir,
og þeir eru því miður fleiri, reyna að
ófrægja utanríkisstefnu stjórnarinn-
ar og sérstaklega forsetans. Sumt af
þessari gagnrýni gengur út á það að
vernda hinn nýja hugsunarhátt fyrir
þeim manni sem er upphafsmaður
að honum.
í stuttu máli, þetta er stjórnmála-
barátta, barátta um völd.
Hvað meina þeir Vesturlandabúar
sem segja að Sovétrfkin séu að
hverfa fri yfirlýítri stefnu sinni
hinú nýjá hugarfári? Eru þeir
hjálpa anrdstðeöingörti (rövbátsjovs í
þéssu lan'di? Ég utiloka það ekki, af
þvf að við vitum að það eru ekki aíl-
ir ánægðir með þær breytingar sem
orðið hafa á stjórnmálum heimsins
á undanförum árum.
Eða eru þar aðrar ástæður? Ef við
lítum á ástandið eins og það er í dag,
sjáum við að margt bendir til þess að
sumt fólk á Vesturlöndum, sem seg-
ist styðja endurbæturnar í Sovét-
ríkjunum, gerir ýmislegt sem síður
en svo stuðlar að framkvæmd þeirra.
Sumir segja að Vesturlönd verði að
sýna „viðbrögð" við hinum hörmu-
legu atburðum sem gerðust í Vilni-
us og Rigu. Þetta finnst mér sárt, af
því að þessir atburðir eru í fullri
andstöðu við stefnu perestrojku.
Þeir eru raunar gróf ögrun við þá
stefnu. Stjórnvöld landsins og for-
setinn hafa gert það algerlega Ijóst
að fullkomnar ráðstafanir hafa verið
gerðar til að slikir atburðir endur-
taki sig ekki í framtíðinni.
Það virðist sem við og samstarfsað-
ilar okkar á Vesturlöndum lítum
þetta sömu augum, en samt halda
Vesturlönd áfram að fjarlægjast okk-
ur og okkar sjónarmið. Er þessi
ágiskun um „afturhvarf' okkar ekki
til þess fram sett að réttlæta aftur-
hvarf vissra afla á Vesturlöndum?
Þetta eru spurningar sem ég spyr
roig í dag og þær skipta miklu máli.
Mín fyrsta niðurstaðá er $ú, að þeir
• sem lý*a yfír styðningi við pere-
strojku séu margk hverjir ekíti
traustir né trúvérðugir, og að þéir
vflji ekkj áð hún heppnist. Slíkir
„samstarfsaðilar" eru ekki ábyggi-
legir og við verðum að vera varfærn-
ir í samskiptum okkar við þá.
Ég er ekki að segja þetta um alla þá,
sem í einlægni eru hræddir um að
verið sé að hverfa frá hinu nýja hug-
arfari. Ég er viss um að þar eru
margar undantekningar og fyrir það
er ég þakklátur.
Það eru mörg vandamál og erfið-
leikar í framkvæmd samvinnu Sov-
étríkjanna og Vesturlanda. Slík
vandamál voru fyrir hendi og eru
enn og þau tengjast mörg hver fjár-
málasviðinu og við viljum að þar
sýni viðsemjendur okkar skilning og
þolinmæði. í öllum samningavið-
ræðum koma upp erfiðleikar. Þeir
eru hluti af eðlilegri framþróun,
sem er af mörgum ástæðum þver-
sagnakennt kerfi.
I fýrsta lagi má segja að brottnám
margra hindrana á samskiptum
Sovétríkjanna og Vesturlanda og al-
þjóðasamskipta í heild getur ekki á
augabragði losað okkur við allar fyr-
irfram mótaðar skoðanir fortíðar-
innar og sálræn áhrif kaldastríðsár-
anna. Við erum enn undir áhrifum
af þessu og þau munu vara enn um
stund. Það tekur sinn tíma að aðlaga
okkur breyttu hugarfari.
En það sem málj gkiptir er að piúr-
arnir haifa fallið og dyrrutr eru hægt
Qg h*gt að opnast fyrlr nýrri al-
heimsskipan, sem byggð er á sam-
mannlegum verðmætum og frið-
samlegri samstöðú. Hvernig eigum
við að ganga í gegnum þessar dyr?
Svarið veltur á mannlegri visku og
hæfni, og jafnvel enn meira á því að
stjórnmálamenn sýni ábyrgð og þol-
inmæði.
Það vottar ekki fyrir visku, hæfni,
ábyrgðartilfinningu né þolinmæði í
þeim dylgjum sem nú eru viöhafðar
um þjóðir, og um Sovétríkin og
stefnu þeirra sérstaklega. Slíkar
dylgjur gera engum gagn, en þær
geta unnið mikið tjón. Er ekki betra
að við reynum að ganga í gegnum
hinar opnu dyr sameiginlega og
reynum í anda hins nýja hugarfars
að þoka okkur áleiðis til þeirra fögru
hugsjóna, sem svo margt fallegt og
gott hefur verið sagt og skrifað um?“
Islenska alfræðiorðabókin
Það þótti nokkur viðburður þegar út
kom nú í haust íslensk alfræðiorða-
bók í þremur stórum bindum. Und-
irbúningur hennar hafði tekið um
þrjú ár og margir lagt hönd á plóg-
inn. Það má e.t.v. spyrja sig fyrst
þeirrar spurningar hvort þörf hafi
veriö á svona bók þegar völ er á fjöl-
mörgum erlendum alfræðiorðabók-
um og einnig nokkrum uppflettirit-
um á afmörkuðum sviðum. Þeirri
spurningu verður ekki svarað með
jái eða neii. Vafalaust er hægt að
komast af án svona bókar, en það
vita allir sem þurft hafa að leita
heimilda að það sparar mikinn tíma
að geta leitað á einum stað í stað
þess að þurfa að fletta upp í mörgum
bókum og þegar til á að taka eru
sumar þeirra ekki við hendina.
Alfræðibækur eru af ýmsu tagi og
eru bæði stórar og smáar. í aðalat-
riðum má þó skipta þeim í tvo
flokka: þær sem eru með löngum og
ítarlegum skýringum, en þá oft með
tiltölulega fáum uppflettiorðum, og
svo bækur með stuttum skýringum
á hverju efnisatriði, en þau eru þá
oft allmörg. íslenska alfræðiorða-
bókin telst til seinni flokksins, enda
er hér á landi engan veginn mögu-
legt að gefa út mjög ítarlega alfræði-
bók. Slík uppflettirit hér á landi
verða að takmarkast við ákveðin sér-
svið.
Til grundvallar íslensku bókinni
var lögð dönsk bók sem var að koma
út þegar vinnan við hina íslensku
hófst. Efnisatriði hennar voru í
tölvu og hægt að flokka þau í efnis-
flokka. Það mun hafa verið mikill
vinnusparnaður við undirbúning
verksins. Brátt kom í Ijós að það
þurfti að breyta henni og bæta
miklu meira en ráð var fyrir gert í
upphafí. í mörgum, jafnvel flestum,
tilfellum þurfti að breyta skilgrein-
ingu orðsins með íslensk viðhorf í
huga. Var líka lögð á það mikil
áhersla. Það er því alrangt, sem
haldið hefur verið fram, að dönsk
viðhorf séu meiri en góðu hófi gegn-
ir í bókinni. Ég hef kynnst henni og
kynnt mér hana vandlega og það er
frekar að ég sakni eins og annars
sem tengir saman sögu og menn-
ingu Dana og íslendinga. Slíkum
fullyrðingum sem þessum er oft
slegið fram af fólki, sem vill láta í
ljós einhverja skoðun á hlutum sem
það hefur lítið eða ekkert kynnt sér.
Það sem mér finnst helst einkenna
þessa alfræðiorðabók, miðað við
aðrar sambærilegar bækur, er hve
mikið er þar af skýringum á hugtök-
um úr daglega lífinu. Þar er að finna
skýringar á orðum eins og asfalt,
barnabætur, arfur o.m.fl. sem marg-
ir kunna auðvitað skil á, en oft og
einatt þarf nánari skýringar við.
Daglega bætast við fleiri orð og hug-
tök. Þess vegna er sjálfsagt frekar
óvenjulegt að sjá mikið af svona
Miðborg Mekka með moskunni miklu (al-Haram).
Jarðfræðikort af fslandi.
hugtökum í alfræðiorðabókum en
með tölvutækni er auðvelt að halda
utan um svona hluti.
Annað sem einkennir þessa bók
öðrum fremur er hinn frábærlega
glæsilegi búningur hennar á allan
hátt. Er sama hvort um er að ræða
pappír, myndir, kort, tilvísanir eða
hvaðeina sem gerir bækur að nota-
drjúgum hjálpargögnum. Af villum
og prentvillum er merkilega lítið í
svo stórri bók, einkum ef tekið er til-
lit til þess að um frumraun er að
ræða. Sjálfur hef ég aðeins rekist á
eina villu og 2-3 meinlaus ártöl og
prentvillur hef ég ekki fundið. Er
það að sjálfsögðu mikilvægt að geta
treyst bókinni fullkomlega.
íslenska efnið er að sjálfsögðu ekki
tæmandi, enda er töluvert af fræði-
bókum og uppflettiritum til um ís-
lensk efni. Ég hef orðið var við smá-
misskilning í sambandi við þá ís-
lendinga sem getið er. Sumum
finnst þar mönnum gert mishátt
undir höfði. En mér finnst skýr
regla koma fram í bókinni. Af látn-
um mönnum er þeirra helst getið
sem vitnað er til í kennslu og al-
mennri umræðu. Af lifandi mönn-
um eru það þeir, sem koma fram op-
inberlega, sem sérstaklega er getið.
Er því hlutur listamanna og stjórn-
málamanna nokkuð stór. Þegar
maður hugsar málið er þetta eðlileg
regla miðað við tilgang bókarinnar.
Á titilsíðu tileinkar útgefandinn,
Örlygur Hálfdánarson, bókina fróð-
leiksmannin, ,um Steindóri Stein-
dórssyni frá Hlöðum og ritstjórn al-
fræðiorðabókarinnar. Þessi tileink-
un er ekki út í hött. Steindór Stein-
dórsson hefur sannað það með
verkum sínum að fróðleikur og
þekking á mörgum sviðum hefur
mikiö gildi, enda krefst lausn flestra
verkefna þekkingar á fleiru en einu
fræðisviði. Sá er þetta ritar getur
borið um að á ritstjórn ríkti
skemmtilegur vinnuandi og áhugi á
verkinu, sem skilaði líka ágætum
árangri.
í kynningu nefndi útgefandi verkið
Háskóla heimilanna. Það er óhætt
að taka undir það og mætti fjárveit-
ingavaldið gefa gaum að því að hér
er um sérstakt framlag til mennta-
kerfisins í landinu að ræða.
Páll Skúlason
lögfræðlngur
Kvöld-, nætur- og helgidagavarela apóteka I
Reykjavík 1.817. mars er í Áifaæjarapótekl og
Laugamesapótéki. Það apótek sem fyrr er
nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 aó kvöldi
til kl. 9.00 að morgni virka daga en kl. 22.00 á
sunnudögum. Upplýsingar um læknls- og lyfja-
þjónustu eru gefnarí síma18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátíöum. Sim-
svari 681041.
HafharQöröur Hafnarfjarðar apótek og Norð-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar I simsvara nr. 51600.
Akureyrí: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek
eru opin virka daga á opnunartima búða. Apó-
tekin skiptast á sina vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opið I þvf apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tímum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I
sfma 22445.
Apótek Keflavíkur. Opið virka daga frá k. 9.00-
19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl-
dagákl. 10.00-12.00.
Apótek Vestnannaeyja: Opið vírka daga frá kf.
6.0Ö-T8.00. Lokað I hádeginu mílli kb 12 30-
14.00. •.-•3:
•Mfuus: Selfoss apótek «r ðplð 81 W. 18.30
Opið ar i laugardögum og sunnudögum U.
10.00-12.00.
Akranes: Apólek bæjarins er qplð virka daga til
kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabæn Apótekiö er opið rúmhelga daga kl.
9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Læknavakt
Læknavakt fýrir Reykjavfk, Seltjamames og
Kópavog er í Heilsuvemdarstöð Reykjavlkur alla
virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög-
um og helgidögum allan sólarhringinn.
Á Seltjamamcsj er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00 og laugard. kl. 10.00-11.00. Lokaðá
sunnudögum.
Vitjanabeiðnir, slmaráðleggingar og tímapant-
anir I sima 21230. Borgarsprtalinn vakt frá kl. 08-
17 alia virka daga fyrir fólk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (sími
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (sími 81200). Nánari upplýsingar um
lyQabúðir og læknaþjónustu emgefnar í sím-
svara 18888.
Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur á
þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmisskírteini.
Seltjamames: Opið er hjá Tannlæknastofunni
Eiðistorgi 15 viika daga kl. 08.00-17.00 og
20.00- 21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Slmi
612070.
Garðabær. Heilsugæslustööin Garðafiöt 16-18
er opin 8.00-17.00, simi 656066. Læknavakt er I
síma 51100.
Hafnarfjörðun Heilsugæsla Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, slmi 53722. Læknavakt slmi 51100.
Kópavogur Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Sími 40400.
Keflavík: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á
Heilsugæslustöö Suðumesja. Simi: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf í sál-
fræðilegum efnum. Sími 687075.
Landspítalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til
kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15-
16. Heimsóknartími fyrir feður kl. 19.30-20.30.
Bamaspitali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga.
Öldrunaríækningadeild Landspitalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa-
kotsspítali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30
til 19.00. Barnadeild 16-17. Heimsóknartími
annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg-
arspftalinn í Fossvogi: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30til 19.30ogeftirsamkomulagi. Álaug-
ardögum og sunnudögum kl. 15-18.
Hafnarbúðin Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvíta-
bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartimi frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl.
14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavikur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspítali: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30.
- Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa-
vogshaslið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á
helgidögum. - Vifilsstaðaspítali: Heimsóknar-
timi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - Sl
Jósepsspítali Hafnarfirðl: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Sunnuhlið hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim-
sóknartimi kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavíkuriæknishéraðs og heilsu-
gæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólarhring-
inn. Simi 14000. Keflavik-sjúkrahúsið: Heim-
sóknartimi virka daga kl. 18.30-19.30. Um
helgarog á hátiðum: Kl. 15.00-16,00 og 19.00-
19.30 Akureyri-sjúkrahúsið: Heimsóknartimi
alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. A
barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1:
Kl. 14.00-19.00. Slysavarösstofusimi frá kl.
22.00- 8.00, slmi 22209. Sjúkrahús Akraness:
Heimsóknartlmi Sjúkrahúss Akraness er alla
daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavík: Seltjamames: Lögreglan sfmi
611166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100.
Kópavogun Lögreglan slmi 41200, slökkvilið
óg sjúkrabifreið simi 11100.
Hafnarflörðun Lögreglan slmi 51166, slökkvilið
og sjúkrabifreiö simi 51100.
Keflavík: Lögreglan slmi 15500, slökkvilið og
sjúkrabill slmi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjan Lögreglan, slmi 11666,
slökkvilið sími 12222 og sjúkrahúsiö simi
11955.
Akureyri: Lögreglan símar 23222, 23223 og
23224, slökkvilið og sjúkrabifreið sím' 22222.
(safjöröur: Lögreglan sími 4222, slökkvilið simi
3300, brunaslmi og sjúkrabifreið slmi 3333.