Tíminn - 02.03.1991, Blaðsíða 15
[•«6t siBrn .S lugBbiSQueJ
'. *» n^æ»<wi. *» *fc*4 itfiftrifiKtKitVk.iiiiATái't nnstiK *£▼•» »»ii ’W t*w “»á ’t*"*r
nnirnil ðS
mnRmww>Mtfwvw4
Tíminn 27
ÍÞRÓTTIR
Grímur Sæmundsen læknir segir 120% útgjaldaukningu sjúkratrygginga vecjna
íþróttaslysa á þremur árum ekki stafa af aukinni keppnishörku:
HARÐARI KEPPNI EKKIAÐ
BERA FEGURÐINA OFURLIÐI
Creiðslur sjúkratryggina Trygginga-
stofnunar ríkisins vegna meiðsla
keppnisíþróttamanna námu á árinu
1989 um 15 milljónum króna og
höfðu hækkað að raunvirði um
120% frá árinu 1986. Stærsti hluti
þeirra peninga fer í sjúkraþjálfun
eða um 6,7 milljónir. í ljósi þess að
farið hefyr fram mikil umræða um
aukna hörku í keppnisíþróttum og
að Ungmennafélag íslands lýsti yfír
áhyggjum í málgagni sínu Skinfaxa
ekíd alls fyrir löngu hafði Tíminn
samband við Grím Sæmundsen
lækni til að leita skýringa á þessum
hækkunum.
„Að mínu mati eru aðalskýringarn-
ar tvær. Annars vegar er aukin vit-
und íþróttafólks um þennan rétt. Ég
held að áður fyrr hafi fólk ekki nýtt
þennan rétt jafnvel þó það hafi haft
rétt á því. Ég held að þetta sé aðal-
ástæðan. Önnur ástæða er sú að
þetta endurspeglar aukningu í
ástundun íþrótta og þarna erum við
að upplifa einu neikvæðu hlið
íþróttanna, sem eru aukin meiðsli.
Og þá komum við enn einu sinni að
forvarnarþætti, að fólk sé upplýst
um þær hættur sem fylgja því að
stunda íþróttir, hvort sem um er að
ræða skokk eða íshokkí," segir
Grímur Sæmundsen. Aðspurður
hvort þetta bæri merki um meiri
hörku í íþróttum með tilkomu meiri
peninga í íþróttum og að til meira
væri að vinna, sagðist Grímur ekki
halda að svo væri. „Persónulega
held ég ekki að svo sé. Að vísu greiða
tryggingarnar eingöngu keppnis-
íþróttaslys og slys sem verða á æf-
ingum á vegum íþróttafélags, en
ekki almenningsíþróttaslys. Það
hefur orðið gffurleg aukning í alls
kyns íþróttaiðkun samfara fjölgun
liða sem taka þátt í aragrúa móta. Þá
hefúr íþróttagreinum fjölgað og
ÍR hélt lífi
ÍR-ingar báru sigurorð af Þórsurum
í Seljaskóla í fyrrakvöld, 85-81, eftir
að Þórsarar höfðu leitt leikinn
lengst af. Það var Karl Guðlaugsson
sem var hetja þeirra ÍR- inga í gær
en hann gerði síðustu tvö stigin úr
vítaskotum og tryggði þar með sig-
urinn. Franc Booker lék með í gær,
en var aðeins á hálfri ferð vegna
meiðsla. Fallbaráttan er orðin gríð-
arlega hörð og nú eru þrjú Iið jöfn
með 12 stig. Það eru Snæfell, Þór og
ÍR. Valsmenn eru með 14 stig og eru
engan veginn sloppnir.
Þorgrímur hættur?
Þær raddir hafa heyrst að Þorgrímur
Þráinsson sé aldeilis ekki hættur.
Hann ku vera að hugsa um að leika
með Víkingi, Ólafsvík, en þar hóf
hann knattspyrnuferilinn og þar
mun vera lagt hart að honum að
vera með.
Sjónvarpsveisla
Það er heldur betur veisla hjá knatt-
spyrnuáhugamönnum um helgina,
því að þrír leikir eru sýndir í beinni
útsendingu hjá sjónvarpsstöðvun-
um tveimur. f dag verður leikur
Man.Utd.-Everton sýndur í Ríkis-
sjónvarpinu. Sömuleiðis sýnir ríki-
skassinn leik Liverpool og Arsenal á
sunnudag. Þá er að venju leikur í
ítölsku deildinni á Stöð 2, en að
þessu sinni eigast við lið AC Milano
og Napoli.
Hækkun á greiðslu stysatrygginga vegna íþróttameiðsla er mikil. Sumir vilja kenna aukinni hörku um það en Grímur Sæmundsen læknir er á
Öðru máli. Ttmamynd: Pietur
þessi hækkun greiðslna endurspegl-
ar þessa fjölgun. Ég held að þetta
megi alls ekki rekja til meiri hörku
eða því að fólk sé farið að slasast verr
og keppnin sé farin að bera fegurð-
ina ofurliði,“ sagði Grímur enn-
fremur.
Grímur nefnir að með auknum for-
vörnum mætti kannski draga eitt-
hvað úr þessari aukningu á greiðsl-
um slysatrygginga vegna íþrótta-
meiðsla, en bendir einnig á að það
forvarnarstarf verði að koma innan
frá. „Forvarnir í sambandi við
keppnisíþróttir eru fyrst og fremst
að fólk fái viðeigandi þjálfun og að
þjálfararnir séu hæfir og ég veit að
sérsamböndin hafa yfirleitt tekið sig
mjög á hvað varðar menntun þjálf-
ara innan sinna greina, en ég held
að ég verði að fullyrða að þar vanti
mikið á til að sá þáttur sé fullnægj-
andi. Fræðsla um hvernig fólk geti
lágmarkað slysahættu af stundun
sinnar íþróttar, held ég að sé víða
ábótavant. Það er nátturlega ekki
nóg að mennta þjálfara það verður
að mennta þá rétt. Ég held að þar sé
helst árangurs að vænta þegar við
erum að tala um að minnka kostnað
vegna íþróttameiðsla," sagði Grímur
Sæmundsen læknir að lokum. -PS
Bikarúrslit í handknattleik:
10% Eyjaskeggja a
Það fer nærri að um 500 Eyja- þó hafa þeir ekki verið með neinar leiksdelldar Víkings. „Vlð höfura okkur Víkinga skiptir þetta mildu
skeggjar komi á land einvörðungu pakkaferðlr á ieikinn, en þó má fundið fyrir miklura áhuga hjá máli. Víkingur hefur ekki unnlð
til að fylgjast með sínum mönnum gera ráð fyrir að einhveijir fari oldcar stuðningsmönnum, hjá titil síðan 1987, svo okkur finnst
í baráttunni um bikarinn í hand- með Herjólfi til lands á ieikinn. Þá mönnum sem ekki hafa sést á að það sé kominn tími til. Við höf-
knattleik, en eins og við fjölluðum er ótalinn allur sá fjöldi Eyja- leikjum í vetur. Það má segja að um átt því að venjast að vinna titil
ítariega um í Tímanum í gær leika manna sem býr í Reykjavík og ná- nú komi fram þessir lausu Vfldng- á hverju ári, þannig að ef við vinn-
Eyjamenn til úrslita við Víkinga í grenni og má telja fullvíst að þeir ar, ef við getum kallað þá svo, eftir um þennan leik erum við að end-
Laugardalshötl í dag og hefst leik- láti ekki sitt eftir liggja. að nser dregur úrslitakeppninni og urheimta okkar fyrri stöðu f fs-
urinn klukkan 16.30. „Þetta er meiriháttar dagur í þessi úrsiitaleikur er eiginlega lenskum handknattleik. Við kom-
Að sögn starfsmanns Flugtaks- sögu Víkings, þar sem hátíðin byrjunin á því. Svo kemur úrslita- umst í úrslit bikarsins í fyrra og
Amarflugs hafa þeir verið að byijar klukkan þrjú en þá verður keppnin í framhaldið,“ sagði töpuðum fyrir Val , en við teljum
fljúga á fullu á fimmtudag og tekin skóflustunga að nýju íþrótta- Kristján ennfremur. okkur standa betur að vígi í dag.
fostudag og þá eru einnig áætiaðar húsi niður í Stjömugróf í Foss- Höllin rúmar um 3000 manns og Bara það að við séum að endur-
ferðir í dag. Um 200 manns eiga vogi. Það er gríðariegur áhugi fyr- nær öraggt má tefjast að það verð- heimta okkar fyrri sess er iqjög
pantað með þeim Flugtaks-Amar- ir leiknum og það koma margir af ur fullt hús og stemmnlngin gíf- góð tilfinning og ánægjulegt og
flugsmönnum. Hjá Flugleiðum þeirri athöfn beint á leikinn. Þá urieg. En hvað þýðir svona leikur við eram mjög stoltir af sem Vík-
hafa verið flognar 6 ferðir síðast- verðum við með sætaferðir fyrir fyrir Víking? „Þetta hefur gífur- ingar,“ sagði Krisfján Sigmunds-
liðna tvo daga og ein ferð áætluð í yngri flokka og fleiri stuðnings- lega þýðingu fyrir bæði féiögin, son aö lokum
dag og má reikna með að eitthvað menn og við erum að reyna að bæði tekjulega séð og ég tala nú Aðgangseyrir að leiknum er 800
rúmlega 200 manns fljúgi með skapa bikarstemmningu, með til- ekkl um fyrir bæjarfélag eins og krónur fyrir fullorðna og 200 fyrir
Flugleiöum á leikinn. Hjá Herjólfi heyrandi," sagði Kristján Sig- Vestmannaeyjar hefur það mikla bÖrn.
hefúr einnig verið nég að gera, en mundsson, formaður handknatt- þýðingu eg íyftir öllu upp. Fyrir -PS
l^u| w m ■ m
Ull 1wil m