Tíminn - 16.03.1991, Page 4
ðíftfwnip
téffiiöandagiö M ftigBönsdia&l
Auglýsing um
framlagningu
kjörskrár við
kosningu
vígslubiskups í
Hólastifti 1991
Kjörstjórn við koáningu vígslubiskups í Hólastifti hefur í
samræmi við re^lugerð um kosningu vígslubiskupa, nr.
118/1991, sbr.lög um biskupskosningu nr. 96/1980 samið
kjörskrá vegna vígslubiskupskjörs.
Kjörskráin liggur frammi til sýnis á biskupsstofu og hjá
próföstum í umdæmi vígslubiskups á Hólum (Húnavatns-,
Skagafjarðar-, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi) til
26. mars 1991.
Kærur til breytinga á kjörskránni þurfa að hafa borist for-
manni kjörstjórnar í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu fyrir
27. mars 1991.
Reykjavík, 15. mars 1991.
/
Húsbréf I Annar
útdráttur húsbréfa
Annar útdráttur húsbréfa í 1. flokki 1989 hefur nú farið fram, vegna þeirra bréfa sem koma til innlausnar 15. maí 1991.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði og upplýsingar liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins og í bönkum og sparisjóðum. 1
cSd húsnædisstofnun ríkisins LJ HUSBREFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVIK • SIMI91-696900
UTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans I Reykjavík,
óskar eftir tilboðum í viðgerðir á gangstéttum, hellulögðum og steyptum.
Heildarmagn hellulagna 11.000 m2
Heildarmagn steypuviðgeröa 13.000 m2
Verklok I báðum verkunum er 1. október næstkomandi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 5.000,- skilatryggingu fyrir hvort verk.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriöjudaginn 2. apríl kl. 11,00 í steypu-
viðgerðir og þriöjudaginn 9. apríl kl. 11,00 I hellulagnir.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
l|f UTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borgarverk-
fræðings, óskar eftir tilboðum í uppsteypu og frágang á 4. áfanga Árbæj-
arskóla við Rofabæ. Stærö hússins er 866 m2 á tveimur hæðum. Upp-
steypt hús ásamt frágangi inni á efri hæð og tengibyggingu skal skila 1.
sept. 1991, — annaö 15. ágúst 1992.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, frá og með
þriöjudeginum 19. mars, gegn kr. 20.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriöjudaginn 9. april 1991 kl. 14,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
UTLOND
sraelskir hermenn í átökum viö Palestínumenn á Gaza-svæðinu.
Bush og Mitterand ætla að vinna saman að friði í Miðausturlöndum:
Baker og Bessmertnykh
sammála um friðarleiðir
James Baker, utanrflasráðherra Bandaríkjanna, og Alexander
Bessmertnykh, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, gáfu í skyn í gær
að þeir væru sammála um leiðir til að tryggja lausnir á vandamálum
Miðausturlanda. „Ég tel að sjónarmið okkar séu svipuð," sagði Bak-
er og Bessmertnykh tók í sama streng.
Baker mun ræða við Mikhail Gor- anna, og Francois Mitterand, forseti
batsjov Sovétforseta eftir að hann Frakklands, ræddu um vandamál
hefur lokið viðræðum sínum við
Bessmertnykh. Tálsmaður Gorbat-
sjovs sagði að málefni Miðaustur-
landa munu verða meginumræðu-
efni þeirra Bakers og Gorbatsjovs en
einnig mundu þeir ræða um fund
milli Gorbatsjovs og George Bush
Bandaríkjaforseta en til stóð að hafa
hann í febrúar en honum var frestað
vegna ýmissa mála, s.s. Persaflóa-
stríðsins. Bæði sovéskir og banda-
rískir embættismenn töldu ólíklegt
að þeir kæmust að einhverri niður-
stöðu um dagsetningu fundarins
fyrr en búið væri að leysa ýmis
vandamál, s.s. í sambandi við af-
vopnunarsamninginn sem stórveld-
in undirrituðu á RÖSE-ráðstefn-
unni í Parts í nóvember á síðasta ári.
Bandaríkjamenn og bandamenn
þeirra í NATO gruna Sovétmenn um
að reyna að koma í veg fyrir afvopn-
un þriggja landherdeilda með því að
setja þær undir sjóherinn. Þá á einn-
ig eftir að ganga frá ýmsum atriðum
varðandi START-afvopnunarsamn-
inginn sem áætlað er að forsetarnir
undirriti á fundinum.
George Bush, forseti Bandaríkj-
Miðausturlanda á eynni Martinique
í Vestur-Indíum í gær.
Frakkar og Bandaríkjamenn hafa
verið ósammála um ýmis málefni
Miðausturlanda. Frakkar hafa t.d.
stutt Frelsissamtök Palestínu (PLO)
sem málsvara Palestínumanna en
Bandaríkjamenn hafa verið tregir til
að viðurkenna PLO sem samnings-
aðila Palestínumanna vegna and-
stöðu ísraelsmanna við samtökin.
í gær ákváðu forsetarnir hins vegar
að vinna saman að því að leysa
vandamál Miðausturlanda. Þeir ætla
að taka á málunum með opnum
huga og ekki láta lítilsháttar ágrein-
ing torvelda það starf.
Reuter-SÞJ
Þessi sprengjuflugvél, Stealth F- 117A, og Patriotvamakerfið vom þau
vopn bandamanna í Persaflóastriðinu sem vöktu hvað mesta athygli.
Stealth-skip
Eitt skæðasta vopn fjölþjóðahers-
ins sem hrakti íraska herinn frá
Kúvæt var bandarísk sprengjuflug-
vél af gerðinni Stealth F-117A en
nær ómögulegt er að greina hana á
Bretland:
Dómskerfið
endurskoöaö
Frelsun „Birminghan-sexmenn-
inganna“ á flmmtudag varð til
þess að breska ríkisstjómin hefur
ákveðið að endurskoða breska
dómskerfíð frá grunni. Innanrík-
isráðherrann Kenneth Baker sagði
á þinginu að skipuð yrði nefnd til
að rannsaka réttarkerfíð, allt frá
yfirheyrslum lögreglu til áfrýjun-
ar. Hann sagði einnig að lögreglan
mundi hefja á ný rannsókn hryðju-
verksins sem „Birmingham- sex-
menningamir" vom dæmdir fyrir.
írski lýóveldisherínn (IRA) lýsti
yfir ábyrgð sinni á hermdarverk-
unum í Birmingham árið 1974
þar sem 21 maður beið bana. Þetta
vom mannskæðustu hermdarverk
sem framin hafa verið á Bretiands-
eyjum og vöktu þau gífurlega reiði
og krafðist almenningur árangurs
af lögreglunni. Ári síðar vom sex-
menningarair dæmdir í Iífstíðar-
fangelsi og lá játning þeirra fyrir.
Þeir lýstu þó fljótlega yfir að þeir
hafi veríð knúnir til að játa og IRA
sagði að þeir bæm ekki ábyrgð á
verknaðinum.
Lögreglan mun nú hefja rann-
sókn málsins á ný. Þingmaður
Verkamannaflokksins, Chris MuU-
in, sem barðist fyrir frelsun sex-
menninganna, segist vita hveíjir
stóðu að hermdarverkunum. Hann
segist ekld geta greint frá því
hverjir það séu en segir að lögregl-
an viti það sama og hann.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
rangir menn em ákærðir fyrir að
framkvæma hiyðjuverk í nafni
IRA. Fjórir mönnum var sleppt ár-
ið 1989 eftir áfrýjun. Þeir höfðu
þá setið í fangelsi i 14 ár fyrir
sprengjuárás IRA.
Sexmenningamir höfðu áður
áfrýjað en var neitaö af yfirdómar-
anum Lord Lane og krafðist dag-
blaðið The Independant afsagnar
hans á fimmtudag.
Óháður matsmaður hefur verið
fenginn tU að ákveða hvað menn-
imir eigi að fá í skaðabætur. Fjöl-
miðlar i Bretlandi hafa áætlað að
hver þeirra fái um 1 milljón
punda.
Reuter-SÞJ
radar. Nú hafa frændur vorir Svíar
hannað skip sem sést ekki á radar.
Skipið hefur eingöngu gleið horn
eins og flugvélin og er hannað
þannig að mjög erfitt er að finna
það með radar eða álíka leitartækj-
um, að sögn talsmanns sænska sjó-
hersins, Björns Sandbergs.
Hönnun skipsins hófst árið 1986
hjá skipasmíðastöðinni í Karlskrona
og hafa rúmar sjö hundruð milljón-
ir ísl.kr. farið í verkefnið til þessa
sem er ekki mikið miðað við kostn-
að flugvélarinnar enda er mun erfið-
ara að hanna flugvél með þessa eig-
inleika en skip, að sögn Sandbergs.
Sandberg sagði að mörg varnar-
málaráðuneyti víðs vegar um heim-
inn hefðu sýnt skipinu áhuga.
Tilraunaskipið, sem var sjósett fyrr
í vikunni, er um 30 m á lengd. Sand-
berg sagði að með þeirri tækni sem
þeir byggju yfir gætu þeir einungis
framleitt skip, sem sæust ekki á rad-
ar, sem væru 50 m eða minni.
Sanberg sagði að árangur Stealth-
sprengjuflugvélanna í Persaflóa-
stríðinu hafi sannfært yfirmenn
sænska sjóhersins um að þessi
tækni komi til með að nýtast her-
skipum jafnt sem herflugvélum.
Reuter-SÞJ
Pólverjum gefnar
eftir skuldir
Vestrænar ríkisstjórnir, sem mynd-
að hafa hinn svokallaða Parísar-
klúbb, hafa ákveðið að gefa Pólverj-
um eftir helming skulda sinna. Pól-
verjar skulda um 48 milljarði doll-
ara og þar af Parísarklúbbnum 33.
Reuter-SÞJ