Tíminn - 16.03.1991, Blaðsíða 4

Tíminn - 16.03.1991, Blaðsíða 4
12 T HELGIN Laugardagur 16. mars 1991 Stefán Guðmundsson, alþingismaður Framsóknarflokksins í Norðurlandi vestra: Hverjum treystir þjóðin best til að leiða viðræður við EB? Stefán Cuðmundsson, alþingismaður Framsóknarflokksins í Norðurlands- kjördæmi vestra, hefur, ásamt Jóni Helgasyni, haft forystu um að koma fram með nýjar tillögur í byggðamálum. Nefnd, sem Stefán var formaður fyrir, skilaði í síðasta mánuði tillögum um nýjar leiðir í byggðamálum. Stefán seg- ir þetta vera róttækustu tillögur sem fram hafí komið í þessuri : láhflokki. Hann segist vona að þær leiði til þess að innan skamms verM næg' \) blása til nýrrar sóknar í byggðamálum, en viðurkennir um leið Jj ekki s ' ' ægt að komast hjá því að hopa um sinn. Stefán var fyrst spurður hvers vegna ekki hefur tekist að stöðva fólksflutningana til höfuðbotr arsvæðisins. Framleiðslutakmarkanir á aðalatvinnugreinar landsbyggðarinnar „Ég held að hluta skýringarinnar sé að leita í því hvernig staðan hefur ver- ið • ci’nanagsmálum þjóðarinnar. Það fór mjög illa með hin ýmsu fram- leiðslubyggðarlög hvernig búið var að atvinnurekstri í landinu þar til ríkis- ctjóm Steingríms Hermannssonar tók viö stjörnartaumunum. Það skíplir einnig miklu máli að það er búið að setja framleiðslutakmarkanir á báðar aðalatvinnugreinar landsbyggðarinn- ar, landbúnað og sjávarútveg. Að auki má nefna að okkur hefur ekki tekist að ná til okkar þeim hluta af þjónustunni sem við þyrftum að fá.“ Nefndin sem þú veittir forystu setur í tillögum sínum efst á blað að meira vald verði fært til héraða og samstarf sveitarfélaga aukið. Hvers vegna leggið þið svo mikla áherslu á þetta atriði? „Við sem búum úti á landi og ætlum okkur að búa þar áfram verðum að gera okkur grein fyrir því að við verð- um að hopa í byggðamálum um sinn. Þetta verðum við að viðurkenna. Við eigum ekki að láta sem ekkert sé. Und- anhaldið má ekki vera stjórnlaust. Við eigum ekki að hopa nema að ákveðnu marki og þaðan að byggja okkur upp til nýrrar sóknar í byggðamálum. Til- lögur nefndarinnar byggjast á þessu. Við leggjum til að aukin völd verði færð heim í héruð. Við viljum gera heimamenn miklu virkari í stjórn sinna eigin mála, auka áhrif þeirra og ábyrgð." Þýðir þetta ekki einnig að heima- menn fá aukin áhrif á það hvernig fjár- munum er ráðstafað? „Jú, það er hugsunin á bak við þetta. Ég tel að skipting fjármagns sé í mörg- um tilvikum betur komin í höndum heimamanna en hjá okkur alþingis- mönnum. Ég vil að það verði teknar upp markvissar byggðaáætlanir þar sem horft verður til nokkurra ára fram í tímann og að á þeim verði byggt við m.a. úthlutun fjármagns frá því opin- bera. Við hugsum okkur að kjördæmin verði stjórnarfarslega nokkuð sjálf- stæðar einingar og að Alþingi veiti fjármagn til þeirra, sem heimamenn ákveði síðan hvernig verði skipt milli ákveðinna verka og verkþátta. Þannig tel ég að náist miklu meiri hagkvæmni og betri nýting þess takmarkaða fjár- magns sem til ráðstöfunar er.“ Markvissar byggðaáætlanir til fjögurra ára Tillagan um að gera byggðaáætlanir til fjögurra ára hefur fengið góðar við- tökur á Alþingi. Hvernig koma þessar áætlanir til með að verða? Verða þær mjög nákvæmar? „Já, þær þurfa að vera býsna nákvæm- ar. Nefndin hugsar sér að þessar áætl- anir verði byggðar upp af heimaaðilum og síðan sé það Byggðastofnuna*- ^o samræma þessar áætlanir á landsvísu. Slík heildstæð byggðaáætiuii yrði síð- an lögð fyrir Alþingi. Su hugmynd hef- ur einnig komió fram að gera fjárlög til lengi! címa og mér finnst það skyn- samleg tillaga. Ég tel að það sé skyn- samlegt að vinna þannig og líta til lengri tíma en við erum vanir að gera.“ Telur þú að við höfum dreift kröftun- um of mikið í byggðamálum? „Já, því miður tel ég að það hafi verið gert, okkur til mikils skaða. Við verð- um að átta okkur á því að við þurfum að þjappa okkur betur saman ef okkur á að auðnast að snúa vörn í sókn.“ Er ekki óhjákvæmilegt að byggð á ýmsum stöðum verður að dragast saman og jafnvel leggjast af? „Jú, í hreinskilni sagt er óhjákvæmi- legt að breytingar verði á núverandi byggðamynstri. Við verðum hins vegar að reyna að hafa einhverja stjórn á breytingunum. Ef við gerum það ekki mun þetta gerast eftir öðrum leiðum, t.d. í gegnum gjaldþrot fyrirtækja, eins og sumir hafa viljað láta þetta gerast.“ Framtíðarbyggðastefna snýst þá ekki um stöðnun eða um að viðhalda óbreyttu ástandi? „Nei, svo sannarlega ekki.“ Það er Ijóst að byggðastefna er ekki einangrað fyrirbæri. Hún hlýtur alltaf að taka mið af landbúnaðar-, sjávarút- vegs- og efnahagsstefnu á hverjum tíma og þess vegna vaknar spurningin: Er nokkur leið að móta langtíma- stefnu í byggðamálum? „Þetta er auðvitað rétt ábending. En við teljum að einmitt núna sé betra tækifæri til að taka á þessu og vinna markvisst til lengri tíma, heldur en oft áður. Nú er farið að móta stefnu í land- búnaðar- og sjávarútvegsmálum til langs tíma og þess vegna er raunhæft að móta langtímastefnu í byggðamál- um.“ Hvernig líst þér á þá stefnu sem nú hefur verið mörkuð í landbúnaðarmál- um? „Mér finnst að menn hafi lagt í þessa ferð varla nógu vel búnir, því veður gerast válynd og veðurspár tvísýnar. í þeim mikla samdrætti búfjár sem við blasir er það verulegt áhyggjuefni að þess hefur ekki verið nægilega gætt hversu byggðamálin eru hér samofin þeim aðgerðum sem lagðar eru til í nýjum búvörusamningi." Aðalatriðið er að aflinn sé unninn hér heima, en ekki hvar honum er landað Hart hefur verið deilt um sjávarút- vegsmál á Aiom i rðustu árum. „Auðvitað he ji allt of mikill tími þingsins farið í að ræða aðeins lítinn hluta af fiskveiðistjf'rnuninni. Þingið hefur ekki fjallað næpilega um málið í heild sinni. Meginmálið er að ná það mikilli hagkvæmni og ^rðsemi í greininni að ''’ð höldum aflanum hér heima, au við verðum ekki Lara veiði- þjóð í þf 'su landi. Það verður að ná meiri .trí.jemi í greinina, þannig að vic getum greitt hærra fiskverð og hærn laun til þeirra er í þessari at- innugrein starfa. Við vitum í dag hvað við megum taka úr sjónum og við vitum hver vinnslu- getan er í landi. Það er ekki samræmi þarna á milli. Sama á við um loðnu- veiðarnar. Við erum með 21 loðnu- verksmiðju og 42 eða 44 loðnuskip. Það sér hver maður að við náum engri arðsemi út úr svona fjárfestingu. Á þessu verður að taka. Meginmálið er að ná meiri hagkvæmni og arðsemi, því að samkeppni frá erlendum aðil- um er mikil. Þar er ég að tala um meiri samvinnu milli fyrirtækja og stærri einingar. Á vegum Rannsóknarstofnunar fisk- iðnaðarins og sjávarútvegsráðuneyt- isins hefur undanfarin ár verið unnið að mjög merkum málum, t.d. að bættri nýtingu og betri vinnslu á afla. Ég tel að við höfum kannski ekki stutt nægilega vel við bakið á þeim aðilum sem að þessu vinna. Ég álít að við höf- um ekki farið nægilega vel með verð- mætin. Ég sé það fyrir mér að innan fárra ára verði svo komið að óheimilt verði að henda nokkru sjávarfangi í hafið aftur.“ Hver er stefna Sjálfstæð- isflokksins í sjávarútvegs- málum? Á undanförnum árum hefur núver- andi sjávarútvegsstefna oft verið gagnrýnd, en samt hafa fáir bent á neina betri stefnu. „Þeir sem hafa talað gegn núverandi sjávarútvegsstefnu hafa ekki bent á neitt annað. Menn hafa bara valið þann kostinn að vera á móti. Þetta sést vel á ályktun landsfundar Sjálf- stæðisflokksins um sjávarútvegsmál. Þar var engin stefna mörkuð. Ekki er bent á neina nýja leið. Aðeins er gerð ein tillaga og hún er um að Sjálfstæð- isflokkurinn fái sjávarútvegsráðu- neytið." Verðum að fjölga störfum í þjónustugreinum á landsbyggðinni í skýrslunni leggið þið til að meiri- hluti nýrra starfa í opinberri þjónustu verði til á landsbyggðinni. Ér þetta raunhæft markmið? „Já, ég tel það vera. Ég held að það sé vel hægt að standa við þetta, en geri mér jafnframt grein fyrir að þetta markmið næst ekki á morgun. Þetta er grundvallaratriði í mínum huga, vegna þess að ný störf verða ekki til nema að mjög takmörkuðu leyti á næstu árum í landbúnaði eða sjávar- útvegi. Vöxturinn er í þjónustunni og við þurfum að komast inn í hana. Við verðum að búa þannig um hnútana að við getum boðið því unga fólki, sem hefur leitað menntunar utan heima- byggðar, störf f sinni heimabyggð. Það þarf ekki að vinna öll þjónustu- störf fyrir landsbyggðina í Reykjavík. Fjarskiptatæknin er orðin slík að fjar- lægðir eru ekki vandamál lengur. Þetta sést t.d. vel á því hvernig til hef- ur tekist í stofnunum Byggðastofnun- ar á ísafirði og Akureyri. Þar vinnur fólk hliðstæð störf og í stofnuninni í Reykjavík." Nefndin leggur til að starfsemi Landsvirkjunar og Rafmagnsveitna ríkisins verði sameinuð í þeim til- gangi að jafna orkuverð. Er þetta ekki umdeilt atriði? „Ég geri ráð fyrir því að það sé um- deilt, en það er mjög nauðsynlegt að jafna orkuverð. Það er nánast fárán- legt að þeir, sem búa sem næst þeim stað þar sem orkan verður til, skuli þurfa að greiða hæsta verðið fyrir orkuna. Nefndin bendir á að það kunni að vera skynsamlegt og að fjár- hagslegt hagræði sé að því að sameina Landsvirkjun og Rafmagnsveitur rík- isins. Þetta eru fyrirtæki sem eru með svo skylda starfsemi að það hlýtur að vera hagræði í því að sameina þau. Við segjum meira en þetta. Við viljum að ef ekki tekst um þetta samkomulag við þá aðila sem eiga Landsvirkjun viljum við að þá verði stofnað nýtt orkuöflunar- og dreifingarfyrirtæki sem sjái um virkjun og sölu á orku til stóriðjufyrirtækja." Hvort treystir þjóðin betur Steingrími eða Davíð til að gera samning við EB? Hvernig leggjast kosningarnar í þig? „Þær leggjast vel í mig. Ég hygg að það sé rétt sem fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í síðustu áramótagrein sinni að kosningarnar myndu snúast um stefnu Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknarflokksins. Það verður tekist á um það í kosning- unum hvor þessara flokka verður leiðandi afl í þessu þjóðfélagi. Ég tel að vaiið ætti að vera auðvelt. For- mannsskiptin í Sjálfstæðisflokknum breyta þar engu, nema að þær skerpa línurnar enn betur. í kosningunum verður kosið um þrjú mál: efnahags- mál og þann árangur sem þar hefur unnist og þann grundvöll sem ríkis- stjórnin skapaði fyrir þjóðarsáttar- samningunum. Við þekkjum afstöðu forystu Sjálfstæðisflokksins til þess- ara samninga. Það verður kosið um byggðamál og um afstöðu flokkanna til Evrópubandalagsins. Stefna Fram- sóknarflokksins til þess er skýrust allra flokka. Það mun skipta miklu máli hvernig verður haldið á þessu máli á næstu mánuðum. Spurningin snýst um hvort þjóðin treystir betur Steingrími Hermannssyni eða Davíð Oddssyni til að leiða samninga fyrir íslands hönd í þessu mikilvæga máli, sem kemur til með að ráða úrslitum um hvort hér býr áfram sjálfstæð þjóð í eigin landi.“ Egill Ólafsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.