Tíminn - 18.05.1991, Blaðsíða 4
4 Tíminn
írakardæma Breta í lífstíðarfangelsi:
Bresk stjórnvöld
beita þrýstingi
Breska ríkisstjómin sagðist í gær ætla að beita íraksstjóm há-
marksþrýstingi til að reyna að fá breskan ríkisborgara lausan úr
írösku fangelsi. Bretinn, sem heitir Douglas Brand og er verkfræð-
ingur, starfaði fyrir írösk stjómvöld áður en Persaflóastríðið hófst.
Hann var handtekinn þegar hann
var að reyna að flýja frá írak og var
einn af þeim fjölmörgu Vesturlanda-
búum og Japönum, sem írösk yfir-
völd héldu í gíslingu framan af
Persaflóastríðinu. Honum var hins
vegar ekki sleppt í desember á síð-
asta ári eins og flestum öðrum og
nú hefur íraskur dómstóll dæmt
hann til lífstíðar fangelsisvistar fyrir
njósnir.
Douglas Hogg, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði að Bretar myndu
beita neitunarvaldi í Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna til að hindra
að viðskiptabanninu gegn írak verði
aflétt, meðan Brand væri í írösku
fangelsi. Hann sagði einnig að lífs-
Sveitastarf óskast
19 ára stúlka vön sveitastörfum óskar eftir vinnu á góðu
sveitaheimili. Upplýsingar í síma 91-43693 eftir kl. 1.
FRAMSÓKNARMENN
REYKJAVÍK OG
NÁGRENNI
Hvltasunnukaffi SUF verður haldið að Hafnarstræti 20, 3. hæð, Reykjavik, mánudaginn 20. mal, kl. 15 (annan 1 hvitasunnu).
Ávarp um áherslur I flokksstarfi á næstu misserum flytur Steingrimur Hennannsson, fonnaður Framsóknarflokksins. Einnig mun Siv Friðieifsdóttir, formaður SUF, flytja ávarp um áherslur i starfi SUF í sumar og hausL Steingrímur
JFVj
Gestgjafar verða meðlimir deildar 13 I SUF, sérfræðingar I vöfflu- bakstri. Mikilvægt er að sem flestir jákvæðir og víðsýnir, ungir sem aldnirframsóknarmenn mæti til að koma hugmyndum sínum á framfæri. Spörnm okkur hvllasunnubaksturinn og mætum öll.
Framkvæmdastjóm SUF Siv
SUMARTÍMI SKRIFSTOFU
FRAMSÓKNARFLOKKSINS
Frá 15. mai veröur skrifstofa okkar í Hafnarstræti 20, III hæö, opin frá kl. 8:00-16:00
mánudaga-föstudaga.
Veriö velkomin. Framsóknarflokkurinn
Noröurland eystra
Kosningahátíö framsóknarmanna I Noröuriandskjördæmi eystra veröur haldin
laugardaginn 25. maí nk.
Dagskrá: Gróðursetning viö Melgerðismela.
Útigrill.
Kvöldvaka.
Dagskrá nánar auglýst síöar.
Stuðningsfólk Framsóknarflokksins I kjördæminu er hvatt til aö mæta og fagna
kosningasigri.
K.F.N.E.
aw-mzfa.
yjf '"Jl
PÍ
|ft. £r Akurnesingar, hi -CShS
B V h nærsveitar-
Steingrimur menn Ingibjörg
Föstudaginn 24. maí kl. 20.30 mæta þau Steingrímur Hermanns-
son, formaöur Framsóknarflokksins, og Ingibjörg Pálmadóttir al-
þingismaður í Framsóknarhúsið við Sunnubraut.
Fundarefni: Starfið framundan.
Allir framsóknarmenn velkomnir.
Fulltrúaráð og framsóknarfélögin á Akranesi
tíðardómurinn kæmi í veg fyrir að
írösk stjórnvöld gætu nálgast fjár-
muni sína í Bretlandi.
Tálsmaður breska utanríkisráðu-
neytisins taldi að lífstíðardómurinn
þýddi að írösk dómsyfirvöld mundu
í síðasta lagi náða Brand eftir 20 ár.
Hámarksrefsing í írak fyrir njósnir
er líflát. Breskur blaðamaður af ír-
önsku bergi brotinn var tekinn af lífi
í mars á síðasta ári fyrir njósnir.
írakar slitu stjórnmálasambandi
við Breta þegar Persaflóastríðið skall
á, en Sovétmenn hafa farið með mál
Bretlands í írak.
Reuter-SÞJ
Hér sést Lech Walesa, forseti Póllands, ásamt Elísabetu Bretlands-
drottningu. Pólverjar hafa breytt efnahagsstefnu sinni.
Pólverjar fella
gengio u
Pólska ríkisstjómin ákvað að fella
gengi zlotysins (pólska gjaldmiðils-
ins) um 14,4% í gær og Lech Wa-
lesa, forseti landsins, sagði að það
væri tímabært að hraða efnahags-
umbótum í landinu og koma pólsku
efnahagslífi úr þeirri djúpu lægð
sem það hefur verið í.
Ríkisstjórnin hafði haldið gengi
zlotysins föstu gagnvart dollaran-
um, 9.500:1 (nú er það 11.100:1) og
var það í samræmi við kröfur Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) fyrir
lánveitingum upp á 2,5 milljarða
dollara á næstu þremur árum og
kröfur vestrænna ríkisstjórna fyrir
að strika út a.m.k. helming erlendra
skulda landsins. Fjármálaráðherra
Póllands, Leszek Balcerowicz, sagði
hins vegar í gær að aðstæður hefðu
krafist þess að gengið yrði fellt. Mik-
il hækkun dollarans og hrun hefð-
bundinna markaða pólskra útflutn-
ingsvara í Austur-Evrópu hefði orðið
til þess að viðskiptahallinn fyrstu
fjóra mánuði þessa árs hefði verið
645 milljónir dollara. f fyrra var
hagnaður af viðskiptum við austur-
blokkina upp á 4,4 milljarða rúblna
og við ríki með rétta gengisskrán-
ingu upp á 3,4 milljarða doliara.
Fjármálaráðherrann taldi að verð-
bólguáhrif gengislækkunarinnar
yrðu smávægileg.
Pólverjar hafa verið hvað djarfastir
þjóða Austur-Evrópu í að koma á
vestrænu markaðshagkerfi, en það
hefur kostað minni framleiðni í iðn-
aðinum, mun verri lífskjör og mikið
atvinnuleysi. Walesa sagði á frétta-
mannafundi, sem hann hélt í gær,
að ákveðið hefði verið að hraða efna-
hagsumbótum enn frekar. Meðal
annars á að flýta sölu arðbærra ríkis-
fyrirtækja og uppgjöri óarðbærra
ríkisfyrirtækja. Reuter-SÞJ
Alþjóðadómstóllinn í Haag:
Finnsk stjóm*
yéld kæra dönsk
Finnsk stjómvöld hafa kært dönsk
stjómvöld fyrir Alþjóðadómstóln-
um í Haag í Hollandi, vegna brúar
sem Danir ætla að reisa yfir Stóra-
beltið. Málið kom fyrir dómstólinn í
gær og krefjast Finnar þess að
Dönum verði bannað að byggja
brúna.
Brúin, sem á að vera 65 metrar á
hæð, er ekki nógu há til þess að
stórir olíuborpallar og seglskip geti
siglt undir hana og telja Finnar að
smfði hennar geti ógnað skipaiðn-
aðinum í Finnlandi, en hann byggir
afkomu sína mikið á smíði og við-
haldi á stórum olíuborpöllum og
seglskipum.
Háttsettur lögfræðingur hjá
finnska utanríkisráðuneytinu sagði í
gær að þeir vonuðust til að dóm-
stóllinn viðurkenndi rétt Dana til að
byggja brú yfjr Stórabeltið og stuðla
þannig að bættum samgöngum í
Danmörku, en að hann tæki tillit til
hagsmuna Finna og setti skilyrði
fyrir byggingu brúarinnar, þannig
að hún mundi ekki hindra sam-
göngur ti! Finnlands. Reuter-SÞJ
Laugardagur 18. maí 1991
Fréttayfirlit
BELGRAD - Ekki tókst að
veija nýjan Júgóslavíuforseta á
fundi forsetaráðs Júgóslavíu í
gær. Fulltrúar Slóveniu, Króa-
tíu og Makedóniu gengu út af
fúndinum. Júgóslavía hefur
verið án forseta frá miðnætti
aðfaranótt flmmtudags.
WASHINGTON - George
Bush, forseti Bandarikjanna,
sagði i gær eftir viðræður við
James Baker utanrikisráð-
herra að hann væri bjartsýnn á
að hægt væri að koma á ffiðar-
ráðstefnu milll fsraelsmanna
og Araba um Palestlnumálið
og að Bandaríkjamenn mundu
halda áfram að reyna að koma
slíkri ráöstefriu á.
LÚXEMBORG - Forsætis-
ráðherra Egyptalands, Hosni
Mubarak, sagöist f gær telja
líklegt aö hægt væri að koma á
friðarráðstefnu um Palestínu-
málið fyrir lok þessa árs.
CANBERRA - Utanríkisráð-
herra Irans, Ali Akbar Velayati,
sagðl I gær að írönsk stjóm-
völd væru ekki bjartsýn á að
Bandaríkjamönnum tækist að
koma á friðarráðstefnu milii Ar-
aba og (sraelsmanna um Pal-
estínumálið.
BAGDAD - Kúrdlski skæru-
liðaieiðtoginn, Massoud Barz-
ani, sagði I gær að mikill ár-
angur hefði náðst í viðræðum
kúrdísku samninganefndarinn-
ar, sem hann leiðir, og íraskra
stjömvalda I Bagdad um aukin
réttindi kúrdiska minnihlutans í
frak. Hann sagði að samkomu-
lag hefði náðst um öil helstu at-
riðin. Enn hafa aðilar ekki skrif-
að undir neinn samning.
JERÚSALEM - Palestínu-
arabi særði þrjá ísraelsmenn
með eggvopni í gær og forsæt-
isráðherra fsraels, Yitztiak
Shamir, sagði slæmt að árás-
armaðurinn skyldi nást lifandi.
AGARTALA - Flóð og aur-
skriður í noröurhéruöum Ind-
lands hafa leitt til dauða 71
manns, þ.á m. 12 hermanna
sem drukknuðu þegar á fiæddi
yfir tjaldbúðir þeirra.
PARÍS - Edith Cresson, ný- I
skipaður forsætisráöherra
Frakklands, sem talað hefur
verið um sem hina sósialísku
Jámfrú, byrjaði með látum í
nýja starfinu og lofaði aö berj-
ast af hörku fyrir uppbyggingu
fransks iðnaðar.
MOSKVA - Skrifstofur aðal
stjómarandstöðuhreyfingar-
innar i Sovétrikjunum, Lýðræði
i Rússlandi, eyðilögðust i
sprengingu í gær. Embættis-
menn hreyfingarinnar sögðu
að sprengju hefði verið komið
fyrir í skrifstofunum.
WASHINGTON - Sú stað-
neynd, að sovésk stjómvöid
skuli nota óbreyttar hersveitir tii
að glíma viö þjóðemisdeilur,
veikir sovéska herinn og eykur
líkumar á ktofningi innan hans.
Þetta kom fram í skýrslu
bandarísku layniþjónustunnar
(CIA), sem kynnt var á banda-
rfska þinginu í gær.
ABERGAVENNY - Breski
fhaldsflokkurinn tapaði áður
„öruggu" þingsæti öl Verka-
mannaflokksins í aukakosn-
ingum, sem ffam fóru í
Monmouth-kjördæminu i Wa-
les I gær.
SOFÍ A - Alþjóðabankinn hefur
mælt með að Búlgariu verði
veift 250 milijarða dollara tán til
að markaðsvæða efnahags- j
kerfið, að sögn elns starfs- j
manna bankans. Reuter-SÞJ i