Tíminn - 18.05.1991, Síða 14
26 Tíminn
Laugardagur 18. maí 1991
ÍÞRÓTTIR
íslandsmótid í knattspymu, 2. deild:
■ ■ ■ M * ■ É M *
a
Fyrsta umferð í 2. deildinni (
knattspymu fer fram á þriðjudag.
Margir segja að liðin hafi aldrei
verið jafnari og spá því að keppn-
in verði jafnvel meira spennandi
en sú (1. deiid, en þaö ketnur nú
im.
Úr 2. deíldlnni hafa horfið (JÖg-
ur Hð sfðan á sfðasta keppnis-
tímabiii. Norðanliðin KS og Leift-
ur féllu í þriðju deild og Víðir og
Breiðablik færðust uppí 1. deild. I
stað þelrra komu úr þriðju deild
Þrúttur Reykjavík og Haukar, en
úr 1. deiid komu lið Þórs á Akur-
eyri og lið Skagamanna.
En eins og áður sagði fer fyrsta
umferð fram á þriðjudag og verð-
ur leikið sem hér segir og heQast
ailir leUdr klukkan 20:
Haukar - ÍA
Þór - Þróttur
ÍBK - Fylkir
Grindavík - Tindastóll
Selfoss - ÍR -PS
Samskipadeildin í knattspyrnu:
Tveir leikir á
möl í 1. umferð
Á mánudag fer fram langþráð fyrsta
umferð í 1. deildinni í knattspymu,
Samskipadeild. Grasvellir félag-
anna hafa komið óvenjuvel undan
vetri, en það er þó ekki algilt.
/ Hafnarfirði verður opnunarleik-
ur Samskipadeildar og hefst hann
klukkan 16. Það er lið FH og Víkings
NYJUNGAR FRA
Eigum nú fyrirliggjandi nýjan áburðardreifara frá
BÖGBALLE.
Tveggja skífu dreifara 600 lítra.
Einnig er hægt að dreifa til annarrar hvorrar hliðar.
Tveggja skífu búnaðurinn tryggir nákvæmari
dreifingu, án tillits til áburðartegundar.
Tæknilegar upplýsingar:
Eigin þyngd 285 kg
Breidd 220 cm
Lengd 120 cm
Hleðsluhaeð 82 cm
Rúmmál 600 lítrar
Dreifibreidd 12 metrar
Búinn tveimur dreifiskrúfum,
hrærara, kögglasigti og
vökvastýringu
Verð aðeins kr. 115.000.- án vsk. (gengi 15/5 ‘91).
Kynnið ykkur niðurstöður Bútæknideildar á Hvanneyri.
MUÍsOiífúj
sem þar mætast og verður leikurinn
háður á grasi. Fyrir leikinn verður
athöfn þar sem keppnin verður
formlega sett.
/ Garöabœ eigast við lið Stjörn-
unnar og bikarmeistara Vals, klukk-
an 20. Leikurinn verður á möl og
munu þeir Garðbæingar vera svart-
sýnir á framhaldið, þar sem gras-
völlur þeirra hefur komið mjög illa
undan vetri.
/ Laugardal taka Framarar á móti
nýliðum UBK og er sá leikur einnig
klukkan 20. Ekki er enn Ijóst hvort
leikurinn verður á Valbjarnarvellin-
um eða gervigrasinu, en Ijóst er að á
aðalvellinum verður hann ekki.
Norðan heiöa taka KA-menn á
móti Vestmannaeyingum og eins og
venjulega verður sá leikur á möl.
Leikurinn hefst kl. 20.
Síðasti leikur umferðarinnar er i
Garöinum, þar sem Víðir og KR eig-
ast við. Leikurinn verður á grasi og
hefst klukkan 20.
Frjálsar íþróttir:
Fimm fyrirtæki
styrkja kastara
Það eru VISA ísland, sem er ásamt
VISA Intemational einn af styrktar-
aðilum ÓL ‘92, og fjögur sam-
starfsfyrirtæki þess, Flugleiðir,
Landsbankinn, Sportval og Útilíf,
sem hafa bundist samtökum um að
veita Ólympíuförum íslands í kast-
greinum þjálfunar- og afreksstyrki,
þ.e.a.s. á Ölympíuleikana í Barcel-
ona ‘92.
Kasthópurinn samanstendur af
fimm íþróttamönnum, þeim Einari
Vilhjálmssyni, Sigurði Matthíassyni
og Sigurði Einarssyni spjótköstur-
um, Pétri Guðmundssyni kúluvarp-
ara og Vésteini Hafsteinssyni
kringlukastara, sem allir hafa náð
Ólympíulágmörkum, sem krafist er
fýrir þátttöku á ÓL. Samningurinn
er auglýsingasamningur sem gerir
þessum íþróttamönnum kleift að
æfa íþrótt sína af krafti og að helga
sig íþrótt sinni fyrir Ólympíuleik-
ana. Á móti hafa fýrirtækin fimm, að
undanskildu VISA ísland, einkarétt á
að hagnýta sér í auglýsingaskyni ár-
angur og keppni íþróttamannanna
fimm fram að þátttöku þeirra í Barc-
elona ‘92, bæði hérlendis og erlend-
is. Þó er Pétur Guðmundsson samn-
ingsbundinn hérlendis öðrum fýrir-
tækjum út árið 1991, en keppir und-
ir nafni VISA erlendis. Fyrir
alþjóðleg stórmót, Heimsmeistara-
mótið í Tokyo og Ólympíuleikana í
Barcelona munu fýrirtækin veita
íþróttamönnunum sérstaka afreks-
styrki. Sama mun gilda fyrir heims-
met, Norðurlandamet og íslands-
met.
Gerður hefur verið samningur við
Sportval og Útilíf um að 0.5% af við-
skiptum þessara verslana renni í sér-
stakan styrktarsjóð Ólympíunefndar
og VISA Island. -PS
Knattspyrna:
Tekur Zico
fram skóna?
Svo gæti fariö að brasilísld knatt-
spymusnillingurinn og íþrótta-
málaráðherrann, Zico, taki fram
knattspymuskóna. Zico, sem er 38
ára, hefur átt í viðræðum við jap-
anska 2. deildar liðið Sumitomo
Metal FC og er búist við að skrifað
verði undir samning, þess efnis að
Zico komi til liðs við þá, í næstu
viku.
Að sögn forráðamanna félagsins er
ekki búið að ganga frá peningahlið
málsins, en fram hefur komið í jap-
önskum fjölmiðlum að Zico fái um
1.5 milljón dollara, eða um 90 millj-
ónir íslenskra króna. Þá sögðu for-
ráðamenn liðsins að ákveðinn væri
blaðamannafundur með Zico næst-
komandi þriðjudag.
ReuterAps
Knattspyrna:
Færeyingar lágu!
HOFÐABAKKA 9 112 REYKJAVIK SIMI 91-670000
Það kom að því að frændur okkar
Færeyingar vöknuðu af hinum væra
knattspymudraumi, þegar þeir
steinlágu fyrir Júgóslövum, 7-0, á
heimavelli þeirra síðamefndu, eftir
að Júggamir höfðu haft yfir, 2-0, í
hálfleik.
Það var við ofurefii að etja, því að
Júgóslavar hafa einu besti liði Evr-
ópu á að skipa. Færeyingar geta nú
samt vel við unað. Þeir hafa fengið
þrjú stig í fjórum leikjum og eru í
þriðja sæti í riðlinum, fýrir ofan N-
Ira og Austurríki.
í fýrrakvöld léku einnig lið Finna
og Möltu, í 6. riðli EM landsliða, og
fóru Finnar með 2-0 sigur af hólmi.
Hollendingar eru efstir í þeim riðli
með 8 stig, en Portúgalar fýlgja fast
á eftir með 7 stig.