Tíminn - 24.05.1991, Side 4
4 Tíminn
Föstudagur 24. maí 1991
ÚTLÖND
Sonja vill ekki verða leiðtogi Kongressflokksins:
Spjótin beinast að
Frelsistígrum Tamíla
Dómsmálaráðherra Indlands sagði í gær að alit benti til þess að að-
skilnaðarsamtökin, Frelsistígrar Ihmfla (LITE) á Sri Lanka, hafí stað-
ið á bak við morðið á Rajiv Gandhi. Hann sagðist ekki geta greint frá
smáatriðum á þessu stigi en margar vísbendingar bentu á Tígrana. Nú
þykir ljóst að morðinginn hafí verið kona sem hafí verið með sprengj-
una innan klæða. Hún á að hafa sprengt sprengjuna þegar hún beygði
sig niður til að snerta skó Gandhis. Vírar, fjaðrir og rafhlöður fundust
á líkamsleifum konunnar. Efri hluti líkama hennar er horfínn en and-
litið er að mestu heilt. Ekki hefur tekist að bera kennsl á konuna né
aðra manneskju sem lést ásamt Gandhi af völdum sprengjunnar.
Frelsistígrar Tamfla (LITE) eru öfl-
ugustu aöskilnaðarsamtökin á Sri
Lanka. Rajiv Gandhi sendi friðar-
gæslusveitir til Sri Lanka þegar hann
var forsætisráðherra árið 1987. Sveit-
unum gekk illa að stilla til friðar og
enduðu þær með því að berjast við Tí-
grana. Tálsmaður Tígranna í London
sagði á miðvikudag að hann væri viss
um að samtökin hefðu ekki átt neinn
þátt í morðinu. Tígrarnir hafa bæki-
stöðvar í héraðinu Tamfl Nadu í Suð-
ur- Indlandi, en þar var Rajiv Gandhi
einmitt myrtur. Núverandi ríkisstjóm
landsins, undir forystu Chandra Shek-
har, setti héraðið undir beina stjóm
sína í febrúar síðastliðnum á þeim for-
sendum að stjóm héraðsins styddi að-
skilnaðarsinna á Sri Lanka.
Sonja Gandhi, ekkja Rajivs Gandhi,
tók ekki boði framkvæmdastjórnar
Kongressflokksins um að verða leið-
togi flokksins og kemur það ekki á
óvart. Pó gerðu margir ráð fyrir því að
hún samþykkti að fara fyrir flokknum
í kosningunum til þess að forðast
valdatómarúm í flokknum og um leið
í indverskum stjómmálum. í yfirlýs-
ingu sem Sonja Gandhi lét frá sér fiara
í gær segir hún að hún sé djúpt snort-
in yfir því trausti sem flokkurinn sýni
henni en sá harmur sem að börnum
hennar og henni sjálfri sé kveðinn
geri henni ókleift að taka að sér starf
formanns Kongressflokksins. Ákvörð-
un framkvæmdastjómar Kongress-
flokksins um að velja hana sem for-
mann flokksins kom á óvarL Tálið er
að hún hafi verið tekin að hluta til í
virðingarskyni við Rajiv Gandhi, að
hluta til í því skyni að afla samúðarat-
kvæða í þeim tveimur umferðum
kosninganna sem eftir eru og að hluta
til vegna þess að í forystu Kongress-
flokksins er enginn augljós arftaki
Rajivs Gandhi.
Utför Rajivs Gandhi fer fram í dag.
Margt þekkt fólk mun verða við at-
höfnina, m.a. Dan Quale varaforseti
Bandaríkjanna og Karl Bretaprins.
Reuter-SÞJ
Útför Rajivs Gandhi verður í dag. Margt bendir til að Frelsistígrar Tamíla
(LITE) hafi staðið á bak við morðið.
Pólitískum föngum í Eþíópíu sleppt: ^
MIKIL SPENNAI
HÖFUÐBORGINNI,
YFIRVOFANN ÁTÖK
Handhafí forsetavaldsins í Eþíóp-
íu, Tesfaye Cabre Kidan, áður vara-
forseti landsins, sleppti í gær 187
pólitískum föngum, til þess að
koma til móts við uppreisnarmenn
og endurtók ósk sína um vopnahlé
og sagðist vilja deila völdunum
með uppreisnarmönnum. Upp-
reisnarmenn Eþíópísku byltingar-
hreyfíngarinnar (EPRDF), sem
eru aðeins um 30 kílómetra vestur
af höfuðborginni Addis Ab'aba,
hafa ekki viljað vopnahlé og segjast
geta hertekið höfuðborgina hve-
nær sem þeir vilja.
Mikil spenna ríkir í borginni en
menn óttast að til mikilla blóðs-
úthellinga geti komið ef barist
verður um hana. Hermenn
stjórnarhersins streyma til borg-
arinnar. Talsmaður EPRDF sagði
í gær að þeir mundu undirbúa
árásina á borgina mjög vel og
reyna að koma í veg fyrir miklar
blóðsúthellingar. Borgarbúar
báðu fyrir friði í gær og fylltu all-
ar kirkjur borgarinnar. Vestræn
sendiráð hafa endurtekið ráðlagt
ríkisborgurum sínum að fara frá
landinu.
Eþíópíska byltingarhreyfingin
(EPRDF) hefur hafnað öllum til-
boðum Tesfaye Gabre Kidan um
vopnahlé. Stjórnmálasérfræðing-
ar segja greiniiegt að þeir vilji
hafa sterka samningsstöðu í frið-
arviðræðunum sem eiga að fara
fram í London á mánudaginn.
Frelsisfylking Erítreu (EPLF)
mun taka þátt í friðarráðstefn-
unni ásamt EPRDF og stjórn-
völdum. Bandarískir embættis-
menn munu stjórna viðræðun-
um.
Reuter-SÞJ
Tyrkland:
Herforingj-
ar skotnir
í Tyrklandi
Herforíngi, sem hafði nýlega látið af
störfum, var skotinn til bana í höfuð-
borg TVrklands, Ankara, í gær. Fjór-
um klukkustundum áður var öðrum
herforíngja í borginni Adana í suður-
hluta landsins sýnt banatilræði.
Hann hélt lífí en er alvarlega særður.
Báðir herforingjarnir höfðu stýrt
hersveitum í suðausturhluta landsins
þar sem Kúrdar eru í meirihluta.
Kúrdar í Suðaustur-Týrklandi hafa
barist fyrir sjálfstæði frá árinu 1984
undir forystu Kúrdneska verka-
mannaflokksins (PKK).
Samkvæmt opinberum tölum hafa
yfir 3.000 manns fallið í átökum tyrk-
neskra stjórnvalda og tyrkneskra
Kúrda. Tyrknesk stjórnvöld telja að
PKK hafi staðið á bak við morð á 66
liðsforingjum, 38 lögreglumönnum
og 387 hermönnum.
Byltingarsinnaðir vinstrimenn (Dev-
Sol) lýstu yfir ábyrgð sinni á tilræð-
inu í Adana. Samtökin hafa stutt
Kúrda í sjálfstæðisbaráttunni og em
ekki ólík Kúrdneska verkamanna-
flokknum (PKK). Líklegt þykir að
Dev-Sol hafi staðið á bak við bæði til-
ræðin í samvinnu við PKK.
Reuter-SÞJ
Fréttayfirlit
Suður-Kórea:
STJORNVOLD
GEFA EFTIR
Svo virðist sem stjórnvöld í Suður-
Kóreu séu farin að láta undan þrýst-
ingi stjórnarandstæðinga en í gær
samþykktu þau að veita 258 pólitísk-
um föngum sakaruppgjöf og á mið-
vikudaginn bauðst forsætisráðherra
landsins, Ro Jai- bong, til að segja af
sér en forseti landsins og harðlínu-
maðurinn, Roe Tae-woo, á eftir að
taka afsögn hans til greina. Búist er
við að ríkisstjórnin verði stokkuð
upp í kjölfar afsagnar forsætisráð-
herrans og að af því geti orðið á
næstu dögum.
Vestrænir stjórnarerindrekar í Suð-
ur-Kóreu efast um að sakaruppgjöf-
in eða uppstokkun stjórnarinnar
muni friða stjórnarandstæðinga.
Hins vegar hefur talsvert dregið úr
mótmælunum og hafa þau verið
með minna móti undanfarna daga.
Mótmælin brutust út eftir að
óeirðalögregla barði námsmann til
bana þann 26. aprfl síðastliðinn.
Dagleg átök hafa verið síðan milli
lögreglu og andófsmanna og 8 and-
ófsmenn hafa fyrirfarið sér í mót-
mælaskyni við stjórnvöld.
Reuter-SÞJ
Moskva, Sovétrikjunum - Að
minnsta kosti 10 létust og 38
slösuðust þegar sovésk farþega-
flugvél af geröinnl Tupolev TU-
154 brotlenti á flugvellinum í
Leníngrad, að sögn Tass frétta-
stofunnar. Vélin sem var ffá lýð-
veldinu Georgíu brotnaði í tvo
hluta þegar hún lenti á flugvellin-
um. 164 farþegar voru um borð
og 4 manna áhöfn.
Johannesarborg, Suður-
Afriku - Kynþáttastefna F.W. de
Klerks, forseta Suður-Afríku,
beið mikinn ósigur í aukakosn-
ingum sem fram fóru í Lady-
brand-kjördæminu á miðviku-
dag. Flokkur forsetans, Þjóðar-
flokkurinn (NP), tapaði miklu fylgi
til fhaldsflokksins (CP), sem
berst fyrir fullkomnum aðskilnaði
kynþátta.
Jerúsalem, ísrael - ísraelsk
stjómvöld sögöu í gær að ásak-
anir bandarískra stjómvalda, um
að landnám gyðinga á herteknu
svæðunum værí aðalhindrunin
fyrir friðarráðstefnu milli þeirra og
araba um Palestínu, mundu f
engu breyta stefnu þeirra.
London, Englandi - Aðstoðar-
maður utanríkisráðherra Bret-
lands, Douglas Hogg, varaði í
gær við því að stríð mundi brjót-
ast út í Miðausturiöndum ef deila
(sraelsmanna og araba um Pal-
estínu yröi ekkí teyst
Genf, Sviss - Sovésk stjóm-
vöid lýstu I gær yfir ánægju sinni
með tillögur bandarískra stjóm-
valda um bann við efríavopnum
og sögðust vera reiðubúinn að
eyða öllum efríavopnum sínum
ef gerður yrði alþjóðlegur samn-
ingur sem bannaði slík vopn.
Peking, Kína - Kínversksqóm-
völd fögnuðu þvf i gær að 40 ár
eru liðin firá því Tíbet komst und-
ir stjómína í Peking, og hétu því
að héraðið fengi aldrei sjálfstaeöi
áný.
Luanda, Angóla - Seinustu
kúbversku hermennimir fara frá
Angóla á laugardag, að sögn
kúbverskra yftrvatda. Vopnahlé
hefur nu verið komíð á milli marx-
istastjómarinnar, sem Kúba hef-
ur stutt, og skæruliða UNITA,
sem Bandaríkin hafa stutL Bar-
dagar höfðu staöið yflr í 16 ár.
Varsjá, Póllandi - Póiska ríkis-
stjómin sagðfst f gær ekki ætia
að hverfa frá mefnlætastefríu
sinni þrátt fyrir mikla efnahags-
örðugleika og skyndiverkföll og
mótmæli óánægðra verka-
manna.
Damascus, Sýriandi - Sýr-
lendirrgar fógnuðu ákaft þeim
samningum sem þeir gerðu við
Líbani um náið samband í efna-
hags-, öryggis- og utanríkismál-
um og sögðu hann sögulegan og
lýsa veg bjartrar framtíðar. Isra-
elsmenn telja að samningurinn
ógni öryggi þeirra og krisnir Líb-
anir hafa fordæmt samninginn.
Reuter-SÞJ