Tíminn - 24.05.1991, Side 7
Föstudagur 24. maí 1991
Tíminn 7
Drujba Palace Hotel var áöur eftírlætisbaðstaður æðstu manna
Búlgaríu og nú gefst íslenskum ferðamönnum kostur á að njóta
þeirra lífsgæða sem þar bjóðast. Drujba er í 10 km Qaríægð frá
Vama og í fallegu umhverfi.
sést yfir alla borgina, þar sem býr
um ein milljón manna, og um-
hverfi. Á vetrum eru þar stunduð
skíði.
Fleiri ferðir um landið eru í boði,
t.d. til Velikotarnovo sem eitt sinn
var höfuðborg Búlgaríu, og Kazan-
lak, en þar er geysimikil rósarækt
og þar er rósaolían framleidd sem
notuð er við ilmvatnsgerð. Líka
eru tvö „verndarsvæði" í landinu
þar sem fylgjast má með íbúunum
vinna að listiðnaði, s.s. leirmuna-
gerð, teppavefnaði og gerð tré-
muna, eins og þeir hafa gert síð-
ustu 100 árin.
Alls staðar má kom-
ast áfram með ensku
eða þýsku
„Mitt álit er að nú sé mjög góður
tími fyrir íslenska ferðamenn að
heimsækja Búlgaríu," segir Atanas
Malakoff. Hann bætjr því við að sín
skoðun sé sú að íslendingar fái
mun betri þjónustu nú en fyrir
tveim til þrem árum, Búlgarar taki
þeim opnum örmum og sýni þeim
gestrisni.
Og alls staðar má komast áfram
með ensku eða þýsku.
„Mjög góður tími nú fyrir
íslenska ferðamenn að
heimsækja Búlgaríu"
Fyrir skemmstu var staddur hér á landi
Atanas Malakoff, fulltrúi Balkan Air í
Lúxemborg. Erindi hans var að auka
áhuga íslenskra ferðamanna á að leggja
leið sína til Búlgaríu í sumar, en leiðin
liggur þá um Lúxemborg og síðan með
beinu flugi til Varna, sem tekur tvær og
hálfa klukkustund.
„Við höfum þegar góða reynslu af að
flytja íslenska ferðamenn um
Lúxemborg til Varna og höfum þegar
gert það í sex ár,“ segir Atanas Malakoff.
Hann segir ferðahópana héðan
fara að strönd Svartahafsins, eink-
um til baðstaðarins Elenite, sem
margir íslendingar þekkja nú þeg-
ar, og nú einnig til Drujba (Vin-
átta). Það eru þessar ferðir sem
Malakoff vill gjarna hvetja íslend-
inga til að athuga nánar, einkum
núna, þar sem þær bjóða upp á
fleira en sól og baðstrandarlíf, þær
bjóða líka upp á ferðir um fram-
andi slóðir og hagstætt verðlag,
svo eitthvað sé nefnt.
Gengi dollars
gagnvart levu
hagstætt
Hr. Malakoff segir gengi dollars
gagnvart levu nú mjög hagstætt
eða einn dollar gegn 20 levum.
Þannig má fá góðan málsverð á
veitingahúsi, fordrykk, salat, aðal-
rétt og vínflösku fyrir u.þ.b. 40 le-
va, þ.e. 2-3 dollara. Veitingahús
eru fjölmörg og þar af hafa á síð-
ustu einu til tveim árum verið sett
upp fjöldamargir matsölustaðir í
einkaeign sem bjóða upp á fjöl-
breyttan matseðil, bæði sérbúlg-
arskan og evrópskan.
Þá gefst gestum kostur á margvís-
legum Iistviðburðum. Vinsælastar
eru á Svartahafsströndinni, hinni
svokölluðu Sólarströnd, bæði í El-
enite og Drujba, þjóðlegar
skemmtidagskrár, þar sem flytj-
endur í litríkum þjóðbúningum
flytja búlgarska dansa, „Hora“ og
„Pachenica", og söngva við undir-
leik sérbúlgarskra hljóðfæra eins
og „gaida" (e.k. sekkjapípa) og „ka-
val“ (flauta). Þessar skemmtidag-
skrár eru fluttar í útileikhúsum og
á veitingahúsum og taka 1-2 klst.
Á ströndinni eru ýmsir möguleik-
ar á venjulegum leiktækjum, s.s.
sjóskíðum, loftbelgjaferðum og
stignum hjólabátum, svo eitthvað
sé nefnt. Og hitinn er nú þegar 20-
25 stig.
Ferðalög um landið
Engin vandkvæði eru á því að
ferðast frá Varna um landið. Skrif-
stofa er á hverju hóteli sem skipu-
leggur ferðir. T.d. er á boðstólum
dagsferð til höfuðborgarinnar Sof-
ia, en þangað er 40 mínútna flug
frá Varna. I Sofia er farin skoðun-
arferð og skoðaðir merkir staðir,
og þá er skroppið til Vitoschefjalla,
1500 m hárra fjalla í 10 km fjar-
lægð frá Sofia. Þaðan er víðsýnt og
Atanas Malakoff bendir á ýmsa
kosti Búlgaríu fýrír íslenska
ferðamenn, m.a. afar hagstætt
verðlag. (Timamynd Pjetur)
segir Atanas Mala-
koff, fulltrúi Balkan
Air í Lúxemborg
Þá er vandalaust að taka bílaleigu-
bíl og ferðast um á eigin vegum.
En geta skal þess að í Búlgaríu er
kýrilliskt letur og er vissara að
kynna sér vegaskiltin áður.
Mikið úrval nú í
búðum, bæði á
innlendum og
erlendum vörum
Breytingar hafa orðið miklar í
Búlgaríu á síðustu einu til tveim
árum, eins og annars staðar í fyrr-
um austantjaldslöndum. Hr. Mala-
koff segir breytingarnar ákaflega
jákvæðar fyrir Búlgaríu og hafi
þegar komist á meira lýðræði,
meira frelsi og einkaframtakið fái
nú betur að njóta sín. Þjónusta sé
þegar miklu betri en fyrir tveim til
þrem árum og verði íslenskir
ferðalangar, sem áður hafa heim-
sótt landið, fljótt varir við það.
Vöruúrval í búðum hefur tekið
stökkbreytingum, þar sem nú hafi
verið settar á fót margar útlendar
verslanir með erlendar vörur. Auk
þess sé vitaskuld mikið úrval af
búlgörskum vörum í búðum.
Varðandi verðlag á innfluttum vör-
um vill hr. Malakoff sem minnst
fullyrða, en bendir enn á hagstætt
gengi dollars gagnvart levu og
nefnir sem dæmi að herraskyrta
kosti ekki nema sem svarar 4 doll-
urum og jakkaföt um 20 dollurum.