Tíminn - 24.05.1991, Síða 13
Föstudagur 24. maí 1991
Tíminn 13
Breytt auglýsing
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Borgarverkfræð-
ingsins í Reykjavík, óskar eftir tilboðum í tvö verk í Borgar-
holti I. Um er að ræða gatnagerð, lagningu holræsa- og
hitaveitulagna ásamt jarðvinnu fyrir veitustofnanir í nýtt
íbúðar- og iðnaðarhverfi ásamt aðkomugötum.
Verkið nefnist:
A: Borgarholt I, 5. áfangi.
Helstu magntölur eru:
Heildarlengd gatna u.þ.b. 1300 m.
Heildarlengd holræsa u.þ.b. 3000 m.
Verkinu skal lokið 15. október 1991.
B: Gylfaflöt, A og L götur.
Helstu magntölur eru:
Heildarlengd gatna u.þ.b. 300 m.
Heildarlengd holræsa u.þ.b. 600 m.
Verkinu skal lokið 15. júlí 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 20.000,- skilatryggingu á verki A, en
gegn kr. 15.000,- skilatryggingu á verki B.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 30. maí
kl. 11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Sögufélag
Aðalfundur Sögufélags verður haldinn þriðjudaginn 28.
maí í Skólabæ, Suðurgötu 26, og hefst kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gunnar Sveinsson skjalavörður flytur erindi:
Útgáfa Alþingisbóka Islands.
Stjómin.
Sumar-
hjólbaröar
Hágæða hjólbarðar
HANKOOK frá KÓREU
Á lágu verði.
Mjög mjúkir
og sterkir.
Hraðar
hjólbarða-
skiptingar.
BARÐINN hf.
Skútuvogi 2, Reykjavík
Símar: 91-30501 og 84844
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNIb ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVjK
91-686915
AKUREYRi
96-21715
PÖNTUM ^ÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Rafstöðvar
OG
dælur
FRÁ
SUBARU
BENSÍN EÐA DIESEL
Mjög gott verð
Rafst.: 600-5000 w
Dælur: 130-1800 l/mín
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Simi 91-674000
Pilar Wayne við eitt málverka sinna. Eins og venjulega hefur hún sótt myndefnið í eina kvikmynd
bónda síns, Rio Lobo.
Nafn Johns Wayne er ekkju hans dýrmætt:
Pilar málar og selur
merktar myndir grimmt
John Wayne er mörgum
ógleymdur þó að 12 ár séu liðin
síðan hann dó, og á því lifir ekkja
hans, Pilar. John var eyðslusamur
meðan hann lifði og lét eftir sig
lítið af peningum, en Pilar upp-
götvaði að hún gat gert sér pen-
inga úr því áhugamáli sínu að
mála myndir, því að markaðurinn
var öruggur fyrir myndir með
áritun ekkju Johns Wayne.
Hjónabandsmál Johns voru með
ólíkindum. Hann var þrígiftur og
sótti allar konurnar til rómanska
heimsins. Enda voru allar kon-
urnar sama marki brenndar,
blóðheitar og undirgefnar, til-
báðu mann sinn og ógnuðu hon-
um með rakhnífnum þegar af-
brýðisemin kvaldi þær. Enda
segja kunnugir að sá, sem hafi
þekkt einhverja þeirra, hafi þekkt
þær allar.
Fyrsta konan var spænsk, sú
næsta mexíkönsk og þriðja konan
kom frá Perú. Sú mexíkanska lét
afbrýðisemina hlaupa mest með
sig í gönur, því að hún skaut á
Wayne úr 45 kalíbera byssu.
Þriðja konan var Pilar frá Perú
og þau giftu sig á Hawaii 1954. Þá
hafði John reyndar svarið að gift-
ast ekki fleiri konum með róm-
anskan blóðhita. En hann var
óttalega niðurdreginn þegar
hann kynntist Pilar, því að þá
stóð hann einmitt í skilnaði við
bráðlyndu mexíkönsku konuna
sína og hún hafði rúið hann inn
að skyrtunni. Og Pilar hafði hann
svo á valdi sínu að hún fékk þeim
vilja sínum framgengt að tennis-
völlur var gerður á lóð þeirra, þó
að það væri þvert gegn vilja hans.
Samt fór það svo að þau hjón
skildu að borði og sæng sex árum
áður en John dó, þó að aldrei væri
gengið formlega frá skilnaðinum.
Sennilega var það vegna barn-
anna þriggja, Aissa, Ethan og
Maria. Ur fyrsta hjónabandi
Johns, sem stóð árin 1933-1945,
eru tveir synir og tvær dætur.
Barnabörn Johns Wayne eru 16.
Pilar var 21 árs þegar hún giftist
John Wayne 1954. Hann var þá
48 ára, og hún hélt áreiðanlega
svona lengi út í hjónabandinu
vegna þess að hún hafði brenn-
andi áhuga á því sem hann var að
gera og fylgdi honum á alla töku-
staði. En það fyrsta, sem hún
spurði um þegar hún kom á nýj-
an stað, var tennisvöllur, og það
var erfitt að uppfýlla ósk hennar
um tennisvöli úti í miðri Sahara.
Það var einmitt þar sem maður
hennar færði henni liti, pensla og
málaragrind.
Fyrst í stað málaði hún aðeins
myndir af John á hestbaki, en
smám saman óx henni kjarkur og
fjölbreytnin jókst, og nú er svo
komið að hún selur myndirnar
grimmt.
Nú eru peningamálin komin í
gott lag hjá henni, því að fjöl-
skylda Johns Wayne fær stórar
fjárfúlgur greiddar fyrir sjón-
varpsréttinn að myndum hans.
En Pilar segir að ekkert jafnist á
við peninga sem maður hafi sjálf-
ur unnið fyrir og heldur áfram að
mála — og selja.
Pilar heldur uppi mynd af John Wayne eins og aðdáendur hans þekkja hann best, á hestbaki. Með
henni er Aissa dóttir þeirra og þrjú böm hennar.