Tíminn - 24.05.1991, Page 15
Föstudagur 24. maí 1991
Tíminn 15
Knattspyrnu
PUNKTAR
* Inter Mflan varð Evrópumeistari
félagsliða eftir síðari úrslitaleikinn
gegn AS Róma í fyrrakvöld. Róma
sigraði í leiknum 1-0, en Inter vann
2- 0 í fyrri leik liðanna.
* íslenska unglingalandsliðið skip-
að leikmönnum 18 ára og yngri tók
þátt í alþjóðlegu móti í Tékkóslóv-
akíu um hvítasunnuna. Liðið tapaði
0-2 fyrir Rúmenum, sigraði Malasíu
3- 0, tapaði fyrir Grikkjum 0-1 og
lokst tapaði liðið 1-2 fyrir Slóvök-
um. íslenska liðið varð í 4. sæti í
sínum riðli.
* Peter Shilton fyrrum markvörð-
ur enska landsliðsins hefur áhuga á
að gerast framkvæmdastjóri Leic-
ester, en þar hóf hann einmitt feril
sinn.
* Southampton hefur rekið Chris
Nicholl úr starfi framkvæmdastjóra
félagsins.
* Skoska félagið Celtic hefur Iátið
Billy McNeill taka pokann sinn.
ástæðan er slakur árangur félagsins
í vetur.
* Þá hefúr QPR Iátið Don Howe
fjúka og er að leita að yngri stjóra.
Howe er 55 ára gamall. Howe er
fyrrum þjálfari hjá enska landslið-
inu.
* Pólski knattspymumaðurinn
Zbigniew Boniek, sem lék á sínum
tíma með Juventus og pólska lands-
liðinu, hefur ákveðið að hætta sem
þjálfari hjá Lecce á Ítalíu, en liðið
féll í 2. deild um síðustu helgi.
* Sampdoria varð ítalskur meist-
ari um síðustu helgi eftir 3-0 sigur
á Lecce.
* Tony Woodcock, fyrrum leik-
maður með enska landsliðinu, Ar-
senal og Nottingham Forest, hefur
látið af störfúm sem þjálfari hjá
þýska 2. deildar liðinu Fortuna
Köln. Woodcock lék á sínum tíma
með 1. deildar liði Kölnar.
* Stefan Beckenbauer, sonur Franz
Beckenbauers, hefur gert tveggja
ára samning við svissneska 2. deild-
ar liðið Grenchen. Stefan, sem er 22
ára, lék áður með áhugamannalið-
inu Kickers Offenbach. Hann hafði
gert sér vonir um að gerast leik-
maður með júgóslavneska liðinu
Red Star Belgrade.
* Gert er ráð fyrir að úrvalsdeild 18
liða verði sett á laggimar í Englandi
á þar næsta keppnistímabili. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum er al-
menningur í Englandi mjög and-
vígur þessum hugmyndum.
* Stanley Mortensen, lyrrum leik-
maður enska landsliðsins, er látinn
á 70. aldursári. Mortensen er eini
leikmaðurinn sem skorað hefur
þrennu í úrslitaleik bikarkeppninn-
ar. Það gerði hann með Blackpool
sem vann Bolton 4-3 árið 1953. BL
Ólympíuleikar smáþjóða í Andorra:
FIMM GULL í SUNDI
Islenska sundfólkið á Ólympíuleik-
um smáþjóða í Andorra gerði það
gott í gær og vann til 5 gullverð-
launa til viðbótar við þau 4 sem
unnust í fyrradag. Þijú íslandsmet
féllu í gær.
Ragnheiður Runólfsdóttir sigraði í
lOOm baksundi, Helga Sigurðar-
dóttir í 50m skriðsundi, Eðvarð Þór
Eðvarðsson í lOOm baksundi, Ingi-
björg Arnardóttir í 400m skriðsundi
og kvennasveitin sigraði í 4x200m
skriðsundi.
Þá unnust einnig þrenn silfurverð-
laun. Hörður Guðmundsson varð
annar í 400m skriðsundi, Magnús
Már Ólafsson í 50m skriðsundi og
Arna Þ. Sveinbjörnsdóttir í lOOm
flugsundi.
Fern bronsverðlaun unnust einnig,
Bryndís Ólafsdóttir varð þriðja í
lOOm flugsundi, Elín Sigurðardóttir
og Ævar Örn Jónsson í lOOm bak-
sundi og boðsundssveitin í 4x200m
skriðsundi.
Fijálsar íþróttir
Tvenn gullverðlaun unnust í frjáls-
um íþróttum í gær. Martha Ernst-
dóttir sigraði með miklum yfirburð-
um í 3000m hlaupi, en náði þó ekki
að bæta íslandsmetið.
Norðurlandamót fatlaðra í sundi:
Tólf íslendingar
keppa í Stavangri
Norðurlandamót fatlaðra í sundi
hefst í dag í Stavangri í Noregi, en
mótinu líkur á sunnudag. Tólf ís-
lenskir keppendur taka þátt í mót-
inu, en þeir eru:
Guðrún Ólafsdóttir Ösp
Bára B. Erlingsdóttir Ösp
Sigrún Huld Hrafnsdóttir Ösp
Rut Sverrisdóttir Óðni Akureyri
Lilja María Snorradóttir SH
Kristín Rós Hákonardóttir ÍFR
Jón H. Jónsson ÍFR
Svanur Ingvarsson Suðra Selfossi
Ólafur Eiríksson ÍFR
Halldór Guðbergsson ÍFR
Gunnar Þór Gunnarsson Suðra Selfossi
Birkir R. Gunnarsson ÍFR
Þjálfarar sundfólksins eru þau Er-
lingur Jóhannsson, Kristín Guð-
mundsdóttir og Drífa Ármannss-
dóttir. Fararstjóri í ferðinni er
Sveinn Áki Lúðvíksson. BL
- og tvö í frjálsum íþróttum
íslenskar getraunir:
TIPPARAR I
SUMARFRÍ
- ÖSS hafði að lokum betur í Vorleik ‘91
Engin röð kom fram með 12 leikjum
réttum í 20. leikviku fslenskra get-
rauna um síðustu helgi. Engu að síður
gengu allir vinningamir út þar sem
getraunaárinu er nú lokiö. Tipparar
fara nú í sumarfrí, en farið verður af
stað á ný þegar enska knattspyman
hefst á ný í haust, líklega 17. ágúst
Fyrsti vinningur fluttist því yfir á 11
rétta. Alls komu 32 raðir fram með 11
réttum og fær handhafi hverrar raðar í
sinn hlut 39.937 kr. Með 10 rétta voru
513 og fá þeir í sinn hlut hver 2.491 kr.
Þriðji vinningur hefði átt að greiðast á 9
rétta, en þar sem vinningurinn var und-
ir 200 kr. fluttist hann á 10 rétta.
Einn PC-tipparinn var svo heitur að
hann fékk 9 raðir með 11 réttum og 41
röð með 10 réttum. Þessi tippari fær því
tæplega hálfa milljón króna í vinning.
Lokst tókst að ljúka bráðabananum í
Vorleik ‘91, en þar áttust við BOND og
ÖSS. Með fullu samkomulagi beggja
hópa var ákveðið að hvor hópur skildi
skila inn aukalega 64 röðum sem
mundu ráða ef hópamir yrðu áfram
með sama skor. Sú varð raunin, báðir
hópar voru með 9 rétta. Þegar þessar 64
raðir voru skoðaðar kom í ljós að BOND
var með 4 raðir með 8 réttum og ÖSS
einnig. Þá var skoðað hvor hópurinn
væri með fleiri raðir með 7 réttum. Þar
hafbi BOND 11 raðir en ÖSS 16. ÖSS
hópurinn telst því sigurvegari í þessari
maraþonkeppni og fara þeir bræður
Öm og Sigurður Sigurðssynir því til
London í boði íslenskra getrauna og
Samvinnuferða Landsýn í haust.
Fram var með flestar raðir seldar um
síðustu helgi, en næst komu Valur og
KR. Hér á eftir fer listi yfir 10 söluhæstu
félögin frá því síðasta haust í réttri röð:
Fýlkir, Fram, KR, KA og Þór, Valur, ÍA,
ÍBK, Selfoss, Víkingur, Haukar.
Fjölmiðlaleiknum lauk fyrir nokkm,
það var sem kunnugt er RÚV sem þar
bar sigur úr bítum.
Úrslitaröðin í 20. leikviku var þessi:
211, ÍIX, 12X, 222.
BL
í kringlukasti vann Eggert Boga-
son gullið, kastaði 54,16m. Pétur
Guðmundsson vann bronsverðlaun
í kringlukastinu.
Ólafur Guðmundsson varð í 5. sæti
í langstökki, stökk 6,76m en Jón
Oddsson varð í 8. sæti með 6,59m.
í úrslitum í 200m hlaupi kepptu
tveir íslendingar, þeir Egill Eiðsson
og Gunnar Guðmundsson. Egill
hafnaði í 4. sæti á 21,72 sek. en
Gunnar varð 5. á 21,74 sek.
Blak
Kvennalandsliðið sigraði Andorra
3-1 í gær og hafnaði því í öðru sæti í
sínum riðli. Liðið mætir Kýpur í dag
Ragnheiður Runólfsdóttir
í undanúrslitum. Karlaliðið vann
Andorra 3-0.
Skotfími
Carl J. Eiríksson vann bronsverð-
laun í keppni með loftskammbyssu í
gær. Gunnar Kjartansson varð í 4.
sæti íhaglabyssukeppninni með 133
stig af 150 mögulegum.
BL
Smáþjóðaleikarnir:
íslendingar í
undanúrslitin
íslenska landsliðið í körfuknattleik
er komið í undanúrslit á Ólympíu-
leikum smáþjóða í Andorra eftir 10
stiga sigur á Mónakó í gær, 101-91.
Leikurinn var jafn lengst af, en ís-
lenska liðið hafði yfir í leikhléi, 54-
40. f síðari hálfleik var allt í járnum
þar til á lokamínútunum að okkar
menn sigu fram úr og tryggðu sér
sigur.
Teitur Örlygsson var stigahæstur
með 21 stig, Guðmundur Bragason
skoraði 20 stig og leikstjórnandi
liðsins, Jón Kr. Gíslason sem átti
skínandi leik, skoraði 16 stig. Valur
Ingimundarson átti góða rispu í síð-
ari hálfleik, kom inn á og skoraði 3
þriggja stiga körfur, en alls 13 stig í
leiknum. Stigahæstur í liði Mónakó
var hinn bandarísk ættaði Billy Joe
Williams með 22 stig.
ísland mætir Möltu í undanúrslit-
unum í dag.
Kvennalandsliðið tapaði illa, 38-
63, fyrir Luxemborg í gær. Anna
María Sveinsdóttir varð stigahæst
með 15 stig.
BL
NBA-körfuboltinn:
Don Chaney valinn
þjálfari ársins
Bandarískir körfuknattleiks-
fréttamenn hafa valið Don
Chaney þjálfara Houston Roc-
kets sem þjálfara ársins. Chan-
ey hlaut 69 af 96 mögulegum
atkvæðum. Annar í kjörinu
varð Rick Adelman þjálfari
Portland og þriðji varð Chris
Ford þjálfari Boston.
Chaney, sem er 45 ára lék f 10
ár með Boston og 2 ár með LA
Lakers, þótti góður varnar-
maður. Undir hans stjórn náði
Houston liðið í vetur sínum
besta árangri frá upphafi eða
52-30 (unnir-tapaðir), sem er
11 sigurleikjum meira en í
næsta tímabili á undan. Þegar
Akeem Olajuwon miðherji
liðsins meiddist í vetur og
missti úr 25 leiki, tapaði liðið
10 af þeim Ieikjum. Einum leik
eftir að Akeem hóf að leika á
ný, vann liðið 13 leiki í röð.
Síðustu 3 mánuði keppnis-
tímabilsins vann liðið 29 leiki
og tapaði aðeins 9 leikjum.
Chaney hefur þjálfað Houston
liðið í 3 ár.
BL
Enska knattspyrnan:
Dorigo til Leeds
Leeds United hefur fest kaup
á enska landsliðsmanninum
Tony Dorigo frá Chelsea. Ekki
hefur verið gengið frá kaup-
verðinu, en Chelsea metur
kappann á 1,5 milljónir punda.
Á þriðjudaginn festi Leeds
kaup á tvíburabræðrunum
Rod og Ray Wallace frá Sout-
hampton. Leeds sem lék í 1.
deild í fyrsta sinn í langan tíma
í vetur, varð í fjórða sæti deild-
arinnar.
BL
Drangeyjarsundmenn:
GEFAISIBIKAR
- til að endurvekja áhuga á Drangeyjarsundi og sundi í sjó
íþróttasamband íslands hefur lingur Pálsson 1927, Pétur Eiríks
fengið afhentan bikar til minning- son KR 1936, Haukur Einarsson
ar um Drangeyjarsund. Gefendur
eru núlifandi sundkappar sem
þreytt hafa Drangeyjarsund. ÍSÍ
varðveitir bikarínn, en afhendir
hann sfðan þeim sem næstur synd-
ir Drangeyjarsund.
Grettir Asmundarson varð fyrstur
manna, svo vitað sé, til þess að
synda til Drangeyjar 1030 eins og
alþjóð veit, en síðan hafa þeir Er-
frá Miðdal KR 1939, Eyjólfur
Jónsson Þrótti 1957 og 1959 og
Axel Kvaran KA 1961 þreytt
Drangeyjarsund.
Eríingur dó 1966, en hinir kapp-
amir hittust í útvarpsþætti Svavars
Gets, „Sunnudagsmorgunn" á rás
2 þann 20. janúar sl. Þar kom fram
sú tillaga að að endurvekja áhuga á
Drangcyjarsundi og úr varð að þeir
kappar gáfu bikar, Drangeyjar-
sundsbikar ÍSÍ, í þeim tilgangí.
ÍSÍ varðveitir bikarínn, en af-
hendir hann síðan þeim sem vinna
það afrek að synda til Drangeyjar
eða til lands þaðan.
í greinargerð með bikamum seg-
ír meðal annars að það sé von gef-
enda að hann megi verða til þess að
glæða áhuga fyrír sundi í sjó og
haida jafnframt uppi minningu um
góð íþróttaafrek feðra vorra. BL
Svelnn Bjömsson, forseti ÍSÍ, tekur viö Drangeyjarbikarnum. Gefendurnir eru frá vinstri: Pétur Ei-
ríksson, Eyjólfur Jónsson og Haukur Elnarsson. Á myndina vantar Axel Kvaran. Thnamynd;Pjetur