Tíminn - 01.06.1991, Blaðsíða 5
Laugardagur 1. júní 1991
HELGIN
13
Poison samanstendur af fjórum
einstaklingum, söngvaranum
Brett Michaels, gítarleikaranum
C.C. DeVille, bassaleikaranum
Bobby Dall og trommuleikaran-
um Rikki Rockett.
Það var árið 1984 sem fyrst fór
að bera á hljómsveitinni og fyrsta
plata sveitarinnar, Look what the
cat dragged in, fékk góðar viðtök-
ur í Bandaríkjunum. Hljómsveit-
in hefur á ferli sínum selt um 12
milljón eintök af plötum sínum
og sex lög sveitarinnar hafa kom-
ist inn á topp tíu í Bandaríkjun-
um.
Nýjasta plata sveitarinnar, Flesh
& Blood, hefur þegar selst í 3
milljónum eintaka í BNA og í
rúmlega milljón eintökum annars
staðar. Lög eins og Unskinny Bop
og Something To Believe in ættu
að vera mörgum að góðu kunn og
hafa þau bæði náð hátt á vinsæld-
arlistum í BNA.
Djass um
helgina
Rurek djasshátíðinni lýkur nú á
sunnudag með pompi og prakt.
Þá fara fram kl. 16:30 í Borgar-
leikhúsinu, lokatónleikar þar sem
norska söngkonan Karin Krog
kemur fram ásamt 12 manna
samnorrænni djasssveit undir
stjórn Per Husby og 14 manna
samnorræn frumskógarhljóm-
sveit undir stjórn Pierre Dörge
spilar. Hér er um að ræða eina
tækifærið tii að njóta leiks þess-
ara hljómsveita þar sem þær eru
sérstaklega settar á stofn í tilefni
af Rurek.
í dag og í kvöld verður einnig
brugðið á leik. Um hádegisbilið
mun Karnivala leika víðs vegar á
svæði Laugavegssamtakanna og
Sveiflusextettinn mun hleypa lífi f
vegfarendur á Hallærisplani. Sú
sannkallaða stuðhljómsveit verð-
ur svo enn á ferðinni kl.13:00 á
Kjörgarðsplani og þá mun Karni-
vala leika víðs vegar á svæði Mið-
bæjarfélagsins. Um kvöldið heldur
svo dunun diassins áfram af full-
um krafti. A Hótel Borg hefjast
kl.22:00 stórtónleikar, þar sem
Plúmm, kvartett Bent Jæger, Kar-
in Krog og tríó Per Husby, Ulf
Adaker og kvartett Sigurðar
Flosasonar og Sálarháski koma
fram. Líklegt er að þeir sem hing-
að til hafa ekki látið sig vanta á
viðburði hátíðarinnar mæti vaskir
í djassinn um helgina. Svo má
hikstalaust ráðleggja þeim sem
hafa látið sig vanta að láta sig ekki
vanta þessa lokadaga. Djassinn
verður góður og þá vantar ekki
neitt. Óaðfinnanlegt.
GS.
Vítahringur
TVíós Jemma
Tíminn hefur fyrir því heimildir að
missætti hafi blossað upp meðal
meðlima hinnar framúrstefnulegu
hljómsveitar Tríó Jemma. Mun hún
eiga við sama vandamál að etja og
hljómsveitin Drulla, sem einnig er
starfrækt í bænum. Einn hljóðfæra-
leikara, ef ekki fleiri, er víst svo arfa-
slakur að ekki er undir neinum
kringumstæðum möguleiki að æfa.
Slíkt hlýtur að vera sannkallaður
vítahringur, þar sem gera má ráð
fyrir að viðkomandi taki þá aldrei
framförum. Tíminn mun fylgjast
náið með famvindu mála innan
Tríós Jemma sem og öðrum stór-
sveitum undirheimanna.
I jsiipfekít:}? 3 .i'Lr.ctíhh.'?.' ,'íþ.GS.
Poison.
V/ 'j
Quireboys.
QUIREBOYS
Slaughter.
Slaughter
ín heitir í höfuðiö á höfuðpaur sveitarinnar, Mark Slaughter, sem
jafnframt er söngvari. Ásamt honum eru » sveitinni Dana Strura
sem leikur á bassa, Tim Kelly gítarleikari og Bias Elias trommu-
ieikari.
og er þar um ansi hreint frambæriiega skífu aö ræöa.
Lögin á skífunni eru öll eftir Mark Slaughter og Dana Strum.
Hijómsveitín var nánast óþekkt þar tii fyrir nokkru að hún fór í
hljómleikaferð með hljómsveitinni Kiss og þá fóru hjóiin að snúast
og hefur hún á skömmum tíma aflað sér gífurlegra vinsælda.
Það er tæpt ár síðan
hljómsveitin Quireboys var
hér síðast á landinu, hélt
tónleika með Whitesnake og
að margra áliti gáfu þeir
gömlu kempunum lítið eft-
ir. Piltunum í sveitinni lík-
aði dvölin hér á landi það
vei að þeir hugsuðu sig ekki
tvisvar um þegar þeim stóð
til boða að spila hér aftur.
Sveitin samanstendur af
sex mönnum. Þar skal
frægastan telja söngvaran
Spike, gítarleikarar eru Guy
Bailey og Guy Griffín,
hljómborðsleikari er Chris
Johnstone, bassaleikari er
Nigel Mogg og Rudi Rich-
man er trommuleikari.
Sveitin er bresk og var
stofnuð árið 1986. Fyrsta
og eina stóra skífa sveitar-
innar til þessa, A bit of
what you fancy, kom út í
fyrra og fékk frábærar við-
tökur. Sveitin vinnur nú að
nýrri plötu.
Thunder.
Það eru söngvarinn Danny Bowes,
gítarleikarinn Luke Morley,
trommuleikarinn Gary James,
bassaleikarinn Snake og gítar- og
hljómbqrðsleilmri qnRen Matthcwe,
»
sem skipa hljómveitina Thunder.
Thunder var stofnuð á rústum
sveitarinnar Terraplane árið 1989 og
árið eftir kom fyrsta breiðskífa sveit-
arinnar'út. .Hún 'bcr nafnið-'Back
Street Symphony og fékk hún góðar
viðtökur í BNA. Gítarleikari sveitar-
innar, Luke Morley, er aðallagahöf-
undur sveitarinnar og eru öll lögin á
^plötunni' 'efth 'hann;; után1 eitt;' stm
-fiCl?/? M'íbM ftií )d'iri'rC 1(A
er gamla Spencer Davis lagið
Gimme Some Lovin’. Óhætt er að
segja að Tlinder sé sveit á uppleið og
hafa blaðamenn tónlistartímarita
■ verið'óspárir á’hrós þdith'tíl háþdá'.