Tíminn - 07.06.1991, Blaðsíða 7

Tíminn - 07.06.1991, Blaðsíða 7
Föstudagur 7. júní 1991 Tíminn 7 VETTVANGUR Eysteinn Sigurðsson: Langskip og knerrir Nú um þessar mundir er lagt upp frá Noregi skip, sem von er á hingað til lands nálægt þjóðhátíðardeginum 17. júní. Eins og þeir vita, sem fylgjast með fréttum, er hér um að ræða eftirlík- ingu af gömlu víkingaskipi, Gauksstaðaskipinu svo nefnda, og er ferð þess heitið til Bandaríkjanna. Svo vill til að undanfarín miss- erí hef ég af óskyldum ástæðum þurft að setja mig inn í heimild- ir um siglingar víkingatímans um Atlantshafið. Meðal annars af þeim ástæðum hef ég fylgst með þeim fréttum, sem hér heima hafa veríð fluttar af skipinu og siglingu þess, af nokkurrí forvitni. Hér er annars vissulega um bæði þarft og merkt framtak að ræða. Nánar til tekið virðist manni að með þessu séu Norðmenn, reyndar með íslenskri aðstoð, að hnykkja á því enn eina ferðina að það voru norrænir víkingar sem fyrstir Vest- ur-Evrópubúa stigu fæti á land í þeirri heimsálfu, sem síðar hlaut nafnið Ameríka, og að þetta gerðu þeir eitthvað nálægt fimm öldum á undan Kólumbusi. En svo stendur á að á næsta ári eru liðin rétt fimm hundruð ár síðan hann lagði upp í fræga ferð sína frá Kanaríeyjum og fann Vesturheim eins og menn vita. Gauksstaðaskipið er langskip Gauksstaðaskipið er víst eitt fræg- asta skip frá víkingatímanum sem varðveist hefur. f>að var grafið úr jörð 1880 í nágrenni við Ósló, og raunar er þetta ekki fyrsta siglingin yfir öldur Atlantshafsins á eftirlík- ingu þess. Þegar árið 1893 sigldi norskur skipstjóri, Magnus Ander- sen, sams konar fleyi vestur um haf í tilefni af heimssýningu sem haldin var í Chicago það ár, reyndar einnig til að minnast landafúnda Kólumb- usar. Að því er heimildir um þá sigl- ingu greina lét Andersen breyta skipinu dálítið til að gera það sjó- hæfara. Ferðin gekk svo í alla staði prýðilega, og reyndist Gauksstaða- skipið samkvæmt þessu hafa verið hið besta sjóskip, gekk í liðugum vindi þetta 7-8 hnúta eða sjómílur og fór upp í eina ellefu hnúta þegar best lét. En þó að síður en svo sé ástæða til að gera lítið úr því framtaki að minna með þessum hætti á sigling- ar forfeðra okkar um Atlantshafið, þá má samt ekki láta það skyggja á þá staðreynd að Gauksstaðaskipið er um margt ólíkt þeim fleyjum, sem forfeður okkar hafa notað þeg- ar þeir voru að flytja búferlum hingað frá Noregi. Gauksstaðaskip- ið er nefnilega langskip, og slík skip voru ekki notuð við úthafssiglingar á þessum tíma. í stað þeirra voru notaðir knerrir, sem voru töluvert öðru vísi. Munurinn á þessum tveim teg- undum skipa fólst fyrst og fremst í því að langskipin voru snúninga- liprari, léttari og öll burðaminni. Knerrirnir voru aftur á móti sterk- byggðari, þyngri í vöfum, en jafn- framt burðameiri og þoldu betur úthafsöldurnar. Að því er manni skilst af umfjöllun fræðimanna um þetta, þá hefur Gauksstaðaskipið verið eitthvað í líkingu við það sem nú á dögum er víst kallað fjölnotaskip. Með öðrum orðum skip höfðingja, sem hentað gat til margs konar nota. Það hefur trúlega, eins og önnur langskip, fyrst og fremst verið smíðað með það fyrir augum að notast við strandsiglingar í kringum Noreg og í Eystrasalti. Það var vissulega býsna stórt af langskipi að vera, en fyrst og fremst var það þó létt og grunnskreitt, því mátti róa, og á því voru sextán árar á hvoru borði. Nánar til tekið eru mál Gauks- staðaskipsins þannig að lengdin er rúmir 23,3 metrar, mesta breidd 5,25 metrar og mesta hæð frá kili að borðstokk miðskips 1,95 metrar. En það, ' sem mestu máli hefur skipt, er að þegar skipið var full- hlaðið risti það ekki nema um það bil einn metra, og hefur því þrjátíu og tveggja manna áhöfn farið létt með að róa því jafnvel töluverða leið. Hefúr þess verið getið til, að á skipinu hafi verið gert ráð fyrir tvö- faldri áhöfrí, sextíu og fjórum skip- verjum, þannig að hægt hafi verið að hafa þar vaktaskipti líkt og í dag tíðkast á millilandaskipum. Hér var því á ferðinni dæmigert samgöngutæki norsks höfðingja, fyrst og fremst ætlað til þess að auðvelda honum að komast sem hraðast leiðar sinnar, og gat auk þess dugað vel í hemaði. En sem flutningaskip á úthafinu var það alls ekki smíðað. Hitt er svo annar handleggur að skipasmíðatækni norrænna víkinga var komin á það stig þama, að í ljós kom síðar að skip sem þetta gat dugað aldeilis prýðilega til úthafssiglinga líka. En það verður að draga það stórlega í efa að þetta skip, eða önnur slík, hafi nokkru sinni klofið úthafsöld- ur Norður- Atlantshafsins eða sést í námunda við íslandsstrendur, fyrr en þá árið 1893. Knörrinn En skipin, sem notuð vom til sigl- inga hingað til lands, vom töluvert öðm vísi. Beinar lýsingar á þeim em að vísu fátíðar í fornum bókum okkar; þar er höfundum tamara að rekja hetjuskap og dáðir en að segja frá jafn hversdagslegum fyrirbær- um og skipum sem allir þekktu. En mesta vitneskju um knerri höfum við hins vegar af skipi sem fyrir ná- lægt þremur áratugum var tekið upp af sjávarbotni í Hróarskeldu- firði í Danmörku. Það skip er nú á safni þar ytra, og fer það ekki á milli mála að þar er dæmigerður vík- ingaknörr á ferðinni af þeirri gerð sem siglt var á til íslands. Og reyndar hefur líka verið gerð eftirlíking af þessu skipi, líkt og Gauksstaðaskipinu, og henni siglt töluvert víða um heimshöfin. Það mun hafa verið gert árin 1983-86, skipið nefnt því nútímalega nafni Saga Siglar, og mun það reyndar vera annað af tveimur öðrum vík- ingaskipum, sem í yfirstandandi leiðangri eiga að fara með flutn- ingaskipi vestur um haf, að því er sagt hefur verið í fréttum, og sigla þar um með Gauksstaðaskipinu. Að því er heyrst hefur er þessi knörr hið besta sjóskip, svo sem við er að búast. En sé mið tekið af knerrinum í Hróarskeldu, þá eru mál hans tölu- vert önnur heldur en Gauksstaða- skipsins. Hann er fyrir það fyrsta styttri og kubbslegri, aðeins 16,5 metrar, einnig mjórri, eða 4,5 metr- ar, og hæð miðskips að borðstokk er 1,9 metrar. En mestu munar að djúprista knarrarins fullhlaðins hefur verið töluvert meiri, eða allt að hálfur annar metri. Að því er sér- fróðir menn við Stýrimannaskói- ann í Reykjavík hafa sagt mér þá hefur hér trúlega verið á ferðinni skip með allt að 25-30 tonna burð- argetu. Um knerrina er það einnig vitað að á þeim hafa verið eins konar þilför fremst og aftast. Miðskips hefur á hinn bóginn verið líkt og opin lest, allt niður í kjöl, og þar var farmin- um komið fyrir, jaftit vörum sem búfénaði. Yfirbygging hefur engin verið á þessum skipum, né heldur svefnstæði fyrir þá sem innanborðs voru. Helst er talið að þar hafi fólk verið með húðföt eða svefnpoka úr skinnum, sem sofið hafi verið í og veitt hafi hlíf fyrir sjávargangi og veðri. En hvað sem því Iíður þá hlýtur vistin þarna um borð oft að hafa verið meir en lítið kulsöm. Seglskip Sameiginlegt báðum þessum skipagerðum var að á þeim var all- stórt þversegl á mastri miðskips. Eftir heimildum er svo að sjá að víkingar hafi kunnað ákaflega vel að beita siíkum seglum, jafnt undan vindi sem þegar sigla þurfti beiti- vind. En væri vindur á móti var ekki um annað að ræða á knörrun- um en að leggja þeim í rétt, láta þá reka, uns vindátt breyttist eða þá að leita annarrar hafhar en ætlað hafði verið. Það sem skildi á milli þessara tveggja skipagerða var það að lang- skipinu mátti róa, en knerrinum ekki. Til þess var hann allt of djúp- skreiður og þungur á bárunni, og auk þess hafa knerrir að öllum jafn- aði verið töluvert meira hlaðnir og þess vegna miklu þyngri á sér en langskipin. Þegar knörrunum var siglt á milli landa var því eingöngu treyst á segl- in. Á þeim voru ekki einu sinni ára- göt, nema örfá fremst og aftast sem nota mátti ef áhöfnin vildi færa skip sitt um set innan hafhar eða því um líkt. En úti á hafi var þeim ekki ró- ið. Þar var eingöngu treyst á seglin. Áramar Það, sem þannig hefur skilið fyrst og fremst á milli langskipa af gerð Gauksstaðaskipsins og knarranna, er lipurleikinn sem langskipin höfðu fram yfir. Þetta skýrist best með dæmi. Þegar nýja Gauksstaða- skipið nálgast ísland í ferð sinni hingað mætti hugsa sér að það lenti í mótvindi þegar það færi hér vest- ur með suðurströndinni eða þegar það nálgaðist Reykjanesið. Hinn norræni knöm varf-utningaskip víkinga, þyngri og sterkari en venjuieg víkingaskip, um 18 metrar á lengd, 5 á breidd, úthafsskip í siglingum til fslands. Mynd: Skipabók Fjölva Ef um borð væru 32 eða jafnvel 64 röskir ræðarar, af ætterni víkinga, þá hefðu þeir þann möguleika að setjast undir árar og róa skipi sínu sem leið liggur til Reykjavíkur. Þeir myndu þá byrja á að fella þversegl- ið, og trúlega mastrið líka, sem var hægt á þessum skipum. Skip af langskipagerð var grunnskreitt og létt á bárunni. Þess vegna var það að fomu tiltölulega lítið mál að koma slíku skipi áleiðis með róðri, þó að byr væri ekki sá sem óskað var. Á knörrunum gegndi hins vegar allt öðru máli. Þeir ristu dýpra, voru yfirleitt með töluvert þyngri og meiri farm, og þess vegna var tómt mál að tala um að koma þeim ieiðar sinnar öðru vísi en undan hagstæðum vindi. Dæmigerð áhöfn knarrar á víkingaöld hefði aldrei haft neina minnstu möguleika á því að koma skipi sínu til dæmis að sunnan fyrir Reykjanesið og inn til þess staðar sem nú heitir Reykjavík, ef svo hefði hist á að vindur væri þar vestan- eða norðvestanstæður. Þá hefði þessi áhöfn verið vægast sagt illa stödd, því að möguleikarnir hefðu engir verið aðrir en að leggja skipinu í rétt og bíða þess að vindátt breyttist, eða þá að snúa við og leita hafnar annars staðar, til dæmis á fjölsóttri höfn sem þá hét Eyrar, en nú heitir Eyrarbakki. Þetta er líka af fræðimönnum tal- in skýringin á því að þegar menn komu frá útlöndum að fornu, þá er þess víða getið að þeir hafi tekið land jafhvel alllangt frá væntanleg- um ákvörðunarstað sínum. Með öðrum orðum, menn tóku ekki þá áhættu að sigla knörrum sínum með ströndinni og eiga kannski á hættu að lenda í ómældum erfið- leikum við að komast til einhverrar tiltekinnar hafnar. Það er sem sagt svo að sjá að knerrirnir hafi fyrst og fremst verið gerðir fyrir úthafssiglingar, en þeg- ar kom að landi þá hafi róðurinn þyngst í eiginlegri merkingu. Skipagerðartækni víkinga virðist ekki hafa verið komin á það stig að þeir hafi ráðið við það verkefni að smíða sér skip, sem jöfnum hönd- um hafi dugað til úthafsflutninga og strandsiglinga. Ekkí dæmigert víkingaskip Af þessum ástæðum verður að vara sterklega við því að telja Gauksstaðaskipið vera dæmigert ís- lenskt/norskt víkingaskip, af sömu tegund og þau sem forfeður okkar. landnámsmennirnir, sigldu á hing- að. Þegar að er gáð er nefnilega ljóst að svo er alls ekki. Um burðargetu Gauksstaðaskipsins eða eftirlíking- ar þess hef ég ekki séð nákvæmar upplýsingar, en í meira lagi vafa- samt má telja að það myndi duga eins vel og Hróarskelduknörrinn til að flytja heila búslóð, með hestum, kúm, kindum og öllum búsgögn- um, frá Noregi til íslands. Hin blákalda og harða staðreynd málsins er hins vegar sú að það voru þess konar flutningar, sem menn á níundu og tíundu öld stunduðu á skipum sínum. Og til þess hefðu langskip á borð við Gauksstaðaskipið ekki hentað. Þau voru smíðuð til allt annarra nota, eða sem hraðskreið, örugg og þægi- leg samgöngutæki þeirra, sem með völdin fóru, meðfram ströndum Noregs og þar um slóðir. Hætt við misskilningi Eins og ég gat um vil ég síst af öllu verða til þess að gera lítið úr því framtaki, sem liggur að baki þeirri siglingu eftirlíkingar Gauksstaða- skipsins sem nú stendur yfir. En ég held að engum sé greiði gerður með því að telja börnum, ungling- um né öðrum trú um að hér sé dæmigerð víkingasigling á ferð- inni. Þessi ferð er greinilega tölu- vert öðru vísi en þær sem þeir fóru. Þess vegna held ég að hér heima sé okkur hollast að fara varlega í að nota þetta skip sem tilefni til álykt- ana um víkingasiglingar að fomu. Það dylst vissulega engum að áhafnir knarranna hafa hlotið að vera afburðasjómenn. Þeir sigldu langar leiðir yfir hafið á tækjum og við aðstæður, sem voru svo frum- stæðar samanborið við millilanda- skip nútímans að ekki er saman líkjandi. Meðal annars er talið full- víst að áttavitar hafi ekki komið til sögunnar í siglingum hér við land íyrr en í fyrsta lagi á þrettándu öld. Þegar landi sleppti höfðu þessir menn því fátt annað en sól og stjörnur til að marka áttir eftir. Staðreyndin er sú að sigling á full- fermdum knerri hefur út af fyrir sig hlotið að vera töluvert meira afrek heldur en sigling á létthlöðnu lang- skipi af gerð Gauksstaðaskipsins, og það þótt yfir úthaf væri. Þess vegna virðist manni að í rauninni sé þessi sigling eiginlega ekki sama afrekið og þau sömu tegundar, sem víking- arnir unnu árlega hópum saman hér á hafinu í kringum landið á ní- undu og tíundu öld.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.