Tíminn - 08.06.1991, Qupperneq 12

Tíminn - 08.06.1991, Qupperneq 12
20 HELGIN Laugardagur 8. júní 1991 HULUNNISVIPT AF ORLOGUM KOREONSKU ÞOTUNNARl Izvestia hefur nvleaa birt 17 qreina flokk um málið bar sem nvjar oa óvæntar staðrevndir koma fram Heimurinn stóð á öndinni þegar fréttist að kóreönsk farþega- þota, er villst hafði inn á sovéskt yfirráðasvæði, hefði verið skotin niður með 269 manns innanborðs árið 1983. Lítill minnihluti gerði þó hvað hann gat til þess að búa til afsakan- ir fyrir gjörðir Sovétmanna. í greinum og bókum leiddu þess- ir menn rök að því að Bandaríkjunum væri að réttu lagi um það að kenna hvernig fór. Þeir sögðu að vélin er flaug þetta flug, KAL 007, hefði í rauninni verið í njósnaerindum, eins og Sovétmenn héldu fram. Sérfróðir menn um „njósnir úr Iofti", sem áttu um það að velja að trúa Sovétmönnum eða Bandaríkjamönnum, lögðust á sveif með þeim fyrrnefndu. En nú hallar undan fæti fyrir þeim í þessu efni. Því veldur nýleg umfjöllun um málið í sovéskum blöðum. Þann 21. desember hófst í Izvestia greinaflokkur um KAL 007 flugið, er birst hefur í 17 hlutum og er þar veist að yfirhilming- um og tilbúnum frásögnum sovéskra yfirvalda. Umsjón með greinaflokknum hefur Andrey Ulesh ritstjóri haft og starfslið hans hefur varið þúsundum vinnustunda til rannsókna. Viðtöl hafa verið tekin við menn innan og utan Sovétríkjanna og mik- ið af skjölum hefur verið athugað. Tugir sovéskra borgara hafa leyft að láta geta sín með nafni, þótt opinberir aðilar og hernað- aryfirvöld neituðu allri samvinnu. Eigi að síður verða hinar op- inberu sovésku skýrslur ærið tortryggilegar í Ijósi greina Iz- vestia. í blaðinu þann 24. og 25. janúar birtist ítarlegt viðtal við flug- mann þann er vélina skaut niður, Gennadi Osipovich höfuðs- mann. Hann játar fúslega að hann hafi séð að vélin var ekki bandarísk könnunarvél af gerðinni RC-135, en Sovétmenn hafa haldið fram að þeirar gerðar hafi þeir talið vélina vera. (Osipov- ich segir þó að hann hafi álitið að þetta væri annars konar njósnavél). Hann segir enn að sér hafi verið uppálagt að segja ósatt frá atvikinu. Honum var sagt að segja að hann hefði sent út viðvörun á neyðarbylgju, þótt hann gerði það aldrei. Enn átti hann að bera að Ijós vélarinnar hefðu verið slökkt, þótt hann hafi séð að þau loguðu. Hann átti líka að segjast hafa skotið að- vörunarblysum, þótt engin slík væru um borð í vél hans. Dagana 29. og 31. janúar og 1. og 5. febrúar sagði blaðið svo ítarlega frá neðansjávarleit Sovétmanna. Fundu þeir flakið og þar á meðal „svarta kassann" svonefnda, sem geymdi upplýs- ingar um allt er gerðist á fluginu uns vélin fórst. Til þess að leiða Bandaríkjamenn afvega vörpuðu Sovétmenn niður sendi er gaf frá sér villandi hljóðmerki úr hafdjúpinu. Ljóst er að í flakinu fundu Sovétmenn ekkert er gaf vísbendingu um að vél- in hefði átt að stunda njósnir. Greinaflokkurinn hófst með viðræðum við Pyotr nokkurn Kirsanov flugmarskálk um fráleita kenningu sem franskur flugmaður, Michel Brun, var höfundurað. Brun taldi að Sovét- menn hefðu í raun réttri skotið niður bandaríska RC-135 vél og í fátinu vegna þess atburðar hefðu bandarískar vélar grandað farþegaþotunni af misgáningi. Þessi kenning vakti mikla at- hygli í Evrópu og var nákvæmlega frá henni skýrt í Prövdu og í Bandaríkjunum. Kirsanov marskálkur hafnar kenningunni sem „fráleitri", „enda fundum við vélina", segir hann. Það var heiminum hins vegar ókunnugt um, því Sovétmenn létu þetta ekki uppskátt, uns Izvestia sagði frá því. Fjöldi höfunda, er rituðu um málið á Vesturlöndum og rann- sökuðu það eftir föngum, voru ekki í vafa um að sovésku flug- mennirnir hefðu margsinnis varað kóreönsku vélina við á neyðarbylgju. Þeir vefengdu líka segulbandsupptökur þær, er fram voru lagðar við rannsókn málsins, og töldu að þær hefðu verið „stórlega lagfærðar" til þess að styrkja túlkun Reagan- vélina við. Hann deplaði ljósum sínum nokkrum sinnum, en áttaði sig á að þaö mundu flugmennirnir ekki geta séð. Margir vestrænir skýrendur kváðust telja afar líklegt að kóreanska vél- in heföi verið með Ijós sín slökkt. En Osipovich segir þau hafa verið kveikt eins og vera bar. Enn er komið að þeirri fullyrðingu Sovétmanna að flugmaður þeirra hafi skotið viðvörunarblysum. Einn vestrænn höfundur sagði líka að segulböndin hefðu sannaö þá fullyrðingu og að viðvörunarblys hefði þotið hjá aftan við farþegavélina. NBC- kvikmynd um atvikið (,,Shootdown“) sýndi líka slík aðvörunar- skot fljúga. En Osipovich gat ekki betur gert en hleypa af vél- byssum vélar sinnar í nokkur skipti áður en hann skaut eld- flaugunum. En líkt og er hann deplaði ijósunum vissi hann að Bandaríkjunum að engin von væri til að Sovétmenn hefðu fundið „svarta kassann" á undan Bandaríkjamönnum, því tækni til leitar neðansjávar væri svo miklu fullkomnari hjá þeim síðarnefndu. Var enda víða álitið að Bandaríkjamenn hefðu snemma haft uppi á kassanum og leyndu fundinum, enda geymdi hann óþægilegar staðreyndir. Allt hefur þetta reynst al- rangt. En þrátt fyrir upplýsingar Izvestia má ætla að getgátur áður- nefndra höfunda á Vesturlöndum verði lífseigar. Tilgáturnar um „njósnaflug" munu að líkindum safnast í flokk með sögum á borð við þær að ameríski flugherinn hafi náð fljúgandi diski með allri áhöfn á sitt vald og að Bretadrottning stjórni allri eit- urlyfjaverslun í heiminum. Meðan hugrakkir, sovéskir borgar- allt er þetta fásinna. Hann segist aldrei hafa varað kóreönsku vélinni. Þá var því margsinnis haldið fram á Vesturlöndum og í hinir sjálfskipuðu spekingar augunum aðeins fastar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.