Tíminn - 15.06.1991, Qupperneq 3
Laugardagur 15. júní 1991
Tíminn 3
///'
Landshlaup FRÍ hefst 17. júní:
í kringum landið
Hlaupið
Annað Landshlaup FRÍ hefst á
mánudaginn kemur, 17. júní.
Hlaupið hefst í Hljómskálagarð-
inum í Reykjavík kl. 13.55, en
þaðan verður hlaupið suður í
Kópavog, Garðabæ og Hafnar-
fjörð og áfram Krísuvíkurleið-
inu, síðan um Suðurland og
sem leið liggur kríngum landið.
Það eru félagar í héraðssam-
böndum eða aðildarfélagum ÍSÍ
sem hlaupa, en hlaupið er allan
sólarhringinn. Reiknað er með
að hlaupinu ljúki á Laugardal-
svellinum í Reykjavík 27. júní.
Þetta er í annað sinn sem
Landshlaupið fer fram, en árið
1979 tóku um 6000 manns þátt í
því og þá voru hlaupnir 2500 km.
Nú verða um það bil 2900 lagðir
að baki og vonast forsvarsmenn
hlaupsins til þess að ekki færri
en 6000 manns taki þátt í þessu
skemmtilega verkefni.
Megintilgangurinn með hlaup-
inu er að hvetja almenning til
hreyfingar og útivistar. í sam-
bandi við hlaupið hafa verið út-
búnir bolir með merki hlaupsins
og verða þeir seldir um allt land.
Þá hefur verið gefið út blað í til-
efni Landshlaupsins, en meðal
efnis í því er upprifjun frá hlaup-
inu 1979 í máli og myndum.
Hlaupið hefst eins og fyrr
greinir í Hljómskálagarðinum
kl. 13.55 á þjóðhátíðardaginn en
í tímaáætlun hlaupsins er gert
ráð fyrir hlaupurunum á eftir-
töldum stöðum og tímum: 17.
júní: Kópavogur kl. 14.10,
Garðabær kl. 14.40, Hafnarfjörð-
ur kl. 15.10, Krísuvík kl. 17.10,
Þrengslavegamót kl. 20.40,
Hveragerði kl. 21.40, Selfoss kl.
22.40. 18 júní: Þjórsá kl. 00.30,
Hvolsvöllur kl. 03.05, Jökulsá kl.
08.00, Kirkjubæjarklaustur kl.
17.50. 19. júní: Fagurhólsmýri
kl. 01.20, Höfn kl. 10.40. 20.
júní: Egilsstaðir kl. 12.30,
Vopnafjörður kl. 21.30. 21. júní:
Þórshöfn kl. 03.20. Húsavík kl.
21.35. 22. júní: Akureyri kl.
04.20, ólafsfjörður kl. 09.50,
Sauðárkrókur kl. 18.50.23. júní:
Blönduós kl. 01.35, Hólmavík kl.
18.20. 24. júní: Súðavík kl.
13.00, ísafjörður kl. 14.50, Þing-
eyri kl. 19.45. 25. júní: Patreks-
fjörður kl. 07.05, Flókalundur
kl. 12.10. 26. júní: Búðardaldur
kl. 06.30, Stykkishólmur kl.
13.50, Grundarfjörður kl. 17.55.
27. júní: Borgarnes kl. 05.30,
Akranes kl. 08.45, Hvalfjarðar-
botn kl. 12.35, Mosfellsbær kl.
17.10 Elliðaár kl. 18.00, Laugar-
dalsvöllur kl. 18.15.
BL
Einar Farestveit & Co.hf. Borgartúni 28 S 622901 og 622900
SUMAR
TILBOÐ!
Stórglæsileg eldavél meö
qlerhelluborði. aerð HSC 604:
Stækkanleg hitaplata og hitavið-
vörun * Sjálfhreinsandi blásturs-
ofn með grilli, yfir- og undirhita *
Tvöföld ofnhurð með öryggislæs-
ingu * Loftkælt rofaborð * potta-
geymsla og margt fleira.
Fullt verð áður kr. 9&900
Tilboðsverð nú kr. 76.165s.gr
Visa og Euro kjör/engin útborgun.
Góður niotur
er betri u gnUi
Gómsætar ^órstó^bemta 9"^..t
Orvals naatakjot. I vekja athy
Hin stórglæsilegu k|oœo.
££*». a -* ***» blöðrur m hsljtoef
Mikligarður Miðvangi og
Sunnudagur Miðvangi og Garðabæ kl. 11-«
Mikligarðurvestunbæ.M
LOKAÐ 17.0UNI
3 KAUPSTADUR
ÍMJÓDD
AWQJG4RDUR
ALLAR BÚÐIR