Tíminn - 15.06.1991, Blaðsíða 7

Tíminn - 15.06.1991, Blaðsíða 7
Laugardagur 15. júní 1991 HELGIN 15 að sínu verki án þess að stynja eða hafa yfir harmatöíur. Ekki er það af því að við höfum ekki fundið til held- ur hinu, að reynt hefir verið að fara eins vel með sársaukann og unnt er. Það hefir verið reynt að brosa gegn- um tárin. Það hefir verið reynt að hughreysta aðra þó tæpt hafi verið um fótfestu fyrir sjálfan hvem. Þessi máttarstoð þjóðfélagsins að fara vel með sársaukann hefir alls ekkert látið á sjá í meðförum núlif- andi íslendinga, og ég fæ ekki betur séð en þeim ætli að lánast að skila henni algerlega óskemmdri til næstu kynslóðar. Þá kem ég að þriðja atriðinu og síð- asta í svari mínu. Ég nefni það ekki síðast af því að það sé síst heldur af því mér fmnst hugnæmast að ljúka þar máli mínu og svo er þangað ekki nema eitt fótmál frá sársaukanum, en það er átrúnaður þjóðarinnar eða samband við guðlegan mátt. Það er ekki ónefni þó hinir miklu sjáendur meðal mannanna hafi kall- að ýmis lögmál, sem lífið lýtur og kröfur, sem það gerir til okkar boð- orð Guðs eða lögmál Guðs því það er allstaðar og ávallt hið sama. Það má draga glögga markalínu milli þess og mannlegra laga sem háð eru sífelld- um breytingum og viðaukum. Hið ytra form guðsdýrkunarinnar hjá okkur hefir verið með ýmsu móti frá fyrstu tíð því við höfum verið heiðnir, katolskir og Lutherstrúar. Þó er það ætlun mín að hin dulda þrá mannanna eftir samfélaginu við Guð sé í eðli sínu hin sama á öllum tímum. Ekki er þetta gripið alveg úr lausu lofti. Það eru mörg hundruð ár síðan heiðinn íslendingur lét á bana- dægri bera sig út úr híbýlum sínum og fól sig þeim Guði sem skapað hefði sólina. Um þetta hefir eitt af öndvegisskáldum okkar ort eitt af sínum bestu ijóðum. Það byrjar svona: Svo geti minn á geislum andi um gullna héðan farið braut þegar jarðarlífs af landi legg ég heim í föðurskaut. ísólskini ég sofna vil seinast þegar við ég skil. (Sálmabók) í sálmabókinni á eitt af skáldum síð- ustu kynslóðar fjóra frumsamda sálma. Tvær ljóðlínur í einum þeirra eru svona: Víð sérhvað sem éggeri, ó, sólarherra veri þín ásýnd yfir mér. Ég get ekki gert upp á milli þessara manna þó mörg hundruð ár séu á milli þeirra. Svo segir skáldið: Allt lifandi lofsyngur þig hvert bam, hvert blóm, þó enginn skilji eða skynji þinn skapandi leyndardóm. Við altari kristinnar kirkju við blótstall hins heiðna hofs er elskað óskað og sungið þér einum til lofs. (Davíð Stefánsson) Eitt fótmál frá sársaukanum til sambandsins við hina æðstu veru. Sá sem reynir að fara vel með sásrauka sinn í þeim skilningi sem ég legg í það verður að vissu leyti einmana. Hann þarfnast aðstoðar en hlífist við að leita hennar meðal mannanna. Liggur þarna að mínu viti ein aðal- ástæðan til Guðsdýrkunarinnar. Það er til mörg íslensk vísan sem bendir til að höfundurinn er út af fyrir sig með sársauka sinn, eins og þessi: Það er hart í heiminum hvimleitt margt er við hann að þegja og kvarta aldrei um eigin hjarta sviðann. (Jón Bergmann) Og svo þetta vísubrot: Hvað hugur minn þó í húmi leit og hugsanir mínar enginn veit oss fylgir svo margt í moldu. (Matthías Jochumsson) Margur sálmurinn ber það með sér að eina athvarfið í sársaukanum er Guðstrúin. Og svo er líka margt kvæðið til og vísan sem hnígur í sömu átt. Átrúnaður okkar hefir oftlega verið borinn uppi af yfirburðamönnum. í meðförum þeirra hefir hann orðið ein af máttarstoðum þjóðfélagsins. Hjá þeim hafa vitsmunir þróttur og sannleiksást ráðið stefnunni og það hefir gert hann affarasælan. Einn biskupanna er talinn hafa ver- ið bæði konungur og biskup yfir landinu meðan hans naut við, svo mikið sópaði að honum. Eitt sálmaskáldið okkar segir að höf- undur núverandi átrúnaðar okkar geri kröfu til að kenningin sé hrein og klár lík hvellum lúðurhljómi. Vissulega mun lúðurhljómur Passíu- sálmanna aldrei fymast íslendingum og ávallt verða dýrmætur stuðningur andlegri afkomu þeirra. Hann mun því jafnlengi yfirgnæfa önnur hljóð svo sem skrölt vélanna og öskur stjómmálanna, jafnvel þó hvor- tveggja eigi eftir að hækka frá því sem nú er. Á öllum tímum hafa verið uppi menn sem ráðist hafa á átrúnaðinn. Ekki er því að leyna að mannkynið er búið að hlaupa þar margt gönuskeið- ið. Og það er búið að misnota átrún- aðinn til þess ítrasta eins og allt ann- að undir sólinni. Það er búið að heyja marga trúmálastyrjöldina þar sem þau hafa verið höfð á oddinum til að dylja með landvinningastefnur. Nú er mannkynið horfið frá trúmálastyrj- öldum. Nú er barist um þjóðmála- stefnur. Möndulveldin berjast til þess að kommúnisminn flæði ekki yfir heiminn. Sameinuðu þjóðimar berj- ast til að létta oki nasisma og fasisma af veröldinni. Við eigum sem stendur einstaka áhrifamenn sem veitast að átrúnaðinum með lævísu spotti. Þeim má á hverjum tíma skipta í tvo flokka. Það getur hver sem er gengið að listaverki og rifið það niður. Það getur ekki hver sem er gert það sama og komið með annað betra í staðinn. Okkar menn em í fyrri flokknum. Eitt af þróttmestu kvæðum Hannes- ar Hafstein og að ýmsu leyti eitt hið glæsiiegasta er Aldamótin. Það er í fjómm köflum. Síðasta vísan í þriðja kaflanum er um djarfar hugsjónir sem nú em óðum að rætast: Si ég í anda knör og vagna knúða krafti sem vannst úr fossa þinna skrúða. Stritandi vélar, starfsmmn glaða og prúða stjómtrjálsa þjóð með verslun eigin búða. (Hannes Hafstein) En svo byrjar hann fjórða kaflann með því að sveifla sér í allt annan hugarheim. Jeg vil leggja leið mína þangað með honum: íslenskir merm hvað öldin ber í skildi enginn fær séð bve fegirm sem hann vildi. Eitter þó víst hún geymir Hel og Hildi hlífí. þér œttjörð Guð í sirmi mildi. (Hannes Hafstein) Skrífað í bakarfinu á Þing- eyri á friðsælum kvöldum haustið 1944. Jón Ólafsson. 17. JUNI 1991 Dagskráin hefst. Kl. 955. Samhljómur kirkjuklukkna i Reykjavík. Kl. 10°°. Forseti borgarstjórnar, Magnús L. Sveinsson leggur blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar í kirkjugarðinum við Suðurgötu. Lúðrasveit Verkalýðs- ins leikur: Sjá roðann á hnjúkun- um háu. Stjórnandi: Malcolm Holloway. Við Austurvöll. Lúðrasveit Verkalýðsins leikur ættjarðarlög á Austurvelli. Kl. 1040. Hátiðin sett: Júlíus Hafstein, borgarfulltrúi, flytur ávarp. Karlakór Reykjavíkur syngur: Yfir voru ættarlandi. Stjórnandi: Friðrik S. Kristinsson. Forseti Islands, Vigdis Finnboga- dóttir, leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni aö minnisvarða Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. Karlakór Reykjavikur syngur þjóðsönginn. Ávarp forsætisráðherra, Davíðs Oddssonar. Karlakór Reykjavikur syngur: Island ögrum skorið. Ávarp fjallkonunnar. Lúðrasveit Verkalýðsins leikur: Ég vil elska mitt land. Kynnir: Valgeröur A. Jóhanns- dóttir. Kl. 1115. Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Prestur séra Jón Dalbú Hróbjarts- son prófastur. Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins H. Friðriks- sonar. Einsöngvari: Signý Sæmundsdóttir. ATH! Vegna gatnaframkvæmda og lokana verður akstur aö Alþingishúsi og Dómkirkjunni um Suðurgötu og austur Kirkjustræti. (þróttir. Kl. 0830. Friðarhlaup frá Þingvöllum I Hljómskálagarð. Forseti borgar- stjórnar tekur á móti hlaupurunum á sviði I Hljómskálagarði um kl. 1350. Kl. 1355. Landshlaup FRl. Hlaup hefst i Hljómskálagarði og hlaupið verður umhverfis Island. Skrúðgöngur frá Hlemmi og Hagatorgi. Kl. 1320. v- Safnast saman á Hlemmi. | Kl. 1340. Skrúðganga niður Laugaveg aö Lækjarlorgi. Lúðrasveit Reykja- víkur leikur undir stjórn Eiríks Stephensen. Kl. 1330 ÍSafnast saman við Hagatorg. Kl. 1345. Skrúðganga frá Hagatorgi í ÍHIjómskálagarð. Lúðrasveitin Svanur leikur undir stjórn Roberts Darling. Skátar ganga undir fánum og stjórna báðum göngunum. Hallargarðurinn og Tjörnin. Kl. 1300.-1800. I Hallargarði verður minígolf, leiksýning, fimleikasýning, leiktæki, trúðar o.fl. Á Tjörninni verða róðrabátar frá Siglingaklúbbi Iþrótta- og tómstundaráðs. Sýning módelbáta. Hljómskálagarður. Kl. 1400.-1800. Skátadagskrá, tjaldbúðir og útileikir. Skemmtidagskrá, skemmtiatriði, míní-tívolí, leikir og þrautir, skringidansleikur, 17. júní lestin o.fl. Brúðubíllinn. Kl. 1500. Leiksýning við Tjarnarborg. Akstur og sýning gamalla bifreiða. KI.1245. Hópakstur'Fornbílaklúbbs Islands frá Höfðabakka 9 vestur Miklubraut. Kl. 1320. Sýning á Laugavegi við Hlemm. Kl. 1335. Ekið niður Laugaveg. Kl. 1400-1500. Sýning á Bakkastæði. Götuleikhús. Kl. 1600. -1700. Sýning götuleikhússins, Leikur einn, hefst í Lækjargötu kl. 1600 og mun ferðast þaðan suður Fríkirkjuveg og í Hljómskálagarð. Reykjavíkurhöfn. Vikingaskip kemur til hafnar i Reykjavík á leið sinni frá Noregi til Vesturheims til að minnast landafunda Leifs heppna. Hátíðardagskrá. Fram koma íslenskir og norskir tónlistarmenn m.a. barnakór, hljómsveitin Islandica, Valgeir Guðjónsson, Norskur fiðlukvartett, Ludviksen, Lúörasveit o.fl. Kl. 1705. Ávarp forseta borgarstjórnar, Magnúsar L. Sveinssonar. Kl. 1715. Forseti Islands, Vigdís Finnboga- dóttir gefur skipinu nafn. Skipiö verður til sýnis almenningi að athöfn lokinni. Árbæjarsafn - Hátíðardag- skrá. Kynnt verða vinnubrögð fyrri tíma. Safnið opið frá 10^-IS00 Aðgangur ókeypis. Veitingar I Dillonshúsi við harmonikkuspil. Sjúkrastofnanir. Landsfrægir skemmtikraftar heimsækja barnadeildir Landa- kotsspítala og Landsspitala og færa börnunum tónlistargjöf. Fyrir eldri borgara. Kl. 1400.-1800. Félagsstarf aldraðra i Reykjavík gengst fyrir skemmtun fyrir ellilifeyrisþega á Hótel Islandi. Hallargarður. Kl. 1400. Lúðrasveitin Svanur. Kl. 1410. Fimleikatrúðar sýna, Fimleika- deild Ármanns. Kl. 1430. Dixiebandið Stalla-hú. Kl. 1445. Tóti Trúður. Kl. 1455. Kór Austurbæjarskóla. Kl. 1505. Gamanleikhúsið sýnir þátt úr Grænjöxlum. Kl. 1525. Leikhús í tösku sýnir Engilblíð og Dísa galdranorn. Kl. 1545. Knattspyrnuþrautír, ungir knatt- spyrnumenn sýna. Kl. 1605. Söngsystur úr Hólahverfi. Bilastæðl Háskólavöllur, B.S.I., Bakkastæði Skúlagata, Skólavörðuholt. mmm Að gefnu tilefni er vakin athygli á þvi að öll lausasala ut frá sðlutjöldum og á Þjóðhátíðarsvæðinu er stranglega bðnnuð. f)fi ■ Hljómskálagarður. Kl. 1400. Tóti Trúður. Kl. 1410. Spaugstofan sýnir leikþátt fyrir alla aldurshópa. Kl. 1430. Kór Austurbæjarskóla. Kl. 1440. Hljómsveitin Ber aö ofan leikur. Kl. 1455. Bjartmar Guðlaugsson syngur barnalög. Kl. 1510. Hljómsveitin Fjörkarlar leikur. IW^tttÉÉiÉÉataWÉiUiiiÉWatttt Ath.l Týnd börn verða í umsjón gæslufólks á Frikirkjuvegi 11. Upplýsingar í síma 622215. Kl. 1525. Möguleikhúsið sýnir Fríðu fitubollu. Kl. 1545. Gamanleikhúsið sýnir þátt úr Grænjöxlum. Kl. 1600. Dansleikur, hljómsveitin Fjörkarlar leikur. Kl. 1700. Dagskrá lýkur. ■UUiittU Lækjartorg - Þjóðlega sviðið. Kl. 1400. Lúörasveit Reykjavíkur leikur hátíðarlög. Kl. 1410. Þjóðdansafélag Reykjavíkur sýnir úrval þjóðdansa við söng og hljóðfæraslátt. Kl. 1455. Hljómsveitin Islandica. Kl. 1515. islensk sönglög. Kór Flensborgar- skóla. Kl. 1545. Harmonikkufélag Reykjavikur ásamt dönsurum. Kl. 1620. Barnakór syngur. Kl. 1635. Karatefélagið Þórshamar. Kl. 17 05 Glímusambandið sýnir íslenska glímu. i tu'jtuv :u "- Kvöldskemmtun í Lækjargötu. Kl. 2100. Sálin hans Jóns míns. Kl. 2145. Fjallkonurnar. Kl. 2155. Síðan skein sól. Kl. 2235. GCD, hljómsveit Bubba Morlhens Kl. 2305. Sálin hans Jóns míns. Kl. 2335 Fjallkonurnar. Kl. 2345. Siðan skein sól. Kl. 0015. Skemmtun lýkur. Hátíðardagskrá í Lækjargötu. Kl. 1400. Bubbi Morthens syngur. Kl. 1415. Jóhanna Linnet syngur. Kl. 1425. Möguleikhúsið sýnir Fríðu fitubollu. Kl. 1445. Leikhús i tösku sýnir Engilblið og Dísu galdranorn. Kl. 1500. Spaugstofan sýnir leikþátt fyrir alla aldurshópa. j Kl. 1520. Danshópur frá danskeppni Tónabæjar. Kl. 1525. Mai stjarnan, JSB. Kl. 1535. Atriði úr Söngvaseiði. Kl. 1550. Eyjólfur Kristjánsson og Stefán Hilmarsson syngja. Kl. 1605. Götuleikhúsið, Leikur einn, í Lækjargötu og á sviði. Kl. 1630. Hljómsveitin Júpíters. Kl. 1715. Sororicide, sigurhljómsveit músiktilrauna Tónabæjar. Kl. 1730. Stjórnin. Kl. 1900. Dagskrá lýkur. Á Þórshamarsplani. Kl. ^l00.^00. Gömlu dansarnir, Hljómsveitin Ál?i?!?L£íL-JAih?-toií..ctaosL. »1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.