Tíminn - 15.06.1991, Blaðsíða 13

Tíminn - 15.06.1991, Blaðsíða 13
Laugardagur 15. júní 1991 HELGIN 21 SAKAMAL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL Burge, yfirmaður í lögreglunni í Chicago, tók nú yfir stjórn rann- sóknar málsins sem nú var orðið talsvert flókið. Það fyrsta sem Burge gerði var að fá hóp lögreglumanna til að yfir- heyra alla starfsmenn partasölunn- ar, hvort sem þeir höfðu verið í starfi að hluta eða fullu starfi. Aðrir lög- reglumenn, sem voru í samstarfi við alríkislögregluna, komust að því að Chorak hafði verið að selja allar eig- ur sínar til að geta síðan látið sig hverfa inn í vitnavernd FBI. Chorak hafði veitt mjög mikilvæg- ar upplýsingar varðandi rannsókn bflþjófnaðanna. Margir stórlaxar í greininni voru um það bil að komast undir manna hendur fyrir hans til- stuðlan. Einn þeirra var að vísu þeg- ar dauður, Robert Subatich, 44 ára, hafði fundist skotinn til bana í skott- inu á bifreið sinni í janúar. Einn af þeim sem grunaðir höfðu verið um morðið var Chorak, en Su- batich hafði eitt sinn stungið hann með hnífi þegar þeir áttu í deilum vegna kvenmanns. Á meðan alríkislögreglan reyndi að komast að því hvort morðið á Cho- rak væri í tengslum við samstarf hans við lögregluna komu liðsmenn Burge með aðra áhugaverða tilgátu. Við yfirheyrslur yfir einum starfs- manni verslunarinnar, Bill Crosby, þeim sem hafði setið í bíl sínum fyr- ir utan verslunina daginn sem morðið var framið, var spurt hvort Chorak ætti einhverja óvini svo vit- að væri. „Hann var dauðhræddur við mann sem heitir Joe Rodish. Ég held að hann hafi skuldað Rodish peninga eða eitthvað," svaraði starfsmaðurinn. Óttaðist Rodish Við nánari athugun sá lögreglan að Rodish hafði verið á starfsmanna- skrá þar til hann var dæmdur í fang- elsi fyrir bílþjófnað og aö hafa reynt að múta fangaverði á meðan hann beið dóms í fangelsinu. En Rodish var ekki lengur í fang- elsinu. Hann var aftur og enn einu sinni laus. Þegar haft var samband við fangelsisyfirvöld kom í Ijós að Rodish hafði strokið úr fangelsinu hinn 26. janúar. Rodish slapp út með því að bjóðast til að gera við bfl eins fangavarðarins. Þegar honum voru afhentir lyklarnir, settist hann upp í bílinn og ók brott hinn róleg- asti. Þegar lögreglumennirnir könnuðu alla hugsanlega möguleika um ástæður fyrir morðinu og hverjir lægju helst undir grun bárust bönd- in æ oftar að Rodish. „Hann hefur þegar framið tvö morð, svo hann ætti ekki að kippa sér upp við það,“ sagði Burge. „Og þar að auki höfum við framburð vitnis um að Chorak hafi óttast hann.“ Lögreglumenn Burges fundu nú annað vitni, mann sem lengi hafði haft tekjur af því að leka upplýsingum í lögregluna. Larry O’Neil, en svo hét uppljóstr- arinn, samþykkti að hitta nokkra lögreglumenn og láta þeim í té þær upplýsingar sem hann bjó yfir. Hann kvaðst hafa hitt Rodish á miðviku- dagsmorgni — daginn áður en líkið fannst — og þá sagði Rodish: „Verk- inu er Iokið. Munkurinn er ekki lengur til. Ég sagði þér að ég myndi ná honum." O’Neil sagði ennfremur að Rodish, sem nú gengi undir nafninu Stanley Banick, hefði verið í blóðugum bux- um. Uppljóstrarinn kvaðst ekki vita hvar Rodish héldi sig, en hann æki um á Buick Skylark, árgerð 1981, skráningamúmer XSL515. Hann lét lögregluna einnig hafa símanúmer sem Rodish hafði afhent honum. Skráningarnúmer bifreiðarinnar var rakið til krárinnar „Hjá Flo“ sem var skammt frá þeirri krá sem Rod- ish hafði verið handtekinn í árið 1966 þegar hann var ákærður fyrir morðin á leigusala sínum og kráar- eigandanum. Símanúmerið var einnig rakið og Matsalurinn í fangelsinu þar sem Rodish borðaði og lagði á ráðin. reyndist skráð á Stanley Banick á heimilisfangi sem var rétt handan við fylkismörkin í Indiana. Sam- stundis var hafið eftirlit með báðum þessum stöðum. Daginn eftir sást bifreiðin fyrir utan krána „Hjá Flo“. Rodish var handtekinn og veitti hann talsverða mótstöðu við hand- tökuna. Þó svo að hann væri dulbú- inn — með litað hár og falskt yfir- skegg — lék enginn vafi á því að þarna var strokufanginn Joseph Rodish kominn. í annað skipti á ferli sínum var hann handtekinn fyrir morð inni á krá. „Hver kjaftaði frá?“ spurði Rodish æfareiður. „Hvernig vissuð þið að það var ég?“ í samræmi við fyrri afrek reyndist Rodish aka um á stolnum bfl. Bif- reiðinni hafði verið stolið í janúar í Crown Point í Indiana. Eigendur krárinnar voru spurðir hvernig á því stæði að stolna bifreið- in væri á skráningarnúmerum sem tilheyrðu þeim. Þau sögðu að núm- eraplötumar hefðu verið fjarlægðar af bifreið þeirra bak við húsið fyrir um það bil mánuði. Skýrslur lög- reglunnar sýndu að þjófnaðurinn hafði verið tilkynntur. Kráareigendurnir skýrðu frá því að þau hefði þekkt Rodish í um það bil þrjú ár. Þau hefðu einu sinni lánað honum 500 dollara og síðan ekki séð hann þar til hann birtist fyrir um það bil þremur vikum og greiddi þeim 200 dollara upp í skuldina. Umræddan föstudag höfðu þau boð- ið honum í mat. Hann gekk beint í flasið á lögreglunni þegar hann yfir- gaf krána eftir matinn. Þegar komið var á lögreglustöðina krafðist Rodish þess aftur að fá að vita hver hefði komið upp um hann. Burge sagði að lögreglan kynni að segja honum hver hefði kjaftað frá ef hann segði þeim í staðinn allt um morðið á Chorak. „Það er samþykkt," svaraði Rodish. Þar sem uppljóstrarinn var nú und- ir vemd alríkislögreglunnar og hafði verið fluttur úr fylkinu og fengið nýtt nafn var ákveðið að verða við beiðni Rodish og honum sagt hver hann væri. „Ég trúi ykkur ekki,“ sagði Rodish. Þá var haft símasamband við felu- stað O’Neil og Rodish fékk að tala við hann. O’Neil skýrði Rodish frá því að hann hefði skýrt yfirvöldum frá samtali þeirra hinn 2. mars þeg- ar Rodish sagði honum að hann hefði myrt Munkinn. Rodish sannfærðjst um að leikur- inn væri tapaður og var því næst fluttur á skrifstofu Burges þar sem hann skýrði frá því hvernig hann Joseph Rodish: „Ég iðrast einskis. Ég gerði það aftur ef þörf kreföi." John Burge sQómaði rannsókninni. hefði elt Chorak eins og veiðibráð áður en hann skaut hann. Fyrirbyggjandi aðgerðir Ástæðuna sagði Rodish vera þá að hann hefði frétt að Chorak hefði fengið mann til að drepa sig. Hann sagðist hafa strokið úr fangelsinu í þeim tilgangi einum að drepa Cho- rak áður en Chorak léti drepa hann. Rodish skýrði frá því að eftir að hann hafði verið handtekinn fyrir bflþjófnað þegar hann vann hjá Cho- rak hefði Chorak komið í fangelsið með 3.500 dollara til að múta verði til að hjálpa honum að flýja. Árang- urinn varð þó annar en ætlað var, þeir voru báðir kærðir fyrir mútur. Rodish fékk sex ár til viðbótar á dóm sinn fyrir bragðið en Chorak hóf samstarf við lögregluna og virtist ætla að sleppa með allt. Rodish sagðist síðar hafa frétt að Chorak hefði í hyggju að senda leigumorðingja til að drepa hann. Eftir að hafa frétt það ákvað hann að koma Chorak fyrir kattarnef. „Ég ákvað að neyta allra bragða til að komast úr fangelsinu og sýna hr. Chorak álit mitt á honum." „Hvernig hafðirðu hugsað þér að ná þér niðri á Chorak?" spurði lög- reglan. „Ég ákvað að snúa dæminu við,“ svaraði Rodish. „Gætirðu orðað þetta nákvæmar?" ,Ja, ég kálaði honum," svaraði Rod- ish. Eftir að hafa yfirgefið fangelsið í stolnum bfl kvaðst hann hafa haldið til Joliet þar sem hann yfirgaf bflinn. Síðar stal hann öðrum bfl og hélt til Chicago. Hann sagðist hafa haldið til í Chic- ago og fylgst með ferðum Choraks. Hann elti bfl Choraks milli partasöl- unnar og heimilis hans til að gera sér grein fyrir lífsmynstri mannsins. Um það bil tíu dögum fyrir morðið sagðist hann hafa brotist inn á partasöluna til að ná í .38 kalibera skammbyssu sem hann hafði falið þar þegar hann vann hjá Chorak tveimur árum áður. Síðan beið hann til að fá færi á að drepa Chorak... „en ég gat ekki lok- ið því verkefni sem ég hafði sett mér af því það komu fleiri starfsmenn áður en ég náði því og ég vildi ekki koma upp um mig.“ Allan daginn og fram á kvöld beið Rodish eftir tækifæri til að skjótast út úr felustað sínum og skjóta óvin sinn en tækifærið gafst ekki þann daginn. Að lokum yfirgaf hann partasöluna. „Ég ákvað að ná hon- um þótt seinna yrði,“ útskýrði Rod- ish. Hann ákvað að myrða Chorak þriðjudaginn 1. mars, en Chorak mætti ekki til vinnu þann dag. Hann hafði verið að skemmta sér kvöldið áður og svaf út. Rodish fór því til heimilis Choraks og fylgdist með atburðum þar. Hann komst að því að Chorak væri heima í rúmi, en vinnubfllinn hans var í innkeyrslunni allan daginn og um kvöldið. Þess vegna var hann sann- færður um að Chorak myndi mæta til vinnu á miðvikudagsmorguninn. Rodish hélt til partasölunnar klukkan hálfsex á miðvikudags- morguninn. Hann lagði bifreið sinni á bflastæði í grenndinni. Hann fór síðan inn á partasöluna og inn í skrifstofu Choraks þar sem hann beið. Um klukkan hálfníu fór hann út og faldi sig á bak við sendibfl sem verið var að rífa. Klukkan hálftíu kom Chorak og hélt inn á skrifstofu sína. „Ég kom úr felum, gekk að skrif- stofudyrunum og sneri hurðarhún- inum varlega til að gá hvort dyrnar væru ólæstar," hélt Rodish áfram frásögn sinni. „Ég ruddist svo inn í herbergið með byssuna á lofti og sagði Chorak að hreyfa sig ekki.“ Þeir deildu um það smástund hvort Chorak hefði haft í hyggju að láta drepa Rodish, en hann neitaði því harðlega. Rodish ásakaði hann þá um að vera uppljóstrara lögreglunn- ar. Chorak reyndi að afsaka sig. „Ég varð leiður á að hlusta á hann svo ég skaut hann," sagði Rodish. „Fyrsta skotið hitti hann í miðja bringuna, þó aðeins meira til hægri. Kúlan slengdi honum til hægri og hann féll á grúfu á gólfið. Áður en ég náði því að hreyfa mig, stökk hann á fætur. Mér brá dálítið en var ákveðinn svo ég skaut hann í bakið,“ hélt Rodish áfram. ,Áftur féll hann á gólfið, en náði aftur að standa upp áður en ég náði til hans. Ég fór hinum megin við af- greiðsluborðið, í kringum af- greiðsluborðið. Hann elti mig og ég skaut tveimur skotum í viðbót." Hann sagðist hafa reynt að skjóta Chorak oftar en þá hefði byssan staðið á sér. „Hann greip í mig! Við tókumst á! Leikurinn barst fram fyrir af- greiðsluborðið, yfir að veggnum, hann klóraði í mig og ég reyndi að hrista hann af mér. Ég barði hann nokkrum sinnum í höfuðið með byssunni. Við skjögr- uðum aftur bak við afgreiðsluborðið og ég held að ég hafi hrasað, alla- vega duttum við og hann ofan á mig. Ég rak hnéð í klofið á honum, velti honum af mér og þá held ég að kraftar hans hafi verið á þrotum því hann stóð ekki upp aftur." Saksóknari spurði Rodish hvort hinn deyjandi maður hefði sagt eitt- hvað þar sem hann lá á í blóði sínu á gólfinu. „Hann bað um að fá að deyja í friði og hvatti mig til að fara og reyna að forða mér,“ svaraði Rodish. Rodish kvaðst síðan hafa rifið sí- mann úr sambandi og síðan yfirgef- ið staðinn, sannfærður um að Cho- rak ætti ekki langt eftir. Síðan skýrði hann frá því að í undirbúningi fyrir morðið hefði falist að hann risti ,X“ í odd hverrar kúlu með skærum. „Til hvers gerðirðu það?“ spurði saksóknari. „Ég gerði það af því ég hélt að þá gerðu kúlurnar á hann stærri göt,“ útskýrði Rodish. Eftir að hafa skilið Chorak eftir til að deyja, hélt Rodish heim til sín og þvoði gallabuxurnar sínar sem voru blóðugar á öðru hnénu. Síðan fór hann með byssuna og henti henni í á skammt frá. Eftir að hafa skýrt frá öllum mála- vöxtum fór Rodish með Burge og sýndi honum hvar hann hafði losað sig við morðvopnið. Leitað var gaumgæfilega að vopninu, meðal annars voru fengnir kafarar til að kanna botn árinnar, en árangurs- laust. „Leðjan á botninum er tveggja til þriggja metra djúp,“ sagði Burge. „Við finnum aldrei neitt þarna niðri.“ Aftaka — ekki morð Jafnvel þótt byssuna vantaði hafði lögreglan undirritaða játningu Rod- ish. Hann var ákærður fyrir morðið á Chorak og kom fyrir rétt 30. nóv- ember. Framburður hans var spilað- ur af segulbandi fyrir kviðdóminn sem hlustaði agndofa á kaldrifjaða játningu morðingjans. Eftir að hafa hlustað á segulbands- upptökuna tók það kviðdómendur ekki langan tíma að komast að nið- urstöðu. Rodish var dæmdur sekur. Eins og áður kvaðst Rodish ekki iðr- ast neins og vildi ekki kalla drápið á Chorak morð heldur aftöku. Dómarinn ákvað að Rodish skyldi hljóta lífstíðardóm í fangelsi, en samkvæmt lögum Illinois þýðir það að hann fær aldrei reynslulausn. Joseph Rodish drepur varla fleiri menn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.