Tíminn - 16.07.1991, Side 9
Þriðjudagur 16. júlí 1991
Tlminn 9
Trollsplittskinna
íslensk uppfinning markaðssett í 22 löndum í samvinnu við danskt
fyrirtæki. Kjartan Ragnarsson:
Einfaldasta lausnin
er oftast sú besta
Málin rædd. Kjartan Ragnarsson uppfinningamaður yst til
hægri.
tryggja á sig í. Síðan er það undir
uppfinningamanninum komið í
hversu mörgum löndum hann vill
eyða peningum í einkaleyfi. Menn
þurfa þá að gera það upp við sig
hvort varan sé þess eðlis að vitur-
legt sé að fjárfesta í henni í einka-
leyfum. Það er upphafstíminn sem
gefur svigrúm til þess að hugsa
það mál.
Á meðan einkaleyfið er í gildi get-
ur enginn lagt inn umsókn fyrir
sömu hugmynd í öðru aðildarlandi
einkaleyfa. Einkaleyfaskrifstofur
vernda það að annar aðili geti nýtt
sér hugmyndir annarra. -js
Grjóthopparalengja
í tilefni af opnun Einkaleyfastofunnar þann 1. júlí sl., var haft
samband við Kjartan Ragnarsson, uppfinningamann í Grindavík,
sem lagt hefur inn umsóknir um einkaleyfi fyrir þær vörur, sem
hann hefur fundið upp og framleiðir hjá fyrirtæki sínu, K. Ragn-
arsson hf. Meðal þeirra eru fiskilínutengi til þess að tengja troll
við grjóthopparalengju.
Kjartan segir fiskilínutengið sér-
stakt fyrir þær sakir hversu einfalt
það er. I rauninni hafi hann
dreymt þessa einföldu lausn. Áður
voru notaðir svokallaðir „patent-
Iásar" til að festa trollið við grjót-
hopparalengjuna. Það er mjög
seinlegt að vinna með þessa lása,
bæði að setja þá saman og eins að
ná þeim sundur. Hins vegar tekur
það aðeins um 10 mínútur að losa
allt trollið frá grjóthopparalengj-
unni með fiskilínutengjunum
hans Kjartans.
Salan hefur gengið mjög vel hér
heima. Samvinna hefur auk þess
tekist við fyrirtækið The Blue Line
í Danmörku, sem framleiðir teng-
in í fjöldaframleiðslu. Nú þegar
hefur The Blue Line hafist handa
um að markaðssetja uppfinningar
Kjartans í 22 löndum.
í framleiðslu er einnig það sem
kallað er trollsplittskinna. Þessar
skinnur eru notaðar á sitt hvorn
enda grjóthopparalengjunnar sem
er úr gúmmíi. Áður var notað jám
sem soðið var fast og sem síðan
þurfti að brenna í burtu og því
hent. Trollsplittskinnuna er hins
vegar hægt að taka úr og nota aft-
ur og aftur. Kjartan hefur auk þess
fundið upp grjóthopparapressu
sem strekkir grjóthopparalengj-
urnar upp í ákveðið átak. Þegar
nægilegu átaki er náð er læst með
trollsplittskinnunni. Yfirleitt er
notað 3-5 tonna átak, en vélin get-
ur náð allt að 10 tonna átaki. Menn
áttu áður í mesta basli með að
strekkja lengjumar og vom að
nota bfia eða lyftara til þess. Grjót-
hopparalengjurnar minnka vem-
lega netaslit og hafa reynst útgerð-
um afar hagkvæmar. Framleiðslan
er búin að vera í fullum gangi að
undanfömu í verksmiðjunni í
Danmörku.
Kjartan hefur sótt um einkaleyfi
hér heima fyrir ofannefndan bún-
að. Leyfið gildir í ákveðinn tíma.
Þegar sá tími er útmnninn þarf
hins vegar að kaupa varanlegt
einkaleyfi í þeim löndum sem
Grjóthopparapressa