Tíminn - 16.07.1991, Síða 14
14 Tíminn
Þriðjudagur 16. júlí 1991
,J L ■ „ >1.—— ------------» «—--» t— C— ^.l— n-»__;_.ji i_a t_» > At ;_
Grein Julie Flint fór svo fyrir bijóstiö á ráðamönnum í Malawi að þeir heimtuðu — og fengu — afsökunarbeiðni birta í Observer, ekki bara einu sinni heldur tvisvar. Blaðamenn
blaðsins brugðust ókvæða við þeim viðbrögðum.
Afrískur harðstjóri ritskoðar
hið virta breska
hlað Observer
Hastings Banda, hinn aldraði, ráð-
ríki Englandsvinur sem hefur
stjómað Malawi í þrjá áratugi, er
vanur því að vilji hans ráði, hversu
sérviskulegur sem hann er. í litla
landinu hans, sem hvergi nær að
sjó, eru stjómmálaandstæðingar
fangelsaðir, rétt eins og konur sem
voga sér að klæðast síðbuxum og
strákar með sítt hár eða í buxum
með skálmum sem víkka að neðan.
Malawiska dagblaðið The Daily
Tímes flaggar mynd af honum á for-
síðunni flesta daga, ásamt aðdáun-
arfullum greinum um nýjustu yfir-
lýsingar hans. Þeir blaðamenn sem
rita um það, sem honum fellur ekki
í geð, em iðulega hnepptir í fang-
elsi.
Þar til nýverið hefur þungur
valdahrammur Bandas til að þagga
niður í gagnrýnendum og kúga fjöl-
miðlana samt sem áður ekki náð til
Bretlands þar sem hann starfaði í
eina tíð sem heimilislæknir og hann
heimsækir með vissu millibili,
íklæddur dökkum fötum og pípu-
hatti, með Ijónshársflugnaskúf í
hendi.
Milli heimsókna í Harley Street,
þar sem læknar gera sitt besta til að
halda veikbyggðum líkama hans
starfhæfúm, og trúarferða norður á
bóginn (hann er virkur í Church of
Scotland), dveist hann í svítu á Clar-
idges, á sama tíma og 5.5 milljón
manna þjóð hans, sem er meðal
hinna fátækustu í heimi, á fúllt í
fangi með að draga fram lífið. En nú
hefur Banda tekist að vinna þó
nokkurt afrek, hann hefúr þaggað
niður í einu aðalblaði Bretlands.
Blaðamaður skrifar
grein
Julie Flint er gamalreyndur er-
lendur fréttaritari við Observer og
verðlaunahafi. Blaðið er í eigu Tiny
Rowlands. Eftir ferð til Malawi fyrir
nokkrum vikum skrifaði hún grein
fyrir blað sitt þar sem hún sagði frá
lífi þegnanna undir stjóm Bandas.
Þetta var glæsileg og velskrifuð
grein sem birtist undir fyrirsögn-
inni „Land of the Funny Peculiar"
(Land hins hlægilega skrítna). Þar
var velt vöngum um aldur Bandas,
sem opinberlega er gefinn upp sem
85 ára en sagður vera 93 ár, og hvers
eðlis samband hans væri við fylgd-
arkonu hans og opinberan gest-
gjafa, Cecilia Kadzamira. En í grein-
inni voru líka alvarlegri útlistanir á
því hvemig Kadzamira og frændi
hennar John Tembo, væntanlegur
arftaki Bandas, haga daglegri stjóm
landsins.
í greininni er sagt frá þeirri
hryllilegu grimmd sem andstæð-
ingar miskunnarlausrar harðstjóm-
Tiny Rowlands á bæði Observer
og mikilla hagsmuna að gæta í
Malawi.
ar Bandas em beittir. Þrátt fyrir að
mikið veður hafi verið gert út af
lausn pólitískra fanga nýlega segir
Flint frá því að aðrir fangar séu enn
hlekkjaðir naktir í fangaklefúm og
sé neitað um mat.
Þó að grein Julie Flints skeri sig
úr vegna þess hversu vel stíluð hún
er skýrir hún frá fáu sem ekki hefúr
komið fram í greinum annarra
blaðamanna, þ.á m. einni sem birt-
ist sama dag í The Sunday Telegraph
eftir fréttamann sem hafði verið
ferðafélagi Flints í Malawi, í ferð
sem ýmis bresk góðgerðafélög
höfðu skipulagt.
Reyndar kvörtuðu margir útlægir
Malawar, sem sumir höfðu orðið
fyrir barðinu á stjómarfari Bandas,
síðar undan því að gagnrýnin í
greininni væri ekki nógu beitt.
Vegna hvers var ekki sagt þar frá
skólastráknum sem var tekinn fast-
ur fyrir það eitt að segja embættis-
manni frá Zimbabwe frá því hversu
erfitt væri að verða sér úti um skóla-
gjöldin? Eða því hvemig Banda hef-
ur sjálfur safnað gífurlegum auði
gegnum einkafyrirtæki sem stjóm-
ar stómm hluta efnahags Malawi?
Hvaða áhríf hafa hags-
munir eigenda blaðs-
ins á skrif þess?
Hvað sem því líður hafði Flint
óvart komið af stað miklum hávaða
sem átti eftir að enduróma frá Bret-
landi til Malawi og aftur tilbaka,
leiða til auðmýkjandi niðurlæging-
ar Observers á tveggja alda afmælis-
ári blaðsins, og koma bálreiðum
blaðamönnum við blaðið til að bera
fram kröfú um að rannsakað yrði
hvaða áhrif hagsmunir eigenda
blaðsins hefðu á skrif þess.
Starfsbróðir Flints lýsti því reiður
yfir, að hún hefði gleymt þeirri meg-
inreglu fréttaritara erlendis fyrir
Observer að áður en hann eða hún
ritar grein ættu þau að ganga úr
skugga um hversu miklar eignir
Lonrho, fyrirtæki Tiny Rowlands,
ætti í landinu.
Raunar á Lonrho talsverðar eign-
ir í Malawi, m.a. framleiðslu á vefn-
aðarvöru, te- og sykurekrur, bmgg-
hús ogvélasölu, sem selur japanska,
bandaríska og breska bíla og drátt-
arvélar.
Dagblöð, sem fó kvartanir vegna
greina, gefa sér yfirleitt nokkum
tíma til að kanna mótmælin. Ef þau
eiga við rök að styðjast, er birt afsök-
unarbeiðni, yfirleitt miklu styttri en
upphaflega greinin sem mótmæl-
unum olli. Oftast er þó mótmæl-
andanum gefinn kostur á að koma
aðfinnslum sínum á framfæri í
formi aðsends bréfs.
í þetta sinn braut Observer allar
reglur. Innan örfárra daga frá birt-
ingu greinar Flints var í undirbún-
ingi einhver greinarbesta afsökun-
arbeiðni á síðari tímum dagblaðaút-
gáfu. Ritstjórinn, Donald TVelford,
féllst á að birta bréf frá Tony Kandi-
ero, æðsta embættismanni Malawi í
London, og auk þess að heimila
Tembo, hægri hönd Bandas, að
skrifa skammargrein sem var lengri
en upphaflega greinin og fengi hún
pláss á sama stað og sú upphaflega.
Neðanmáls við hana myndi blaðið
taka fram að Observer „iðraðist
hverrar þeirra villu“ sem fram kæmi
í frétt Flints.
Persónulegar árásir á
blaðamanninn
Blaðamenn Observers fengu fyrst
pata af afsökunarbeiðninni þegar
próförk af síðunni með grein Tem-
bos kom fyrir augu fréttamanna
daginn fyrir birtingardag. Undir fyr-
irsögninni ,Malawi: „Vin afreka" í
eyðimörk þriðja heimsins", og í út-
dregnum texta sakar Tembo Flint
um að bera fram „andstyggilegar"
alhæfingar og rangfærslur um
Malawi. Hann segir að í landinu sé
„stöðugt, rólegt og blómlegt þjóðfé-
lag, einstaklega laust við spillingu".
Enn verra var að í greininni var
að finna persónulegar árásir á skap-
gerð Flints og einn af lögfræðingum
Observers varaði viö því að hætta
væri á að blaðið birti meiðyrði um
einn af sínum eigin fréttariturum.
Þar sem Flint var stödd í Mið-
Austurlöndum, fóru tveir fréttarit-
arar aðrir, John Merritt og John
Sweeney, á fund TVelfords í frétta-
salnum og báru upp kvartanir um
að það væri „utan réttar" að koma á
framfæri slíkri árás á fréttasíðum.
Hastings Banda hefúr stjómað Malawi í 30 ár. Hann varpar í fangelsi
þeim sem honum þóknast, síðhærðum strákum jafnt og stjómmála-
andstæöingum.
Þó að TVelford féllist á breytingam-
ar, sem lögfræðingurinn lagði til,
neitaði hann að breyta um skoðun.
Greinin birtist í blaðinu á tilsettum
degi.
Svo virðist sem það hafi ekki
nægt til að friða Banda. Önnur af-
sökunarbeiðni birtist í blaðinu viku
síðar, í þetta sinn á bls. tvö, við hlið-
ina á mynd af Banda. Þar stóð: „The
Observer biður hans hátign, lífstíð-
arforseta Malawi, Ngwazi dr. H.
Kamuzu Banda, Mama C Tcimanda
Kadzamira og háttvirtan JZU Tem-
bo innilega afsökunar fyrir hverja þá
auðmýkingu eða sorg sem kann að
mega rekja til greinar okkar „Date-
line“ 16. júní sl., með fyrirsögninni
Land of the Funny Peculiar, eftir
Julie Flint“.
Observer
aðhlátursefni?
Blaðamaður við blaðið segir þessa
afsökunarbeiðni hafa gert Observer,
blað Rowlands, að aðhlátursefhi.
Hvemig gat TVeíford fengið sig til að
birta svona eina afsökunarbeiðnina
á fætur annarri? Hafði hann orðið
að taka tillit til viðskiptahagsmuna
Lonrhos í Malawi? Enginn þeirra,
sem málið snertir, var tilbúinn að
tjá sig um það. Tembo neitaði að
tala við blaðamenn og vísaði fyrir-
spumum til Kandiero, sem neitaði
að svara spumingum um Lonrho.
TVelford og Rowland vom í Indlandi,
Flint var við vinnu í Beirút og tals-
menn Lonrho neituðu að gefa yfir-
lýsingu.
Blaðamenn Observers vom ekki
eins ófúsir að tjá sig. Þeir sögðu af-
sökunarbeiðnimar birtar sam-
kvæmt fyrirskipunum Rowlands
eftir að Banda hefði borið fram
klögumál. Einn gaf í skyn að tals-
menn Malawis hefðu hótað að frysta
eignir Lonrhos í landinu nema Obs-
erver drægi grein Flints tilbaka.
„Það er því líkast að Donald (TVel-
ford) hafi fengið skipun frá Rowland
um að bera fram afsakanimar,“ seg-
ir einn virtur blaðamaður. „Orðið,
sem hann notar um svona lagað, er
að það sé „rottusamlokutími" og þá
meinar hann að maður verði bara
að kyngja einhverju óþægilegu ef
hann vill halda starfinu".
Colin Legum var áður aðstoðar-
ritstjóri og það vom greinar hans
um Afríku í blaðinu sem gerðu Obs-
erver frægt. Hann segist hafa sagt
starfinu lausu sama daginn og
Lonrho náði þar eignarhaldi vegna
þess að hann hefði óttast að eitthvað
þessu líkt myndi gerast
„Það er martröð í Malawi,“ segir
hann nú. ,Með einhverjum ráðum
er þaggað niður í hverjum þeim,
sem segir skoðun sína þar, og nú er
verið að beita klónum á breskt dag-
blað. Það er svo sannarlega dapur-
legt Mér er vel við Donald og hitti
hann stundum, en ég held að hann
hljóti að skammast sín svo mikið
fyrir þetta að það væri eins og nudda
salti í sárin að fara að ræða það við
hann.“
Hvað Flint varðar er framtíðin
óljós. Sum starfssystkin hennar
segja hana eiga fárra annarra kosta
völ en að segja upp. Aðrir segja að
hún hafi tekið löðmngi Observers af
hreysti. „Það er ekki í rauninni hún
sem er auðmýkt, það er TVelford,"
segir einn kolleginn.
Það má kannski segja að TVelford
sé ekki alls óvanur að vera í þessum
kringumstæðum. Á ámnum 1963
til 1966, tímabilinu þegar Malawi
hlaut sjálfstæði, ritstýrði hann The
Nyasaland, sem síðar nefndist Mala-
wi Times. Á þeim tíma, þegar Banda
var miskunnarlaust að uppræta alla
andstöðu, tókst TVelford að komast
hjá því að vera vísað úr landi og hélt
starfi sínu.
Malawí: An apotogy
Tht Oburvtr wisls** to apolo-
Kík to HisExíílifancy th« Ufe
i'ti-iijrnt <»f Mabwi, Ngwaii
DrH.K»muxuBandJ(l*ft),
Matna C. T#manda JCsd**mka
md ihe Honoursbte
J.Z.U. Ttanbo iot aay emlut-
ravtmcnt or grict they may hsvr
suffered e a resuit of oar ‘Date-
line’ cf 16 Jonc, hesdlincd
•tjnidoítnc Funtsy PecaUat',