Tíminn - 20.07.1991, Blaðsíða 8
16
HELGIN
„THE STUFF“
Alltaf er verið að skamma nútím-
ann, tæknigræðgina og forfjöl-
miðlunina. Þó veit ég mörg dæmi
þess að þeir, sem stöðugt eru að
geipa um þetta, eru síður en svo
lausir við að vera veikir fyrir slíku
sjálfir. Þar á meðal er ég sem oft
hef þóst vera að vandlætast yfir
þessum efnum í pistlunum hér.
Einkum féll ég flatur fyrir mynd-
bandabyltingunni. Ævinlega latur
að fara í bíó uppgötvaði ég óðara
hagræðið og skemmtunina af
myndböndunum, þaut um að taka
mér myndbandstæki á leigu úti
um allan bæ til að byrja með, en
kom mér svo upp eigin apparati
við allra fyrstu hentugleika. Ekki
var óalgengt að tækið suðaði fram
á Ijósa morgna, meðan verið var að
uppgötva stórvirki kvikmynda-
gerðar sl. áratuga sem ég hafði far-
ið á mis við. Svo tóku við minni
„perlurnar". Þar staðreyndi ég það
að oft getur maður fundið sitthvað
íhugunarvert í kvikmynd sem í
flestra augum er ekki merkileg og
kannske slæm, svo lengi sem mað-
ur hefur ekki aðra í kringum sig til
þess að rugla sig í ríminu. En nú er
svo komið að það tekur langan
tíma að finna eitthvað á mynd-
bandaleigú, sem maður þorir að
hætta 400 krónum fyrir. Náman
mikla virðist senn þorrin og til-
fmningin er eitthvað svipuð og hjá
síðasta gullleitarmanninum í Al-
aska, er maður eigrar meðfram
hinum litskrúðugu myndbanda-
hillum á myndbandaleigunni. Það
er söknuður að annarri eins fyrir-
taksskemmtun.
En eftir á að hyggja — miklu
hugmyndaflugi hef ég orðið vitni
að í kvikmyndagerð. Höfundarnir
eru vissulega djarfir í leit að við-
fangsefnum og seilast margir inn á
svið þess ótrúlega og yfirskilvit-
lega, en minna áhorfandann
gjarna á að vel mætti þetta allt ger-
ast. Stundum renna á menn tvær
grímur (þeir skyldu þó ekki hafa
rétt fyrir sér?).
Þannig minnist ég nú kvikmynd-
arinnar „The Stuff". Hún var í sem
skemmstu máli á þá leið að borg-
arar í amerískri smáborg tóku að
ánetjast nýrri tegund af einhvers-
konar súrmjólk, sem þeir fyrr en
varði máttu ekki án vera. Súr-
mjólkin (en hún var „The Stuff")
fór sigurför um gjörvöll Bandarík-
in og var framleidd í milljónum
lítra, sem tankbílar geystust með
út og suður.
En viti menn! Súrmjólkin reynd-
ist vera svona þá líka kænlega dul-
búin óvættur, sem einn daginn
drap menn með hryllilegum hætti
og ekki nóg með það:
Hún tók að stökkva á eftir lifandi
fólki, eins og grimmur hundur, og
tók að krauma og vella, uns Nóa-
flóð virtist vera að vella yfir heims-
byggðina. Þetta var hræðilegt að
sjá.
Mér hefur orðið hugsað til þessar-
ar myndar eftir síðustu atburði á
Ströndum, þar sem einhvers konar
óskilgreinanlegt „stuff' hefur rek-
ið að strönd. Guð gefi að enginn
hafí lagt sér það til munns hvað
komið er. En dularfullt er það
óneitanlega. Sumir hafa getið sér
þess til að það sé komið austan frá
Sovét — kannske síðasta herbragð
harðlínuaflanna þar í landi gegn
okkur friðelskandi. Hver veit hvað
þeir hafa fundið upp í einhverjum
myrkrakjöllurum? Eða er hér upp-
vakinn einhver eldforn óhugnaður,
eins og greinir frá í Sjávarborgar-
annál frá 1651? Myndbandaleig-
urnar eru fullar af myndum um
slíka atburði. Eða eru þetta fram-
liðnar loðnur, sem þannig hefna
forferða sinna og niðja á mannkyn-
inu? Hugsið ykkur kvikmyndina
„The Revenge of the Capelin". Ekki
fráleitari efniviður í stórmynd á
„horror“-línunni en margt annað.
Enn heyrist af því að flekkir af „the
stuff' séu á reki undan Norður-
landi. Er nú ekki einsýnt að Kvik-
myndasjóður og hið unga hæfi-
leikafólk vort í kvikmyndagerð
kasti frá sér öðrum verkefnum í
bili og grípi gæsina meðan hún
gefst? Allur hinn „sceniski" búnað-
ur kann að verða ókeypis fyrir
hendi og Eiður gæti farið með eitt
af aðalhlutverkunum.
Gettu nú
' *' V v' r«' .
Laugardagur 20. júlí 1991
Við sáum krossinn á Ós-
hlíðarvegi, sem liggur milli
ísafjarðar og Bolungarvík-
ur, á síðustu mynd.
I Þjórsá eru ýmsir fagrir
fossar. Þessi er einn þeirra
og ber hann nokkuð „há-
vaðasamt" nafn. Hvert er
nafnið?
KROSSGÁTA
\ \H5 | i ír/r s£R- yuóMn £IN5 Go&6- ÍSn b'fl fbJ' Y - —— 0 K/ÍK- mynd Vfí-Afl ULU Von m 5c cypfl pr
// / / ÚK(\ TfíU1
(<' \ \l' ) { flNSfí > i
msfl rWN\ \ PRfl ó- /vór 5 FISK 3
ít \\ \\N sk/fldu SORS LEGT
-4 ^1 / kikiW pJflLV- WN dMLRKT H
' \ ^ 1 1 k ‘ ‘ / 1 r // // &//\ ÁJ w n'umt S ItMlR r igN
\\s ^ / MÍK. ÍL’flr KOS/fl * EOÐ 5
W \/L y • • I T—7 GRfllNP FYRSlS UR
0000 n B CK9A YflTTfl L
1 r/u ORKti
S£ I N - fiSTDR Vj/jh .íj L -V V í rjflLi USTfl ~T ró n'n ■BÍRJfi i 7 s
~ 1N JöCT \f VoiWVtJW KlKTlD gi-óÐ- SUGDK’
ll&OR £UKT VflRP- AN'fl SIGR- UÐU K óPTfí 8
fO-RS.
3 yss^- 5o GUK PR fl' j/tR yyRRÐ F uuu- KOM- LÍG fl_. RióDl SlGLf) DE/J/1 7
/000 KíöKftK rav- j sx— TfíLD fUGL. u (0
CKR - VSTfl N STeFM
flV/JR Ffl flLLT/ir ht/HUl a TR.'íNðfl U
/tVTfi 1?. \tUJl Ki'AKfl
MAHrí 7ÍEJÐ ISLfW /2 » VYGGT ■ DC1L V O/fR- t>&& 4 n
CCSKfl OTUL
pÍít L nrri [iHTWb IHCVR Soj 3 JTNT n
Kmi fíflSflH
fíR ur- /NG' SJ w U Af /5 fl'TT 0
s TÆ Ð1 ruflr
SPíL KOK/ 0 UTAN ST£FN- kN 15