Tíminn - 26.07.1991, Page 2
-2 Tíminn
• F'östUdagur 26.]úlf 1991
.
■ ■
Mannaskipti
í Alumax
Allen Born, stjómarformaður hjá
Amax Inc., tilkynnti á miðvikudag-
inn að búið væri að útnefna fjóra
framkvæmdastjóra í nýjar stöður
hjá fyrirtækinu.
Paul Drack, fyrrverandi formaður
Alumax Inc., hefur verið valinn í
stöðu stjómarformanns og fram-
kvæmdastjóra Amax Inc. Thomas A.
McKeever mun taka við stjóm orku-
fyrirtækis Amax. Hann mun einnig
verða ábyrgur fyrir framkvæmdum
olíu-, kola- og lofttegundafyrirtækja
Amax. V. Bond Evans, varaformaður
Alumax, mun taka við störfum Pauls
Dracks sem stjórnarformaður í ál-
fyrirtækinu, og Richard A. Kalaher
hefur verið útnefndur almennur
ráðgjafi Amax.
Kattholt, hótel fyrir ketti
Fyrsti áfangi Kattholts, sem er hús Kattavinafélags íslands, verður
opnaður næstkomandi laugardag. Kattholt er fyrst og fremst hugs-
að sem staður þar sem tekið verður á móti köttum, sem hafa tapast
frá heimilum sínum, og reynt verður að koma þeim til eigenda
sinna.
Einnig verður eins konar katta-
hótel starfrækt í Kattholti. Þá geta
kattareigendur komið þangað með
köttinn sinn og látið gæta hans
þar. Að sögn Sigríðar Heiðberg,
formanns Kattavinafélagsins, þá
verða í Kattholti nokkuð stór búr
fyrir hvem kött. í þeim verður
svefnaðstaða fyrir köttinn, sand-
kassi og matanlát. Jafnframt sagði
hún það mjög mikilvægt að búið
væri að sprauta kettina gegn katta-
fári áður en komið væri með þá í
gæslu. Hún sagði að kettir, sem
týnst hefðu og komið yrði með í
Kattholt, yrðu hafðir á öðrum stað
en hinir, því ekki væri vitað hvort
búið væri að sprauta þá fyrir katta-
fári. Sigríður sagði að hægt yrði að
taka á móti allt að 100 köttum í
Kattholti. Ein nótt á hótelinu
myndi kosta um 400 krónur, og
þegar hefðu borist umsóknir um
pláss fyrir 10 ketti. Ennfremur
sagði hún að ávallt yrði starfsmað-
ur í húsinu, sem sæi um kettina
sem þar væru.
Kattholt er staðsett að Stangarhyl
2 í Ártúnsholti. Á sunnudaginn frá
klukkan 14 til 18 verður þar sýn-
ing á ýmsum tegundum katta. Á
mánudaginn verður svo byrjað á
því að taka á móti köttum á hótel-
ið, og þá verður einnig byrjað að
taka á móti köttum sem hafa týnst.
-UÝJ
Kattholti verður starfrækt hótel fyrir ketti og tekið verður á móti köttum sem hafa týnst. Einnig hafa komið fram hugmyndir um það að
starfrækja dýraspítala í sama húsnæði.
BÚBÓT
HANDA
BÆNDUM
Búnaðarfélag íslands hefur gefið
út bókhaldsforritið Búbót 1.0, sem
er sérstaklega sniðið að þörfum
bænda og búnaðarsambanda. For-
ritið er eftir Ketil A. Hannesson og
Ingólf Helga Tryggvason. Forritinu
er einkum ætlað að mæta aukinni
þörf bænda fyrir bókhald vegna upp-
töku virðisaukaskatts. Enn fremur
er því ætlað að auðvelda bændum að
taka ákvarðanir varðandi búrekstur-
inn og gera rekstraráætlanir byggð-
ar á raunverulegum forsendum.
Bókhaldsforritið Búbót er gert fyrir
einmenningstölvur.
Ööryggis, óróa og ótta gætir meðal fólksins:
Dagsbrúnarmenn hringja
inn og ræða lyfjamálið
Verkamannafélagið Dagsbrún hefur hvatt félagsmenn sína til
þess að hringja í félagið og neða um hækkum á lyfjaverði, eða
láta vita um útgjöld sín vegna þessa.
Lelfur Guöjónsson hjá Dags-
brún sagði að margir hefðu
hringt Ínn vegna tnálslns og
fólld þætti það hafa þurft að
borga ansl mildö fyrir ]yfín.
Jafnframt gætti nokkurs óör-
yggis og ótta, þá sérstaklega hjá
eldra fólki. Einnig sagöist hann
vita tll þess að mildð væri
hringt í verkaiýðsfélagiö £ Höfn
f Homafírði og mitdll órói væri í
fóUd vegna breytingarinnar.
Leifur sagði að samkvæmt út-
reiknlngum Aiþýðusambands-
ins ntyndu þessar breytingar á
lyfjaverði hækka framfærslu-
vísitöluna um 0.2 tU 0.4%, og
væri þetta brot á þjóðarsáttinni.
Einnig sagði Leifur að vinnu-
brögð heilbrigðisráðherra væru
alveg forkastanleg, því verið
væri að reyna að lcoma ástæð-
unnl fyrir þessum breytingum
yfir á fyrrverandi heilbrigöisráð-
herra, vegna þess að þær væru
óvinsælar.
Hann sagði að nokkur þrýsing-
ur kæmi frá fóUd um að eitt-
hvað þyrfti að gera í þessu máli,
og myndi Dagsbrún reyna að
gera aUt sem hægt væri. Það
væri hlns vegar alveg á hreinu
að ekid yrði teklð viö þessum
breytingum sem einhverri
skiptimynt f kjarasamningun-
um nú f haust.
Merkið sem íslandsbanki lét hanna fyrir óbleiktan pappír.
íslandsbanki notar umhverfisvæn umslög:
Merki fyrir óbleiktan pappír
íslandsbanki hefur frá því seint á
síðastliðnu ári notað umslög, sem
unnin eru úr óþleiktum (klórfríum)
pappír. Með því að nota óbleiktan
pappír vill íslandsbanki leggja sitt af
mörkum til náttúruverndar. Á um-
slögunum er sérstakt merki til þess
að vekja athygli á notkun óbleikts
pappírs. Merkið tengist þó íslands-
banka ekki sérstaklega og er fyrir-
tækjum og öðrum aðilum, sem nota
óbleiktan pappír, heimilt að nota
merkið að vild. Það er hugsað sem
tákn pappírs án klórs og skipar nú
þegar slíkan sess í hugum viðskipta-
vina íslandsbanka.
íslandsbanki áformar að draga enn
úr notkun á bleiktum pappír í við-
skiptum sínum og verða næstu skref
þar að lútandi stigin á næstunni.
Nefna má, að íslandsbanki gefur út
þrjú mismunandi fréttabréf og verða
öll næstu tölublöð prentuð á
óbleiktan pappír. -js
Upplýsingarit til ferðamanna:
INNFLUTT MATVÆLI
Markaðsnefnd landbúnaðarins
hefur í samvinnu við yfirdýra-
lækni gefið út upplýsingarit fyr-
ir ferðamenn um innfíutning
matvæla til íslands.
í upplýsingaritinu er greint frá því
hvaða reglur eru í gildi, þegar ferða-
menn flytja með sér erlend matvæli
eða annað sem getur borið hættu-
lega smitsjúkdóma hingað til lands.
Ritið nefnist „Upplýsingar til ferða-
manna um innflutning matvæla til
íslands" og ber undirtitilinn „Erlend
matvæli, gæludýr, veiðitæki og ann-
að sem krefst sérstakra ráðstafana
við komu ferðamanna til landsins".
í fréttatilkynningu frá Upplýsinga-
þjónustu landbúnaðarins segir að
vegna legu landsins hafí íslenski bú-
stofninn verið einangraður öldum
saman. Einangrunin valdi því að ís-
lenskt búfé hefur lítið mótstöðuafl
gegn mörgum sjúkdómum sem
landlægir eru annars staðar. Mest er
hættan á að sjúkdómar berist með
landbúnaðarafurðum og lifandi dýr-
um.
Ritið hefur verið gefið út í þremur
útgáfum og á fimm tungumálum.
Leiðbeiningar eru á íslensku í einni
útgáfunni, ensku og frönsku í ann-
arri og í þriðju útgáfunni eru leið-
beiningar á þýsku og norsku.
Geislavirkur úrgangur urðaður í Sellafield:
Urgangurinn hefur verið að
hlaðast upp undanfarin 30 ár
NIREX (Nuclear Industry Radio-
active Waste Executive) tilkynnti
fyrir nokkrum dögum að ákveðiö
hafí verið að urða breskan geisla-
virkan úrgang í Sellafíeld á Bret-
landi. Áður kom helst til greina að
auka starfsemi endurvinnslunnar
við Dounreay eða þá að grafa
kjamorkuúrganginn undir sjávar-
botni. Ákveðið hefur verið að falla
frá þessum áformum að sinni,
m.a. vegna þrýstings íslendinga.
Á blaðamannafundi NIREX kom
fram að Sellafíeld varð fýrir valinu
í stað Dounreay, vegna greiðari
samgangna og hagstæðari kostn-
aðaráætlana.
Samkvæmt upplýsingum frá
NENIG (Northen European Nucle-
ar Information Group) kemur
fram, að ákvörðunin um urðun í
Sellafield er ekki byggð á nægum
jarðfræðilegum athugunum, og
um öryggið hafi ekkert verið hugs-
að. Hins vegar hafi kjarnorkuiðn-
aðurinn leitað logandi ljósi að stað
fyrir þennan geislavirka úrgang,
sem hefur verið að hlaðast upp
undanfarin 30 ár. Þeirri spurningu
er jafnframt varpað fram, hvort
fólk hafi trú á iðnaði, sem hefur
ekki skynjað ábyrgð sína á um-
hverfinu í 30 ár. -js
Siglufjörður:
Síldarárin
Á Siglufirði er fyrirhugað að rifja
upp stemmningu sfidaráranna um
komandi verslunarmannahelgi.
Mun Siglufjörður þá verða iðandi af
mannlífi líkt og áður fyrr. Til að ná
upp slíkri stemmningu verður lokað
fyrir umferð á torginu og gömlum
munum úr Sfidarminjasafninu stillt
upp. Dagskráin verður margvísleg.
rifjuð upp
Arftakar karlakórsins Vísis munu
syngja, farið verður í gönguferð í
Hvanneyrarskál, Leikfélag Siglu-
fjarðar flytur leikþátt, boðið verður
upp á varðeld, flugeldasýningu,
dorgveiðikeppni, ferðir í Skarðið og
fleira. Síðan verður brugðið upp
landleguballi á Hótel Höfn.
GS.