Tíminn - 26.07.1991, Side 12

Tíminn - 26.07.1991, Side 12
AUGL.ÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300 RÍMSSKIP NÚTIMA FLUTNINGAR , Halnorhusinu v Tryggvagotu, » 28822 UtBBBHtFfllftBSKIPTI SAMVINNUBANKANS SUÐURLANDSBRAUT 18, SlMI: 688568 Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga SÍMI 91-676-444 Tímirux FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ1991 Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri íslenskra aðalverktaka, segir: Úrsögn is lenskra aðalverktaka úr VSÍ er byggð á misskilningi Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjórí hjá íslenskum aöal- verktökum, segir fréttina um úrsögn íslenskra aöalverktaka úr Vinnuveitendasambandi íslands vera byggöa á misskilningi. Það hafi veríö rætt hjá íslenskum aöalverktökum að hætta beinni að- ild aö Vinnuveitendasambandi íslands og gerast meölimur í Verktakasambandinu, en vera áfram í VSÍ í gegnum þau samtök. Þannig er málum háttað hjá öllum öörum verktökum. Gunnar segist „ekki kunna skýr- ingu á því hvers vegna þessi úr- sögn fór inn“. Hann segir íslenska aðalverktaka hafa verið einu verk- takana, sem ekki hafi verið innan Verktakasambands íslands, og hafi þeir þar af leiðandi verið beinir að- ilar aö VSÍ. Það var vegna þess að vettvangur íslenskra aðalverktaka var eingöngu á Keflavíkurvelli. ís- lenskir aðalverktakar hafa ekki leitað út fyrir það svæði hingað til. Hins vegar gætu orðið breytingar á því fyrirkomulagi [ framtíðinni. Pálmi Kristinsson, framkvæmda- stjóri Verktakasambands íslands, segir að fréttin um að íslenskir að- alverktakar hafi sagt sig úr VSÍ hafi komið sér á óvart. Hann segir að málið hafi verið rætt óformlega við forsvarsmenn íslenskra aðalverktaka í vor, að fyrirtækið yrði aðili að Verktaka- sambandi Islands. Eins og önnur fyrirtæki þá yrðu þeir félagar í VSÍ um leið. Það lágu þó engar ákvarð- anir formlega fyrir um það í morg- un hjá íslenskum aðalverktökum, aö því er þeir hjá Verktakasam- bandinu best vissu. Þau voru svona í deiglunni hjá íslenskum aðalverktökum. Flest fyrirtæki á íslandi eru aðil- ar að einhverjum sérsamtökum í viðkomandi atvinnugreinum. Það eru um 10 félög sem eru í þessum megin atvinnugreinum, þ.e. iðn- aði, sjávarútvegi, fiskvinnslu, verslun og verktakastarfsemi. Þau félög eru síðan öll aðilar að VSÍ og mynda Vinnuveitendasamband ís- lands. Síðan eru einstök fyrirtæki, sem eru beinir félagar að VSÍ, og það eru fyrst og fremst stór fyrir- tæki sem tengjast ekki beinlínis þessum hagsmunasamtökum at- vinnugreinanna. Væntanlega telja þau hag sínum betur borgið með þeim hætti. Þetta eru fyrirtæki eins og Flugleiðir, Eimskip, Hag- kaup og fleiri stór einkafyrirtæki. íslenskir aðalverktakar hafa verið þarna á meðal. „Við í Verktaka- sambandinu höfum lengi talið það eðlilegt að íslenskir aðalverktakar gerðust aðilar að sambandinu. Ekki síst núna, eftir þær breyting- ar sem urðu í fyrrahaust á eignar- fyrirkomulagi fyrirtækisins. Við höfum reyndar nú, eins og oft áð- ur, boðið þeim formlega að gerast aðilar að Verktakasambandinu," segir Pálmi. Pálmi segir að menn hafi verið að bendla mál íslenskra aðalverktaka við Atlantsálmálin. Hann telur ekkert samband vera þar á milli. Pálmi tekur fram að lokum að það sé auðvitað bara Thor Ó. Thors, stjórnarformaður ísl. aðal- verktaka, sjálfur sem kunni að skýra þessa úrsögn úr VSÍ. Uggvænleg aukning umferðarslysa: Fimmtán látnir og fimm hundruð manns slasaðir Fyrstu sex mánuði þessa árs hafa 509 manns slasast í umferöarslysum hér á landi, og það sem af er árinu hafa 15 manns látist. Tala slasaðra í umferðinni hefur aldrei verið hærri á sama tíma- bili a.m.k. síðustu fimmtán ár. Júnímánuður í ár skipar sér á mjög svo vafasaman metorðastall hvaö varöar fjölda slasaðra og látinna. Þá slasaðist 131 maður í umferðinni og 6 iétust. Lítil einkaflugvél brotlenti: Mismikiö slasaöir Lítil fjögurrasæta einkaflugvél af gerðinni PA 22, TF-Tom, brotlenti um 1/2 sjómilu frá flugvellinum skammt frá Mývatni í gærdag. Það var kl. 15:03 að Flugstjómarmið- stöðinni í Reykjavík barst um það til- kynning að lítil einkaflugvél hefði trúlega farist skammt frá flugvellin- um. Fékkst það svo staðfest nokkr- um mínútum seinna. í flugvélinni voru flugmaður og tveir farþegar. Allir í vélinni reyndust vera á lífi, en mismikið slasaðir. Lögreglan á Húsavík var skammt frá slysstað, þeg- ar slysið varð, og var því fljót á stað- inn. Örskömmu síðar voru læknar og hjúkrunarfólk einnig komin á stað- inn. Flugmaðurinn reyndist vera mest slasaður og var hann fluttur með flugvél á sjúkrahúsið á Akureyri. Hin- ir reyndust minna slasaðir og voru þeir fluttir á sjúkrahúsið á Húsavík. Vélin var í útsýnisflugi og lagði hún af stað frá Akureyri kl. 14, og var hún væntanleg þangað aftur.Tildrög slyss- ins voru ekki kunn seinni partinn í gær, en flugvél Flugmálastjómar var þá á leið norður með starfsmenn Loft- ferðaeftirlitsins og Flugslysanefndar til að rannsaka slysið. -UÝJ Tveir árekstrar Tveir árekstrar urðu f Reykjavík um hádegisbiliö í gær. Annai' átti sér stað á mótum Dalbrautar og Sæ- brautar er tveir bílar skullu saman. Þrír hlutu minniháttar meiðsl. Hinn átti sér stað á mótum Langholtsvegar og Skeiðarvogs og var einn fluttur á slysadeild lítið slasaður. Var þar einn- ig um að ræða tvo bíla og eru þeir talsvert skemmdir. GS. Fyrstu sex mánuði þessa árs hafa 509 manns slasast í 343 umferð- arslysum hér á landi. Þar af hafa hundrað manns hlotiö alvarieg meiðsl. Tala slasaðra í umferðar- slysum hefur aldrei verið hærri á sama tímabili síðustu fímmtán ár og jafnvel þótt lengra væri litið. Það, sem af er árinu, hafa 15 manns látist í 13 umferðarslysum, og eru þá tvö banaslys, sem átt hafa sér stað í júlímánuöi, tekin með í reikninginn. Segja má að júní í ár sé kominn á mjög svo vafasaman metorðastall. Þá slasaðist 131 maður í 81 um- ferðarslysi og hafa aldrei fleiri slas- ast á einum mánuði a.m.k. síðustu fimmtán ár. Þar af hlutu 23 alvarleg meiösl. Sex létust í fimm banaslys- um, sem áttu sér stað í júní, og þarf að leita aftur í október árið 1975 til að finna hærri tölu látinna í um- ferðinni á einum mánuði. Þá létust átta manns. í fyrra slösuðust 350 manns í 234 umferðarslysum fyrstu sex mánuðina, þar af 83 al- varlega. Þá urðu 9 banaslys og lét- ust í þeim 13 manns. í júní í fyrra urðu 54 slys og 73 slösuðust, þar af 18 alvarlega. Þá urðu tvö dauðaslys, þar sem fjórir létust. Það er því Ijóst, þegar þetta ár er borið saman við það síðasta, að uggvænleg aukning á umferðarslysum hefur átt sér staö. „Fólk virðist ekki vera nægilega með hugann við aksturinn. Menn ofmeta sjálfa sig, ofmeta vegina og ofmeta aðra vegfarendur. Það er þetta ofmat á aðstæðunum sem er svo hættulegt," sagði Sigurður Helgason hjá Umferðarráði, að- spurður um þessar tölur. Sigurður segir það sláandi staðreynd, að það fólk sem ekki notar bílbelti, sem er ekki stór hópur, lendir í óhöppum og slysum hvað eftir annað. „Og það er einnig sláandi að af þeim fimmtán, sem látist hafa í ár, voru fjórir á bifhjóli og þrír gangandi vegfarendur. Þar með er kominn um helmingurafþeirri tölu.“ — En hvað er til ráða? „Við erum sífellt að. Við vinnum ötullega að því að koma áróðri og upplýsingum til fólksins gegnum fjölmiðla. Það er unnið mjög mark- visst að því þessa dagana. Þetta ger- um við í þeirri von að árangur skili sér og að fólk gæti sín,“ segir Sig- urður. „Það er annars vegar hlut- verk okkar að koma í veg fyrir slys og hins vegar að koma í veg fyrir að slysin hafi alvarlegar afleiðingar. Þar koma til hlutir eins og bílbelti og annar öryggisbúnaður." Mikill hraði er ein meginorsök slysa. Dómsmálaráðuneytið hefur, eftir fréttir af miklum hraðakstri undanfarið, séð ástæðu til þess að beina þeim tilmælum til lögreglu- yfirvalda um allt land að auka rad- armælingar og eftirlit á vegum. Er því unnið að því hörðum höndum nú að minnka hraðann, sem von- andi hefur í för með sér færri slys. „Ég hef ástæðu til að ætla að góða veðrið sem ríkt hefur, þá sérstak- lega í júní, leiði til þess að fólk keyri hraðar og hugsi ekki nógu vel um aksturinn," segir Sigurður. „Hins vegar vildum við alls ekki missa góða veðrið, en við viljum missa þessi slys.“ GS.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.