Tíminn - 27.07.1991, Blaðsíða 9
16
HELGIN
Laugardagur 27. júlí 1991
T
Laugardagur 27. júlí 1991
HELGIN
17
Á skíðum
á Mýrdals-
jökli
í sumarbyrjun var opnuð í TVyggva-
skála á Selfossi Upplýsingamiðstöð
fyrir ferðamenn. Þar er opið daglega
og fólk getur fengið allar almennar
upplýsingar um ferðir og ferða-
möguleika ásamt afþreyingu á Suð-
urlandi.
Á Kirkjubæjarklaustri, í Vík, Hvera-
gerði og á Hellu og Hvolsvelli eru
einnig starfræktar slíkar upplýsinga-
þjónustur fyrir ferðamenn. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Valgeiri
Inga Ólafssyni hjá Upplýsingamið-
stöð Suðurlands er margt í boði fyrir
ferðamenn og nóg hægt að gera.
Boðið er upp á útsýnisflug sem tek-
ur eina klukkustund og er m.a. flog-
ið yfir Mýrdalsjökul, Kötlu, Land-
mannalaugar, Eldgjá, Laka og
Langasjó.
Hægt er að fara á hestbak, boðið er
upp á stangaveiði í læk, vatnasleðar
og sjóskíði fást leigð, veiðileyfi í
Heiðarvatn eru seld, bátsferðir eru til
Dyrhólaeyjar og Reynisdranga, auk
þess sem ýmislegt fleira er hægt að
gera sér til gamans.
Á vegum Gesthúsa á Selfossi er
hægt að fá leigð reiðhjól til lengri og
skemmri ferða um landið. Hingað til
hafa fáir íslendingar hjólað um land-
ið sitt, en hér gefst fólki tækifæri til
að bregða út af vananum, hvíla sig á
bílnum og hjóla um nágrenni Sel-
foss.
í Úthlíð II í Biskupstungum er risin
Frá Landmannaleiö. Nú er boðið upp á útsýnisflug yfir Mýrdalsjökul, Kötlu, Landmannalaugar, Eldgjá,
Laka og Langasjó.
upp ferðamannaparadís hjá Bimi
Sigurðssyni bónda, en fyrr í sumar
var vígð myndarleg sundlaug sem er
8xl7m að stærð. Við laugina em
heitir pottar og aðstaða öll hin besta.
í Úthlíð gefst fólki einnig kostur á að
fara á hestbak.
Jöklahestar í Mýrdal bjóða upp á
fjalla- og heiðarferðir allar helgar í
BÆNDUR
StÐSUMARSVERÐ
Best búnu vélarnar á
hagstæðasta verðinu.
CLAAS tekur þátt í leiknum og
býður síðsumarsverð á hey- og
rúllubindivélum.
Til afgreiðslu nú þegar.
Fyrsta greiðsla 15. nóv. 1991.
^©ií^íltMOí)
TUlésúdty
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVIK SIMl 91-670000
sumar. Em þetta eins dags ferðir.
Fyrir stuttu var svo opnaður 9 holu
golfvöllur í Vík í Mýrdal. Auk þess er
einnig hægt að fara í golf í Hvera-
gerði, en fyrir skömmu var opnaður
9 holu golfvöllur og 18 holu pútt-
völlur við Hótel Örk. Þá hefur tenn-
isaðstaða verið bætt til muna og á
hverjum degi fer fram tenniskennsla
og þjálfun.
Nú getur fólk farið á skíði á Mýr-
dalsjökul í sumar, því opnuð hefur
verið skíðalyfta í Myrkadalsjökli og
er hún opin um helgar í sumar. Til
að komast að lyftunni er beygt af
hringveginum við bæinn Sólheima í
Mýrdal og ekið u.þ.b. 12 km veg sem
er fær bílum með drifi á öllum hjól-
um.
Að sögn Valgeirs Inga gefst ferða-
mönnum, sem leið eiga um Hvera-
gerði, kostur á að fara í göngu eða
ökuferð með kunnugum leiðsögu-
manni. Lagt er af stað kl. 10:00 frá
Ferðaþjónustu Suðurlands, Breiðu-
mörk 10, og gengið er um hvera-
svæðið í bænum, að Grýlu og til
fleiri athyglisverðra staða í bænum.
Fólki gefst jafnvel færi á að sjóða sér
egg og brauð í hver, líkt og gert var
áður fyrr og sumir gera jafnvel enn.
Frá Hjarðarbóli, Hveragerði og Sel-
fossi er boðið upp á dagsferðir um
Árborgarsvæðið svo og fleiri staða á
Suðurlandi og Suðumesjum.
Þeir, sem hafa áhuga á að skoða
söfn, geta t.d. bmgðið sér til Þorláks-
hafnar og skoðað Egilsbúð, sem er
bóka- og minjasafn. Þá er sjóminja-
safn á Eyrarbakka, Rjómabúið á
Baugstöðum, Þuríðarbúð á Stokks-
eyri, Safnahús á Selfossi og Byggða-
safnið Skógum, Hvolsvelli.
Að auki em mörg fleiri söfn á Suð-
urlandi sem áhugavert er að skoða.
Eins og sjá má er hér af miklu að
taka og hér aðeins nefnt það helsta.
Til þess að fólk á ferð um Suðurland
fari nú ekki á mis við eitthvað, sem
það gæti gert sér til skemmtunar, er
best að líta við á upplýsingaþjónust-
um staðanna og fá upplýsingar um
allt sem hægt er að gera á viðkom-
andi stöðum. -sis
Nonnahús;
Davíðshús
og Sigur-
hæðir
Þegar komið er til Akureyrar er til-
valið að byrja á að skoða bæinn. Ak-
ureyri er einstaklega fallegur bær og
margt áhugavert sem fyrir augu ber.
Undan Búðargili er Akureyrin sjálf
og innan við hana Fjaran. Eftir Fjör-
unni liggur Aðalstræti. Á þessu
svæði er margt gamalla húsa og eru
nokkur þeirra friðuð. Hafnarstræti
er elsta gata bæjarins. Þar er nú
göngugata frá Grófargili að Ráðhús-
torgi. Við götuna er fjölþættur versl-
unarrekstur og þjónustustarfsemi.
Nokkur söfn em á Akureyri, sem
fróðlegt og skemmtilegt er að skoða.
Fyrst ber að nefna Nonnahús, sem
varðveitt er til minningar um séra
Jón Sveinsson, en í því átti hann
heima á bernskuárum sínum á Ak-
ureyri. Annað minningarsafn er Sig-
urhæðir, hús séra Matthíasar Joc-
humssonar. Þriðja safnið er Davíðs-
hús, til minningar um Davíð Stef-
ánsson. Fjórða safnhúsið er hús
Friðbjarnar Steinssonar. Þar var
fyrsta Góðtemplarastúkan í íslandi
stofnuð. Þá er að telja Amtsbóka-
safnið og Náttúmfræðistofnun
Norðurlands, sem er bæði sýningar-
safn og rannsóknarstofnun. Loks
ber að nefna Laxdalshús, sem kennt
er við Eggert Laxdal kaupmann. Það
er rekið í sambandi við minjasafnið
og er boðið upp á veitingar.
Ekki er hægt að fara til Akureyrar
án þess að skoða Lystigarðinn, en
auk alls kyns skrúðjurta er þar
fræðilegur grasagarður með nær
öllum íslenskum háplöntum og
hundmðum annarra tegunda.
Akureyri liggur vel við samgöng-
um. Hringvegurinn liggur í gegnum
bæinn og út frá honum liggja vegir
til allra nágrannasveita.
Flogið er til Akureyrar 5 sinnum á
dag frá Reykjavík og jafnvel oftar ef
Frá Mývatni.
þarf. Þá flýgur Flugfélag Norður-
lands til Egilsstaða, Grímseyjar,
Húsavíkur, ísafjarðar, Keflavíkur,
Kópaskers, Ólafsfjarðar, Raufarhafn-
ar, Reykjavíkur, Siglufjarðar, Vopna-
fjarðar, og Þórshafnar.
Daglega er boðið er upp á leiðsagn-
arferðir frá Akureyri til Mývatns.
Sýnt er nákvæmlega það sem er á
Mývatni og stöðum þar í kring. Far-
ið er frá Akureyri kl. 08:15 að
morgni og komið til baka um kvöld-
matarleytið.
Á þriðjudögum, miðvikudögum og
fimmtudögum er farið í Asbyrgi,
Dettifoss, Hljóðakletta og íTjörnes.
Á laugardögum og miðvikudögum
er farið yfir Kjöl til Reykjavíkur.
Leiðsögn og matur er innifalið í
verði. Þá fer rúta úr Reykjavík yfir
Sprengisand og norður.
Flogið er kvöldflug út í Grímsey
þrisvar í viku. Þangað siglir líka
ferja. í Hrísey er eina veitingahúsið
á landinu sem býður upp á nauta-
kjöt af Gallowaynauti. Það þykir afar
ljúffengt og vel þess virði að bregða
sér út í eyju til að borða. Þangað eru
ferðir með ferju nokkrum sinnum á
dag og er farið frá Litla-Árskógss-
andi.
Margar hestaleigur eru í kringum
Akureyri og þá helst í sambandi við
ferðaþjónustu bænda. Ein hesta-
leiga er á Akureyri.
Golfvöllurinn þykir góður og hafa
verið haldin stórmót á honum.
Sundlaugin er alltaf opin.
Allar nánari upplýsingar er hægt að
fá hjá Upplýsingamiðstöð fyrir ferða-
menn.
-sis
Allt
hægt
Jökulsárlón á Breiðamerkursandi er
eitt af náttúruundrum Suðaustur-
lands. Gríðarlegar ísblokkir brotna
stöðugt úr jöklinum og berast til
sjávar með Jökulsánni. Hægt er að
fylgjast með því í návígi. Sandbreið-
urnar í kring eru aðal varpsvæði
skúmsins á norðurhveli jarðar.
Jöklaferðir hf. eru með starfsemi
sína á Skálafellsjökli, sem er skrið-
jökull úr Vatnajökli, um 55 km frá
Höfn. Það eru 16 km frá Smyrla-
bjargarvirkjun að Þormóðshnútu
sem er í 840 m hæð. Á Þormóðs-
hnútu hafa Jöklaferðir lítinn skála,
en verið er að byggja nýtt hús sem
mun þjóna mun betur bæði gestum
og starfsfólki. Ferðir eru alla daga.
Austurleið er með daglegar ferðir
frá Höfn til Skálafellsjökuls, í Jök-
ulsárlón og aftur til Hafnar. Farið er
snemma morguns og komið aftur til
Hafnar síðdegis.
Hefðbundin ferð á jökul tekur um 2
klst. í snjóbfl. Þá er farið upp á Mið-
fellsegg, sem er í 1128 m hæð inn að
Birnudalstindum og að Grjótbotni.
Jafnframt er boðið upp á vélsleða-
ferðir sömu leið. Einnig er farið í
lengri ferðir á sleðum, t.d. á Brókar-
jökui, á Breiðubungu, í Kverkfjöll og
að Hafrafelli. í lengri ferðir þarf að
panta með fyrirvara og er lágmarks-
fjöldi í hverja ferð 4.
Auk þessa hafa Jöklaferðir hf. í
samvinnu við nokkra aðila boðið
upp á ýmsar pakkaferðir. Einnig er
fyrir hópa boðið upp á veislur á jökl-
inum.
Á Höfn er byggðasafn. í safninu eru
ýmis verkfæri og munir frá fyrri tíð,
sem bregða ljósi á þær aðstæður
- i
Jökullónið á Breiðamerkursandi er tignarleg náttúruperla, sem ferðafólki gefst kost-
ur á að skoða á ferð sinni um Austurland.
sem fólk í héraðinu bjó við fyrr á
tímum.
Niðri á fjörðum er landslagið afar
fallegt og víða margt skemmtilegt
borðaður og íslenskt brennivín
drukkið með.
Á Egilsstöðum er nýlegá búið að
stórbæta aðstöðu fyrir ferðamenn.
Búið er að taka í notkun upplýsinga-
og þjónustumiðstöð fyrir ferða-
menn. Þar er öll snyrtiaðstaða fyrir
hendi, þvottavélar eru á staðnum og
fleira.
Ekki er hægt að koma á Austurland
nema koma við á Hallormsstað.
Skógurinn á Hallormsstað er hinn
víðáttumesti á landinu. Kunnir
staðir í skóginum eru Gatnaskogur,
Hólatjörn og Mörkin. Atlavík er inn-
arlega í skóginum og um verslunar-
mannahelgina verður þar sitthvað á
seyði. Þegar sólin skín og veðrið er
gott er hvergi betra að vera en ein-
mitt í Atlavík. Veðursældin er ótrú-
leg og ekki spillir umhverfið fyrir.
Á Seyðisfjörð kemur Norræna einu
sinni í viku. Óhætt er að segja að
bærinn breyti um svip í hvert sinn
sem ferjan kemur að landi og fær á
sig erlendan brag.
Víða á Austurlandi eru tjaldstæði
og sundlaugar og ýmis þjónusta fyr-
ir ferðamenn. Þeir, sem hafa áhuga
á, geta auðveldlega fengið allar upp-
lýsingar um hestaleigur, golfvelli og
fleira í þjónustumiðstöð ferða-
manna á Egilsstöðum. -SIS
£
fc
SUMARTILBOÐ *
Á HÓTEL ÖRK
Tilboð sem vert er að
veita athygli
INNIFALIÐ:
Gisting, morgunverður. kvöldverður.
VERÐ KR. 4.950,-
á dag fyrir manninn í 2ja m. herbergi.
EITTHVAÐ VIÐ ALLRA HÆFI!
... Umhverfisvœnt hótel með vistvænt verð
^3 HÓTEL ÖÐK
Sími 98-34700
Skútuvogi 10a - Sími 686700
sem fyrir augu ber. Helstu eyjar eru
Seley, Skrúður, Andey og Papey.
Frá Egilsstöðum er farið í skoðun-
arferðir með leiðsögumanni um
Fljótsdalshéraðið. Á hverjum degi
eru skipulagðar ferðir í Snæfell og
Borgarfjörð. Það er hægt að fara í
heilsdagsferðir í Borgarfjörð eystri
með leiðsögumanni. Þar er m.a.
Kjarvalssýning í gangi núna.
Boðið er upp á tveggja daga ferð frá
Norðfirði til Mjóafjarðar. Siglt er til
Mjóaíjarðar og farið með rútu til
baka.
Ef farið er Fljótsdalshringinn er
farið upp að Hengifossi og að
Skriðuklaustri þar sem Gunnar
Gunnarsson skáld bjó.
í hverri viku er haldið Ormsteiti á
Egilsstöðum. Það er nokkurs konar
þorrablót fyrir ferðamenn, þjóð-
dansar eru dansaðir, þorramatur er
ÞAÐ ER BARA BÆJARLEIÐIBORGARNES
VIÐ BOR GARFJARÐARBR U
Komið VÍð í einni ghesilegustu Kjörbúð með miklu matvöruúrvali - Veitingasalur -
þjónustumiðstöð landsins. Greiðasala - Olíu- og bensínsala - Útibú Sparisjóðs
Onið frá kl K-21 V) nlln Haaít Mýrasýslu - Upplýsingamiðstöð ferðamanna - Urvals
upw ira KI. Ö-ZJ.JU aua aaga. snyrtiaðstaða með skiptiborði fyrir kornabörn.
KAUPFÉLAG BORGFIRÐINGA - OLÍUFÉLAGIÐ HF.