Tíminn - 27.07.1991, Page 13
Laugardagur 27. júlí 1991
HELGIN
Borgarfjörður og Mýrar hafa upp á
mikið að bjóða fyrir ferðamann sem
vill skoða og ferðast um landið.
Ef byrjað er í Hvalfirði má nefna
fossinn Glanna í Botnsdal, Saurbæ,
Vatnaskóg og vötnin í Svínadal. Bæði
í Svínadalnum og Skorradal er mikil
sumarbústaðabyggð og veiði seld í
vötnum. í Skorradal er mikil skóg-
rækt og eru þar merktar gönguleiðir.
En ef haldið er áfram úr Hvalfirði
þjóðveg nr 1 liggur leiðin um Skil-
mannahrepp, en þar er t.d. Jám-
blendiverksmiðjan á Grundartanga.
í Leirár- og Melahreppi má nefna hið
foma höfúðból Leirá. Gönguferðir á
Hafnarfjall hafa notið mikilla vin-
sælda og er um ýmsar leiðir að velja,
t.d. frá Ölveri eða á TUngukoll frá
Gijóteyri. Eins má ganga á Heiðar-
hom í Skarðsheiði, en það er erfiðari
leið.
Hafnarskógur er vinsæll ferða-
mannastaður og útivistarsvæði.
Ef farið er í uppsveitir kemur maður
fyrst í Andakflshrepp. Þar er Andakfls-
árvirkjun og Bændaskólinn á Hvann-
eyri.
í Reykholtsdal er sjálft Reykholt með
Snorralaug og Snorrastofu. Þar er
líka Deildartunguhver, einhver sá
stærsti í heimi og liggur hitaveitu-
lögn þaðan að Hvanneyri, Borgamesi
og allt suður á Akranes.
Úr Reykholtsdal í Hálsasveit er
Húsafell, löngu landkunnur ferða-
mannastaður.
Vesturland
í Hvítársíðu em frægir hellar, Surts-
hellir, Hallmundarhellir og Víðgelm-
ir.
Þegar komið er í Norðurárdal nefn-
um við Hreðavatn, Grábrók, Baulu,
fossinn Glanna í Norðurá, Bifröst og
fleiri staði.
Mjög víða er töluverð þjónusta við
ferðamenn. Veitinga- og gististaðir,
bæði í skólastofnunum og bænda-
gisting, að ógleymdum Hreðavatns-
skála og fleiri minni veitingastöðum.
Borgames hefur lengi verið þjón-
ustubær, bæði fyrir sveitimar og svo
ferðamenn. Hótel Borgames stendur
alltaf fyrir sínu og tvær þjónustu-
stöðvar hafa risið við Brúartorg.
Tjaldstæði bæjarins er þama alveg
við. Þaðan er því stutt í flesta þjón-
ustu.
Þegar komið er vestur fyrir Borgar-
nes er Borg á Mýmm, og þaðan ligg-
ur leiðin vestur Mýrar. Þar er bæði
hægt að fara hinar ýmsu leiðir með
sjónum.
Ferðamönnum, sem koma til Stykk-
ishólms, gefst kostur á að fara með
Eyjaferðum í skemmtisiglingu um
suðureyjar Breiðafjarðar. Sigldur er
hringur um eyjamar og þær skoðaðar
í nálægð. Fuglalífið er mjög fjöl-
skrúðugt á eyjunum. Þar em einnig
mjög fallegar og sérkennilegar berg-
myndanir, s.s. stuðlaberg. Siglt er inn
í Hvammsfjarðarröst í sjávarfalla-
straumana þar.
Það, sem hefúr vakið mesta athygli í
ferðinni, er þegar farið er á skelveiðar.
Farþegum er gefinn kostur á að
bragða á ferskum skelfiski og ígul-
kerahrognum. Mikil og vaxandi að-
sókn hefúr verið í þessar ferðir og er
oft uppselt og er því gott að láta bóka
sig fyrirfram.
Þess má geta að á Akranesi er boðið
upp á gönguferð fyrir alla fjölskyld-
una á Akrafjall. Óvíða er eins víðsýnt
og af Akrafjalli. Göngufólk ætti að
vera í ömggum höndum, því Hjálpar-
sveitir skáta annast fararstjómina.
Annar skemmtilegur möguleiki er að
fara á skak og veiða í matinn. Að lok-—‘
inni veiðiferð er hægt að grilla í skóg-
rækt bæjarins sem er skammt frá
Byggðasafninu að Görðum.
Góður golfvöllur er á Akranesi. Með-
an áhugasamir golfarar em að reyna
við holu í höggi geta aðrir leigt sér
hjól og hjólað um bæinn eða um-
hverfis Akrafjall.
Auðvelt er að komast til Akraness,
því Akraborgin siglir 4-5 sinnum á
dag milli Akraness og Reykjavíkur.
Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn
er rekin á Akranesi allt árið.
Á Snæfellsnesi er hægt að leigja sér
bát, fara í golf, sjóstangaveiði, sund
eða skoða söfn. Bátaleiga er hjá Silf-
urlaxi hf. í Hraunsfjarðarlóni við
Hraunsfiörð. Þar em einnig seld
veiðileyfi.
Hildibrandur Bjamason í Bjamar-
höfn, Helgafellssveit, verkar hákarl og
geta gestir og gangandi kynnst því
hvemig verkunin fer fram.
Skoðunarferðir fyrir Jökul em alla
virka daga. Lagt er af stað frá Helliss-
andi um hádegið og komið til baka
síðdegis. Þá hefúr Gistiheimilið Höfði
í Ólafsvík milligöngu um ferðir á vél-
sleðum á Snæfellsjökul. Einnig sér
Félagsheimilið Snæfell á Amarstapa
um ferðir upp að jökulrönd og ferðir á
vélsleðum á jökulinn.
-SIS