Tíminn - 27.07.1991, Síða 15

Tíminn - 27.07.1991, Síða 15
Laugardagur 27. júlí 1991 23 MÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL skorist. Hann vafði lík Yanes inn í röndótt teppi og dró það út í bflskúr- inn. Rhodes sótti Datsun-bifreið Yanes og ók henni inn í bflskúrinn og lok- aði á eftir sér. Þá hafði hann næði til að troða máttvana og blóði drifnum manninum í farangursrými bifreið- arinnar. Linda sagðist hafa aðstoðað hann við þessar framkvæmdir, þvert gegn vilja sínum. Síðan héldu þau til veit- ingahúss í grenndinni. Rhodes skip- aði henni að bíða þar á meðan hann færi með bflinn og legði honum ein- hvers staðar. Linda var enn skelfingu lostin vegna þeirra atburða, sem hún hafði orðið vitni að, og hlýddi því sem henni var sagt að gera, orða- laust. Hún hafði séð það ofbeldi, sem Rhodes var fær um að beita, og ótt- aðist hvað kynni að verða um hana ef hún stæði uppi í hárinu á honum. Nokkrum mínútum síðar sneri Jorge Paul Rhodes aftur til veitinga- hússins þar sem Linda beið viti sínu íjær af skelfingu. Saman héldu þau aftur til hússins þar sem Yanes hafði verið drepinn á svo ruddalegan hátt skömmu áður. í sameiningu þrifu þau upp blóðið, tóku ísstinginn, kylf- una og blóðugu sængurfötin, sem Lögreglumenn flytja lík Yanes til krufningar. þurrkuðu rykið af skýrslunni um Ya- nes og hófust handa við það mál að nýju. Samkvæmt frásögn lögreglunnar í New Orleans bjó vitnið þar yfir upp- lýsingum, sem engum áttu að vera kunnar nema morðingjanum eða þeim sem viðstaddir höfðu verið þegar morðið var framið. Þetta var vísbendingin sem lögregl- an hafði beðið eftir, og strax daginn eftir héldu tveir lögreglumenn til New Orleans þar sem þeir voru kynntir fyrir vitninu, sem reyndist vera frænka morðingjans. Vitnið, sem hér verður kallað Linda, sagði óhugnanlega sögu af því sem átt hafði sér stað þann 8. mars 1982. Linda sagði að morðinginn, Jorge Paul Rhodes, hefði lengi keypt kóka- ín af Jorge Yanes. Yanes seldi Rhodes efnið og Rhodes flutti það síðan til New Orleans þar sem hann seldi það með talsverðum hagnaði. Eitt sinn þegar þau höfðu átt við- skipti, hafði Yanes reynt að fá Lindu til við sig. Hún vísaði honum á bug, sárreið. Síðan velti hún því fyrir sér hvort hún ætti að segja Rhodes frá því sem gerst hafði. Eftir að hafa íhugað málið vel og vandlega sagði hún að lokum Rho- des frá því sem Yanes hafði gerL Hún sagði að Rhodes hefði orðið ösku- reiður yfir því virðingarleysi sem Ya- nes hefði sýnt. Hvemig gat Yanes, sem var einn af hans bestu vinum, leyft sér að gera hosur sínar grænar fyrir frænku hans? Rhodes sagði Lindu að hann ætlaði sér að drepa Yanes fyrir vikið, en hún trúði hon- um ekki. Um það bil mánuði síðar þurftu mennimir tveir að eiga viðskipti heima hjá ættingjum Rhodes á Mi- ami. Þeir höfðu ákveöið og skilvirkt skipulag á viðskiptaháttum sínum. Yanes afhenti Rhodes kókaínið og síðan borgaði Rhodes honum næst þegar þeir hittust. Rhodes skuldaði Yanes alltaf eina afhendingu í hvert skipti sem þeir hittust. Rhodes notaði Lindu frænku sína til þess að lokka Yanes inn í svefn- herbergið þar sem hann gæti drepið hann. Grunlaus konan hélt að Rho- des væri bara að grínast og ætlaði aðeins að framkvæma enn ein við- skiptin á sinn venjulega hátt. Linda hélt áfram frásögn sinni og skýrði frá því að Rhodes hefði virst taugaóstyrkur þegar þau sátu þrjú saman í svefnherberginu. Hún sat á rúmstokknum við hliðina á Yanes, sem var að telja peningana sem Rho- des hafði afhent honum. Þegar hann var búinn að telja peningana, sagði Yanes að hann hefði ekki fengið nægilega mikið greitt. Rhodes baðst afsökunar og sagði að vera kynni að hann hefði skilið eitt peningabúnt eftir í skúffunni þar sem hann hefði geymt peningana. Linda sagði að Rhodes hefði gengið um gólf í her- berginu og farið út úr því nokkmm sinnum. Hefndin framkvæmd Hún kvaðst þá hafa verið farin að ró- ast og verið orðin sannfærð um að Rhodes hefði ekki verið alvara þegar hann talaði um að drepa Yanes. Skyndilega veittist Rhodes að Yanes og stakk hann hvað eftir annað f brjóstið með íssting. Kröftugar stungumar ráku vopnið á kaf í bringu fórnarlambsins. Rho- Tæknimenn lögreglunnar rannsökuöu bifreiöina, sem líkið fannst í, í krók og kring. des rak stinginn hvað eftir annað í manninn. Linda kvaðst hafa farið al- veg úr sambandi og staðið höggdofa á meðan mennimir tveir áttust við í litlu og snyrtilegu svefnherberginu. Blóðið byrjaði að fossa úr sárum Ya- nes á meðan hann og árásarmaður- inn tókust á og veltust um gólfið. Ya- nes bölvaði Rhodes og spurði hann hvers vegna hann gerði sér þetta. Rhodes var einnig orðinn löðrandi í blóði. Þó svo að Yanes væri mikið særður og hefði misst mikið blóð, barðist hann hetjulega fyrir lífi sínu og gerði Rhodes erfitt fyrir. Þá kallaði Rhodes til Lindu og skip- aði henni að færa sér homabolta- kylfu. Hún var ráðþrota og vissi ekki hvernig hún ætti að bregðast við. Þrátt fyrir að Yanes væri stór maður og kröftugur vom sárin og blóðmiss- irinn farin að hafa sín áhrif. Hann barðist eins og tígrisdýr með sein- ustu kröftunum sem líkami hans bjó yfir. Adrenalínið, sem dældist út í líkama hans, virtist vega á móti blóð- missinum og veita honum kraft. Aftur öskraði Rhodes á Lindu um að færa sér kylfuna. í þetta skipti hlýddi hún. Rhodes reif sig frá Yanes, greip kylfuna og barði hann hvað eftir annað í höfuðið. Helsærður féll Ya- nes á bióðugt gólfið. Linda sagðist hafa staðið sem steini lostin þegar Rhodes veitti Yanes seinasta höggið. Svitinn rann niður andlit hans þar sem hann stóð móð- ur og horfði á látinn manninn — manninn sem til skamms tíma hafði verið einn hans nánasti vinur. Rho- des var alþakinn blóði fómarlambs síns. Linda var skelfingu lostin og magn- vana þegar Rhodes skýrði henni frá því hvernig hann hefði hugsað sér að losna við líkið. Hann sagði að hann ætlaði að setja líkið af Yanes aftur í bfl hans og leggja honum einhvers staðar. Síðan skyldu þau snúa aftur til New Orleans eins og ekkert hefði í þau höfðu notað til að þurrka upp blóðið. Síðan stigu þau upp í bifreið sína og héldu til New Orleans. Á leiðinni losaði Rliodes sig við sönnunargögnin á mismunandi stöðum, svo lögreglan gæti ekki tengt þau saman ef þau fyndust. Á leiðinni rifjaði Linda upp atburði þar sem hún sat við hliðina á Rho- des. Þegar til New Orleans kom héldu þau aftur til sinna daglegu starfa. Eftir því sem tíminn leið, sagði Linda, breyttist Rhodes smám sam- an. Nokkrum mánuðum síðar hót- aði Rhodes að drepa hana og aðra frænku þeirra. Þar sem Linda vissi manna best að Rhodes var fullfær um að fremja morð, tók hún hótan- ir hans alvarlega og ákvað að hafa samband við lögregluna í New Orle- ans. Þegar Linda hafði lokið frásögn sinni héldu lögreglumennirnir inn í annað herbergi til skrafs og ráða- gerða. Þeir komust að þeirri niður- stöðu að frásögn hennar nægði til þess að ákæra Rhodes fyrir morðið á Jorge Yanes. Haft var samband við ríkissaksóknara og skömmu síðar var gefin út handtökuskipun á Rho- des. Þegar handtökuskipunin var feng- in, var hafist handa við að Ieita að morðingjanum. Hann fannst á götu síðdegis daginn eftir, var handtek- inn og fluttur til höfuðstöðva lög- reglunnar í New Orleans. Samhent fjölskylda Gerðar voru ítrekaðar tilraunir til að yfirheyra Rhodes, en hann bar fyrir sig ákvæði stjórnarskrárinnar um að segja ekki orð og steinþagði. Þó svo að hinn grunaði væri nú í gæsluvarðhaldi, gerði lögreglan sér grein fýrir að mikil vinna var eftir áður en málið yrði til lykta leitt. Nægilegar lagalegar ástæður og líkur voru fyrir því að ákæra Rho- des, en málið var ekki nægilega traust til að fara með það fyrir rétt. Nokkrum vikum sfðar hafði Iögregl- an samband við Lindu að nýju og bað hana að gangast undir lygamæl- ispróf til að sannreyna frásögn hennar. Linda varð fúslega við þeirri beiðni og á meðan á prófinu stóð bætti hún fleiri atriðum við fyrri frá- sögn, sem urðu til þess að fleiri vitni fengust að hinum hryllilega atburði. Linda sagði að fleiri ættingjar Rho- des hefðu aðstoðað við að koma Iíki fórnarlambsins fyrir í farangursrými bifreiðarinnar og einnig veitt hon- um lið við að losa sig við sönnunar- gögn. Ennfremur skýrði hún frá því að þegar Yanes lá á gólfinu í blóði sínu, hefði hann gripið um ökklann á Rhodes. Honum dauðbrá og greip kafarahjálm úr málmi og slengdi honum af öllu afli á milli fóta Yanes. Ættingjar Rhodes komu síðan með hjálminn til Los Angeles. Rhodes gaf vinum sínum hjálminn. Vinirnir héldu hjálminum um hríð, en þegar þeir komust að því að hann hafði verið notaður við að fremja morð, bræddu þeir hann og hentu honum síðan. Lygamælirinn gaf til kynna að Linda segði sannleikann. Henni var því skilað til síns heima. Þar sem frásögn hennar var sannleikanum samkvæm og fyrir samvinnu þá, sem hún hafði veitt lögreglunni, ákvað saksóknari að sækja hana ekki til saka vegna þess þáttar sem hún hafði átt í morðinu á Jorge Yanes, en hún varð að bera vitni við réttar- höldin yfir Rhodes. Lögreglumennimir frá Miami héldu nú aftur til New Orleans þar sem þeir höfðu samband við þá vini, sem Rhodes hafði gefið hjálminn, og einnig við aðra, sem að sögn Lindu hafði verið sagt frá morðinu. Lög- reglumennirnir voru nokkra daga í New Orleans og tókst að fá eiðsvar- inn framburð nokkurra þessara vitna. Lögreglumennirnir sneru aftur til Miami og færðu saksóknara þau gögn, sem þeim hafði tekist að afla. Nú var fengin húsleitarheimild til að rannsaka húsið þar sem morðið hafði verið framið. Þegar lögreglan kom inn í húsið var þar allt tandur- hreint og í röð og reglu. Lögreglan hafði því litla trú á því að nokkuð það fyndist, sem bent gæti til þess að þessir atburðir hefðu átt sér þar stað. Samt sem áður var þetta nauðsyn- legur þáttur í rannsókn málsins og með í för vom nokkrir starfsmenn tæknideildar með sín nákvæmu og háþróuðu rannsóknartæki. Þeir rannsökuðu herbergið, sem morðið hafði að sögn verið framið í, og þá staði sem farið hafði verið með líkið. Ekki fannst minnsti blóðblettur eða nokkur önnur vísbending, sem nota mætti til að tengja húsið við morð- ið. Samið við morðingjann Samningaviðræður fóru nú í gang milli Jorge Paul Rhodes og saksókn- ara. Rhodes samþykkti að játa sig sekan um manndráp og afþlána 12 ára fangelsisdóm. I staðinn skyldi hann skýra frá öllum atriðum máls- ins. í yfirlýsingu sinni játaði Rhodes að hafa orðið Jorge Yanes að bana, vegna þess að Yanes hafði stigið í vænginn við Lindu, frænku hans. Rhodes sagði ennfremur að þáttur Lindu í morðinu væri mun stærri en hún vildi vera láta, en hann væri reiðubúinn til að taka á sig alla sök í málinu. Hann skýrði frá þessu öllu sallarólegur og lét þess getið að honum þætti enn vænt um Lindu, þrátt fyrir að hún hefði brugðist honum og leitað til lögreglu. Þegar Rhodes hafði gefið yfirlýs- ingu sína gat lögreglan í Miami loksins lokað þessu erfiða morð- máli. Það hafði tekið nærri því tvö ár, en nú hafði morðingi Jorge Yanes loks verið dreginn fyrir lög og rétt og hafið afplánun dómsins.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.