Tíminn - 27.07.1991, Qupperneq 16
24
HELGIN
Laugardagur 27. júlí 1991
mundar Valtýssonar og Eyjólfur
Kristjánsson, Ný Dönsk, GCD og
fleiri. Boðið er upp á ýmislegt fyrir
bömin, svo sem Möguleikhúsið,
barnaball og knattspyrnu. Þá verður
flugeldasýning eitt kvöldið.
Ýmislegt er þó hægt að gera í Vest-
mannaeyjum, þrátt fyrir að þjóðhá-
tíð standi ekki yfir. Rafn Pálsson
hótelstjóri sagði að boðið væri upp á
skoðunarferðir með rútum alla
daga, sem taka um tvo klukkutíma. í
beinu framhaldi af því eru bátsferðir
þar sem siglt er inn í Klettahelli og í
kringum Heimaey.
Golfarar fá sitt líka, þvf að í Vest-
mannaeyjum er golfvöllur.
Gott og mikið fiskasafn er í Eyjum
og sagðist Rafn ráðleggja öllum að
kíkja þangað.
Tjaldstæði eru að sjálfsögðu á
staðnum og aðstaða þar hin besta.
-SIS
Vestmannaeyjar:
Þjóðhátíð
í nánd
Að venju munu Vestmannaeyingar
halda sína þjóðhátíð um verslunar-
mannahelgina í Herjólfsdal. Tvær
vikur eru síðan undirbúningur hófst
og gengur hann vel. Búist er við að
fjöldinn á þjóðhátíð verði svipaður
og undanfarin ár, en þá hafa komið
allt að tíu þúsund manns. Þjóðhátíð
Vestmannaeyja er elsta útihátíð á ís-
Iandi, en hún var fyrst haldin árið
1874. Þjóðhátíðin á sögu, sem er ná-
tengd sjálfstæðisbaráttu íslensku
þjóðarinnar, þegar íslendingar
fengu stjórnarskrána 1874. Eyja-
menn komust ekki til lands til þess
að halda upp á þennan stórviðburð í
sögu þjóðarinnar og söfnuðust því
saman í Herjólfsdal og minntust
tímamótanna. Það gera þeir enn ár-
ið 1991 og hafa gert nánast samfellt
frá árinu 1901.
í tengslum við þjóðhátíð munu
Flugleiðir bjóða í fyrsta skipti
pakkaferðir á Þjóðhátíð frá öllum
áætlunarstöðum innanlands. Hag-
stætt verð er í boði og er fólki bent á
að kynna sér það nánar hjá Flugleið-
um. Herjólhir verður einnig með
ferðir á milli lands og eyjar.
Meðal skemmtiatriða eru Ómar
Ragnarsson, Sverrir Stormsker,
Bubbi Morthens, Hljómsveit Geir-
Vímulaus verslunarmannahelgi meö fjölskyldunni í Galtalækjar-
skóg.
kaupfélag Austur-Skaftfellinga
HÖFN í HORNAFIRÐI
býður ferðafólki þjónustu sína í verslunum og söluskálum að:
Höfn, Hornafirði - Fagurhólsmýri
Skaftafelli - Djúpavogi
Höfum ávallt á boðstólum alls konar
nauðsynjar fyrir ferðafólk.
Velkomin 1 Austur-
Skaftafellssýslu
kaupfélag Austu r-Skaftf ellinga
HÖFN, HORNAFIRÐI - FAGURHÓLSMÝRI - SKAFTAFELLI - DJÚPAVOGI
Bindindismótið í Galtalækjarskógi:
Spaugstof-
an sér um
fjörið
Sigurður B. Stefánsson, fjármála-
stjóri Bindindismótsins í Galtalækj-
arskógi, sagðist búast við að 6-9000
manns myndu eyða verslunar-
mannahelginni í skóginum. Fyrir 16
ára og eldri kostar 5000 krónur inn á
svæðið, 4500 fyrir 13-15 ára, og fyr-
ir 12 ára og yngri er aðgangur
ókeypis.
Að sögn Sigurðar eru rútuferðir frá
BSÍ á föstudag og laugardag og til
baka á mánudaginn. Undirbúningur
fyrir mótið hófst í febrúar og stend-
ur hann nú sem hæst. Nýlega var
gengið frá samningum við þær
hljómsveitir og skemmtikrafta sem
koma fram í viðamestu dagskrá sem
verið hefur frá upphafi mótanna.
Á síðasta mót komu fleiri gestir en
nokkru sinni fyrr. Af þeim mikla
fjölda var rúmlega helmingurinn
börn og unglingar og eins og alltaf
þá er fjölskyldan sá kjarnahópur sem
setur mestan svip á bindindismótin í
Galtalækjarskógi.
Því er ekki að ástæðulausu að allur
undirbúningur fyrir mótin, topp-
dagskrá og aukin og bætt aðstaða sé
miðuð við áhuga, þarfir og kröfur
fjölskyldunnar. Góð gæsla og áfeng-
islaust mót setur punktinn yfir i-ið á
fjölskylduhátíð sumarsins.
Eins og á síðasta móti er það
hljómsveit Ingimars Eydal sem sér
um dansleiki á palli fýrir alla fjöl-
skylduna. Auk þess sér hljómsveitin
um Galtalækjarkeppnina, söngvara-
keppni fyrir yngri mótsgesti.
í kúluhúsinu Heklu eru það hljóm-
sveitirnar Busarnir frá Stykkis-
hólmi, Sororicide (Infusoria), Sjá-
umst í sundi (SÍS) og Timburmenn
(drekka ekki) sem sjá um að hrella
og trylla unglingana á dansleikjum
mótsins. Auk þess verða tvær ung-
lingahljómsveitir með tónleika að
degi til í Heklu.
Spaugstofan er það atriði sem hæst
rís í skemmtidagskrá mótsins að
þessu sinni.
Af öðrum dagskráratriðum má
nefna Bjössa bollu, Raddbandið,
ökuleikni, hjólreiðakeppni, tívolí,
gönguferðir, minigolf og flugelda-
sýningu.
Sigurður B. Stefánsson sagði að
búið væri að koma up 21 nýjum
vatnssalernum og þjónustumiðstöð
og aðstaða fyrir skemmtikrafta hefur
verið lagfærð og endurnýjuð.
Þótt gæslan á svæðinu sé hert á
hverju ári og ítrekuð fyrirmælin um
að skilja áfengið eftir heima, þegar
farið er á bindindismót, þá eru það
gestirnir sjálfir sem ráða mestu um
það hvernig til tekst, fólkið sem
heldur tryggð við staðinn og fjöl-
skyldurnar sem vilja skemmta sér í
áfengislausu umhverfí.
-SIS