Tíminn - 30.07.1991, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Fangavarðafélag íslands mótmælir harðlega þeirri ákvörðun að vista á ný ósakhæfa afbrotamenn í fangelsum:
Smánarblettur á
heilbrigðiskerfinu
Fangavarðafélag íslands mótmælir harðlega þeirri ákvörðun stjóm-
valda að vista á ný ósakhæfa afbrotamenn í afplánunarfangelsum.
„Um áratuga skeið hefur sá smánarblettur hvflt á íslenska heil-
brigðiskerfinu að geðsjúkum afbrotamönnum hefur verið neitað
um viðeigandi meðferð og aðhlynningu. Lausnin, sem þessu ógæfu-
fólki hefur verið boðin, er vistun í afplánunarfangelsi ótímabund-
ið,“ segir í ályktun frá stjóra félagsins.
Jafnframt segir að í fangelsum sé
starfsfólk ekki sérmenntað til um-
önnunar geðsjúkra manna eða
kvenna; eins séu aðstæður til að
sinna þessu fólki nánast engar.
„Þetta fólk hefur einfaldlega verið
„geymt“ í aíþlánunarfangelsum
nánast án þess að til hafi komið sér-
stakt eftirlit geðlækna eða annarra
sérfræðinga. Það hefur oft sætt
furðu meðal fangavarða hve geð-
heilbrigðisþjónustunni leyfíst að
hafna algjörlega tilteknum hópi
geðsjúklinga um nauðsynlega að-
stoð.“
í greinargerð, sem Jóhannes A.
Sævarsson hdl. hefur gert fyrir
Fangavarðafélagið um lagalega hlið
þessa máls, segir, að ekkert sé tekið
á málefnum öryggisgæsluþola í lög-
um nr. 48/1988 um vistun sakhæfra
manna. Það þyki undirstrika þann
vilja löggjafans, sem fram kemur í
almennu hegningarlögunum, að
ótækt teljist að vista þennan hóp
manna á refsivistarstofnunum með-
al afplánunarfanga.
„Sú ætlun stjórnvalda að vista geð-
sjúka afbrotamenn að nýju á refsi-
vistarstofnunum verður því að telj-
ast mikil afturför frá þeirri viðleitni,
sem farið var að bera á og fólst í að
færa málefni þessara manna í átt til
þess sem löggjafinn ætlaði í upphafi
við setningu alm. hgl.,“ segir í
greinargerð Jóhannesar.
—SE
Búnaðarbanki íslands efnir til:
HUGMYNDA-
SAMKEPPNI
Búnaðarbanki íslands efnir um
þessar mundir til hugmyndasam-
keppni um útlit og skipulag af-
greiðslusala í útibúum. Samkeppn-
in er háð í samvinnu við Arkitekta-
félag íslands og verða þátttakendur
að nota útibú bankans í Kópavogi
og Háaleiti sem umgjörð um hug-
myndir sínar.
I fréttatilkynningu frá bankanum
segir að tilefni samkeppninnar sé að
breyta afgreiðslusölum bankans í
takt við nýja tíma.
Þá kemur og fram að keppnislýsing
liggi frammi hjá Arkitektafélagi ís-
lands, en keppnisgögn hjá Guðlaugi
Gauta Jónssyni arkitekt, sem er
trúnaðarmaður keppninnar. Skila-
frestur er 5. nóvember n.k.
-HÞ
Kvef eða veirusýkingar í efri loftvegum hrjáð fólk í
júnímánuði:
715 skráð tilfelli
Samkvæmt skýrslu um farsóttir í
Reykjavíkurumdæmi í júní 1991
leituðu 715 einstaklingar til læknis
vegna kvefs og annarra veirusýk-
inga í efri loftvegum.
Hundrað og níu leituðu lækninga
vegna iðrakvefs. 33 tilfelli greindust
með Iungnabólgu, 11 með hlaupa-
bólu og 14 með hálsbólgu af völdum
sýkla.
Aðeins einn var skráður með kíg-
hósta, og sama reyndist með mis-
linga. Enginn var skráður með in-
flúensu, einkirningasótt, rauða
hunda, hettusótt eða matareitrun.
Einn einstaklingur var skráður
með maurakláða.
Þessar tölur voru teknar saman úr
skýrslu einnar heilsugæslustöðvar,
tveggja lækna og Læknavaktarinnar
sf.
-sis
Þriðjudagur 30. júlí 1991
llndirbúningur að samtökum
gegn EES í fullum gangi:
Undirtektir
framar öll-
um vonum
Bjarni Einarsson, einn af for-
svarsmönnum tun stofnum
samtaka gegn evrópsku efna-
hagssvæði, segir að stefnt sé að
því að samtökitt verði formlega
stofnuð þegar lfða fer á ágúst.
„Undirtektir hafa verið gífur-
lega góðar, miklu betri en mað-
ur þorði að vona,“ segir Bjarni.
Starfshópar eru starfandi um
allt land við undirskriftasöfnun
og fleira.
.Aðalatriði málsins er að pína
fram þjóðaratkvæðagreiðsiu, ef
EES-samnÍngurinn verður
samþykktur. í raun er maður
undrandi yflr að þurfa þess, því
þama er um tvímælalausa full-
veidisskerðingu að ræða, og
brot á stjómarskránni. En þess-
ir menn vflja ekki túika það
þannig og því verðum við að
fara þessa leið og ætlum að fá
meirihluta þjóðarinnar bak við
þessa kröfu,“ segir Bjaml Ein-
arsson.
Utanríkisráðherra írlands:
Veiddi í
landhelgi
Utanríkisráðherrar írlands og ís-
lands fóru ásamt konum sínum í
sjóstangaveiði sl. laugardag úti á
Faxaflóa á sjóstangaveiðibátnum
ms. Áraesi.
Ferðin var liður í opinberri heim-
sókn írska ráðherrans hingað til
lands. Á myndinni sést írski ráð-
herrann Gerard Collins draga á land
tvo af þeim fjölmörgu fiskum sem
hann krækti í, en hann og kona
hans voru hreint ótrúlega fiskin. Ut-
anríkisráðherrafrúin íslenska stóð
sig líka vel, en fáum sögum fór af
ráðherranum sjálfum. Að því er
hann sagði sjálfur frá, veiddi hann
eina undirmálslýsu, en sjónarvottar
sáu hann einnig draga upp tor-
kennilegt botndýr, sem virtist vera
einhvers konar svampur. Bátsverji
hafði á orði, þegar hann sá feng ís-
lenska utanríkisráðherrans, að hann
skildi nú hvers vegna núverandi
sjávarútvegsráðherra væri ekki til í
að skipa krata sem formann nefndar
sem á að sjá um endurskoðun sjáv-
arútvegsstefnunnar.
Timamynd: SE
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1984-1.fl. 01.08.91-01.02.92 kr. 53.859,13
*)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi,1 og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, júlí 1991.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Öryggisgæsla og góður aðbúnaður í fyrirrúmi í Húnaveri:
Engin áfengis-
leit skipulögð
Rokktónlistarhátíðin Húnaver ‘91
verður haldin í fjórða sinn nú um
verslunarmannahelgina. Geysimikfl
vinna hefur verið lögö í að gera alla
aðstöðu sem best úr garði, bæði fyrir
hátíðargesti og þá listamenn sem
fram koma. Á hátíðinni koma fram
alls 45 hljómsveitir.
í fréttatilkynningu frá aðstandend-
um hátíðarinnar kemur fram að ekki
verður um skipulagða Ieit að áfangi
að ræða. En öryggisgæsla og góður
aðbúnaður verður í fyrirrúmi. Miðað
er við að gestir séu á 16. aldursári eða
eldri, nema þeir séu í fylgd með og á
ábyrgð sér eldri gesta. Aðgangseyrir
er að öllu meðtöldu kr. 5.900,- fýrir
helgina alla 2.-6. ágúst. Sætaferðir frá
Reykjavík og Akureyri, auk allra
helstu kaupstaða á landinu. -js
Sumarmót AA-samtakanna
Sumarmót AA-samtakanna verður
haldið að venju dagana 2.-5. ágúst
nk. að Húsafelli. Þar koma fram
ýmsir AA-félagar og einnig gestir
frá Al-Anon samtökunum, sem eru
samtök aðstandenda alkóhólista.
AA-samtökin eru félagsskapur
karla og kvenna sem samhæfa
reynslu sína, styrk og vonir, svo að
þau megi leysa sameiginlegt vanda-
mál sitt og séu fær um að hjálpa öðr-
um til að losna frá áfengisbölinu.
Á Húsafelli er sundlaug, heitir
pottar, gufuböð og minigolf, svo eitt-
hvað sé nefnt. Einnig mun Snigla-
bandið leika fyrir dansi.
Sætaferðir eru frá Umferðarmið-
stöðinni föstudaginn 2. ágúst kl.
18.30. Aðgangseyrir er kr. 2.200,- og
frítt fyrir 16 ára og yngri. -js