Tíminn - 30.07.1991, Blaðsíða 10

Tíminn - 30.07.1991, Blaðsíða 10
lOTíminn! Þriðjudagur 30. júlí 1991 MINNING Gunnlaugur Kristjánsson aðstoðarbankastjóri Fæddur 6. apríl 1929 Dáinn 21. júlí 1991 Kveðja frá Landsbanka íslands Enginn má sköpum renna, og oft kemur kallið óvænt þegar dauðinn á í hlut. Gunnlaugur Kristjánsson, aðstoðarbankastjóri í Landsbankan- um, sat fund bankaráðs þann 18. þ.m. og vann sín störf eins og venju- lega, en að kvöldi sama dags veiktist hann skyndilega á heimili sínu og var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést eftir aðgerð þann 21. þ.m. Gunnlaugur var fæddur í Reykja- vík, þann 6. apríl 1929, sonur hjón- anna Ingibjargar Gunnlaugsdóttur og Kristjáns F. Jónssonar. Faðir hans lést ungur að árum, og ólst Gunnlaugur upp hjá fósturforeldr- um móður sinnar, Elínu Ólafsdóttur og Jóni Sigurðssyni, skipstjóra hjá Alliance h/f, sem bjuggu á Blómst- urvöllum við Hverfisgötu. Gunnlaugur gekk í Menntaskólann í Reykjavík, og lauk stúdentsprófi þaðan 1949. Hann hóf störf í Lands- bankanum 31. mars 1953, og starf- aði við allflestar deildir bankans þannig að hann ávann sér mikla þekkingu á uppbyggingu og starf- semi þeirrar stofnunar, sem hann helgaði krafta sína til dauðadags. Af því leiddi að honum voru falin margbreytileg trúnaðarstörf í bank- anum. Hann var ráðinn aðalbókari 1961 og aðstoðarbankastjóri 1969 og hin síðustu ár var hann jafnframt ritari bankaráðs og skráði fundar- gerðir þess. Nokkrum sinnum fór Gunnlaugur heitinn í kynnisferðir á vegum bankans til Danmerkur og Englands. Gunnlaugur kvæntist eftirlifandi konu sinni, Hallgerði Sigurgeirs- dóttur, þann 9. mars 1957. Þau eign- uðust tvo syni, Jón Braga, fæddan 28. júní 1958, og Björgvin, fæddan 21. aprfl 1961. Að leiðarlokum vill undirritaður fyrir hönd Landsbanka íslands þakka Gunnlaugi Kristjánssyni að- stoðarbankastjóra fyrir langt og gott starf í þágu bankans. Hann var traustur maður og vel látinn af sam- starfsmönnum sínum. Bankinn vottar eftirlifandi konu hans, sonum þeirra og öðrum aðstandendum innilegustu samúð. Eyjólfur K. Sigurjónsson, formaður bankaráðs Landsbanka íslands Það er skarð fyrir skildi í framvarð- arsveit Landsbanka íslands þegar Gunnlaugur Kristjánsson er geng- inn fyrir ætternisstapann um aldur fram. Gunnlaugur var sá starfs- manna Landsbankans sem hvað gjörkunnugastur var starfsemi bankans, enda hafði hann unnið bankanum nær allan sinn starfsdag, hin síðari árin sem aðstoðarbanka- stjóri. Gunnlaugur var mjög háttprúður í umgengni og jafnlyndur, þótt skap- laus væri hann ekki. Hann var stál- minnugur svo með ólíkindum mátti telja og gat auðveldlega rifjað upp hin margvíslegustu efni og atriði í rekstri bankans áratugi aftur í tím- ann. Hann var maður vinsemdar og velvildar og vildi hvers manns vand- ræði leysa, þótt hagur bankans sæti að sjálfsögðu í fyrirrúmi hjá honum. Hann var maður þéttur á velli og þéttur í lund. Mér þótti vænt um Gunnlaug Kristjánsson. Kynni okkar voru að vísu skammvinn, en aldrei bar hinn minnsta skugga á samskipti okkar, og átti hann svo sannarlega drýgri þátt í því. Hann tók mér í upphafi af ljúfmennsku og hlýju sem ég fæ ekki fullþakkað. Landsbanki íslands sér nú á bak góðum dreng og gegnum liðs- manni. Starfsfólk bankans saknar vinar í stað. Bankastjómin þakkar honum dygga og þarfa þjónustu og órofa vináttu. Hallgerði konu hans og sonum em sendar innilegar sam- úðarkveðjur. Sverrir Hermannsson Það voru váleg tíðindi er mér bár- ust s.l. sunnudag, að Gunnlaugur Kristjánsson aðstoðarbankastjóri væri látinn. Gunnlaugur var fæddur í Reykjavík 6. aprfl 1929, sonur hjónanna Ingi- bjargar Gunnlaugsdóttur og Krist- jáns F. Jónssonar, en hann lést ung- ur að ámm. Gunnlaugur ólst upp hjá fósturforeldrum móður sinnar, Elínu Ólafsdóttur og Jóni Sigurðs- syni, skipstjóra hjá Alliance hf„ er bjuggu á Blómsturvöllum við Hverf- isgötu hér í Reykjavík. Gunnlaugur hóf störf í Landsbanka íslands 31. mars 1953 og starfaði við allflestar deildir bankans fyrstu árin. Var ráðinn aðalbókari bankans 1961 og síðan aðstoðarbankastjóri í sept- ember árið 1969 og gegndi því starfi farsællega til dauðadags. Gunnlaug- ur fór í nokkrar námsferðir til Evr- ópulanda á vegum bankans. Hann lauk stúdentsprófi frá M.R. 1949. Gunnlaugur Kristjánsson giftist eftirlifandi konu sinni, Hallgerði Sigurgeirsdóttur, 9. mars 1957. Þau eignuðust tvo syni, Jón Braga, f. 28.06.1958, og Björgvin, f. 21.04.1961. Gunnlaugi kynntist ég mjög vel í starfi og vomm við góðirvinir innan bankans sem utan. Því er það sárara en orð frá lýst að Gunnlaugur sé horfinn sjónum. Sá andi ríkti í kringum Gunnlaug, að allir bám fyllsta traust til hans og mikla virð- ingu fyrir þekkingu hans á banka- málum og var mjög leitað ráða til hans um þau mál. Ég votta Hallgerði konu hans og sonum mína dýpstu samúð við frá- fall góðs drengs og frábærs vinar. Hans verður sárt saknað innan Landsbankans. Arí F. Guðmundsson Andlát Gunnlaugs Kristjánssonar, aðstoðarbankastjóra Landsbanka ís- Iands, bar snöggt að. Hann lést 21. þ.m. eftir skammvinn veikindi. Gunnlaugur á að baki langan og gifturíkan starfsferil innan Lands- bankans. Hann réðst til starfa við bankann árið 1953, var ráðinn aðal- bókari 1961 og aðstoðarbankastjóri 1969. Frá árinu 1988 gegndi hann jafnframt stöðu ritara bankaráðs. Kynni okkar Gunnlaugs hófust um mitt ár 1988 þegar ég kom til starfa í Landsbankanum. Ég minnist hversu Ijúfmannlega hann tók á móti mér og varð með okkur góður vinskapur. Daglegt samstarf við Gunnlaug var bæði ánægjulegt og lærdómsríkt. Hann miðlaði af mik- illi reynslu um allt gangverk Lands- bankans, bæði menn og málefni, en hafði líka næmt auga fyrir hinu spaugilega í tilverunni. í störfum sínum var Gunnlaugur mikill Landsbankamaður. Hagur Landsbankans var honum ætíð ofar- lega í huga þegar við ræddum sam- an. Hann kunni góð skil á hinu stóra og smáa í bankastarfsemi. Að minni hyggju var þó aðalsmerki Gunn- laugs hversu töluglöggur og minn- isgóður hann var. Þessir eiginleikar gerðu hann að raunsæismanni sem hvatti menn oftar en ekki til var- kárni þegar nýjungar börðu á dyr. Gunnlaugur kvæntist eiginkonu sinni, Hallgerði Sigurgeirsdóttur, árið 1957 og eignuðust þau tvo syni. Þau voru samhent og viðmót Hall- gerðar gagnvart okkur hjónum var hið sama og Gunnlaugs þegar ég hitti hann fyrsta sinni, afar ljúf- mannlegt. Við Sólveig sendum Hall- gerði okkar innilegustu samúðar- kveðjur, svo og sonum þeirra og öðrum aðstandendum. Gunnlaugs mun verða saknað innan Lands- bankans. Eftir lifir minningin um góðan og heiðarlegan mann. Björa Líndal Guðmundur Kristjánsson Fæddur 5. mars 1903 Dáinn 15. júní 1991 Guðmundur Kristjánsson bóndi í Arnarbæli í Grímsnesi var fæddur í Suðurkoti í sömu sveit 5. mars 1903. Foreldrar hans voru Kristján Sigurðsson bóndi, bróðir Þórðar Sigurðssonar hins fróða á Tanna- stöðum í Ölfusi, og kona hans Guð- rún Jónsdóttir. Kristján flutti að Arnarbæli 1909 og bjó þar til 1932. Guðmundur stundaði sjómennsku á vertíðinni nokkuð áður en hann settist um kyrrt og hóf búskap. Var hann sjálfur þátttakandi í útgerð við Faxaflóa. Útgerðin gekk vel þrátt fyrir kreppu og lágt fiskverð og högnuðust þeir sem áttu. Guð- mundur tók við búi í Arnarbæli 1932 og bjó þar meðan heilsan ent- ist. Kona Guðmundar var Sigríður Árnadóttir frá Oddgeirshólum í Hraungeröishr. Börn þeirra eru 4. U1 Sambýlismaður minn Stefán Kristjánsson Ysta-Koti f V.-Landeyjum lést af slysförum 26. júlí síöastliðinn. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Valgerður Sigurjónsdóttir fyrrv. bóndi í Arnarbæli Guðmundur var góður búmaður, sérstaklega var til þess tekið hvað hann hafði góðar nytjar af kúnum. Guðmundur var ekki neinn sérstak- ur þrekmaður, en eigi að síður var hann með allra afkastamestu mönn- um til verka og öll verk léku í hönd- um hans. í viðræðum var hann bæði rökfastur og málsnjall, og flutti mál sitt þannig að eftirminnilegt var þeim sem á hlýddu. Barngóður var Guðmundur, og fjölmörg börn dvöldust í Arnarbæli hjá honum í hans löngu búskapartíð. Skapaðist oft ævilöng vinátta milli Guðmund- ar og þeirra, sem hann hafði mikla ánægju af. Kynni okkar Guðmundar voru ein- göngu í sambandi við veiðimál. í Ár- nessýslu eru margir staðir fagrir, en þó finnst mér þar hvergi eins fagurt og víða með Hvítá. Þessa fegurð kunni Guðmundur að meta. Hann bjó á einni bestu lax- veiðijörðinni og var bundinn henni órjúfandi böndum. Hvítá rennur skammt fyrir framan bæinn í Arnarbæli og er aðstaða til netaveiði þar ágæt. Þessa aðstöðu kunni Guðmundur að nýta. Þegar sótt var að laxveiðihlunnindum bænda var enginn skeleggari en Guðmundur að verja rétt þeirra. Hann átti til að vera allhvassyrtur og virtist hrjúfur á yfirborðinu, en eigi að síður var hann viðkvæmur og sáttfús. Kynni mín af Guðmundi hófust um 1950 er ég fór að sækja aðalfundi Veiðifélags Árnesinga reglulega. Þá voru mikil átök meðal félagsmanna veiðifélagsins. Þessi átök leiddu til þess að nýir menn komu í stjórn fé- lagsins. Einn þeirra manna, sem þá komu í stjórnina, var Guðmundur í Arnarbæli, og var hann í henni með- an heilsa leyfði. Á efri árum bagaði Guðmund að honum dapraðist sýn, svo hann varð að hætta að aka bfl. Um margra ára skeið sá Guðmund- ur um klakveiði fyrir veiðifélagið, og um dreifingu seiðanna á vorin. Þó Guðmundur væri veiðimaður var hann fyrst og fremst ræktunarmað- ur. Hann vissi að ræktunin er undir- staða búskaparins og ræktun grip- anna, sem breyta gróðri jaröar í af- urðir, varð að fara saman. Sama lög- mál hlaut að gilda með laxinn. Hann sá að ef jafnvægi ætti að haldast í laxastofni árinnar yrði ræktun að koma til. Við, sem starfað höfum með Guð- mundi í Arnarbæli að veiðimálum um áratuga skeið, munum minnast hans sem hins skelegga baráttu- manns og þökkum honum langt og ánægjulegt samstarf. Jón Guðmundsson, Fjalli Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I Reykjavfk 26. júll tll 1. ágúst er I Laugamesapótekl og Arfaæjarapótekl. Það apótek sem fyrr er nefnt annast eltt vörsl- una frá kl. 22.00 að kvöldl tll kl. 9.00 að morgnl virka daga en kl. 22.00 á sunnudög- um. Upplýslngar um læknis- og lyfjaþjón- ustu eru gefnar I sfma 18888. Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands er starfrækt um helgar og á stórhátlðum. Sím- svari 681041. Hafnarfjörðun Hafnarfjarðar apótek og Norð- urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug- ardag ki. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00- 12.00. Upplýsingar I slmsvara nr. 51600. Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjömu apótek eru opin virka daga á opnunartima búða. Apó- tekln skiptast á sina vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opiö i þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00- 12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tlmum er lyfja- fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I síma 22445. Apótek Keflavfkur: Opið virka daga frá k. 9.00-19.00. Laugardaga, helgidaga og al- mennafridaga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30- 14.00. Selfoss: Selfoss apótek er oplð til kl. 18.30. Opið er á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opiö virka daga til kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00- 13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00. Garðabær: Apótekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00. Alnæmlsvandlnn. Samtök áhugafóiks um alnæmisvandann vilja styðja smitaöa og sjúka og aðstandendur þeirra, simi 28586. Læknavakt fyrir Reykjavfk, Seltjamames og Kópavog er i Heilsuvemdarstöð Reykjavikur alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugar- dögum og helgidögum allan sólarhringinn. Á Seltjamamosi er læknavakt á kvöldin Id. 20.00-21.00 og laugard. kl. 10.00-11.00. Lokað á sunnudögum. Vitjanabeiönir, slmaráðleggingar og timapantanir i sfma 21230. Borgarspltalinn vakt frá kl. 08-17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (simí 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysa- deild) sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sóþ arhringinn (slmi 81200). Nánari upplýslngar um lyflabúðir og læknaþjónustu erugefrrar I sim- svara 18888. Ónæmisaðgerðlr fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram á Heilsuvemdarstöð Reykjavfkur á þriðjudögum Id. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér ónæmisskírteini. Garðabær: Heilsugæslustööin Garðaflöt 16-18 er opin 8.00-17.00, simi 656066. Læknavakt er I sima 51100. Hafnarljöröur: Heilsugæsla Hafnarfjarðar, Strandgötu 8-10 er opin virka daga ki. 8.00- 17.00, slmi 53722. Læknavakt slmi 51100. Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00 virka daga. Sfmi 40400. Keflavfk: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöð Suöumesja. Simi: 14000. Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráögjöf f sálfræðilegum efnum. Slmi 687075. Landspítalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 20.00. Kvennadelldin: kl. 19.30-20.00. Sængurkvennadelld: Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartlmi fyrir feður kl. 19.30- 20.30. Barnaspftali Hrlngslns: Kl. 13-19 alla daga. Öldrunartækningadeild Landspftal- ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomu- lagi. - Landakotsspítali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17. Heimsóknartími annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borgarspítalinn f Fossvogl: Mánu- daga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir samkomulagi. Á laugardögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúölr: Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvita- bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartlmi frjáls alla daga. Grensásdelld: Mánudaga ti föstu- daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnudaga kl. 14-19.30. - Hcilsuvemdarstööin: Kl. 14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavikur: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspftali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. - Vffilsstaðaspftali: Heim- sóknartími daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - SL Jósepsspítall Hafnarfirðl: Alla daga ki. 15=16.og-19=.ia3a Sunnuhlíð hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim- sóknartimi kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Koflavfkurtæknishéraðs og heilsugæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólar- hringinn. Slml 14000. Keflavík-sjúkrahúslð: Heimsóknartími virka daga kl. 18.30-19.30. Um helgar og á hátlöum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-19.30. Akureyri- sjúkrahúsið: Heim- sóknartfmi alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00- 20.00. A barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarösstofuslmi frá kl. 22.00- 8.00, slmi 22209. Sjúkrahús Akra- ness: Heimsóknartimi Sjúkrahúss Akraness er alla dagakl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30. Reykjavfk: Neyðarsimi lögreglunnar er 11166 og 000. Seltjamames: Lögreglan sími 611166, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100. Kópavogur: Lögreglan simi 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið slmi 11100. Hafnarfiörður: Lögreglan sími 51166, slökkvi- lið og sjúkrabifreiö sími 51100. Keflavfk: Lögreglan simi 15500, slökkvilið og sjúkrabill simi 12222, sjúkrahús 14000, 11401 og 11138. Vestmanneyjar: Lögreglan, simi 11666, slökkviliö simi 12222 og sjúkrahúsið simi 11955. Akureyri: Lögreglan slmar 23222, 23223 og 23224, slökkviliö og sjúkrabifreið simi 22222. Isafjörður Lögreglan slmi 4222, slökkvilið slmi 3300, brunaslmi og sjúkrabifreiö sfmi 3333.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.