Tíminn - 30.07.1991, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 30. júlí 1991
Tíminn 9
Greinargerð um bleikjueldi hérlendis:
ÍSLENDINGAR VEL
SAMKEPPNISFÆRIR
Ólafur ísfeld Sigurðsson, fískeldisráðunautur Búnaðarfélags ís-
lands, hefur tekið saman greinargerð um stöðu bleikjueldis að
beiðni stjómar BÍ. Þar kemur fram að í fyrra hafí verið flutt út
69 tonn af eldisbleikju, aðaliega til Bandaríkjanna.
Gott verð fékkst fyrir bleikjuna,
eða um 8 $ á kg fyrir 1-2 kg fisk CIF
í New York. Það gefur um 300 kr.
skilaverð til stöðvar, sem er all-
nokkru hærra en almennt skilaverð
fyrir lax um þessar mundir. Fram-
boð af bleikju er takmarkað, áætlað
er að heildarframboð í heiminum
verði aðeins um 1.120 tonn í ár.
í greinargerðinni segir að bleikju-
eldi sé enn sem komið er á tilrauna-
og þróunarstigi og að það væri því
enn óráðlegt að hefja, með mikilli
fjárfestingu, framleiðslu í stórum
stíl. Jafhframt kennir reynslan af
laxeldi okkur að það þarf meira til
en fjöldauppbyggingu á eldisstöðv-
um ef laxeldi á að verða arðbær at-
vinnugrein.
í greinargerðinni kemur m.a. fram
að flestar þjóðir heims gera sér nú
grein fyrir mikilvægi fiskeldis í
framtíðinni, vegna fyrirsjáanlegrar
vöntunar á fiskmeti fyrir hinar ríku
iðnvæddu þjóðir. Því hafa þessar
þjóðir sett sér langtíma stefnuskrá
um uppbyggingu lagadýraeldis þar
sem gerð er grein fyrir hvemig
staðið skuli að þróun þessarar fjöl-
breyttu atvinnugreinar.
Á sama tíma lítur út fyrir að hér-
lendis ætli menn að gefast upp og
pakka saman. Slíkt væri mjög mis-
ráðið og mundi bitna á komandi
kynslóðum. Laxeldi á ekki einungis
í erfiðleikum hér á landi, heldur er
við svipaða erfiðleika að glíma hjá
öðrum framleiðsluþjóðum. Þrátt
fyrir það sjá þær framtíðarmögu-
leikana í fiskeldinu.
Það er háð ýmsum skilyrðum að
bleikjueldið geti haslað sér völl hér
á landi. Hægfara uppbygging
bleikjueldis er talin vænlegust.
Rannsóknir og kynbætur eru nauð-
synlegar, svo og markaðsrannsókn-
ir til að viðunandi rekstrarskilyrði
séu fyrir hendi.
Athuganir hafa leitt í Ijós að eldis-
bleikja er eftirsótt vara víða í heim-
inum. Einnig er ljóst að aðstæður
til bleikjueldis eru jafn góðar og
jafnvel betri hér á landi en í helstu
samkeppnislöndum okkar, Kanada,
Noregi og Grænlandi. Ef rekstar-
skilyrði reynast viðunandi getum
við boðið eldisbleikjuna á sama
verði, ef ekki lægra verði, en þessi
lönd.
-SIS
Innlagt kjöt hjá SS minnkað vegna vanskila við bændur:
Fær kjöt frá
Goða í ágúst
Samkvæmt uppiýsingum frá Framleiðsluráði landbúnaðarins hefúr
innlagt kjöt hjá SS minnkað meira að undanfömu en nemur samdrætti
í kindakjötsframleiðslunni. Það má, samkvæmt heimildum Goða hf.,
m.a. rekja til þess að SS hefur ekki getað staðið í skilum við bændur um
greiðslu fyrir sauðfíárafurðir og hafa framleiðendur því leitað til ann-
arra sláturleyfishafa. SS hefúr að þessum sökum vantað kjöL
Ástæðan er ekki sú að Goði hafi neit-
að SS um sölu. Vegna frétta um við-
skipti SS og Goða hefur Goði hf.
óskað eftir að koma eftirfarandi upp-
lýsingum á framfæri um viðskipti fyr-
irtækisins við Sláturfélag Suður-
lands:
í nóvember 1990 seldi Búvörudeild
Sambandsins (nú Goði hf.) SS 190
tonn af kjöti, sem SS fékk á góðum
kjörum og vaxtalausum greiðslu-
fresti. SS hefur ekki enn greitt Goða
þetta kjöt að fúllu.
Á liðnum vetri leitaði SS eftir kaup-
um á 50 tonnum af ærkjöti hjá Goða
hf. Sú sala var samþykkt af hendi
Goða og skyldi SS fá 60 daga vaxta-
lausan greiðslufrest á kjötinu frá lok-
um úttektarmánaðar. Um var að ræða
kaup á vinnslukjöti sem SS notaði i
kjötvinnslu sína. SS fór fram á afslátt
á skráðu verði sem ekki fékkst.
Skömmu síðar falaðist SS eftir 50
Tennis og
trimm
Nú í sumar starfrækir íþrótta- og
tómstundaráð Reykjavíkur þrjá
tennisvelli á svæði Skautasvellsins
í Laugardal. Vellimir eru opnir alla
daga frá kl. 9:00 til 21:00 og eru
leigðir á 500 kr. á klukkustund.
Spaðar og boltar eru leigðir á 100
kr. Mjög góð bað- og búningsað-
staða er við vellina.
Mögulegt er að bóka tíma í símum
679705 og 685533. Er ennfremur
veitt aðstoð við útvegun mótspilara
og hægt er að fá tilsögn í tennis.
Tennisvellir eru einnig við gervi-
grasvöllinn í Laugardal og eru þeir
leigðir á 300 kr. á tímann. Upplýs-
ingar um þá velli fást í síma 36634.
íþrótta- og tómstundaráð vekur at-
hygli á því að bað- og búningsað-
staða er opin öllum, þeim sem
trimma í Laugardalnum, gegn 100
kr. gjaldi.
tonnum til viðbótar. Salan hafði hins
vegar verið það góð hjá Goða að fyrir-
tækið gat ekki orðið við þessari
beiðni.
Hinn 24. júní sl. óskaði SS munn-
lega eftir að kaupa 100 tonn af DIA
diikakjöti frá Goða hf., eða neyslu-
kjöti, sem fulltrúar Goða tóku vel
undir. Það var staðfest í bréfi 26. júní.
SS svaraði með bréfi dags. 3. júlí þar
sem fram kom að SS óskaði eftir að
kaupa 130 tonn af DIA dilkakjöti á
tímabilinu 15. júlí til 15. ágúst með
6% afslætti frá heildsöluverði, sem
greitt yrði með vaxtalausum víxli með
60 daga gjaldfresti frá lokum úttekt-
armánaðar. Þessu kauptilboði hafnaöi
Goði í bréfi 15. júlí á þeirri forsendu
að um óeðlileg viðskiptakjör væri að
ræða, en kvaðst reiðubúinn til að
halda viðræðum áfram.
Tvenns konar ástæður eru fyrir því
að viðskiptakjörin voru talin óeðlileg.
í fyrsta lagi að opinber verðlagning
dilkakjöts gefi ekki svigrúm á þeim af-
slætti, sem SS fór fram á. í öðru lagi
hafi verið farið fram á 35 daga lengri
greiðslufrest en reiknað er með í
verðlagningu kjötsins. í samtali 17.
júlí var bréfið frá 15. áréttað við SS og
boðist til að veita nokkum afslátt.
Hinn 23. júní tókst samkomulag um
að Goði seldi SS100 tonn af dilkakjöti
(DIA) með 3% afslætti af heildsölu-
verði kjötsins og vaxtalausum greiðsl-
um til 2. nóvember nk. Kjötið verður
afgreitt í ágúst. -SIS
Ný landsstjórn
ITC á íslandi
Á sjötta landsþingi ITC á íslandi,
sem haldið var dagana 24.-26. maí
sl., var ný stjóm Landssamtakanna
kjörín fyrir starfsáríð 1991-1992.
Stjórnina skipa: Sigríður Jóhanns-
dóttir forseti, Kristín Hraundal 1.
varaforseti, Ingimunda Loftsdóttir
2. varaforseti, Rósa Halldórsdóttir
ritari, og Ólöf Gísladóttir gjaldkeri.
Nýja stjórnin tekur til starfa 1. ágúst
nk.
Fráfarandi forseti er Halldóra Guð-
mundsdóttir. Regluleg starfsemi
hefst í byrjun september og stendur
til loka maí. ITC er kjörinn vettvang-
ur fyrir þá sem vilja auka sjálfstraust
sitt, læra fundarsköp og öðlast færni
í að vinna í samvinnu við aðra.
Margir fyrrverandi aðilar í ITC
hafa verið kjörnir til forystu og trún-
aðarstarfa í öðrum félögum svo og á
vinnumarkaðnum. -js
Rannsóknasamkeppni ungra Evrópubúa:
Allir unglingar á aldrinum
15-20 ára geta tekið þátt
Árlega er haldin samkeppni Evr-
ópuþjóða um rannsóknaverkefni á
sviði umhverfismála á vegum stofn-
unarínnar Jugend forscht og Deut-
sche Bank í Þýskalandi. Keppnin í
ár verður haldin 21. til 26. nóvem-
ber nk. í Frankfurt við Main. Allir
unglingar á aldrínum 15-20 ára
geta tekið þátt í keppninni, óháð því
hvort þeir eru í skóla eða á vinnu-
markaðnum. Umhverfisráðuneytið
hefur milligöngu um að undirbúa
þátttöku íslenskra unglinga til að
fara sem fulltrúar íslands.
Þessi samkeppni er vettvangur til
að tengja hugvísindi, náttúruvísindi
og tækni. Nauðsynlegt er að um sé
að ræða frumhugmyndir og úr-
vinnslu, sem koma frá unglingun-
um sjálfum og sem geti stuðlað að
bættu umhverfi. Verkefnin geta ver-
ið einstaklingsverkefni, unnin af
tveimur saman eða hópverkefni.
Ferðir til Þýskalands og uppihald
þeirra, sem komast í lokaúrslitin, er
greitt af Deutsche Bank.
Á síðasta ári tók ísland í fyrsta sinn
þátt í þessari keppni. Þrjár ísfenskar
stúlkur fóru sem fulltrúar íslands til
Þýskalands með tvö verkefni. Ein
stúlknanna lýsti verkefni sínu með
þremur máluðum myndum, og voru
þær keyptar til þess að nota til kynn-
ingar á samkeppninni í ár.
Tilkynning um þátttöku og efnis-
þætti verkefnis þurfa að hafa borist
Umhverfisráðuneytinu eigi síðar en
15. ágúst nk., en verkefnin sjálf fyrir
30. ágúst nk. Allar nánari upplýsing-
ar um tilhögun keppninnar er hægt
að fá hjá ráðuneytinu. -js
Þorkell aðstoðar Sighvat
Sighvatur Björgvinsson, heilbrígð-
is- og tryggingaráðherra, hefur ráð-
ið Þorkel Helgason prófessor sem
aðstoðarmann sinn. Jafnframt hef-
ur Þorkeli verið veitt leyfi frá störf-
um við Háskóla íslands.
Þorkeli verður einkum falið að
starfa að endurskoðun heilbrigðis-
og tryggingaþáttar velferðarkerfis-
ins, með það í huga að stuðla að
aukinni hagkvæmni og skilvirkni.
Þorkell Helgason stundaði nám í
stærðfræði og aðgerðagreiningu og
lauk doktorsprófi frá Massachusetts
Institute of Technology árið 1971.
Síðan hefur hann unnið hjá Háskóla
íslands og var skipaður prófessor við
Raunvísindadeild árið 1985. -js