Tíminn - 30.07.1991, Page 16

Tíminn - 30.07.1991, Page 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300 RlKISSKIP NtTTIMA FLUTNINGAR Hatnarhusinu v Tryggvagotu S 28822 Bármále^olclcarfa9! UBWBREFAVWSKIPn Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga SIMI 91-676-444 TVÖFALDUR1. vinningur Jjniioix ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ1991 Akvörðun bandarískra yfirvalda: Islendingar þurfa ekki lengur vegabréfsáritun Frá og með l.október 1991 munu bandarísk yfirvöld ekki krefj- ast visa-vegabréfsárítunar af íslenskum ferðamönnum sem hyggja á dvöl í Bandaríkjunum í skemmrí tíma en 90 daga. Skip- ar Island sér þá í hóp með um tólf öðrum löndum, sem einnig fá þessa undanþágu. luaaaBi fi ? r l ;i „Margir ánægjulegir atburðir hafa átt sér stað á þeim 50 árum sem þjóðimar hafa starfað saman, og þetta er einn í viðbót,“ sagði Charl- es E. Cobb, sendiherra Bandaríkj- anna á íslandi, á fundi með blaða- mönnum í gær af þessu tilefni. Þessi nýja skipan mála kemur til með að auðvelda mjög afgreiðslu á íslenskum ferðamönnum til Bandaríkjanna. Á síðasta ári sóttu 8300 íslending- ar um vegabréfsáritun til Banda- ríkjanna. Að sögn Cobbs hefur fjöldi íslenskra ferðamanna til Bandaríkjanna aukist á síðustu ár- um. Cobb gerir ráð fyrir að yfir 90% landsmanna geti ferðast til Bandaríkjanna án visa-áritunar. Uppfylla þarf ýmis almenn skilyrði til þess að njóta þessarar undan- þágu, s.s. að eiga vegabréf. Fíkni- efnaneytendur, nasistar, glæpa- menn, menn sem af sjúkdóms- ástæðum eru hættulegir öðrum eða menn sem einhvem tímann hafa komist upp á kant við banda- rísk yfirvöld geta ekki notið þessar- ar undanþágu og verða að sækja um visa- áritun. Kommúnistar, sem uppfýlla öll skilyrði, geta ferðast óhindrað til Bandaríkjanna. Cobb segir að á undanfömum ámm hafi innan við 1% af íslenskum umsækj- endum um vegabréfsáritun verið hafnað. Það er skilyrði fyrir því að land geti fengið þessa undanþágu. Það er einnig skilyrði af hálfú Charles E. Cobb sendiherra f ræðustóli á fundi í Menningarstofnun Bandaríkjanna. Aðrir á mynd- inni eru f.v. Michael Maley, Andy Key, forstöðumaður Menningarstofnunarinnar, og Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri. Tímamynd: Pjetur. Bandaríkjamanna að tölvurák verði sett á öll íslensk vegabréf til þess að auðvelda afgreiðslu. Að sögn Þor- steins Geirssonar, ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðuneytinu, er það í bí- gerð. GS. Meint kvótamisferli á Hofsósi til rannsóknar hjá sýslumanninum í Skagafjarðarsýslu: Afla umskipað á laun á hafi úti Sjávarútvegsráðuneytið hefur óskað eftir því að sýslumaðurinn í Skagafjarðarsýslu taki tii rann- sóknar meint kvótamisferli tveggja báta frá Hosósi vegna gruns um að þeir hafi á laun skipað afla um borð í bát með krókaleyfi á hafi úti. Halldór Þ. Jónsson sýslumaður sagði í samtali við Tímann að rann- sókn þessi færi nú fram og gengi þokkalega. Hann gat ekki sagt um hvenær henni yrði lokið. „Taka þarf skýrslur af nokkuð mörgum til að hægt verði að sanna málið. Það eru sumarleyfi hjá mönnum og alltaf erfiðleikar á þessum tíma. En það verður reynt að hraða þessu eftir bestu getu,“ sagði Halldór. Grunur leikur á að eigendur bát- anna hafi haft með sér náið samstarf enda gætu þeir báðir hagnast veru- lega á því. Annar báturinn er með króka- veiðileyfi, sem þýðir að í þrjú ár má hann stunda handfæra- og línu- veiðar eins og hann getur. Leyfi þetta tók gildi síðastliðið haust, þannig að eftir tvö ár verður afla- reynsla hans metin og hann fær kvóta í samræmi við það. Hinn bát- urinn er með kvóta sem ætti að duga í hálft ár, og er þá miðað við stöðuga sókn. Grunur beinist að því að sá sem á kvótann hafi skipað afla á laun út í krókaleyfisbátinn á hafi úti. Ef málið reynist ótvírætt brot verð- ur það sent ríkissaksóknara til með- ferðar. Ægir Ólafsson hjá Sjávarútvegs- ráðuneytinu sagði að ekki væru fleiri slík mál til athugunar hjá ráðuneytinu. Hann sagði að það hefði verið vegna ábendinga frá fólki að þess var óskað að hálfu ráðuneyt- isins að þetta mál á Hofsósi yrði rannsakað. -SIS Reglugerö um lyfjakostnad: Vegna athugasemda almenn- lyfjahóps heiibrígðisráðuneyt- ings ætlar heilbrigðisráðherra isins, skai hlutur almennings að breyta nýútgefinni reglu- þannig aftur minnkaður, en gerð sinni um þátttöku hins hlutur ríkisins aukinn að opinbera í lyfjakostnaði. sama skapi. Vlð það minnkar Ekki hefur fengist uppgefíð ( vitaskuld sá sparnaður sem hverju breytingarnar felast ná- ráðherr* ætlaði sér að ná. kvæmiega. Einhver lyf verða Ekki er hægt að segja um hver væntaniega færð miili flokka, áhrif þetta hefur á þann sparn- þannig að ríkið takí aftur þátt í að sem ríkisstjómin hefur kaupum á þeim. gert ráðherra að ná í ráðuneyti Að sögn Jóns Sæmundar sínu öllu. Siguijónssonar, formanns -aá. Viðskiptin við Lóndranga skoðuð Rannsóknin á Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur: Opinber rannsókn á viðskipta- háttum stjómenda Hraðfrysti- húss Ólafsvíkur skömmu fyrir gjaldþrot félagsins beinist nú að skuldabréfaviðskiptum Hrað- frystihússins og Lóndranga hf. til viðbótar fyrri rannsóknarþátt- um. Eftir því sem komist verður næst mun málið snúast að mestu leyti um óeðlilegar greiðslur á leigu til Lóndranga hf sem greiddar voru með skuldabréfum í eigu Hrað- frystihúss Ólafsvfkur sem gefin voru út þegar frystihúsið gekk úr S.H. Eins og kunnugt er af frétt- um fór Landsbankinn fram á op- inbera rannsókn á athöfnum stjórnarmanna Hraðfrystihúss Ól- afsvíkur í byrjun júlí. Ólafur Gunnarsson var forstjóri Hraðfrystihúss Ólafsvíkur. Hann situr og í stjórn Lóndranga hf. ásamt nánum aðstandendum og er fyrirtækið í eign fjölskyldu hans. Fulltrúi bæjarfógetans í Ólafsvík varðist allra frétta af málinu og vildi ekkert láta hafa eftir sér. Það sama gildir um fulltrúa Lands- bankans sem vörðust allra frétta og vísuðu á bæjarfógeta Ólafsvík- ur. Vlnningstolur 27. jÚIÍ 1991 (5)^8)®) ú 22) VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5a!5 0 2.252.263 2. 4al5< m 2 195.713 3. 4a!5 105 6.430 4. 3a!5 3.828 411 Heildarvinningsupphæð þessa viku: kr. 4.892.147 /Sm 5 upplysingar simsvari91 -681511 lukkulina991 002

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.