Tíminn - 13.08.1991, Page 7
Þriðjudagur 13. ágúst 1991
Tíminn 7
VETTVANGUR
Gunnar Dal:
HVAÐ ER HEIMSPEKI?
Heimspeki og heimspekingar eru þýðingar á grísku orðunum fíló-
sófía og fílósóf. Þau eru dregin af grískri sögn, fílósófein, sem
merkir „að elska vísdóm“. Fflósóf var sá kallaður sem elskaði Sóf-
íu, grísku viskugyðjuna. Höfundur þessara orða og stofnandi fyrsta
heimspekiskóla Vesturlanda var Pýþagóras. Þegar Pýþagóras talaði
um að hann elskaði Sófíu, þá átti hann aðeins við að hann hefði
löngun til að leita þekkingar. Nú leita menn ekki að því sem þeir
eiga. Menn leita að því sem þá vantar. í orði Pýþagórasar, fflósóf,
felst að heimspekingur sé sá, sem viðurkennir að hann sé fáfróður,
en leiti skilnings og beri virðingu fyrir allri þekkingu.
Heimspeki og heimspekingar eru
þýðingar á grísku orðunum fflósóf-
ía og fflósóf. Þau eru dregin af
grískri sögn, fflósófein, sem merkir
„að elska vísdóm“. Fflósóf var sá
kallaður sem elskaði Sófíu, grísku
viskugyðjuna. Höfundur þessara
orða og stofnandi fyrsta heimspeki-
skóla Vesturlanda var Pýþagóras.
Þegar Pýþagóras talaði um að hann
elskaði Sófíu, þá átti hann aðeins
við að hann hefði löngun til að leita
þekkingar. Nú leita menn ekki að
því sem þeir eiga. Menn leita að því
sem þá vantar. í orði Pýþagórasar,
fflósóf, felst að heimspekingur sé
sá, sem viðurkennir að hann sé fá-
fróður, en leiti skilnings og beri
virðingu fyrir allri þekkingu. Þegar
Pýþagóras býr til þetta orð þá vill
hann með því greina sig frá þeim
mönnum sem kölluðu sig vitringa
eða sófísta.
Sumir kalla safn minnisatriða
þekkingu. Aðrir kretjast skilnings
sem nær dýpra en til yfirborðs vit-
undarinnar. Þeir krefjast þess að
þekkingin verði eðlislæg og geri
manninn að göfugri, hógværari og
betri manni.
Enginn þekkir í raun og veru
nema lítið brot, jafnvel af nálæg-
asta umhverfi. Það situr enginn
uppi með endanleg svör. Aristóte-
les segir að maðurinn verði heim-
spekingur þegar hann sé orðinn
nægilega skynsamur til að undrast.
Hann segir líka að það sé eðli allra
manna að vilja vita. Eins og vikið
verður að hér á eftir þá hefur heim-
speki mörg andlit og skilgreining-
amar em margar. Og þessar skil-
greiningar sýna að hægt væri að
svara þeirri spurningu á ótal vegu,
hvað það sé að vera heimspekingur.
En við skulum um sinn láta orðið
halda sinni fornu merkingu. Heim-
spekingur er hógvær maður sem
veit að hann er fáfróður og leitar.
Hann reynir án fordóma að komast
að hinu sanna um eðli manns og
heims.
Á þessa einföldu skilgreiningu Pý-
þagórasar gætu sennilega allir þeir
heimspekingar fallist sem saga
heimspekinnar fjallar um. En
hverju erum við nær? Er ekki hægt
að skilgreina „hið sanna" á ótal
vegu? Og geta menn ekki leitað
„hins sanna" eftir ótal leiðum?
Hvers eðlis er veruleiki heimspek-
ingsins? Og hvaða aðferð notar
heimspekingur til að finna þennan
vemleika sinn? Höfum við svör við
þessum spumingum? Já, en ekki
eitt svar, heldur mörg og sundur-
leit eins og saga heimspekinnar
sýnir.
Margir heimspekingar okkar tíma
telja það höfuðviðfangsefni heim-
spekinnar að rannsaka tungumál
og skilgreina orð: Heimspekihug-
takið er þrengt. Heimspeki verður
fyrst og fremst gagnrýnin rann-
sókn á máli leikra og lærðra. Með
þessu hyggjast menn nema burt
allt hið merkingarlausa, óljósa og
tvíræða, en þetta telja talsmenn
þessarar heimspeki rót flestra
heimspekilegra vandamála. Þessi
skilningur eða misskilningur var
ríkjandi í ensk- amerískri heim-
speki í nokkra áratugi, en virðist
nú á undanhaldi.
Heimspeki er flatarmálsfræðileg
hugsun eins og rökfræði. Hún er
öguð hugsun, þar sem föstum leik-
reglum er fylgt. En heimspeki er
líka skapandi hugsun sem leitar út
fyrir og upp fyrir fyrri þekkingu og
reynslu. Grundvallareðli allrar
þekktrar tilveru og um leið mann-
Fyrri grein
legrar hugsunar er það að vera sí-
fellt að breytast, þótt breytingarnar
séu hægfara og menn taki ekki eft-
ir þeim fyrr en síðar. Mannleg
hugsun er í vexti. Sé heimspeki í
forystuhlutverki, þá nær hún að
sjáifsögðu líka yfir þetta stóra gráa
svæði, þar sem ný hugsun er í mót-
un og orð og hugtök hafa ekki eins
afmarkaðar útlínur og í flatarmáls-
fræðilegri hugsun.
Hvað er heimspeki? Vitrir menn
svara ekki þessari spurningu. Þeir
útskýra aðeins hvers vegna henni
verður ekki svarað nema með
óljósum orðum. En mönnum
finnst eigi að síður að skýr svör séu
nauðsynleg.
Það liggur beinast við að segja að
Gunnar Dal:
heimspeki sé verk heimspekinga.
En hverjir eru þá heimspekingar?
Og hvað er það f bókum þeirra sem
gerir þær heimspekirit? Þessi af-
mörkun er erfið. Heimspeki er vel
skipulögð hugsun sem nær til allra
fræðigreina, lista, bókmennta,
stjórnmála og trúarbragða. Skil-
greiningar á þessum grunni verða
jafnmargar og ólíkar og heimspek-
ingarnir í sögu heimspekinnar. Og
hver skilgreining mótast hverju
sinni af heimsmynd þess sem hugs-
ar, þjálfun hans og ögun í hugsun.
Þær geta líka mótast af menningar-
legum fordómum og þrönghyggju.
Engin skilgreining á heimspeki
nýtur almennrar viðurkenningar
þegar yfir lengra tímabil er litið.
Lfffræðingur getur auðveldlega
svarað því hvað líffræði er. Og hann
getur nokkurn veginn sagt til um
hvar takmörk hennar liggja. Og
um þessi svör næst nokkuð góð
samstaða hjá líffræðingum.
Allir heimspekingar hafa, þrátt
fyrir það sem sagt var um vitra
menn, svarað spurningunum:
Hvað er heimspeki og hvert er um-
fang hennar? En um svör þeirra
næst engin samstaða. Það er stund-
um sagt að það að vera heimspek-
ingur sé að vera ósammála. Allir sjá
að nútíma líffræðingur veit helm-
ingi meira í sinni fræðigrein en
menn gerðu fyrr á öldum. En vita
nútímamenn miklu meira nú um
heimspekilegar spurningar heldur
en gert var fyrir árþúsundum? Seg-
ir ekki sjálfúr Alfred North White-
head að saga vestrænnar heimspeki
síðustu árþúsund sé ekki annað en
neðanmálsskýringar við heimspeki
Platós?
Skilgreining Aristótelesar á heim-
speki er árþúsunda gömul. Hún er
nægjanlega víðtæk til að innan
hennar rúmast nánast allar skil-
greiningar um hlutverk heimspek-
innar. Skilgreining hans átti að
rúma ekki aðeins þann veruleika
sem mannshugurinn kallar veru-
leika, heldur allan veruleika. Síðar
greindu menn vísindi og trú frá
hinni upphaflegu rót sinni. En hef-
ur þessi skilnaður farið fram að
fullu? Er ekki enn æðsti og þróað-
asti hluti hverrar fræðigreinar
heimspeki hennar? Verður ekki vís-
indamaður sem fer lengst út í jaðra
fræðigreinar sinnar orðinn að
heimspekingi — jafnvel dul-
hyggjumanni áður en lýkur? Allt er
þetta að sjálfsögðu undir skilgrein-
ingum manna komið. En tilhneig-
ing nútímamanna sýnist vera sú að
nálgast aftur hina víðfeðmu skil-
greiningu sem menn hurfu frá upp
úr miðöldum. Og af einhverjum
ástæðum hafa menn aldrei hætt að
kalla lærða menn í vísindum Dr.
ÚR VIÐSKIPTALÍFINU
EBE: Stöðvun
aðflutnings
(flótta)fólks
Aðildarlönd EBE hafa komið sér
saman um tvær samkomulagsgerð-
ir um aðflutning fólks frá öðrum
löndum: Dublin-samkomulagið um
griðastað fyrir flóttafólk, en að því
geta flóttamenn aðeins sótt um
dvalarleyfi í einu aðildarlandanna.
Og samkomulagið um komuleyfi
útlendinga, en að því setja öll aðild-
arlöndin sams konar visa- skilmala.
Endanlega staðfestingu hafa sam-
komulagsgerðimar tvær enn ekki
hlotið en vænst er að þær gangi í
gildi í árslok 1992. Nokkur EFTA
lönd æskja að verða aðilar að sam-
komulagsgerðunum.
Á árunum 1973-1990 fluttust að
jafnaði 700.000-900.000 manna til
í Vestur-Evrópu nam neysla alkó-
hóls liðlega 10 1 á mann (1990?)
Hún minnkaði þó á níunda áratugn-
um í flestum löndum hennar, á ítal-
íu um 27%, í Frakklandi um 10,1%,
en jókst á Bretlandi um 3,9% (og
drekka Bretar nú 70% meira en
1960). Þá hefur orðið breyting á
neysluvenjum. Frá 1970 hefur
neysla léttra vína minnkað um 25%
á Spáni, um liðlega 33% í Frakk-
landi og um 40% á Ítaiíu, en aukist
um, 67.% j jfyskalandi, .2.00%. í Hol-.
Vestur-Evrópu. En fjöldi þeirra sem
kváðust vera flóttamenn óx úr
14.000 árið 1973 upp í 71.000 árið
1983 og loks upp í 500.000 árið
1990. Aðildarlöndum Efnahags- og
framfarastofnunarinnar bárust um-
sóknir um griðastað frá 2,2 milljón-
um manna 1983-1990.
(Samkvæmt Finandal Times 23. júlí 1991)
andi og 322% í Bretlandi. Af léttum
vínum drekka Bretar þó aðeins sjöt-
tung á við Frakka og ítala.
Neysla bjórs og léttra vína í Vest-
ur-Evrópu (1990). Lítrar á mann.
Land Bjór Létt vín
Þýskaland 289 38
Danmörk 127 19
Luxemborg 119 61
Belgía 115 26
Bretland 110 12
.írland, , - . . . . . . ,90. . - 4
Neysla áfengis í Vestur-Evrópu
Land Bjór Létt vín
Holland 88 15
Spánn 71 47
Portúgal 64 53
Frakkland 41
Land Bjór Létt vín
Grikkland 38 30
Ítalía 22 70
Heimild: The European 19.-21. júh' 1991 eft-
ir Worid Trink Trends 1991.