Tíminn - 13.08.1991, Blaðsíða 16
AUOLYSINOASIMAR: 680001 & 680300
,Bén^leruokkarfa9’
RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR VERBBRtHWIBSKIPn
Halnorhusinu v Tryggvagotu SAMVINNUBANKANS
S 28822 SUÐURLANDS8RAUT 18, SfMI: 688568
SIMI
91-676-444
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga
TVÓFALDUR1. vinningur
Tíminn
ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1991
ALMALD A
ENDASTÖÐ
Efnislegt samkomulag um álver á Keilisnesi náðist á fundi iðn-
aðarráðherra og forstjóra Atlantsálfélaganna í Reykjavík í gær:
Efnislegt samkomulag hefur náöst í öllum meginþáttum álviö-
ræönanna. Iðnaöarráðherra fundaöi með forstjórum Atíantsálfé-
laganna í Reykjavík í gær og sagöi hann eftir fundinn að málið
væri nú komið á endastöð.
Á fundinum í gær var farið yfir alla
þætti málsins og niðurstöður við-
ræðna undimefnda og samninga-
hópa reifaðar. Jón Sigurðsson iðnað-
arráðherra sagði eftir fundinn að það
væri ánægjulegt að geta skýrt frá því
að fiindurinn hafi verið árangursrík-
ur. ,Á fiindinum var staðfest að efnis-
legt samkomulag hefur náðst um öll
meginatriði samninganna milli ís-
lands og Atlantsálsfyri rtækjanna.
Þess vegna geta nú Atlantsálsaðilam-
ir snúið sér að því að semja við
bankastofrianir og lánveitendur á
hinum alþjóðlega lánamarkaði um
fiármögnun framkvæmdanna,"
sagði Jón Sigurðsson.
En það er ekki einungis fjármögn-
unin sem er eftir. Stjómir fyrirtækj-
anna þriggja sem mynda Átlantsál,
Alumax, Hoogovens og Granges,
eiga eftir að fjalla um þessa niður-
stöðu og samþykkja hana fyrir sitt
leyti. Forstjórar fyrirtækjanna sögð-
ust vera bjartsýnir á að það samþykki
fengist, þó ekkert væri hægt að full-
yrða. Aðspurðir um fjármögnunina
sögðu þeir að tveir bankar á megin-
landi Evrópu hefðu sýnt málinu
áhuga, en engar formlegar viðræður
væru hafnar. Þeir sögðust þó vera
bjartsýnir á að hagstæðir samningar
næðust
Raforkusamningurinn við Atlantsál
er til 25 ára með framlengingartíma í
tvisvar sinnum fimm ár. Ihonum eru
endurskoðunarákvæði og á tímabil-
inu má óska efltir endurskoðun tvisv-
ar, fyrst eftir tíu ár.
Raforkuverð er samkvæmt samn-
ingnum byggt upp sem hlutfall af
verði á áli með nánari skilgreining-
um í samningnum. Aðspurður sagði
Jóhannes Nordal, stjómarformaður
Landsvirkjunar og formaður ís-
lensku samninganefridarinnar, að
miðað við markaðsástand núna væri
raforkuverðið 10 mill. í samtali við
■nm
Per O. Aronson, forstjóri Gránges, róttlr Bond Evans, forstjóra Alumax, skjöl á blaöamannafundi
í gær. Max Koker, forstjóri Hoogovens, situr á milli þeirra. Tlmamynd: Arl
Tímann sagði Jóhannes að raforku-
samningurinn væri ásættanlegur.
,Jíg held að það sé enginn vafi á því
að þetta er verð sem er samkeppnis-
hæft, það þarf að vera það. Að sjálf-
sögðu vill maður alltaf fá sem hæst
verð, við hefðum ekki frilsað við því
að fá hærra verð. En miðað við allar
aðstæður og stöðu málsins þá teljum
við þetta vera viðunandi verð,“ sagði
Jóhannes. Aðspurður sagði hann
þetta verð ekki vera lægra en þeir
gerðu ráð fyrir í upphafi. „Við höfum
alltaf gert okkur grein fyrir því að raf-
orkuverðið er það sem skiptir máli.
Án raforkuverðs sem er samkeppnis-
hæft, væri ekki svona iðnaður byggð-
ur á íslandi. Það er ekkert annað sem
getur komið í staðinn fyrir sam-
keppnishæft raforkuverð tíl að gera
það álitlegt að byggja svona stórt fyr-
irtæki hér á landi," sagði Jóhannes.
Aðspurður sagðist Jóhannes Nordal
telja það líklegt að Atlantsálfyrirtæk-
in gætu orðið sér útí um hagstætt
fjármagn til að reisa álverksmiðju
hér á landi. .Jriarkaðurinn hefur
þyngst ftá því í fyrra, þegar þeir fjár-
mögnuðu álbræðslu sem þeir eru að
byggja í Kanada. Ég held að það sé
ástæða að ætía að þetta muni takast
með þokkalegum kjörum."
Heildarkostnaður íslendinga af
þessum samningum er um 70 millj-
arðar króna. Heildarfjárfestingin í ál-
verinu er núna áætluð 43 milljarðar
og 27 milljarðar í virkjunum og hlut-
um því tengdu. Áætlað er að aðal-
fiamkvæmdatími verði á árunum
1993-4 og gert er ráð fyrir að verk-
smiðjan taki til starfa árið 1995
—SE
Ólafur Ragnar Grímsson fær skýringar á
fríverslunarlista með landbúnaóarvörur:
SLEGIST UM
PRENTVILLU
Fríverslunarlisti, sem Ugður var
fram í vlðræðum um evrópskt
efnahagssvæði juur sem fram
kemur að íslcndingar hafl verið
tilbúnir til að heimila innflutning
á ákveðnum mjólkurafurðum,
var til umræðu á fundi utanríkis-
málanefndar i gær. Að sögn Ólafs
Ragnars Grfmssonar, fulltrúa Al-
þýðubandalagsíns í nefndinni
scm krafist hafði skýringa á þess-
um ilsta, komu fram fullnægj-
andi skýringar hjá Hannesi Haf-
stein aðalsamningamanni ís-
iands í EES viðræðunum á fund-
inum í gær. Óiafur segir að fram
hafl komið hjá Hannesi að ekkcrt
samkomulag hafl verið gert af ís-
lands hálfu um umræddar land-
búnaðarvörur og ísland hafl ekki
einu sinni tekið þátt í samninga-
viðræðum um þær og að það væri
prentvilla f skjölum frá EFTA og
EB að það væri ekki tekið fram að
ísland tók ekki þátt í þessum við-
ræðum. JÞað er auðvitað mjög
ánægjulegt að fá þetta fram en
það vekur hins vegar spuralngar
um hvernig f ósköpunum utan-
ríkisráðherra og fulltrúar utan-
ríkisráðuneytisins héldu því fram
hér heima fyrir viku að þetta væri
fínt samkomulag, sjáifsagt og
cðlilegt og ekkert við það að at-
huga,“ sagði Ólafur Ragnar. Að-
spurður hvort ekki hafl legið Ijóst
fyrir lengi að umræddar vörur
væru inni á hessum frfversiunar-
lista, sagði Olafur að sú umræða
væri ekki aðalatriði nú, því ekki
hafl verið samið um neitt og ís-
lendingar hafl ekki elnu sinni
tekið þátt f samningaviðræöum
um málið. Ólafur sagði aðspurð-
ur að ef samningar hefðu tekist
um sjávarútvegsmálin hefðu ís-
lendingar og EB orðið að taka
upp sérstakar viðræður á næstu
mánuðum tun Iandbúnaðarmál
sammkvæmt þessum upplýsing-
um frá aðalsamningamanni ís-
lendinga í Brussel.
Litháar biðja Islendinga
að kæra Moskvustjórnina
Alþingi tslendinga og ríkisstjórn-
inni hefur borist erindi frá lit-
háska þinginu í Vilníus þar sem
farið er fram á að þjóðþing og rík-
isstjómir íslands og Danmerkur
kæri stjórnvöld í Moskvu til ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna,
„vegna síðustu atburða þar í
landi“, eins og segir í bréflnu.
Málið var rætt á fundi utanríkis-
málanefndar í gær. Nefndarmönn-
um bar saman um, og er sennilega
ekki um að villast, að Litháar vís-
uðu þar til morða á sjö litháskum
landamæravörðum nú fyrir stuttu.
Utanríkismálanefnd tók ekki af-
stöðu til málsins, og er það nú til
umfjöllunar í utanríkisráðuneyt-
inu. íslensk stjórnvöld hafa sam-
ráð við Dani um framhaldið.
Málið er í hæsta máta sérstætt og
flókið. Það er ekki hlaupið að því
að kæra sovésk stjórnvöld, eða
hvern annan, fyrir öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna. Þá hefði það
vitaskuld slæm áhrif á sambúð ís-
lands og Sovétríkjanna. Og síðast
en ekki síst eru engar óyggjandi
sannanir fyrir því að sovésk stjóm-
völd séu ábyrg fyrir morðunum.
Því hlýtur sú spurning að vakna
hvers vegna litháska þingið biður
íslendinga að kæra sovésk stjórn-
völd fyrir eitthvað sem enginn veit
hvort þau bera ábyrgð á. Eyjólfur
Konráð Jónsson, formaður utan-
ríkismálanefndar, sagði í gær að
beiðnin tengdist eðlilega stuðn-
ingi íslendinga við sjálfstæðisyfir-
lýsingu Litháa og því að bráðlega
yrði komið þar á formlegu stjórn-
Skipatækni
höföar mál
Skipatækni hf. hefur stefnt Sigurði
Ingvarssyni og krafist þess að hann
verði dæmdur til þyngstu refsingar
sem landslög leyfa vegna meintra
aðdróttana og ærumeiðandi um-
mæla um hönnun Vestmannaeyja-
ferju.
Sigurður hélt því opinberlega fram
að skipið sem áformað var að smíða
í Noregi eftir teikningum Skipa-
tækni yrði stórgallað, hættulegt og
óhagkvæmt í rekstri.
-js
málasambandi. Það væri eðlilegt
að Litháar leituðu eftir stuðningi
hér.
-aá.
Vlnningstölur 10. ágúst 19911
(jh( (2< )J(36) J5)
VINNINGAR FJOLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ A HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 0 2.384,848
2. 4a(5f 103.568
3. 4al5 86 . 8.309
4. 3af 5 3.573 466
Heildarvinningsupphaaö þessa viku: kr. 5.178.712
m 1 «
UPPLVSINGAR SIMSVARI91-681511 lukkuuna991 002